Alþýðublaðið - 27.02.1974, Síða 6
Hann er aídeilis ekki
slakur þessi hraðaksturs-
bíll/ sem sýndur er á bila-
sýningu í Stuttgart í
Vestur-Þýskalandi. Höf-
undur bílsins er
hönnuðurinn Luigi Colani
og á billinn að sýna,
hvernig kappakstursbílar
framtíðarinnar gætu litið
út.
Sennilega kemst þó
sportbíll þessi aldrei í
raunverulega framleiðslu,
en fallegur er hann
óneitanlega og myndi
vekja mikla athygli hvar
sem hann sæist.
En það voru ekki aðeins
kappakstursbílar og fram-
tíðarbilar, sem sendir voru
á sýninguna í Stuttgart.
Sýningargestum gafst
jafnvel tækifæri til þess að
aka sjálfir þrjá hringi á
kunnri kappasktursbraut
— Brandts Hatch track — í
Kent i Englandi. Að vísu
var brautin ekki flutt á
milli landa, en útbúin var
,,gerviakstursbraut" þar
sem allar aðstæður voru
sem likastar þeim raun-
verulegu. Að sjálfsögðu
var hér um hreina tækni-
brellu að ræða og ,,öku-
tækið" hreyfðist í rauninni
aldrei af staðnum, svo
engin slys urðu á fólki
þegar hraðasjúkir áhuga-
bílistar gáf u í botn á kapp-
akstursbrautinni". En getu
tækninnar eru víst engin
takmörk sett nú orðið.
EKKj
SUK-
1
HflNN
ÞESSI!
Fólk í fréttum
Knut Frydenlund
HINN NÝI
Fyrir nokkrum dögum var
norski utanrikisráðherrann, Knut
Frydenlund, hér á landi i opin-
berri heimsókn. Frydenlund er
nýr i starfi utanrikisráðherra og
island var fyrsta landið sem hann
kom i opinbera heimsókn til. i
meðfylgjandi grein er fjallað um
Frydenlund og sögu hans af
norska blaðamanninum Gunnari
Haraldsen.
Þegar skrifstofustjórinn I utan-
rlkisráðuneytinu, Knut Fryden-
lund, var haustið 1969 kosinn á
Stórþingið sem frambjóðandi
‘Verkamannaflokksins i Osló þá
var eðlilegt að hann veldist í
utanrikisnefnd þingsins. Það
kann að hafa valdið nokkurri
undrun þeirra, sem fylgdust með
störfum Stórþingsins, að fljótlega
kom i ljós, að hinn þjálfaðí em-
bættismaður sýndi sig að verá
einkar jarðbundinn einstaklingur
með rikulega hæfileika til þess að
túlka skoðanir sinar skýrlega og
alþýðlega. Og þegar Bratteli
myndaði aftur rikisstjórn nú i
haust kom það fáum á óvart, aö
Knut Frydenlund valdist i em-
bætti utanrikisráðherra.
Honum tókst fljótt að vinna sér
orð sem utanríkisráðherra. En
hann hafði einnig gengið i góðan
UTANRIKISRÁÐHERRA BRATTELIS
skóla vegna þess, að hann hefði
um margra ára skeið verið
nánasti samverkamaður Halvard
Lange i utanrikisráðuneytinu.
Sem hægri hönd Lange tók hann
þátt i f jölmörgum al- eða fjölþjóð-
legum ráðstefnum og þar lærðist
honum, hvers menn kröfðust af
hinum norska utanrikisráðherra.
Vegna þess, að þegar allt sam-
komulag var að sigla i strand, þá
gutu menn gjarna hornaugum
yfir til Lange i von um, að hann
leysti nú hnútinn. Þetta var þvi
góður skóli i samningatækni.
Og ekki var það siður lærdóms-
riktaðfá sem ,,fluga á veggnum”
að fylgjast með viðræðum Lange
við erlenda stjórnmálamenn.
Þessir menn voru oft engir smá-
kallar, heldur menn eins og
Rapacki, Andenauer og Gaitskell
— menn, sem allir virtu.
Knut Olav Frydenlund fæddist i
Drammen 31. mars 1927. Hann
lauk stúdentsprófi frá Drammen
1946 eftir að hafa lokið burtfarar-
prófi frá verslunarskóla árið
áður. Hann nam lögfræði i Osló,
laukprófiárið 1950 og tók sérstakt
próf, sem norska utanrikisráðu-
neytið leggur fyrir alla þá, sem
sækja þar um störf, árið 1953. Um
leið réðst hann sem starfsmaður
ráðuneytisins og starfaði fyrstu
árin — eða fram til ársins 1955 —
við sendiráðið i Bonn, siðast sem
ritari sendiherrans. Frá Bonn lá
leiöin heim i ráðuneytið, þar sem
hann var fulltrúi 1955—1960, en
þá fór hann til Br'ússel og gerðist
þar blaðafulltrúi sendiráðs lands
sins. Siðar varð hann fastafulltrúi
i Evrópuráðinu.
Það var i Strassburg, sem
hann upplifði dýrðarskeið sitt i
utanrikisþjónustunni þegar hann
var formaður i nefnd staðgengla
utanrikisráðherranna. Þegar
hann kom til fundar i nefndinni
var hann boðinn velkominn með
ávarpsorðunum „herra forseti”
eða „yðar ágæti”. Og slikt og þvi-
likt styrkir jú sjálfstraustið.
Á árunum 1966—1969 var hann
svo fyrst deildarstjóri en siðar
skrifstofustjóri i utanrikisráðu-
neytinu. Það var á þeirri tið, sem
hann átti að eigin sögn ,,að undir-
rita það, sem aðrir höfðu
skrifað og skrifa allt það, sem
aðrir áttu að undirrita”. Á árun-
um 1967—1969 var hann i leyfi frá
störfum i ráðuneytinu og vann þá
á skrifstofu Verkamannaflokks-
ins m.a. við samningu dægur-
málastefnuskrár fyrir flokkinn.
Hann átti m.a. þátt i að semja
verkefnaskrá þá, sem lögð var
fyrir þing norska Alþýðusam-
bandsins árið 1969 sem grundvöll-
ur að framtiðarstefnumörkun
sambandsins. Það starf hafði
mikil áhrif á hann, vegna þess að
hann varð m.a. að fara yfir lausn-
ir meira en þúsund starfshópa
verkamanna viðs vegar að af
landinu. Og þar varð á vegi hans
almenn og skýr stefnumörkun
félagsmanna Alþýðuhreyfingar-
innar um, að framtiðarþróun
heimsmálanna myndi verða á
þann veg, að nauðsynlegt væri
fyrir Noreg að taka mjög aukinn
þátt i alþjóðlegu samstarfi. Aður
en hann tók við embætti utan-
rikisráðherra hafði hann þvi haft
tækifæri á að kynna sér skoðanir
fólksins I landinu á utanrikismál-
um.
Utanrikisráðherrann er traust-
ur lýðræðissinni, sem gjarna vill
hvetja til rökræðna um utanrikis-
mál. Hann er þeirrar skoðunar,
að alla ákvarðanatöku i sambandi
við utanrikisstefnu eigi að gera
mun lýðræðislegri, en hún er nú
og að þessa sjónarmiðs eigi m.a.
að gæta i sambandi við val
á fólki i sendinefndir á alþjóð-
lega fundi og ráðstefnur. Til
dæmis telur hann, að ekki
aðeins norska Alþýðusam-
bandið eigi að hafa sinn full-
trúa, heldur einnig stjórnmála-
samtök æskufólks.. Takmarkið
hljóti að verða að mynda alþjóð-
legt samstarf sem grundvallist á
öðru en valdinu.
Sem sérfræðingur um utan-
rikismál hefur Frydenlund tekið
þátt i starfi margra samtaka,
sem fjalla um fjölþjóðleg mál-
efni. Hann hefur setið i stjórn
Evrópuhreyfingarinnar i Noregi
siðan 1968 og einnig hefur hann
tekið þátt i störfum stuðnings-
mannahópa og — félaga
vestrænnar samvinnu.
En flokksstarfið hefur einnig
tekið talserðan tima hjá Fryden-
lund. Hann var i stefnuskrár-
nefnd Verkamannaflokksins árin
1966—69, i utanrikismálanefnd
flokksins frá 1967 og i stjórn
flokksfélagsins I Osló frá 1968.
Utanrfkisráðherrann er yfir-
lætislaus og litillátur maður, sem
vekur traust fóiks ekki aðeins
vegna rólegs og æðrulauss yfir-
bragðs heldur einnig vegna skýr-
legs málflutnings. Hann er
maður, sem stendur báðum fót-
um þétt á jörðu. Hann hefur ritað
eina bók — Utanrikisstefna
Noregs i alþjóðlegu samstarfi eft-
irstriðsáranna.
-AAannréttindayfirlýsing S.Þ. 25 ára
ENGIN ÞIOD
I VEROLDIHNI
HELDUR HANA
reyna að leyna þvi, að þau
halda ekki ákvæði hennar.
A hverjum degi er hægt að
lesa i blöðum um gróf brot
gegn yfirlýsingunni. Þjóða-
morð i Vietnam, pyntingar i
Brasiliu, ólæsi i Pakistan,
hungur i Eþiópiu, kúgun
kvenfólks i Marokkó, fang-
elsanir, pyntingar og opinber
fjötrun á frjálsar skoðanir i
Sovétrikjunum, spilling,
kynþáttahatur og persónu-
njósnir i Bandarikjunum,
stjórnmálaleg kúgun á
Spáni, kosningasvindl i
Grikklandi, kúgun blökku-
manna i Suður-Afriku.
Helmingur ibúa heimsins
sveltur. A.m.k. hálf milljón
manna er i fangelsum vegna
stjórnmálaskoðana. Talið er,
að 200 þús. pólitiskir fangar
séu i S-Vietnam einu saman,
50þús. i Indónesiu og 10 þús.
i Brasiliu.
Pyntingar eru
alvanalegar.
Pyntingar eru alvanalegar
i fjölmörgum löndum 1 Suð-
ur-Ameriku og jafnvel i
bandalagsrikjum okkar i
NATO — Portúgal og Tyrk-
landi — eru pyntingar svo ai-
vanalegar, að ekki er einu
sinni reynt að skýla þeim.
Allir vita, hvernig ástandið
er I kommúnistaheiminum.
Hvergi er heitið haldið.
Þriðjungur ibúa jarðar
kann hvorki að lesa né að
skrifa. 1 Afriku eru 7 af
hverjum 10 ólæsir. I Suð-
austur-Asiu 6 af 10. Á Haili
deyja 190 af hverjum 10 þús.
ungabörnum á fyrsta aldurs-
ári.
I Boliviu eru 2 læknar á
hverja 10 þús. ibúa. I Guate-
mala er aðeins 1 af hverjum
100 verkamönnum í stéttar-
félagi.
Kynþáttahatur á
Norðurlöndum
Jafnvel Norðurlöndin með
sinn hreina og hvita skjöld
eru marg-brotleg gegn
Mannréttindayfirlýsingunni.
Hvernig er t.d. farið með er-
lenda verkamenn af suður-
evrópsku kyni I Danmörku
og Sviþjóð? Hvert er viðhorf
almennings þar i löndum til
sigauna. Og hvað með okkur
tslendinga? Borgum við
sömu laun fyrir sömu vinnu?
Eru kynin jafn rétthá hér?
Og hvað um aðra kynþætti?
Gerðum við ekki samning
um það við Bandarikin skv.
skjölum, sem nú hafa verið
gerð opinber, að negrar
mættu ekki vera i herliði
Bandarikjanna hér?
M annréttindayf irlýsing
Sameinuðu þjóðanna hefur
nýlega haldið 25 ára afmæli
sitt hátiðlegt. Ljós-
myndirnar, sem fylgja
þessari grein, sýna, að hún
er ekki haldin. Jafnvel hið
háþróaða, lýðræðissinnaða
tsland heldur ekki öll 30
ákvæði hennar:
Yfirlýsing Sameinuðu
þjóðanna um mannleg rétt-
indi var samþykkt af Alls-
herjarþingi S.Þ. i desember-
mánuði árið 1948. Það var
skömmu eftir eitthvert
grimmilegasta strið mann-
kynssögunnar — fram til
þess tima. Hörmungarat-
burðirnir, sem gerðust i út-
rýmingarbúðunum, máttu
aldrei endurtaka sig. Og það
myndi heldur ekki gerast ef
þjóðir heims gætu tekið
höndum saman um að setja
reglur, sem bönnuðu það.
Allir eru frjálsir
og jafnir
Grundvallarhugmyndirn-
ar i Mannréttindayfirlýsingu
S.Þ. voru sóttar aftur til
frönsku yfirlýsingarinnar
frá 1789, þar sem segir, að
allir menn séu fæddir frjálsir
og jafnir — með sama rétt.
Yfirlýsing S.Þ. bannaði þvi
aðgreiningu á grundvelli
kynþátta, húðlitar, kyns,
tungumáls, trúar, stjórn-
málaskoðana, þjóðernis og
félagslegrar aðbúðar. Hún
bannaði pyntingar og
þrælkun. Hún fyrirskipar
jafnan rétt til handa konum
og körlum og algert trúar-
bragðafrelsi.
Hún ábyrgist tjáninga-
frelsi, frelsi tij náms og
starfs að eigin vali og sömu
laun fyrir sömu vinnu.
Allt út
um þúfur
Þetta hljómar jú fallega og
vel — næstum of fallega og of
vel. Og þetta var heldur ekki
haldið — ekkert af þessu.
Það er þvi ekki ofsagt að
segja að Mannréttindayfir-
lýsing S.Þ. sé með öllu
misheppnuð.Flest lönd
nenna ekki ekki einu sinni að
leggja á sig það erfiði að
Þessi heimsfræga fréttamynd sýnir þar sem hinn suöurvietnamski hershöfðingi Ngoc Loan tekur
lögin I sinar hendur og skýtur Vict Cong liösforingja. Víetnamstriöiö og meöferö Saigons-
stjórnarinnar á pólitiskum föngum sýnir, aö þetta hvoru tveggja er eitt stórt brot á
Mannréttindasáttmálanum.
Hungriö f Eþíópfu er enn eitt dæmi um, aö
ákvæöi25. greinar um, aðhver og einn hafi rétt
til matar fyrir sig og fjölskyldu sina, eru ekki
haldin. Þaö er vart nokkur huggun fyrir þessa
hungruöu konu, sem reynir að gefa barni sinu
að drekka úr uppþornuðum brjóstunum, þótt
hún kunni ekki að lesa um þessi réttindi sin.
Milli Austur- og Vestur-Þýskalands liggur
múr, sem á aö hindra fólk I aö flýja frá austri
til vesturs. Hinn 18 ára gamli Peter Fechter
tók áhættuna — og var skotinn til bana af
„alþýðulögreglu” Austur-Þýskalands, sem lét
hann liggja umhiröulausan í heila klukkustund
eftir að hann haföi verið skotinn og þar blæddi
honum út.
i Grikklandi hafa hcrforingjarnir enn einu sinni látiö til sin taka ,En kosningarnar i fyrra eru ekki
þær fyrstu, sem verið liafa skripaleikur. Leiðtogar landsins eru valdir fyrirfram og vilji þjóðar-
innar skiptir alls engu máli. Þcir, sem eru á annarri skoðun — cins og námsmaður þessi i Aþenu
— cru brotnir á bak aftur af hermönnum.
Gæsluvarðhalds-
ákvæðin
I 11. grein Mannréttinda-
yfirlýsingarinnar segir t.d.,
að sérhver, sem ákærður er
fyrir einhvern refsiverðan
verknað, beri að teljast sak-
laus uns sekt hans er sönn-
uð.... en ætli flestir, sem hafa
verið i gæsluvarðhaldi, geti
boriðum það, að sú meöferð,
sem þeir fá þar, geti t.d. ver-
ið verri en þeir fá, sem
dæmdir hafa verið sekir:
m.a. vegna þess, að gæslu-
varðhaldsfangar eru yfirleitt
hafðir i einangrun. Og
hversu margir, sem ein-
hvern tima hafa komist i
kast við lögin, eru ekki ávallt
þeir, sem grunur berst fyrst
að hafi þeir verið i nágrenn-
inu þar sem afbrotið var
framið.
Rétturinn til
starfs
Og spyrjið þá, sem ekki
hafa atvinnu við sitt hæfi,
hvað þeir segi um grein 23,
þar sem sagt er, að allir hafi
rétt til þess að vinna. Eða
spyrjið rauðsokka um, hve
mörg dæmi þeir hafi hand-
bær þar sem sömu laun séu
ekki borguð fyrir sömu vinnu
— jafnvel þótt i grein 23.
standi, að allir hafi rétt til
sömu launa fyrir sömu
vinnu.
Samkvæmt 25. grein yíir-
lýsingarinnar hefur hver og
einn rétt til þess viðurværis.
sem nægilegt getur talist til
þess að viökomandi geti
haldið heilsu sinni og velllð-
an.
Þetta hlýtur að hljóma
eins og háð fyrir hina öldr-
uðu, öryrkja, þá sem þjást af
ólæknandi sjúkdómum eða
geðsjúkdómum. Skyldum við
gera nálægt þvi nóg fyrir
þetta fólk?
◄ ◄
Herforingjastjórnin i Cliile
h e f u r v a r p a ð
stuðningsmönnum Allende I
fangelsi ásamt vinstri
sinnuðum stjórnmála-
mönnum og verkalýðs-
leiötogum. iþróttavöllurinn i
Santiago var notaður fyrir
hina gömlu og þrautreyndu
iþrótt — að pynta fólk og
drepa án dómsupp-
kvaðningar.
Kynþáttahatrið blómstrar i S.-Afriku. Hér handtekur hvitur lög-
reglumaður biökkudreng.
Miðvikudagur 27. febrúar 1974
Miðvikudagur 27. febrúar 1974