Alþýðublaðið - 17.06.1974, Síða 7
Þjóðhátíðarskjóni
Framhald af bls. 3.
og hafa keðjur á framhjólunum
gat ég látið bilinn krafla sig
áfram eftir hjólförunum. Ekki
dugði að stoppa, þá hefði billinn
vafalaust fokið útaf, enda hafði
Jón Hjálmarsson i Skógum sagt
við mig, þegar ég leit við hjá
honum i kaffisopa, að þetta væri
svosem ekkert slæmt, en þó
hefði bilar fokið i ekki verra
veðri. Þarna við veginn keyrði
ég fram á fólksbil, sem stóð
kyrr á mel, og fólkið sat i honum
grafkyrrt og alvarlegt og beið
vafalaust eftir þvi, að veðrið
gengi niður. En billinn gekk upp
og niður i hviðunum og hraktist
undan veðrinu.
En úr þessum ferðum minum
vil ég gjarnan nefna tvo menn,
sem mér eru sérstaklega
minnisstæðir. Þegar ég var á
leiðinni vestur i Búðardal i
vetur stoppaði ég i Hreðavatns-
skála og hitti þar Leopold
Jóhannesson, veitingamann.
Hann sagði mér, að i Bröttu-
brekku væri þæfingsfærð, og þvi
betra að setja keðjur undir
bilinn. Ég sagði Leopold, að það
væri áreiðanlega óþarfi, en
sannleikurinn var sá, að ég
nennti ekki að fara að standa i
veseni með keðjur. Þegar ég
hafði fengið mér hressingu i
skálanum og kom aftur út að
bilnum var Leopold hinsvegar
að ljúka við að ganga frá keðj-
unum undir bilnum. Þetta
finnst mér svo einstök greiða-
semi, að ég verð að geta þess, —
og það er skemmst frá þvi að
segja, að i Bröttubrekku voru
nokkrir slæmir skaflar, sem ég
reif Þjóðhátiðar-Skjóna
i gegnum með hjálp keðjanna.
Hinn manninn, sem mig
langar til að geta, hitti ég á
Kaffiteriunni I Hótel KEA,
þegar ég var á leiðinni á
Raufarhöfn og Egilsstaði vetur-
inn 1972. Það var Pétur Jónsson
frá Hallgilsstöðum (betur
þekktur sem fyrri helmingur
flutningafyrirtækisins Pétur og
Valdimar á Akureyri), sem ég
þekki frá keyrsluárum minum á
Akureyri. Færðin á Möðrudals-
öræfum var ótrygg, og ég átti
framundan langa og einmana-
lega ferð. Þvi sló ég þvi fram við
Pétur, hvort hann vildi ekki
gera það fyrir þjóðhátiðarhald
Islendinga að fara með mér i
þessa ferð. ,,Það held ég nú,”,
sagði Pétur og sló lófanum i
borðið. Siðan var hann með mér
i þrjá daga, og það var eins og
fjöldi manns væri i bilnum en
ekki við Pétur einir, þvi hann er
eftirherma góð. Þarna á leiðinni
var ég þvi i félagsskap margra
ágætra manna, svosem Daviðs
Stefánssonar og Bernharðs
Stefánssonar, alþingismanns,
— Og nú er þessum ferða-
lögum lokið.
— Já, og siðasti staðurinn,
sem ég heimsótti, var Kirkju-
bæjarklaustur, þar sem var
ákveðið að halda tvær Skaftfell-
ingahátiðir en sameinast siðan
um brúarvigsluhátið við
Skeiðará. Nú eru þvi komin
timamót i þessum hátiðahöld-
um og framkvæmdastigið hafið
um allt land. Það má segja, að
núna, þegar við röbbum hérna
saman, að ekki sé beðið eftir
öðru en vorinu til þess að hægt
sé að hefjast handa, og raunar
eru ýmsar framkvæmdir þegar
hafnar, svosem smiði á grind-
um og fleira.
— En að lokum. Indriði, hvað
er framundan hjá þér, þegar
öllu þessu er lokið?
—■ Það er ekkert sérstakt
framundan hjá mér sem
stendur. Nú geta hlaupamenn
eins og ég varla komist i
nokkurt starf, þau eru öll komin
i fagfélög. Ég get þvi aðeins
stundað tvö störf: ég get ekið
langferðabil þvi ég er með
meirapróf, og ég get stundað
blaðamennsku. Þorri
FERÐAFOLK:
Vér bjóðum yður góða þjónustu i verslunum vorum.
Matvörudeild: úrval matvara, búsáhöld.
Vefnaðarvörudeild: sportfatnaður, skór, gjafavörur.
Byggingavörudeild: veiðarfæri, viðleguútbúnaður,
Essoskáli: veitingar, matvörur, bensin, oliur.
Útibú Blönduósi og Skagaströnd.
Eitthvað af öllu.
Verið velkomin
Kaupfelag Hunvetninga
Blönduósi.
Kaupfelag
Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
Kaupfélagið útvegar félagsmönnum sinum nauðsynjavörur eftir
þvi sem ástæður leyfa á hverjum tima, og tekur framleiðsluvörur
þeirra i umboðssölu.
í þjóðhátíðardaginn
Tilboð óskast i að reisa og gera fokhelt
kennsluhús héraðsskólans að Reykjum i
Hrútafirði.
Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000.00
kr. skilatryggingu á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavik.
Tilboð verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 9. júli 1974, kl. 1100 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Frá Bændaskolanum
á Hvanneyri
Umsóknir um skólavistiBændadeild skulu
berast fyrir 1. ágúst og Framhaldsdeild
fyrir 10. júli næstkomandi.
Frá og með haustinu 1974 verða þeir, sem
hyggja á nám i Framhaldsdeild Bænda-
skólans á Hvanneyri og hafa ekki lokið
stúdentsprófi, að ljúka undirbúningsnámi,
sem svarar til náms i Undirbúnings- og
Raungreinadeildum Tækniskóla Islands.
Umsóknir um inngöngu i Undirbúnings-
deild skulu berast Bændaskólanum á
Hvanneyri fyrir 1. júli næstkomandi.
Skólastjóri.
sendum vér félagsmönnum vorum og öðrum viðskiptavinum fjær
og nær kveðjur og árnaðaróskir.
Kaupfélag Hafnfiröinga
Listahátið íReykjavík
7—21 JUNI
MIÐASALAN
i húsi Söngskólans
í Reykjavik að
Laufásvegi 8 er
opindaglega
frá kl. 14,00-18,00
Simi 2-80-55
Ferða
félagsferðir
16. júni:
kl. 9.30 Söguslóðir Njálu,
Verð kr. 1.200
kl. 9.30 Norðurbrúnir Esju,
Verðkr. 600
kl. 13. Móskarðshnúkar,
Verð kr. 400
17. júni:
kl. 9.30 Marardalur-Dyravegur,
Verð kr. 700
kl. 13. Jórukleif-Jórutindur,
Verð kr. 500
Brottfararstaður B.S.Í.
Ferðafélag tsiands.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
SÉRFRÆÐINGUR i þvagfærasjúk-
dómum óskast við
HANDLÆKNINGADEILD hið
fyrsta. Upplýsingar veitir yfirlækn-
ir deildarinnar, simi 24160.
VAKTMAÐUR (HÚSVÖRÐUR)
óskast til starfa við spitalann hið
fyrsta til framtiðarstarfa. Upp-
lýsingar veitir umsjónarmaður,
simi 24160, milli kl. 4-6 e.h. næstu
daga.
Umsóknum er greini aldur,
menntun og fyrri störf ber að senda
skrifstofu rikisspitalanna Eiriks-
götu 5.
SKRIFSTOFA
R í KISSPÍTALANN A
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
Mánudagur 17. júní 1974
o