Alþýðublaðið - 28.02.1974, Page 10
Úr öllum áttum
Afmælismót KR
i badminton
I tilefni 75 ára afmælis KR á
þessu ári, gengst badminton-
deild félagsins fyrir afmælis-
móti dagana 9. og 10. mars
n.k. Keppt verður i einliða- og
tviliðaleik i m.fl. og a-flokki,
og tvlliðaleik kvenna.
Þátttöku skal tilkynna
Reyni Þorsteinssyni I simum
38177 og 82398 fyrir 5. mars.
AA
Námskeiö i
körfuknattleik
Dagana 9.—14. júni veröa
haldin I Belgiu námskeið fyrir
verðandi FIBA-dómara, auk
námskeiðs fyrir þjálfara. KKI
greiðir þátttökugjald is-
lenskra þátttakenda. Þeir að-
ilar, sem hafa hug á að sækja
þessi námskeið geta fengið
upplýsingar hjá Gylfa
Kristjánssyni i sima 83958,
fyrir 10. mars n.k.
AA
Minniboltamót
Islandsmótið i minnibolta
(körfuknattleikur) hefst 10.
mars. öllum skólum og félög-
um er heimilt að senda eins
mörg 10 manna lið og þeir
óska. Þátttöku skal tilkynna i
box 864.
AA
Fimleikahátið
Fimleikasamband Islands
hefur fengið boð um að senda
sýningarflokk á fimleikahátið
I Holstebro i Danmörku dag-
ana 31/5 —3/6 1974.
Nánari upplýsingar hjá
skrifstofu F.S.l.
A A
Unglingameistaramót
íslands í Badminton
veröur haldið í iþrótta-
húsi Vals, Reykjavík,l6.
og 17. mars n.k.
Keppt verður í eftir-
töldum greinum:
Einliðaleik, tviliðaleik
og tvenndarleik. Keppt
verður i öllum aldurs-
flokkum unglinga.
Þátttökutilkynningar
skulu hafa borist til
formanns B.S.Í., Karls
Maack, Skipholti 50,
Rvk., fyrir 10. mars n.k.
Heimsmeistarakeppnin hefst í dag
MÆTUM TÉKKUM f FVRSTA LEIK
i dag hefst heimsmeist-
arakeppnin í handknatt-
leik. Til úrslita leika 16
lið, 8 efstu liðin í síðustu
Ólympíuleikum og önnur
8 lið sem hafa unnið sér
þátttökurétt eftir undan-
keppni. I þeim hópi er ís-
land. Keppt verður í f jór-
um riðlum, en síðan fara
undanúrslit og úrslit
fram í Berlín. í undanúr-
slitin komast 8 lið, tvö
efstu i hverjum riðli. ís-
land leikur með Vestur-
Þjóðverjum, Tékkum og
Dönum í riðli. Fyrsti leik-
ur liðsins er gegn Tékkum
og fer hann fram í dag í
borginni Karl-Maxstadt.
Enginn vafi er á þvi, að
Island lendir i sterkasta riðlin-
um. Allar þjóðirnar eru i topp-
klassa, þótt Vestur-Þjóðverjar
séu liklegastir sigurvegarar.
Hins vegar myndi sigur gegn
Tékkum og Dönum tryggja okk-
ur sæti i undanúrshtum, en
vissulega er sigur yfir Þjóðverj-
um ekki útilokaður. Lendi Is-
land hins vegar I þriðja sæti i
riðlinum, verður keppt um
9.—12. sæti, en ef liðið verður i
neðsta sæti, kemur það beina
leið heim.
Myndin hér að ofan er þýsk. I
texta sem fylgdi myndinni, seg-
ir að harka hafi færst mjög i
vöxt I handknattleiknum, og þvi
séu sterkir menn og stórir stöð-
ugt að sækja þar á, á kostnað
minni og leiknari manna. Hand-
knattleiksmenn þurfi ekki að
taka högg á sig siður en boxar-
ar. Þessari þróun eigi nú að
snúa við, og þvi verði tekið
harðar á grófum leik i þessari
keppni en verið hefur.
Þrir iandsliðsmenn. Hverni
tekst þeim og félögum þeirr
upp i HM á næstunni?
Frá aðalfundi UMF Kjalnesinga
Framkvæmdastjórinn hætti vegna fjárskorts
51. ársþing Ungmennasam-
bands Kjalarnesþings (UMSK)
var haldið 13. jan. '74, að Fé-
lagsgarði i Kjós eða tæpum 2
mánuðum seinna en lög gera
ráð fyrir.
Ástæðu þess má rekja fyrst og
fremst til siaukinna umsvifa á
sviði iþrótta og félagsmála.
Þingið stóð yfir i 10 klst.
Störf þingsins einkenndust af
dugnaði virkra fulltrúa og kom
það m.a. fram i þvi aðengin mál
lágu fyrir á þinginu af hálfu
stjórnarinnar, en mörg mál
voru rædd og margar sam-
þykktir gerðar og flestar i þá átt
að auka samskipti félaganna
annarsvegar og UMSK og félag-
anna hins vegar, á sviði iþrótta
og félagsmála með sameigin-
legum fundum, heimsóknum,
hópferðum og að sjálfsögðu
þeim fjölda móta sem árlega
eru haldin i ýmsum greinum
iþrótta á sambandssvæðinu.
Sigurður R. Guðmundsson rit-
ari stjórnar UMFl mætti til
þingsins sem gestur.
Um skeið hefur UMSK haft
framkvæmdarstjóra i fullu
starfi en hætta varð við það
seint á árinu ’73 vegna fjár-
skorts og er það miður, vegna
þess mikilvæga hlutverks sem
framkvæmdastjóri gegnir hjá
sambandinu og aðildarfélögum
þess, en von er að úr bætist.
Félagatala UMSK er nú á 3.
þúsund.
UMSK starfrækir skrifstofu
að'Klapparstig 16, Rvk, og er
hún opin frá kl. 17.00 til 19.00
virka daga.
Formaður núverandi stjórnar
UMSK er Ólafur Oddsson,
Neðri-Hálsi, Kjós, og varaform.
Páll Aðalsteinsson, Bjarkar-
holti, Mosfellsveit. Aðrir i stjórn
eru: Sólveig Sveina Svein-
björnsdóttir, Grétar Tryggva-
son, Magnús Sigurðsson, Þor-
geir ólafsson, Þórður Guð-
mundsson, Ingvi Guðmundsson
og Jónas Jóhannsson.
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.