Alþýðublaðið - 28.02.1974, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 28.02.1974, Blaðsíða 2
HANDPRJÓNUÐU PEYSURNAR VERÐA STÓÐUGT VINSÆLLI Um heim allan verða handpr|ónaðar flíkur stöð- ugt vinsælli og margir, bæði yngri og eldri, sitja nú löngum stundum með prjóna, eins og í svartnættinu hér áður fyrri. Sá, sem ekki kann eða nennir að prjóna, getur svo keypt sér handprjónaðar flíkur, en erlendis a.m.k. eru þær óheyrilega dýrar, þótt hérlendis sé hægt að fá handprjónaðar flíkur á gjafverði að áliti erlendra. Þessar handprjónuðu f likur eru gjarna úr gróf u garni og munstrið er nor- rænt. Handprjónuð peysa, eins og þessi hér, mun kosta eitthvaðnálægt jafnvirði 4.500 ísl. kr. í Skandinavíu og sjálfsagt nærri tvöfalda þá upphæð vestur í Ameríku. — Nýtt fyrir neytendur ■=== .— Leyndardómsfyllstu umbúðir samtímans: SPRAUTUBRUSARHIR - HIN DÆMIBEBÐA FRAMLEIÐSLA NEYTENDAÞJÓÐFELAGSINS Sprautubrúsarnir eru nýjasta uppfinning neytendaþjóðfélags- ins. Þeireru alþekktir og viða i notkun. Þó hafa vinsældir þeirra á Norðurlöndum aldrei orðið eins miklar og t.d. i Bandarikjunum eða á megin- landi Evrópu. Astæðurnar eru m.a. taldar þær, að sprautu- brúsarnir eru ekki auglýstir nærri þvi eins mikið i sjónvarpi þar og i USA eða á meginland- inu. Það mun nefnilega vera beint samband á milli sjón- varpsauglýsinganna og sölunn- ar á vörum i sprautubrúsum. En engu að siður eru sprautubrúsarnir norræn upp- finning. Þessar leyndardóms- fullu, þægilegu og dýru umbúðir byggjast á aðferðum.sem Norð- maður einn fékk einkaleyfi á einhvern tima inálægt. árinu 1920. En hugmyndir hans nutu litillar athygli lengi vel. Það var ekki fyrr en konungborin manneskja tók þær upp á sina arma, sem sprautubrúsinn hóf sigurför sina um heiminn. Manneskja þessi var Farah Dibah, keisaraynja i Persiu. Og það var hárgreiðsla hennar, sem var upphafið að öllu sam- Hún var i fararbroddi þeirra kvenna, sem ákváðu að íeggja niður þann ævagamla kvenna- sið að leyfa hárinu að liggja eðlilega um höfuðið, en flækja það þess i stað og setja það upp i alls kyns myndum og „heysátu- forkum”. Og til þess að halda heysátunni við varð auðvitað að „negla” hana fasta — með lakki. Og þá kom sprautubrús- inn til sögunnar. Siðan hefur fjölmargt annað en hárlakk verið sett á sprautu- brúsa. Lengst hafa Bandarikja- menn að sjálfsögðu komist. Þar er nú hægt að kaupa alls kyns matvæli s.s. grænmeti og salat- sósur á sprautubrúsum. En möguleikarnir eru svo sem nógu margir nú þegar án þess. Venjulegur dagur getur t.d. byrjað með hárlakksspraut- un og svitalyktareyðissprautun undir hendur og annars staðar. Siðan kemur að ilmvatninu, sem að sjálfsögðu er á sprautu- brúsa — og að raksápunni og rakspiranum hjá körlum, sem hvorttveggja er á sprautubrúsa. Siðan gagnast sprautubrúsi til þess að þiða hélu af bilrúðu, annar til þess að ná isingu úr hurðarlæsingu og sá þriðji til þess að auðvelda igangsetningu. Deginum getum við svo lokið með þvi að fægja rúður með fægilegi úr sprautubrúsa, fægja húsgögn með hjálp annars og sprauta piparupplausn i fésið á væntanlegum ránsmanni úr þeim þriðja. Það hefur verið sagt um sprautubrúsana, að sjálf tilvera þeirra hafi skapað þarfir, sem aldrei hefðu annars orðið til. Sænska neytendablaðið RSd och rön spyr t.d., hvort nokkurn tima hefði verið farið að fram- leiða sérstakan svitalyktareyði fyrir klyftarnar, ef ekki hefðu verið fyrir umbúðirnar. Þurfum við t.d. dýr og óútskýrð efni til þess að fíýta fyrir þornun nagla- lakks eða til þess að betra sé að losa sykurbrauðstertuna úr forminu? — spyr blaðið. Og þeg- ar talað er um þægindin og timasparnaðinn, þá gleymist oft mikilvægt atriði — sem sé það, að timasparnaðurinn er oft næsta litill. Það tekur t.d. nokkuð lengri tima að nudda ofn að innan með ofnsápu en að sprauta henni um hann með sprautubrúsa. En tekur ekki þvotturinn sjálfur á eftir nákvæmlega jafn langan tima? Og er það ekki hann, sem bæði er erfiðastur og tima- frekastur. Og auk þess verður maður alveg jafn skitugur undir nöglunum, segir R^d och Rön. Sprautubrúsarnir eru sjálf- sagt leyndardómsfyllstu um- búðir samtimans. Gefið t.d. gaum að næstum ótrúlega tak- mörkuðum vörulýsingum, sem finnast á slikum umbúðum. Það er ekki nokkur leið fyrir neyt- endann að dæma um, hvort borgi sig að kaupa vöruna i þessum pakkningum, eða þeim gömlu. Fyrir utan venjulegar öryggisreglur — ekki má hita brúsann eða reka gat á hann —■ er vart að finna nokkurt orð um vöruna, annað en hástemmd lýsingarorð um hin undursam- legu áhrif. Oft er t.d. nettóþungi innihaldsins alls ekki gefinn upp og þá þvi siður, hversu mikið af innihaldinu er gas og hversu mikið hið raunverulega efni, sem verið er að kaupa. Að sjálfsögðu er sprautubrús- inn framleiðsla neysluþjóð- félags — á sama hátt og bilar, pappirsborðbúnaður og raf- magnsrakvélar. Allt á þetta að gera daglega lifið léttara og auðveldara — en fyrst og fremst að skapa nýjar þarfir. Og eins og er um flest annað, þá geta sprautubrúsarnir verið hættulegir. Þeir eru raunar litil sprengja, og sprengjuaflið er hreint ekki svo rýrt. Það geta þeir borið um, sem reynt hafa. En hvað af framleiðslu neyt- endaþjóðfélagsins er ekki hættulegt, sé það ranglega notað. Menn hafa stundum étið sig i hel. Er það frambærileg af- sökun fyrir þvi að hætta að borða? NEYTENDUR SEM BORGA ÞJOFHADINA i flestum löndum er nú farið að telja þjófnaði með scm kostnaðarliöi smásöluverslana - þ.e.a.s. neytandinn er iátinn borga það, sem búðarþjófarnir stela. i Iloliandi liafa menn m.a. reiknað út, að þar sé stolið úr búðum fyrir jafnvirði 23ja millj. isl.kr. á dag! Ef hægt væri að stöðva þjófnaðina, segja samtök holienskra kaupinanna, þá væri sem sé hægt að lækka útsölu- verð úr smásöluverslunum um ca. 1% að jafnaði. Með öðrum orðum: Neytendurnir eru iátnir borga fyrir búðarþjófana. Svona getur mishugsaður áróð- ur vöruseljcnda oft vakiö at- hygli á staðrcynd, sem fáum var kunn. PLASTIÍRGANGUR GERÐUR AÐ JARÐVEGSBÆTIEFNI Enginn mannlegur máttur getur unnið á plastefnum, eftir að þau hafa einu sinni orðið til. Þau brenna ekki, rotna ekki, leysast ekki upp — þeim er ekki hægt að eyða. Þvi mun heimur- inn á nokkrum áratugum kaf- færa sjálfan sig i plastúrgangi — hinu eilifa efni, sem aldrei eyðist. Þetta var hin ótta lega framtiðarmynd af heimi mannsins — þar til nú fyrir nokkrum vikum. Þá tilkynnti breskt fyrirtæki, að þaö hefði loks fundið lausn- ina. Leynilegt efni, sem blandað er saman við plastefnin um leið og plastið er búið til, veldur þvi, að sé plastið grafið i jörð, þá eyðist það á nokkrum mánuðum fyrir áhrif efnakljúfa, sem eri i jarðveginum. Eyðingartiminn er þetta 2-6 mánuðir fyrir venju- lega plastbrúsa að sögn fyrir- tækisins. Eyðingarhraðinn fer eftir þvi, hve mikið er notað af hinu leyni- lega upplausnarefni við plast- framleiðsluna. Og — þótt ótrú- legt megi virðast — þvi meira af upplausnarefninu, sem notað er i framleiðsluna, þeim mun ódýrara verður plastið: Upp- lausnarefnið er nefnilega ódýr- ara, en plasthráefnin og for- ráðamenn breska fyrirtækisins telja, að með notkun þess, sé hægt að lækka framleiðslu- kostnað plasts um 25%. Fagtimaritið „Packing News”, sem skýrir frá þessu, tekur undir, að þetta hljómi ótrúlega. Stjórn fyrirtækisins fullyrðir hins vegar, að allt sé satt og rétt, sem sagt hefur ver- ið um kosti hins nýja upplausn- arefnis og segir, að þetta muni hafa i för með sér byltingu i um- hverfismálum. Ýmsar tilraunir hafi verið gerðar með efnið og engir vankantar hafi komið ' Þvert á móti sé mjög auð- velt og ódýrt að framleiða efni þetta, og það hafi engin áhrif á gæði eða útlit plastsins. Það auki rúmmál plastumbúða án þessað rýra styrkleik þeirra og vinni auk þess sem jarðvegs- bætandi efni, þegar búið er að grafa umbúðirnar i jörð. Fyrirtækjasamsteypan, sem framleiðir®fni þetta, heitir Col- orall og hefur einskorðað sig við framleiðslu á plastpokum og plastveggfóðri. Samsteypan hefur sótt um alþjóðlegt einka- leyfi á uppfinningunni og hefur nú þegar fengið fyrirspurnir um það viða að úr heiminum. Þessi aðferð er hin fyrsta sinnar tegundar til þess að eyða plasti — þ.e.a.s. sú fyrsta, sem byggist á efnakljúfum, sem fyr- ir eru i moldarjarðvegi, og það var einn af visindamönnunum, sem við fyrirtækið starfa, sem af hendingu datt ofan á aðferð- ina, þegar hann var að gera til- raunir með poluethylen með allt öðru markmiði. VEISLUM ATUR KALT-BORÐ <T? Sendum heim jnSM Ö® 831 50 Lj Hafnarfjarðar Apótek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. Skipholt 20 — Síini 24t(i(> BLÓMAHÚS simi 831 Skipholti 37 Opió til kl. 21.: Einnig laugardi og sunnudaga. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KRON Duno í GUEflBflE /ími 64900 o Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.