Alþýðublaðið - 30.01.1974, Síða 3
I snjónum
í Hlíðarfjalli
STAL MILLJON
OG FÉKK SJð
MANAÐA FANGELSI
Ný stjórn
Flualeiáa
I siðasta Lögbirtingablaði
segir frá aðalfundi i hluta-
félaginu Flugleiðum h/f,
Hafnarhreppi Gullbringu-
sýslu, sem haldinn var i haust.
Þar voru eftirtaldir kosnir i
stjórn, Marinó Jóhannsson
flugumsjónarmaður . Rvik,
formaður, og meðstjórnendur
Valdis Garðarsdóttir og
Asmundur Halldórsson, bæði
úr Rvik.
Eins og blaðið hefur áður
skýrt frá, var félagið Flug-
leiðir h/f stofnað á Kefla-
vikurflugvelli fyrir röskum
áratug, og hefur nafnið haldist
i firmaskrám, þrátt fyrir að
starfssemi félagsins hafi að
mestu legið niðri siðari ár.
Fyrir nokkru hlaut starfs-
maður tollgæslunnar á
Keflavikurflugvelli sjö
mánaða óskilorðsbundinn
fangelsisdóm i Sakadómi
Reykjavikur fyrir að hafa
dregið sér tolltekjur i nafni
tollgæslunnar.
Upphæðin, sem maðurinn
dró sér, er um ein milljón
króna, og gerði hann það á
nokkrum árum. Rikisendur-
skoðunin kom upp um mis-
ferli mannsins, og ákærði
saksóknari rikisins hann i
haust.
Þess má geta, að menn
geta hlotið allt að 50% þyngri
dóma fyrir fjárdrátt, ef þeir
framkvæma hann i opinberu
starfi, eins og maðurinn
gerði. — Ekki er ljóst hvort
dómi þessum verður áfrýjað
til Hæstaréttar.
Enginn vafi leikur á
því, að Ijótasta farartæki
á landinu hefur fallið í
hlut Akureyringa. Það er
snjótroðari, sem þeir
voru að reyna í Hlíðar-
fjalli um helgina.
Blaðamenn Alþýðu-
blaðsins, sem staddir
voru á Akureyri, voru
hátt í þrjá tíma að jafna
sig eftir áfallið við að sjá
þetta furðutæki (myndin
að neðan).
Neðri myndin hér
vinstra megin sýnir tvo
þeirra hraustleikapilta,
sem trylla um öll f jöll þar
fyrir norðan á vélsleðum
sínum — sem fyrir
nokkru voru gerðir út-
lægirfrá Akureyri. Hefur
meira að segja komið til
eltingarleiks lögreglu og
vélsleðamanna.
Neðsta myndin, sú
stóra, skýrir sig sjálf en
auðvitað duga engar
myndir til að lýsa stemri-
ingunni í Hlíðarf jalli.
l\ wú f ]
11 \ 4B
Hikí
samninpm
um lax-
veiðiieyfi
Laxveiðileyf in lækka
ekki í verði á sumri
komanda. Þrátt fyrir
stöðugt hækkandi verð á
veiðileyfum í íslenskum
laxveiðiám, hefur
framboð til þessa
naumast nægt til að
mæta eftirspurn. Enda
þótt ekki sé enn sýnt að
þetta tafl snúist við,
okkur í óhag gagnvart
útlendingum, er þó af
flestum talið, að sala
þeirra gangi misjafn-
lega, og ekki eins greið-
lega og undanfarin ár.
Kemur þar margt til.
Vitað er, að flestar
bestu veiðiár landsins
hafa fyrir komandi lax-
veiðitímabil, verið
seldar fyrir hærra gjald
en nokkru sinni fyrr í
sögunni. Þá er og vitað,
að kanadisku veiðiárnar
hafa verið að batna
undanfarin ár og að
Bandaríkjamenn hafa
þær mjög til saman-
burðar vjð þær íslensku
að gæðum, en veiðileyfi
eru þar ódýrari en hér,
og ferðalög þangað mun
auðveldari og
kostnaðarminni.
Þá er talið, að óvissan
á mörgum viðskipta-
sviðum heimsverslunar,
þar með talið við-
kvæmur kauphallar- og
gjaldeyrismarkaður,
gefi minna svigrúm til
ferðalaga og fjarvista
en íslandsferðir út-
heimta.
Nokkurt hik í
samningum um veiði-
leyf i á þó ekki aðeins við
um erlenda viðskipta-
vini. Má þar til nefna
íslenskar bankastofn-
anir, sem nú tvístíga
fram yfir venjulegan
ákvörðunartí ma i
þessum efnum, hvað
sem veldur.
...og inn-
lendar banka-
stofnanir
hika líka
HORNIÐ
ÁFRAM MED
SMJORID
„Lesandi” hringdi i Hornið
vildi koma á framfæri „þakk-
læti til Alþýðublaðsins vegna
miskunnarlausra skrifa undan-
farið um úthlutun atvinnuleyfa
til atvinnubifreiðastjóra og
fleira því starfi viðkomandi.”
„Að minu áliti er hlutverk
blaðanna m.a. að gagnrýna
opinbera aðila og veita þeim að-
hald, og ég hvet ykkur blaða-
menn til þess að láta það ekkert
á ykkur fá þótt einstaka emb-
ættismenn taki slika gagnrýni
illa upp og taki hana sem per-
sónulegar árásir á sig”, sagði
hann. „Haldið þið áfram skrif-
um sem þessum um atvinnu-
leyfin, — að sjálfsögðu með þvi
skilyrði, að allar heimildir séu
öruggar, og heimildarmenn
reiðubúnir að gangast við upp-
lýsingum sinum og standa við
þær, ef til opinberrar rannsókn-
ar kemur, eins og Alþýðublað-
inu hefur verið hótað i þessu
máli.
Uppljóstrun blaðamanna við
Washington Post á „Watergate-
hneykslinu” svonefnda var sið-
ferðilegt og fréttalegt afrek
þeirra, og eiga islenskir blaða-
menn að taka þá sér til fyrir-
myndar, Raunar virðist Al-
þýðublaðið vera eina islenska
dagblaðið, sem nú hefur þor til
að stinga á meinsemdum I þjóð-
félaginu án þess að hugsa um
það, hvort það er krati, kommi,
ihaldsmaður eða framsóknar-
maður, sem fyrir stungunni
verður. Blaðamenn Alþýðu-
blaðsins, haldið áfram að grafa
upp ykkar „votergeitmál”.”
DAGLEG ÁÞJÁN
ÞÚSUNDANNA
„Strætófarþegi” hringdi i
Hornið:
„Leiðakerfi Strætisvagna
Reykjavikur hefur verið dagleg
áþján þúsunda borgarbúa um
langt skeið. Mig langar til að
spyrja forstöðumenn þeirrar
ágætu stofnunar, hvort engin
von sé á þvi, að það verði ræki-
lega endurskoðað. Ég ferðast
með strætisvögnum til og frá
vinnu og mér er vel kunnugt um
mjög almenna skoðun á leiðar-
kerfinu, en hún er sú, að það
þurfi mikilla endurbóta við. Ég
er farin að vorkenna bilstjórun-
um, sem virðast þeir einu, sem
farþegarnir hafa aðgang að með
kvartanir og ábendingar. Vitan.
geta þeir ekkert að þessu gert
heldur verða þeir að þjarka
þessar vitlausu leiðir myrkr-
anna á milli, og má mikið vera,
ef þeir halda almennt heilsu,
andlegri og likamlegri. Undan-
tekningarlitið eru þetta úrvals-
menn, duglegir og tillitssamir
við farþega. Það litur út fyrir að
leiðarkerfið sé ákveðið af mönn-
um, sem aldrei hafa i strætis-
vagn komið, og væri fróðlegt að
vita, hvort svo er. 1 guðs bænum
endurskoðið leiðakerfið.”
Miðvikudagur 30. janúar 1974.
o