Alþýðublaðið - 30.01.1974, Side 1
beitta meö
störf hjá
varnarliðinu
Mikil ásókn virðist vera
i vissar stöður hjá
varnarliðinu á Kefla-
vikurflugvelli, ef dæma
má af skrifum síðasta
heftis Suðurnesjatiðinda,
þvi undir aðalfyrir-
sögninni: Suðurnesja-
menn órétti beittir, rekur
blaðið hversu fáir Suður-
nesjamenn fái góðar
stöður á Vellinum, miðað
við menn af Stór-Reykja-
vikursvæðinu.
Blaðið fjallar einnig um
málið i leiðara og segir,
að af þeim 986 tslending-
um, sem vinni hjá hern-
um, séu 706 af Suðurnesj-
um. En hinsvegar þegar
komið sé i hærri launa-
flokka hjá yfirmönnum,
snúist dæmið við, þvi i
bestu stöðunum séu 77
menn af stór-Reykja-
vikursvæðinu, en aðeins
57 af Suðurnesjum.
Þegar komið er upp i
stöður svo sem deildar-
stjóra, breikkar bilið enn,
þar sem aðeins einn
deildarstjóri er af Suður-
nesjum og 14 úr
Reykjavik.
Þá segir blaðið, að
Suðurnesjamönnum hafi
ekki enn tekist að klófesta
eftirtaldar stöður: 1.
slökkviliðsstjóri, 3
aðstoðarslökkviliðs-
stjórar, 1 innkaupastjóri,
1 húsnæðisfulltrúi, 1
sýningarstjóri, 1 mat-
reiðsluumsjónarmaður, 1
birgðastjóri, 1 ráðu-
nautur, 1 sem fæst við
verkáætlanastjórn, 1 við
verkskipulagningu og 4
sem stunda önnur stjórn-
sýslustörf.
Blaðið heldur áfram að
rekja þetta misrétti all-
ítarlega og byggir at-
huganir sinar á starfs-
mannaskrá.
Þá telur blaðið þetta
misrétti enn alvarlega
með hliðsjón af þvi, aö
þeir sem vinna á Vellin-
um og búa á Stór-
Reykjavikursvæðinu, fá
greidd laun fyrir timann,
sem þeir eru að komast
heim og að heiman, og
þar að auki ferðastyrk,
en þessi hlunnindi hafi
Suðurnesjamenn ekki, og
flytji jafnvel til Reykja-
vikur til að njóta þeirra.-
FIMM
VILJA
SMÍÐA
STRÆTÓ
Fimm erlendar bila-
verksmiðjur hafa gert
tilboð i að smiða tiu nýja
strætisvagna fyrir SVR,
en tilfinnanlega vantar
nú nýja vagna.
Verksmiðjurnar, sem
gerthafa tilboð, eru GM i
Bandarikjunum, Benz og
MAN i Þýskalandi og
Scania og Volvo i
Sviþjóð. í tilboði Volvo er
m.a. gert ráð fyrir að
byggt verði yfir vagnana i
Hollandi, en þær
byggingar yrðu frum-
smiði hjá viðkomandi
fyrirtæki. Siðustu árin
hefur Bílasmiðjan h.f.
byggt yfir Volvo-vagna
S.V.R.
Miðvikudagur 30. jan. 1974 Ss. ár9
alþýðu
LITUTSENDINGAR
KEFLAVÍKURSJÚNVARPSINS
Það verður
1 Blaðið sem þorir
ekk'L þolað
segir mennta-
málaráðherra
Ekkert athuga-
vert segir
form. varna-
málanefndar
Hátt í tvö
þús. vantar
á vertífiina
Mannaflanefndin svo-
kallaða, sem sjávarút-
vegsráðherra setti á
laggirnar fyrir jól, til að
kanna mannaflaskort á
yfirstandandi vetrar-
vertið, hefur enn ekki
lokið störfum. Stafar
það m.a. af þvi, að gögn
hafa borist seint utan af
landsby ggðinni, og
einnig vegna þess að
nefndarmenn, sem eru
fimm talsins, hafa verið
svo uppteknir við önnur
störf, t.d. samningavið-
ræður, að þeir hafa litið
getað sinnt nefndar-
störfunum.
Formaður mannafla-
nefndarinnar, Haukur
Helgason, tjáði Alþ.bl. i
gær, að þá um daginn
hefðu siðustu gögnin
borist sér i pósti, svo
væntanlega yrði hægt
að ljúka úrvinnslu
gagna á allra næstu
dögum, ef tækist að
kalla nefndina saman.
Lausleg og ónákvæm
könnun, sem gerð var
um mannaflaskort á
bátaflotanum einum,
benti til þess að á hann
vantaði um 1000 sjó-
menn, og þá helst minni
bátana. Bendir það til
þess, að i sjávarútveg-
inn vanti á þessari ver-
tið 1500-2000 manns.
Þaö verður ekki
þolað/ sagði Magnús
Torfi ólafsson,
menntamálaráð-
herra, á Alþingi í
gær, er hann svaraði
fyrirspurn Jónasar
Árnasonar, hvort
það verði látið
viðgangast að
varnarliðssjón-
varpsstöðin hefji
litútsendingar i
sumar. Tilefni
fyrirspurnar
Jónasar var frétt
Alþýðublaðsins í
gær þess efnis, að
sjónvarpsstöðin á
Kef lavíkurf lugvelli
myndi hefja litút-
sendingar í júní.
Blaðið snéri sér til
Magnúsar Torfa, og
innti hann eftir,
hvaða ráðstöfunum
hann hygðist beita
til að koma í veg
fyrir litút-
sendingarnar, en
hann vildi „ekki
ræða málið nánar".
Páll Asgeir
Tryggvason, for-
maður varnarmála-
nefndar utanríkis-
ráðuneytisins, sagði
af þessu tilefni, að
hann sæi ekki i fljótu
bragði að neitt væri
athugavert við það
að stöðin sendi út í
lit, þar sem ekkert
væri tekið fram í
sjónvarpsleyfi
varnarliðsins um að
það væri ekki leyfi-
legt, og um sömu
sjónvarpsstöðina
verður að ræða, og
þá sem nú sendir út í
svart-hvitu, og hef-
ur rekstrarleyfi.
Fullnægði þessi
nýji búnaður öllum
skilyrðum um styrk-
leika sendinga og
annað, virtist ekkert
vera athugavert
við breytingar yfir «
lit.
Væri því vafa-
samt stjórnskipu-
lega, að unnt yrði að
svipta varnarliðs-
sjónvarpið sjón-
varpsleyfi af þess-
um sökum. Páll
Ásgeir, tók að lokum
fram, að varnarliðið
hefði ekki rætt þetta
mál við varnar-
málanefndina.-
LOÐNUÚTFLYTJ-
ENDUR SEGJA
LÚÐVÍK HAFA
BANNAÐ AÐRA
SAMNINGA MEÐAN
REYNT VAR ViÐ
PÚLVERJANA
A meðan beðið var eftir
samningaviðræðum við
Pólverja um sölu á loðnu-
mjöli, synjaði viðskipta-
ráðherra útflytjendum
um leyfi til mjög hag-
stæðra samninga um fyr-
irframsölu á þessari vöru
til annarra kaupenda.
Engir samningar tókust
við Pólverja og fór við-
skiptanefnd þeirra héðan
i fússi. ,,’Synjun ráðherra
kom i veg fyrir samninga
á verði, sem idag myndi
teljast mjög gott”, sagöi
útflytjandi, sem blaðið
hafði tal af. ,,Það verð,
sem til boða stóð var ekki
langt frá þvi hæsta, sem
sést hefur”, sagði annar
útflytjandi, og hann bætti
við: „Var það vægast
sagt mjög áhættusamt að
setja fótinn fyrir þessar
sölur”. „Þrátt fyrir
greinilega vaxandi
sentraliseringu og aukin
afskipti stjórnvalda af
þessum afurðasölum væri
ekki sanngjarnt að for-
dæma útkomuna i heild.
En synjun á leyfum til
loðnumjölssölu, á meðan
beðið var eftir pólsku
samningunum, sem ekk-
ert varð úr, voru alvarleg
mistök. Er ekki annað
sýnilegt en að þau valdi
stórfelldu tjóni, eins og
dæmið stendur i dag.”
..og það jafnvel ollið stórtjóni
LOFORÐ I
STAÐ LOÐNU-
GJALDS EFTIR
FYRSTA JÚNÍ
Loðnugjaldinu
svonefnda, sem ákveðið
er 5% af áætluðu
verðmæti loðnuafurða
yfirstandandi vertiðar, er
ætlað að greiða niður
væntanlegar hækkanir á
oliu til islenskra fiski-
skipa fram til 1. júni, en
eftir það hefur engin
tekjuöflun verið áformuð
til frekari niðurgreiðslu.
Það eina, sem útgerðin
getur byggt á, það sem
eftir er ársins, er loforð
rikisstjórnarinnar um, að
verðlag á oliu muni ekki
raska rekstrargrundvelli
útgerðarinnar.
Jón L. Arnalds, ráðu-
neytisstjóri sjávarút-
vegsráðuneytisins, sagði
við Alþýðublaðið i gær, er
við leituöum hjá honum
frekari upplýsinga um
þetta mál, að ákvörðun
um frekari fjáröflun verði
tekin i sambandi við
ákvörðun fiskverðs 1.
júni.
Áætlað er, að með
loðnugjaldinu fáist 250
milljönir króna til að
greiða niður oliuna, og
var þá reiknað með þvi,
að olian kostaði kr. 7.70
hver litri til febrúarloka.
Skömmu siðar komu
nýjar spár um oliuverðið,
sem gerðu ráð fyrir
hækkun upp i allt að 12-13
kr. litrinn. 1 ljósi þessarar
nýju spár og þess, sem
siðan hafa komið fram, er
reiknað með, að siðari
hluta ársins þurfi sam-
svarandi gjald til að
greiða niður oliuna vera
350 milljánir króna i stað
þeirra 250 milljóna, sem
eiga að fleyta flotanum
fyrri hluta ársins.