Alþýðublaðið - 20.12.1973, Side 11
ÚR ÖLLUM ÁTTUM I Fíiiinn
Ráöagóðir kaupmenn
Kaupmenn i Vestmannaeyjum láta sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. A laugardaginn áttu flestir þeirra von á vörusendingum
með flugvél frá Reykjavik, en þá brá svo við, að flugvöllurinn i
Eyjum var isi lagður svo ólendandi var á honum.
Slikt er afar sjaldgæft i Eyjum, og þvi var enginn mannskapur
tiltækur til að ryðja völlinn. Þá voru það kaupmennirniiysem drifu
sig út á flugvöll, ruddu hann i snarhasti og sandbáru svo. Gat þvi
vélin lent eins og áætlað var. Voru helstu viðskiptajöfrarnir i Eyj-
um við isruðninginn ásamt liði sinu, svo sem Trausti Marinósson,
Axel ó. Lárusson og Kolbeinn ólafsson.
Það skyggði nokkuð á ánægju kaupmannanna, að þegar til kom
reyndist flugvélin aðeins hafa stærstu sendingarnar innanborðs,
og fengu því ekki allir kaupmenn úrlausn í þetta skipti.
Ársaflinn um 900 þús. lestir
Samkvæmt bráöabirgðatölum Fiskifélags Islands var heildar-
fiskafli íslendinga orðinn 872,420 lestir um siðustu mánaöamót.
Aflabrögð hafa veriö einstaklega treg i desember vegna ógæfta,
svo liklega verður heildarafli ársins um 900 þúsund lestir. Er þetta
rúmlega 100 þúsund lestum meiri afli en I fyrra.
Það er loönan/Sem gerir gæfumuninn i þetta sinn, loðnuaflinn I
ár er 436,841 lestir i móti 277,655 lestum i fyrra. Þorskaflinn er
minni en i fyrra, sérstaklega hjá bátum. Togaraafli er meiri/enda
hefur átt sér stað umtalsverð fjölgun togara. Rækju- og spærlings-
veiöi hefur verið meiri i ár en i fyrra, en sild, hörpudiskur og hum-
ar hefur ekki veiðst eins vel.
Lagmetið eignast 1/41 dosinni!
Sölustofnun lagmetisiðnaðarins hefur keypt 25% hlutafjár i
Dósagerðinni hf, að upphæð fimm milljónir króna. Fær S.L. tvo
menn af fimm i stjórn verksmiðjunnar.
Undanfarið hefur verið unnið aö endurskipulagningu og stækkun
Dósagerðarinnar. I lögum um S.L. er heimild fyrir stofnunina að
ganga inn i slikt fyrirtæki, og var ákveðið að ganga til móts við
Dósagerðina hf, til aö tryggja lagmetisiðnaðinum hentugar um-
búðir. Fær S.L. ýmsa aðstöðu i húsnæði Dósagerðarinnar.
Á rassinn
og þá
gengur
allt betur
Þessi mynd er ekki
úr hringleikahúsi,
eins og ætla mætti.
Hún er aðeins frá
venjulegri reglu-
bundinni rannsókn,
sem filar eins og
önnur dýr verða að
undirgangast i dýra-
garðinum i Los
Angeles i Banda-
rikjunum. Jim
Whittle er sá, sem
skoðar filana með
reglubundnum hætti,
og hann hefur kennt
þessum fil að setjast
á rassinn meðan á
rannsókninni stend-
ur — sem við það
verður mun auð-
veldari og þægilegri
fyrir báða aðila.
Lögreglumenn gefa ekkert eftir
HOTA AÐ HÆTTA UM ARAMOT
Enn hefur rikisvaldið
ekki náð samkomulagi
við lögreglumenn um
flutning á þeim yfir til
rikisins, og að þvi er
Eggert Bjarnason, for-
maður Lögreglufélags
Reykjavikur, sagði við
Alþýðublaðið, rikti al-
gjör samstaða meðal
manna á fundi, sem
haldinn var i félaginu á
sunnudaginn, um að
ganga úr starfi um
næstu áramót náist
ekki samkomulag. Þá
sagði Jónas Jónasson,
formaður Landssam-
bands lögreglumanna,
við Alþýðublaðið, að
ekki hafi verið boðaður
fundur með lögreglu-
mönnum og rikis-
valdinu fyrir áramót til
þess að ræða þessi mál.
,,Við eigum eftir að
endurskoða kröfur okk-
ar miðað við þá
samninga, sem hafa
náðst milli rikisins og
BSRB”, sagði Jónas,
„og þegar við erum til-
búnir að taka upp við-
ræður að nýju látum
við samninganefnd
rikisins vita. Reyndar
finnst mér, að þeir
hefðu átt að hafa sam-
band við okkur og boða
á fund sjálfir.”
Á fundinum i
Lögreglufélagi
Reykjavikur var skýrt
frá nýundirskrifuðum
kjarasamningi BSRB
og rikisins, og sérkröf-
ur lögreglumanna
kynntar.
iH
/
Ahugamaður
Knattspyrnan á
hvarvetna vinsæld-
um að fagna. Hér er
áhuga- „maður” á
ferð, sem daðrar við
boltann sinn.
Umsóknir
um styrk
úr
Finnska
JC-sjóðnum
Finnski JC-sjóðurinn er stofnaður af Junior
Chamber Finnlandi og Junior Chamber Islandi
með fé, sem safnað var í Finnlandi og Svíþjóð
með sölu límmiða með íslenzka fánanum.
Markmið sjóðsins er að styrkja skólanám unglinga
frá Vestmannaeyjum á aldrinum 14—19 ára,
utan Vestmannaeyja. Styrkveiting JC-sjóðsins nær
til hverskonar náms, nema skyldunáms og
háskólanáms.
Umsækjendur geta verið aðstandendur styrkþega
eða styrkþegi sjálfur. Ef styrkþegi nýtur
fjárhagsaðstoðar frá fjölskyldu sinni, er styrkurinn
greiddur til fjölskyldunnar.
Stjórn sjóðsins skipa. Erkki Aho, Kouvola,
Finnlandi, Jón E. Ragnarsson og Ólafur
Stephensen, Reykjavík. Endurskoðendur eru:
Rolf Zachariassen, Heilola, Finnlandi og Reynir
Þorgrímsson, Kópavogi.
Útfyllt umsóknareyðublöð skal senda til: Finnska
JC-sjóðsins, pósthólf 579, Reykjavík.
Eyðublöðin skulu hafa borist fyrir 31. Des. 1973
Skrifstofur bæjarstjórnar Vestmannaeyja í
Vestmannaeyjum og í Hafnarbúðum afhenda
umsóknareyðublöð og gefa jafnframt nánari
upplýsingar.
FINNSKI JC-SJÓÐURINN
PÓSTHÓLF 579
REYKJAVÍK
Fimmtudagur 20. desember 1973.
0