Alþýðublaðið - 17.06.1974, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 17.06.1974, Blaðsíða 12
Seljum á hagstæðu verði allar nauðsynja- vörur, búsáhöld, fatnað, vefnaðarvöru, snyrtivörur, gjafavörur. Einnig timbur og ýmsar aðrar bygginga- vörur. Tökum landbúnaðarvörur i umboðssölu. Kaupfélag Grundfirðinga Grundafirði Húsbyggjendur og verktakar Höfum á lager stálbita til smíði og uppsetningar stálgrinda- og !; | stálgrindahúsa. BORGARSMIDJAN HF. Borgarholtsbraut 86, Kópavogi - Sími 41965 W&EYF7ÍZ Simi 85522 ER STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ LANDSINS HREYFILL veitir yður þjónustu allan sólarhringinn. TALSTÖÐVARNAR i bifreiðum vorum gera kleift, að hvar sem þér eruð staddur i borginni er HREYFILS-bill nálægur. Þér þurfið aðeins að hringja i sima 8-55-22 WWEYF/LZ ÞARFT ÞÚ HVÍLD? Framleiöandi: I M O D E L I |H ÚSG Ög NI Þegar þú ert búinn að byggja, þá þarft þú hvild. Hugmynd: Spurðu um stól frá okkur! Modelhúsgögn BÍLAR OG UMFERÐ UMSJÓNs Þorgrímur Gestsson TRABANT 601 VÉL: Tveggja strokka, þvert- liggjandi, loftkæld tvigengisvél. Rúmtak: 594,5 ccm. 30 hö SAE við 4200 snún/min. Sveifarás þrykktur 1 rúllulegur, smurn- ingu blandað i bensinið i hiut- fallinu 1:33. GÍRKASSI OG DRIF: Fjór- skiptur, ailir girar samhæfðir. Frlhjólun sjálfvirk i fjóröa gir. Framhjóladrif. RAFKERFI: 6 volt LENGD/BREIDD/UÆD: 3555/ 1505/ 1440 mm (fólksbill- inn ). 3500/ 1510/ 1470 mm (sendiferðabiiiinn). HAMARKS.HRAÐI: 100 km/klst. BENSÍNEYÐSLA: 7-9 1/100 km 30 ÁRA HÚMOR Þegar ég sé þig, verður mér alltaf hugsað til hans Jóns.” ,,Ég er þó ekkert likur hon- um.” ,,Ó—jú. Þið skuldið mér báðir hundrað krónur.” ,,Hann Siggi er svo óþolandi montinn.” ,,Já, fyrr má nú vera. Á siðasta afmælisdegi sinum sendi hann móður sinni heilla- skeyti.” • • • „Helmingur vina hans vill ekki þekkja hann, siðan hann tapaði öllum peningunum sin- um.” ,,Og hinn helmingurinn? ” „Hann veit ekki enn, að maðurinn er orðinn öreigi.” „Þú segir, að hann hafi ekki látið neina peninga eftir sig?” „Nei, hann varð nefnilega heilsulaus við það að afla auð- æfanna, og varð svo félaus á þvi að reyna að afla sér heils- unnar aftur.” „Þessi vasi er 2000 ára gamall, svo að þér verðið að fara varlega með hann.” „Verið alveg óhræddur: Ég skal gæta hans, eins og hann væri spánnýr.” „Hvað sagði hann að þú værir! ” „Lakoniskur.” „Hvað þýðir það?” „Ég veit það ekki. En ég gaf honum á hann svona til vonar og vara.” Alþýðublaðið reynsluekur I TILEFNI AF ENDURKOMU TRAB Saga Trabant á fslandi er orðin 11 ára gömul en það var árið 1963, sem Ingvar Helgason fór að flytja hann inn frá Austur-Þýskalandi. Trabant vakti þegar mikla athygli fólks, ekki sist fyrir tvennt, yfir- byggingin var úr trefjaplasti og verðið ótrúlega lágt, eða rúm- lega 60 þúsund krónur, sem var jafnvel mjög litið verð fyrir bil þá. Arið 1965 varð gerbreyting á útliti Trabant, hann var stækk- aður nokkuð og vélin endurbætt. Eftir það var hann fluttur inn i fjögur ár eða til ársins 1969, en þá brá svo við, að Ingvari Helgasyni tókst ekki að fá hann til landsins. Ástæðan var sú, að verksmiðjan i Zwikau annaði ekki eftirspurninni, og lengi vel var litið eða ekkert selt út- fyrir heimalandið, en áður hafði hann selst vel i ýmsum Vestur- Evrópulöndum, t.d. Hollandi og Danmörku, auk Islands. En siðan gerðist það, að Ingvari tókst að semja um kaup á 200 - Trabant á ári næstu fimm árin, og eru fyrstu 200 bilarnir væntanlegir i sumar. Tveir sýningarbilar eru þegar komnir, og að þvi er þeir segja hjá umboðinu eru þegar nokkrir pantaðir, og ég veit um ýmsa núverandi og fyrrverandi Trabant eigendur, sem hafa boddistál, bæði vegna þess að það ryðgar ekki, og eins vegna þess, að tiltölulega auðvelt er að gera við það þar sem það brotnar og springur við árekstra en beyglast ekki, og heldur því laginu. Ennfremur má benda á, að Trabantinn er ekki eini billinn úr plasti, — ýmsir frægir sportbilar eins og Saab og sportbilar frá GMC eru úr plasti, og sömuleiðis allir hraðskreiðustu kappaksturs- bilar. Annað gagnrýnisefni er frá- gangurinn, sem mönnum finnst slæmur, og billinn er heldur kuldalegur og „nakinn” að innan. Undir þetta get ég vissu- lega tekið, en á hitt ber að lita, að einhverju verður að fórna til að halda verðinu niðri. Af einhverjum sökum er Trabant ódýrasti billinn á markaðnum, en hann kostar 281-291 þúsund krónur. Fyrir það verð má billinn endast helmingi skemur en bilar af næstu verðflokkum fyrir ofan, og til bils á þessu verði er ekki hægt að gera miklar kröfur. Hvort menn vilja eiga Trabant eða ekki fer aðallega eftir viðhorfi þeirra til bila. Er bill lúxustæki, — á hann að vera þægilegur, kraftmikill og iburðarmikill, — eða á hann eingöngu að vera tæki til að ■ pantað sér nýjan bil eða ætla að gera það. En eins og margir vita hefur Trabant alla tið verið umdeildur bíll, og hafa menn ýmist haft megnustu fyrirlitningu á honum eða verið hrifnir af honum og gefið honum sin bestu meðmæli. Astæðan fyrir þvi, að deilt hefur verið á Trabant er fyrst og fremst sú, að hann er úr plasti. Menn virðast þótt undarlegt sé hafa einhverja ótrú á plasti á þessari plastöld, og ótal brand- arar eru til um Trabantinn þessvegna. En staðreyndin er, að plast er að mörgu leyti hentugra i bila en venjulegt komast i á milli staða á sem ódýrastan hátt? Hafi menn siðarnefnda viðhorfið er þeim alveg sama þótt þeir eigi Trabant. En snúum okkur að nýjasta Trabantinum, árgerð 1974. Hann er að langmestu leyti eins og árgerð 1969, sem siðast var flutt til landsins. útlitinu hefur ekkert verið breytt, en nokkrar breytingar hafa þó átt sér stað i vélarrúminu. Vélin er tveggja strokka, loftkæld tvigengisvél eins og áður, en krafturinn hefur verið aukinn úr 26 hö i 30, og finnst sá munur greinilega i akstri. Sérstaklega verður 0 Mánudagur 17. júní 1974

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.