Alþýðublaðið - 27.02.1974, Side 1

Alþýðublaðið - 27.02.1974, Side 1
Miðvikudagur 27. febr. 1974 I! Trg alþýðu Blaðið sem þorir Sveitarfélngin misnota viðlagasjóðspriðltlin!!! Nær öll sveitarfélög á landinu, og öli þau stærstu, standa nú i miklum vanskilum viö Viðlagasjóð á þvi 1% viðlagasjóðsgjaldi, sem lagt var á brúttó- tekjur manna i fyrra vegna Eyjagossins, og bæjar- og sveitafélög áttu að innheimta fyr- ir sjóðinn. T.d. má nefna, að staðir eins og Sauðár- krókur, tsafjörður, Ólafsfjörður, Seyðis- fjörður og Neskaups- staður hafa ekki greitt krónu af gjaldinu enn, þrátt fyrir þrjá gjald- daga sí. ár, þann sið- asta um áramótin. Reykjavik er búin að greiða um helming, og telst hún þar með til skilvisari bæjarfé- laga, þar sem um ára- mót hafði sjóönum ekki borist nema um 25% þeirra gjalda,sem honum bar af þessari innheimtu á landinu. Nokkrir hreppar, m.a. i Eyjafirði, hafa gert full skil, og eru þá upptalin skilin. Hallgrimur Sigurðs- son, framkvæmda- stjóri Viðlagasjóðs, sagði i viðtali við blað- ið i gær, að um siðustu áramót hefðu þessi gjöld, sem bæjarfélög áttu að innheimta, numið 674 milljónum króna, en um áramót, hefðu aðeins 169 millj- ónir verið komnar inn SJðMENN OG ÚTGERÐARMENN: ÞETTAGENGUR EKKI LENGUR! Það verður að breyta loðnusölumálunum — Geysileg óánægja er rikjandi meðal sjómanna og útgerðarmanna vegna skipulagsleysis á sölu loðnumjöls og lýsis á erlendum mörkuðum. Engin heildarsamtök standa að útflutningnum, heldur getur hver sem er selt þessar afurðir úr landi. Enda hafa verðsveiflur verið miklar frá ári til árs og salan gengið skrykkjótt. 1 fyrra seldist t.d. öll framleiðslan jafnt og vel, en nú er einungis búið að selja fyrir- fram fjórðung þess mjölmagns, sem framleitt verður á vertiðinni. Vilja sjómenn og útgerðarmenn meina, að þetta fyrirkomulag geti ekki gengið lengur, og fyrir næstu vertið verði að stofna sölusamtök, mjöl- og lýsisframleiðenda. „Siðustu þrjú árin hafa sýnt það glöggt, að núverandi fyrirkomulag getur alls ekki gengið”, sagði Jón Armann Héðinsson alþ.m. i samtali við Alþ.bl. I gær. Eins og málin eru i dag, standa að þessum útflutningi 8 aðilar, sem geta kallast stórir, og auk þess nokkrir minni. Hver sem er getur selt þessar afurðir úr landi, og kannski eru margir að bjóða til sölu sömu kilóin, og viðskiptavinir erlendis fá þannig rangar upplýsingar. Þetta eru yfirleitt umboðssalar, sem ekki ráða yfir neinu fjármagni til að mæta skakkaföllum. Um leið og eitthvað bjátar á er beöiö um hjálp, en þegar afurðirnar hækka á erlendum mörkuðum, er reynt að þegja sem lengstyfir þvi. Alltþetta bitnar á útgerð og sjómönnum. Nú er t.d. búið að selja 18 þúsund tonn af mjöli, eða fjórðung þess, sem kann að verða framleitt á vertiðinni. Þessi 18 þúsund tonn hafa verið seld á toppverði, en samt eru þegar komnar fram óskir um lækkun á loðnuverði til verksmiðjanna.” Þá sagði Jón Armann ennfremur, að sölusamtök i hinum ýmsu greinum sjávarútvegsins hefðu sannað gildi sitt i gegnum árin. Það skipulag, sem nú væri á sölumálum mjöls og lýsis gæti ekki gengið lengur, og þvi væri það krafa sjómanna og útgerðarmanna, að þetta mál væri tekiðfyrir sem allra fyrst, og slikum sölusamtökum fyrir lýsi og mjöl yrði komið á laggirnar fyrir næstu loðnuvertið. Viðlaqa- sjóðshús seld í vikunni ,,Nú er alveg að koma að þvi, að við förum að selja viðlagasjóðshús, sem Vestmannaeyingar hyggjast ekki nota, og gæti þau jafnvel orðið auglýst nú i vikunni.” sagði Hallgrimur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri viðlaga- sjóðs, i viðtali við blaðið i gær. 1 fyrstu stendur til að selja um 50 hús, suð- vestanlands, enda sagði Hallgrimur að endan- lega væri nú ljóst, að þau yrðu ekkki notuð af Eyjamönnum. Fleiri verða eftilvill seld siðar, en fjöldi þeirra ræðst alveg af, hversu margir flytja aftur til Eyja.- Það er ekki útsendari þess illa, sem þarna gæjist í móðu upp úr jörðinni, né heldur er þetta meðlimur neðanjarðarhreyfingar, svo vitað sé, heldur er þetta einn af starfsmönnum borgarinnar, sem þessa dagana vinna að endurbótum ó lögnum undir Austurstræti og Pósthússtræti. Hfll þrátt fyrir þrjá gjald- daga. Miðað við, að sveit- arfélög voru þá al- mennt búin að inn- heimta um 80% gjalda. hefðu þau átt að vera búin að skila Viðlagasjóði um 500 milljónum króna. Þetta hafði svo al- varleg áhrif á fjárhag sjóðsins, að hann varð að leita á náðir Seðla- bankans um lán, en af þvi láni greiðir sjóður- inn 12% vexti. Sagði Hallgrimur, að sjóðurinn færi þvi fram á, að sveitarfé- lögin greiddu fulla vexti af skuldum sin- um við sjóðinn enda væri þetta fé enganveginn fé sveit- arfélaganna, heldur aðeins vörslufé, sem þau hafa eða höfðu undir höndum. Hallgrimur sagði, að þeir hjá sjóðnum, hefðu alls ekki átt von á þessari framkomu sveitarfélaganna, þeir hefðu að visu átt von á, að skilin drægjust fram undir áramót, þegar ljóst var að slæm skil urðu fyrri tvo gjalddagana. Rikissjóður hefur staðið full skil af Við- lagasjóðsgjaldi af sölu- og eignaskatti. KRYDD- SÖLTUD VERKAST LODNAN VEL Hjá Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins hafa verið gerðar til- raunir með söltun á loðnu, og loðnan verkuð svipað og sild. Loðnan var öll heilsöltuð. Til- raunum stjórnaði Jó- hann Guðmundsson, efnaverkfræðingur. Niðurstöður urðu þær, að sykur- og súrsöltuð loðna verkaðist ekki vel, en kryddsöltuð loðna verkaðist allvel. Hængar voru heillegri en hrvgnur úr saltinu. Þá gerði sama stofnun tilraunir með þurrkun loðnu. Varð út- koman sú. að loðnuna þurfi að þurrka hratt t.d. i sterkum loft- blæstri við 40* C hita og lágan loftraka. Með þvi móti megi losna við rotnunarskemmdir, ef geymsluhitastigið er ekki yfir 10° C, en þránun og jafnvel mygla veröur eftir sem áður vandamál. ...en súr- og sykur- söltuð illa

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.