Alþýðublaðið - 25.01.1974, Side 11

Alþýðublaðið - 25.01.1974, Side 11
Haukanna. Hér skorar hann úr Stigunum skipt bróðurlega JAFNT HJÁ ÁRM. OG HAUKUM Armann og Haukar skiptu bróðurlcga milli sin stigunum i viðureign sinni i fyrrakvöld. Lokatölurnar urðu 17:17, eftir að staðan i hálfleik hafði einnig verið jöfn, 9:9. Þetta var mikill baráttuleikur, sviptingar á báða bóga og gangurinn oft æði ein- kennilegur. Leikurinn var nefnilega ekki eins jafn og úr- slitatölurnar segja til um, það var velgengni eina minútuna og allt i kalda koli aðra minútuna. En þrátt fyrir þennan skrykkjótta gang, verður ekki annað sagt en úrslitin hafi verið réttlát. Ármann hafði frumkvæði i byrjun, en þegar staðan var 3:2 byrjaði óreglan. Haukar skora fimm næstu mörk og breyta stöðunni i 7:3. Þegar hér var komið sögu hefja Armenningar endurreisnarstarfið, og rétt fyrir leikhlé eru þeir allt i einu komnir yfir, 9:8. En jafnt var i hálfleik, 9:9. Armeningar halda sinu striki i byrjun s.h. og komast i 12:9, en þá verða enn þáttaskil i leiknum, Haukar skora fimm næstu mörk og hafa allt i einu yfirhöndina, 14:12! Það sem eftir var leiksins var öllu meira jafnvægi á hlutunum, og jafn- teflið var staðreynd, 17:17. Armenningar léku varnar- leikinn vel eins og fyrri daginn, og Ragnar var þokkalegur i markinu. En sóknin er meira • • Orugg forysta FH-inga FH er nú komið með mjög trausta stöðu á toppi 1. deildar, en staða Þórs er orðin erfið: FH Valur Fram Vikingur Haukar Armann ÍR Þór 5 0 3 3 4 0 2 3 2 2 2 1 1 1 161-147 161-153 170-168 147-161 117- 125 147-164 118- 149 10 9 8 7 6 5 3 Þessir eru markhæstir: Axel Áxelsson, Fram, 57 Einar Magnússon, Viking, 51 HörðurSigmarss., Haukum, 45 Viðar Simonarson, FH, 45 Agúst Svavarsson, ÍR 43 Gisli Blöndal, Val, 43 Gunnar Einarsson, FH, 43 Sigtr. Guðlaugsson, Þór, 38 Stefán Jónsson, Haukum, 33 Vilhj. Sigurgeirsson, 1R, 32 Guðjón Magnúss., Viking, 30 vandamál. t þessum leik var Jón Astvaldsson drjúgur að skora með hoppskotum, og hafði það mikið að segja, Vilberg var annars besti maður liðsins. Hjá Haukum var Stefán Jónsson mjög friskur i f.h. en sást varla i þeim siðari. Þá var Gunnar markvörður einnig mjög góður i f.h. Litið bar á Herði Sigmarssyni. Mörk Armanns: Vilberg 6(2 v), Jón 5, Björn 2, Olfert 2, Björn og Hörður eitt hvor. Mörk Hauka: Stefán 7, Hörður 3(2v), Elias 2, Ólafur 2, Arnór 2 og Sig. J. eitt mark. Ekki má skilja svo við þennan leik, að ekki sé minnst á dóm- gæsluna. Hún var heldur slök hjá þeim Jóni Friðsteinssyni og Hauki Þorvaldssyni i leik ÍR og Vals, en þó bar hún af sem gull af eiri dómgæslu þeirra Vals Benediktssonar og Magnúsar V. Péturssonar i seinni leiknum. Einhver hafði orð á þvi að þarna væri um að ræða sýnikennslu i þvi hvernig á ekki að dæma. Mennirnir eru greinilega ekki i neinni æfingu, og bar dómgæsla þeirra þess greinileg merki. —ss. Stefán Jónsson var markhæstur heldur þröngri aðstöðu. FH-ingar hafa það náðugt Horfa bara á meðan Valur og ÍR vinna fyrir þá mótið! Þeir eiga náðuga daga meistaraflokksmenn FH. Þeir sitja á áhorfendabekkjunum og horfa á, þegar Fram og tR eru að vinna fyrir þá íslandsmótið! Fyrst Fram með þvi að leggja Val og Viking að velli, og nú sið- ast ÍR með þvi að sigra Val. FH hefur nú sex stiga forystu i deildinni, og úr þessu getur fátt komið i veg fyrir að tslandsbik- I arinn fari frá Hliðarenda i Sjónarhól i Hafnarfirði, nú á þjóðhátiðarárinu. Sigur ÍR yfir Val i fyrrakvöld, 21:20, getur ekki aðeins skipt sköpum i toppbaráttunni, held- ur einnig á botninum. Þar er Þór frá Akureyri nú kominn i nokkuð erfiða aðstöðu, en þó langt i frá vonlausa. Annars gekk leikur Vals og ÍR þannig fyrir sig, að Valsmenn náðu fljótlega mjög sterkri stöðu, voru komnir i 6:3 eftir 20 minútur. Sóknarleikur IR-inga var ósköp ráðleysislegur á þess- um byrjunarminútum, en þegar miðið var komið i lag, fóru mörkin að koma, enda má segja að nær hvert einasta skot sem að marki kom hafi lekið inn, svo slök var markvarsla Ólafs Benediktssonar. t ÍR-markinu var aðra sögu að segja, Guðmundur „Valsbani” Gunnarsson var i sinum gamla ham, og varði mjög vel, þar af tvö viti. Staðan i hálfleik var 9:8 ÍR i hag. Það sem eftir var leiksins hafði IR svo alltaf yfir, utan einu sinni að Valur jafnaði, 11:11. En aldrei náðu Valsmenn frumkvæðinu, þrátt fyrir alla sina landsliðsmenn. örfáum minútum fyrir leikslok var 1R með yfir 21:17, en einstaklings- framtak Hermanns Gunnars- sonar hafði nær fært Val annað stigið, en hann gerði þrjú sið- ustu mörk leiksins. Mikil læti voru á lokaminútunum, og hagnaðist 1R heldur á þeim ó- sköpum öllum. Mörk tR: Ágúst 5, Þórarinn 4, Guðjón 3, Asgeir 3, Vilhj.3(2v), Gunnlaugur 2 og Hörður Arna- son eitt mark. Mörk Vals: Gisli 7(3 v), Ólaf- ur 4, Hermann 3, Gunnst. 2, Stefán 2, Agúst og Jón K. eitt hvor. Þrátt fyrir þennan sigur, lék IR engan glansleik, langt i frá, heldur meira af skynsemi. Guðmundur markvörður var öðrum fremur maðurinn bak við sigurinn. Þá kom Þórarinn Tyrfingsson in að nýju, og lék mjög vel. Aðrir leikmenn IR áttu góðan dag, og baráttuand- inn var til fyrirmyndar. Það er greinilegt að mórallinn er á uppleið hjá IR-ingum á sama tima og hann er á hraðri niðurleið hjá Val. Liðið er ó- þekkjanlegt frá i fyrra. Flestir léku langt undir getu, og engir þó meira en hetjurnar frá iands- leiknum um daginn. Ólafarnir tveir. Hermann sýndi athyglis- vert einstaklingsframtak i lok- in, enda sveltur á bekknum fram að þvi. Gisli var sprækur i byrjun, en siðan var það gamla hoppið á annarri löppinni. „Mulningsvélin” heyrir greini- lega til þjóðsögunni. Vonandi vakna Valsmenn brátt af dval- anum, þvi það blundar mikið i þessu liði. —ss i i > ► Á stærri myndinni sést Agúst Svavarsson skora 21. mark 1R upp úr aukakasti, og innsigla sigurinn. A litlu myndinni sést Jón Jónsson sloppinn I gegn, en hann fékk viti. Ljósm. Friðþjóf- íþróttir o Föstudagur 25. janúar 1974.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.