Alþýðublaðið - 29.12.1973, Qupperneq 12
alþýðu
I n RTÍTfll
í dag er búist viö, að
lygni i Reykjavík og ná-
grenni og létti til eftir
norðaustanáttina og
snjókomuna i nótt. i
fyrstu verður frostlitið,
en siðar i dag er reiknað
með 4—5 stiga frosti.
í gær var austnorð-
austanátt í Reykjavik og
nágrenni og hiti við
frostmark. Slydda var
syðst á landinu og frost
1—4 stig. Fyrir norðan
var 3—9 stiga frost og
kaldast 12 stiga frost á
Sandbúðum.
KRILIÐ
30& /NN urt)L*■ 5W srefN UNfí
i
TRuFl fí
mr/Ð VIRVIR | To’fVAS
i
1♦ ÚR fjflLL INU
HURL1 TflU(r II
2E/HS vmn
srer.m &RKUK
/IffflR 5 CTRQ LBU< KONN t
VF/Ð /N £LT> fjflLL
i
Þaö gekk ekki erfiðislaust
aökoma (h)rósinni i barm siö-
asta rósarhafa ársins. Fyrir
valinu varö aflaklóin Gunnar
Arason, skipstjóri á Lofti
Baldvinssyni EA, sem veitt
hefur fyrir meira en 100 millj-
ónir i ár, bæöi á loðnu og síld.
Auk Gunnars var önnur afla-
kló meö bátinn um tima, Þor-
steinn Gislason. Þeir, og aðrir
islenskir sjómenn eiga siðustu
(h)rós ársins svo sannarlega
skilið.
Þaö var okkar maöur á
Akureyri, Jón E. Guöjónsson,
sem braust i erfiðri færð til
Dalvikur, ásamt 15 ára
blómarós, Margréti ólafsdótt-
ur, sem festi rósina i barm
Gunnars, en Jón tók myndirn-
ar. Þeirra beið herleg veisla á
heimili Gunnars.
Gunnar var fámáll um afrek
sitt, en hann dró þó enga dul á
það, að án afbragös skiphafn-
ar á Lofti hefði árið ekki orðið
eins gjöfult og raun varð á.
Við áramót
Við kveðjum þetta góða gamla ár
sem göngu hóf með eld og skattafár
og bar i skauti þref og þorskastrið
en það er kveðin visa og liðin tið,
Við kveðjum þetta góða glistrupsár
og gerum ekki neinar veðurspár
þó það sé kannski allra veðra von
i vetur kringum bjarna guðnason.
Við kveðjum reifir þetta þorskaár
og þó að daprist allar fiskispár
við brosum gleittivið eigum óla jó
sem ætti að vera langt um meira en nóg.
(H)RÓS
í HNAPPAGATIÐ
KAKTUS-
ORÐAN
Ekki var jólakaktusinn okk-
ar sóttur, og þvi rennur kaktus
sá, sem myndin er af, nú yfir i
það að verða áramótakaktus
— eða kaktus ársins.
Kaktus ársins fær Magnús
Kjartansson, orkumálaráð-
herra, fyrir að hafa af frá-
bærri skarpskyggni sinni séð
til þess, að landið er nú meira
eða minna rafmagnslaust.
INHUHSVIDSKIPH leið
(TIL LÁNSVIOSklPTA
^BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
KOPAVOGS APOTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SENDIBIL ASTOÐIM Hf
FIMM 6 fðrnum vegi
Ætlar þú að vinna eitthvert heit með nýja árinu?
Markús Jósefsson, símvirki: Eg
hef aldrei unnið heit um áramót
og ætla ekki að gera neina
undantekningu nú. Ég held að
menn standi yfirleitt ekki við
heitstrengingar.
Kjartan Guðjónsson, skrif
stofumaður: Nei, það geri ég
aldrei. Mér finnst heitstrenging
of alvarleg til að gera hana að ó-
hugsuðu máli, og svo hefur mér
reynst að heitstrengingar fólks
geti reynst hálar eins og göt-
urnar nú.
Guðbjartur Ólason, bókari: Nei,
ekki núna, en ég hef gert það.
Eitt sinn ákvað ég t.d. að hætta
að reykja, og hætti i sex ár. en
nú er ég orðinn fullorðinn og lif
mitt fastmótað. svo ég tel það
ekki hafa tilgang.
Jón B. Jónsson, sagðist vera
gamalmenni: Nei. nei, nei, ör-
ugglega ekki, það hef ég aldrei
gert og ætla ekki að gera.
Gunnar Albertsson, verslunar-
maöur: Nei, ég hef aldrei gert
það. né hugsað út í það, og
hugsa mér ekki að bregða út af
vananum nú. —