Alþýðublaðið - 28.02.1974, Blaðsíða 5
utgefandi: Alþýðublaósútgáfan hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður, Frey-
steinn Jóhannsson. Stjórnmálarit-
stjóri, Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri, Sigtryggur Sigtryggs-
son. Aðsetur ritstjórnar, Skipholti
19, sími: 86666. Afgreiðsla:
Hverfisgötu 8-10, simi: 14900. Aug-
lýsingar, Hverfisgötu 8-10, sími
86660. Blaðaprent hf.
Abyrgðarlaus ráðherra
Sú röksemd var mjög mikið notuð gegn vinnu-
stöðvun launafólks, að hún gæti skaðað þjóðar-
búið um 100 m. kr. á dag vegna þess, að i
verkfalli væri ekki hægt að vinna þann upp-
gripaafla, sem fæst á loðnunni. Vissulega má
segja, að nokkuð hafi verið til i þessari rök-
semdafærslu. Verkföll eru ávallt dýr fyrir alla
aðila enda gerir það enginn að gamni sinu að
leggja niður vinnu. Slikt er aðeins gert af illri
nauðsyn sem þrautarúrræði verkalýðs i kjara-
baráttu og reynslan nú varð sú, að enginn skrið-
ur fór að komast á samningana fyrr en eftir að
verkfalli hafði verið lýst yfir.
En fyrst röksemdin um loðnuvinnsluna var
svo mjög i hávegum höfð gegn stéttarfélögunum
m.a. af ráðherrum i rikisstjórn Ólafs Jóhannes-
sonar, hvernig stóð þá á þvi, að rikisstjórnin lét
það liðast, að slikt ófremdarástand rikti i sam-
bandi við löndun á loðnunni að mörg skip þurftu
að dæla öllum sinum afla i sjóinn? Var það ekki
ábyrgðarleysi i hæsta máta að liða nokkrum
bræðslustöðvum að stöðva móttöku á loðnunni
með þessum afleiðingum? Og hvernig stóð á
þvi, að ráðamennlétu bræðslustöðvunum hald-
ast það uppi að mismuna veiðiskipunum svo
gróflega, sem gert var varðandi loðnulöndun-
ina? Eða var það bara verkalýðshreyfingin,
sem ráðherrarnir töldu sig hafa rétt til þess að
ávita fyrir að stefna loðnuvertiðinni i hættu? Sá
sjávarútvegsráðherra, Lúðvik Jósefsson, ekk-
ert athugavert við framferði loðnuvinnslustöðv-
anna og hvi fann hann sig ekki knúinn til neinna
athafna þegar fregnir fóru að berast af þvi, að
hver loðnuveiðibáturinn af öðrum hefði þurft að
dæla afla sinum i sjóinn vegna i rauninni óleyfi-
legra viðbragða vinnslustöðvanna i landi?
Það hefur lengi verið vitað, að Lúðvik Jósefs-
son, sjávarútvegsráðherra, ber mun meira fyrir
brjósti hag fjármagnsaðilanna i fiskiðnaðinum
en hag sjómanna og fjölskyldna þeirra. Hann
hefur ávallt verið ráðherra fiskverkenda og út-
gerðarmanna en látið sig litlu varða hag sjó-
mannanna eða þess fólks, sem fiskiðnaðurinn
byggist á — verkafólksins við vinnslustöðvarn-
ar. En er það ekki nokkuð langt gengið i þessa
átt hjá helsta forsvara Alþýðubandalagsins,
sem telur sig vera verkalýðsflokk, að setja
hornin i launafólkið, sem stendur i réttmætri
kjarabaráttu, og láta það á sér skilja, að einmitt
launþegarnir séu að stefna afkomu þjóðarbúsins
i hættu með verkfallshótunum en þegja þunnu
hljóði við þá aðila, sem raka saman fé á loðnu-
vinnslunni, þegar þeir leyfa sér að setja stöðvun
á alla móttöku á loðnunni með þeim afleiðingum
að heilum skipsförmum verður að dæla beint i
sjóinn?
Við íslendingar höfum nýlega átt i harðri bar-
áttu fyrir útfærslu fiskveiðilögsögu okkar þar
sem verndunarsjónarmiðið var ein af helstu
röksemdum okkar. Hvað halda menn, að and-
stæðingar okkar i málinu gætu um okkur sagt, ef
-þeir fréttu, að þessi mikla verndunarþjóð léti
það liðast, að nokkrir fjármálamenn i fiskiðnaði
geti leikið sér að þvi að setja bann á alla mót-
töku fiskjar með þeirri afleiðingu, að tugum og
hundruðum tonna af afla væri fleygt beint i sjó-
inn aftur? Það er i verkahring sjávarútvegsráð-
herra að koma i veg fyrir slika atburði og það á
hann að gera.
alþýðu
I n ntiTTil
ÚR BORGARSTJÓRN
Hitakerfi sett
í gangstéttir
miðborgarinnar
A f undi
borgarstjórn-
ar Reykjavik-
ur þann 21.
febrúar sl.
lagði Björgvin
Guðmunds-
son, borgar-
fulltrúi, fram
svohljóðandi
tillögu:
„Borgarstjórn Reykjavikur
samþykkir að fela borgarverk-
fræðingi að gera áætlun um
kostnað við að leggja hitaveitu-
lagnir undir gangstéttir Lauga-
vegs og Bankastrætis i þvi skyni
að bræða is og snjó af gangstétt-
unum að vetrarlagi”.
1 ræðu sinni með tillögunni
sagði Björgvin Guðmundsson
m.a. á þessa leið:
„Eins og áður hefur verið rætt
um hér i borgarstjórn i vetur hef-
ur færð um götur og gangstiga
borgarinnar verið með erfiðasta
móti i vetur vegna snjóa og
frosta. Einkum hefur umferð
gangandi vegfarenda um gang-
stéttir verið erfið, enda var það
upplýst i borgarráði, að við ruðn-
ing á götum hefði snjó iðulega
verið rutt upp á gangstéttir og
vegfarendur siðan mátt prila yfir
snjóskafla og klakabunka til þess
að komast leiðar sinnar. Afleið-
ingar þessa ástands hafa verið
þær, að fjöldi fólks hefur dottið og
beinbrotnað og hafa slik slys ver-
ið með mesta móti.
1 borgarráði og borgarstjórn
hefur verið rætt um ýmsar ráð-
stafanir til þess að bæta úr sliku i
framtiðinni. Hefur borgar-
ráð m.a. samþykkt að kaupa
ný snjóruðningstæki fyrir borgina
til þess að betur verði unnt að
mæta snjóþunganum, en verið
hefur. En i sambandi við þetta
mál hafa ýmsir borgarar látið sér
detta i hug, hvort ekki væri unnt
að nota afrennslisvatn Hitaveit-
unnar til þess að bræða is og snjó
af gangstéttum iborginni með þvi
að leggja lagnir undir stéttirnar.
Að sjálfsögðu væri unnt að gera
slikt ef nægilegir fjármunir væru
fyrir hendi. En ég tel að byggja
ætti á slikum ráðstöfunum i mið-
borginni og taka fyrir eina og eina
götu i einu.
Borgarráð hefur nú samþykkt
að hita upp allt yfirborð Austur-
strætis. Ég tel, að einnig ætti að
leggja hitaveitulagnir undir
gangstéttir Bankastrætis og
Laugavegs og fjallar tiliaga min
um það að borgarverkfræðingi
verði falið að gera áætlun um
kostnað við þá framkvæmd og tel
ég sjálfsagt, að borgarráð feli svo
borgarverkfræðingi framkvæmd-
ir i framhaldi af þeirri athugun.
Enda þótt ég telji, að borgin
eigi að tryggja greiða færð að
vetrinum um allar götur og gang-
stéttir borgarinnar tel ég, að
veita eigi miðborginni forgang i
þeim efnum. En á yfirstandandi
vetri hefur gangandi fólk ekki
með góðú móti komist leiðar sinn-
ar um gangstéttir Laugavegs eða
Austurstrætis hvað þá um aðrar
götur. Er slikt að sjálfsögðu ófært
ástand.
í Sviþjóð eru nú 16 göngusvæði
með hitun i götuyfirborði. Væri
ekki rétt, að Reykjavikurborg
tæki Svia sér til fyrirmyndar i
þessu efni og notaði jarðhitann til
þess að hita upp þótt ekki væri
nema yfirborð gangstétta ákveð-
inna gatna i borginni? Það tel ég,
að Reykjavikurborg ætti tvi-
mælalaust að gera. Vil ég þvi
vænta þess, að tillaga min hljóti
samþykki”.
Að umræðunum loknum var til-
laga Björgvins borin undir at-
kvæði og samþykkt með 15 sam-
hljóða atkvæðum.
FLOKKSSTARFIÐ
Hafnfirðingar:
SPILAKVÖLD
Alþýðuflokksfélögin i Hafnarfirði minna
á spilakvöldið i Alþýðuhúsinu n.k. sunnu-
dag kl. 20,30.
Kaffiveitingar og fjöldi góðra verð-
launa.
Avarp flytur ERNA FRIÐA BERG.
Mætið vel og stundvislega.
Nefndin
Félagsstarf F.U.J.
SPILAKVÖLD
Félagsvistin verður i cafeteríunni Glæsibæ, þriðjudagínn 5. mars
n.k. og hefst kl. 20.30.
GÓÐ VERÐLAUN í BOÐI ALLIR VELKOMNIR
F.U.J.
SKOÐAN AKON N U N
VEGNA FRAMBOÐS TIL BÆJARSTJÓRNAR
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði hefur ákveðið að láta
fara fram skoðanakönnun um frambjóðendur á lista flokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar á komandi vori.
Skoðanakönnunin fer fram í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði föstudaginn 1.
mars n.k. kl, 5—10 síðdegis og laugardaginn 2. mars n.k. kl. 2—6 síðdegis.
Rétt til þátttöku í þessari skoðanakönnun hefur allt félagsbundið Alþýðu-
flokksfólk í Hafnarfirði 17 ára og eldra og aðrir stuðningsmenn A-list-
ans sem kosningarétt hafa i Hafnarfirði.
Uppsf illinganef nd
o
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.