Alþýðublaðið - 09.08.1974, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.08.1974, Blaðsíða 3
„Jesús, Júdas, Pétur postuli” í Mánum við trommara sem fjórða mann iHM Átakalausar umræður um orsök þingrofsins „Pálmi var akkúrat maður- inn sem okkur vantaði i Mána til að flikka upp á sönginn, enda getum við nú boðið upp á mun Fjölbreyttari tónlist en áður, og verður mikið raddað hjá okkur af öllu tagi” sagði Olafur Þórar- insson, „Labbi i Glóru” i viðtali við blaðið i gær. Fyrsti dansleikur Mána með Pálmá Gunnarssyni verður á Borg i Grimsnesi annað kvöld, en annars sagði Ólafur að þeir aetluðu ekki að einskorða sig við að spila fyrir austan fjall. Hljómsveitin Mánar er orðin niu ára, og hefur ólafur verið i henni allan timann og Guð- mundur Benediktsson einnig frá upphafi, nema hvað hann þurfti tvisvar að hætta vegna náms, en byrjaði svo aftur. Smári Kristjánsson, sem ver- ið hefur með Mánum i mörg ár, hætti fyrir skömmu. Þá er Sig- urjón Skúlason f jórði liðsmaður þeirra, og spilar á trommur. Þótt Guðmundur Benedikts- son hafi af og til hætt vegna skóla, ólafur alltaf verið á Sel- fossi og Pálmi alltaf i Reykja- vik, eiga þeir þó það sameigin- iegt að hafa allir leikið eða flutt tónlist saman, en það var i söng- leiknum Superstar, sem sýndur var i Austurbæjarbió á sinum tima. Þá lék Guðmundur Jesús, Pálmi Júdas og ólafur Pétur postula. Eru þvi „Jesús, Júdas og Pétur postuli” saman komnir i baði á meðfylgjandi mynd og hafa nú fengið trommuleikara til liðs við sig, rétt eins og til að vera nútimalegri. Fundir voru haldnir i báðum deildum Alþingis i gær. I neðri deild fór fram tiðindalitil fyrsta umræða um frumvarp til stað- festingar á „timabundnum ráð- stöfunum til viðnáms gegn verð- bólgu”. Við upphaf umræðunnar sagði Ólafur Jóhannesson, forsætisráð- herra, að hann teldi ekki rétt, að á þessu stigi færu fram efnislegar umræður um frumvarpið, en lagði til, að þvi yrði visað til nefndar, sem siðan var samþykkt við lok umræðunnar. Auk forsætisráðherra tóku að- eins til máls nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og vakti at- hygli, að þeir héldu ekki upp efn- islegri gagnrýni á efni frum- varpsins. En sem kunnugt er eru efnisatriði þess i aðalatriðum tek- in upp úr frumvarpi Ólafs Jó- hannessonar um viðnám gegn verðbólgu, sem orsakaði þingrof- ið i vor. Gunnar Thoroddsen var aðal- talsmaður Sjálfstæðisflokksins við umræðuna i neðri deild i gær og vék hann litið sem ekkert að efni frumvarpsins, en ræddi um alvarlega stöðu efnahagsmáia. Sagðist hann vona, að Alþingi gæti sem fyrst myndað sterka rikisstjórn, sem tækist að skapa traust, og fær yrði um að takast á við erfiðleikana i efnahagsmálun- um. I efri deild var á dagskrá frum- varp til laga um happdrættislán rikissjóðs til að fullgera Djúpveg ,,Þéttbókað" í utanlandsflug „Nú er fullbókaö á allt flug til Norðurland og London til 20. ágúst og þéttbókað fram undir miðjan september," sagði Sigurður Ingvars- son skrifstofustjóri hjá Flugleiðum á Vesturgöt- unni í viðtali við blaðið. Sigurður sagði að ó- venjumikið væri um flug nú til Norðurlanda. ( hverri viku eru 14 ferðir til Norðurlanda og hefur þurft að setja inn auka- ferðir í hverri viku til að anna eftirspurn. Til London eru 5 ferðir í viku núna og er uppselt. Svipaða sögu er að segja frá fluginu til Bandaríkjanna. í hverri viku er flogið 22 til Bandaríkjanna þar af 17 sinnum til New York og 5 sinnum til Chicago. Mjög er þéttbókað í allar þess- ar ferðir, Nú er vegurinn um Skeiðarársand orðinn ein fjöl- mennasta ferðamannaleiðin á tslandi, og þar með er orðinn greiður aðgangur að lengstu sandströnd landsins — það tekur aðeins fáeinar klukkustundir að ganga þangað frá veginum. Ekki er þó von til þess, að þessi sandströnd verði gerð að baðströnd, en það getur verið gaman að sandinum þótt ekki sé hægt að liggja þar og sleikja sólskinið eftir að hafa buslað i sjónum. tslendingar geta fengið nóg af sliku suður á Spáni. Það getur verið fullt eins gaman að ganga i sandinum og skoða hann og horfa á öldur- nar brotna eftir ferð sina yfir Atlantshafið, — eða hlaupa eins og strákurinn á myndinni og þreyta kannski kapp við öldurnar. HORNIÐ SJOMANNASTOFA? Lúðvík þreytir lax meöan hinir þreyta við stjórnarmyndun Það vakti nokkra athygli og umræður manna á milli i bak- sölum Alþingis i gær, að Lúð- vik Jósefsson, sjávarútvegs- og viðskiptarábherra, — hinn sterki tnaður Alþýðubanda- iagsins — var fjarverandi. Skýringin á fjarveru ráð- herrans er sögð sú, að hann sé á laxveiðum og þvi hefur hann ekki tekið þátt i viðræðum stjórnmálaflokkanna fjögurra uin stjórnarmyndun siðustu tiu dagana. „Sjómaður” skrifar: „Hvar er sjómannastofan i þessu landi? Ég spyr bara vegna þess, að ég hef verið hér á bátum og fragtskipum sem hafa bækistöð og höfn i Reykjavik, og hef ekki enn haft spurnir af neinu afdrepi fyrir sjómenn, sem eiga ekki fast heimili hér i höfuðborginni. Ég hef viða farið um heimsins höf og oft leitað hafnar, en hvorki fyrr né siðar fyrirhitt neitt i likingu við Sjó- mannaheimilið á Siglufirði. Hafi ég nokkurn tima átt heimili utan eigin heimilis, þá var það þar. Gott kaffi var alltaf á könn- unni og meðlæti. Þar voru blöð- in. Þar var hægt að fara i bað. Þar var hægt að skrifa heim. Þar lágu bréf, sem maður var að vonast eftir. Þar var hreint og hlýtt, laust við allan tepru- skap. Ég man aldrei eftir þvi, þau sumur sem ég var á sild, að þessu heimili væri nokkru sinni sýnd óvirðing, hvorki með á- fengisneyslu eða annars konar óhófi. Þetta var heimili, sem við lá að maður saknaði siðar. Mörg sjómannaheimili hef ég komið á, sem ég er þakklátur fyrir, en ég sakna þess, að hérna i Reykjavik skuli ekki vera neitt heimili, sem likist þvi að vera sjómannaheimili. Það vantar hér og vantar illa. Enginn talar um þetta, mitt i allri velferðinni, nema aðkomu- sjómenn sin á milli. Ég leyfi mér, fyrir mina hönd og minna félaga, að óska þess, að þvi verði gaumur gefinn fyrr en sið- ar, að hér er um að ræða mikils- vert mál fyrir alla, sem það varðar”. Þeir fengu ° >) lán 2 Grundarfjörtiur: 29. Hratifrystihús Grundarfjartiar h.f- Lán v/endurbóta á hraSírystihúsi 2.000 30. Ingólfur Jón Sigurtissow Lán v/kaupa á m/b Frosta SH-181 100* 31. Kristinn Arnberg: Lán vAaupa ‘á m/b Gullfaxa VE- 102 ............................. 266* 32. Jón Kjartansson: Lán v/kaupa á m/b Hafbjörgu NK-7 .................................. 225* 33. Gnýfari h.f.: Lán v/endurbóta á m/b Gnýfara SH-8 ............................ 800 Stykkishólmur: 34. Kristinn Finnsson: Lán v/kaupa á pípugerðarvélum o. fl..................... 300 35. ösp h.f.: Lán v/byggingar og trésmíöavéla 700 36. Konráti Júlíusson: Lán v/kaupa á m/b Sigurvon AK- 56 «tö5* 37. Sigurtiur s.f.: Lán v/kaupa á m/b Hlyn RE-93 788* 38. Sigurtiur Ágústsson h.f-: Lán til endurbóta á frystihúsi .. 1.200 39. Þorvartiur Gutimundssoru Lán v/nýsmiði 35 lesta fiskibáts 5% .................................. 1.150* 40. Hjörleifur Jónssorv Lán v/ m/b Kóps SH-132 ................ 340 41. Trésmitija Stykkishólms h.f. Lán v/viðbyggingar og vélakaupa 600 42. Skelfiskvinnsla Stykkishólms h.f_• Lán v/uppbygg. skelfiskvmnslu 2.700 Klofningshreppur: 43. Hnúksnes h.f.• Lán v/endurbóta á frystigeymslu 100 Reykhólahreppur: 44. Sjávaryrkjan h.f.: Styrkur v/undirbún. þangvinnslu 400 Bartiastrandarhreppur: 45. Hreppurinn: Styrkur v/lendingarbóta ......... 150 46. Einar Gutimundssorv Lán v/nýsmí8i 2,5 lesta fiskibáts 5% ............................... 28* Rautiasandshreppur: 47. Hreppurinru Styrkur til viSgerSar á bryggju a8 Gjögrxun ........................ 300 48. Samúel Bjarnasorv Lán v/endurbóta á m/b Kóp KE- 132 .................................. 100* Palreksfjörtiur: 49. Fiskimjölsverksmitijan Grótti h.fs Lán v/endurbóta á verksmiSjunni 500 50. Mjólkursamlag V.-Bartiastrandars. Lán v/tækjakaupa ................ 350 51. Hratifrystihús Patreksfjartiar h.f.: Lán v/byggingar nýs frystihúss .. 4.500 52. Skjöldur h.f.: Lán v/vélakaupa o. fl. i frystihús 600 53. Rœktunarsamb. V.-Bartiastrandars.: Lán v/grei8sluerfi81eika v/jar8ýtu- kaupa ............................... 1.000 54. Gestur h.f.: Lón v/raflínulagnar a8 hóteli í Flókalundi .................... 1.000 55. Oddi h.f.: Lán v/vi8byggingar vi8 fiskverk- unarhús ....................... 1.000 56. Patrekshreppur: Lán til kaupa é tækjum og til endurbóta á áhaldahúsi .... 600 Blldudalur: 57. Sutiurfjartiarhreppur: Lán til þess a8 endurlána v/kaupa á m/b ViSey RE-12............... 500 58. Grastiir h.f.: Lán v/endurbóta á m/b Jörundi Bjarnasyni BA-64 ................ 225* 59. Jens H. Valdimarssom Lán v/endurbóta og tækja i kjöt- vinnslustöð ...................... 400 60. Kristberg Finnbogasorv Lán v/kaupa og endurbóta á m/b Dröfn BA-28 ..................... 390* 61. Einhamar h.fs Lán v/nýsmiði 150 lesta fiskibáts 5% ................................. 3.125* 62. Vélver h.f.: Lán v/endurbóta og vélakaupa fyr- ir bifreiSa og vélaverkstœ8i.... 400 63. Smitijan h.f.: Lán v/uppbyggingar járn- og vél- smiðju ......................... 64. Sókn h.f: Lán v/tjóns á m/b Árna Kristjáns- syni ................................. 300 65. Sutiurfjartiarhreppur: Lán til þcss að endurlána Sókn h.f. 200 Tálknafjörtiur: 66. Hratifrystihús Tálknafjartiar h.f.: Lán til endurbóta á fiskimjölsverk- smi8ju .......................... 90° Autikúluhreppur: 67. Hreppurinn: Braðabirgðalán v/vcgagerðar .... 400 Þingeyri: 68. Trésm. Gunnars Sigurtissonar h.f.: Lán v/uppbyggingar trésmíðavcrk- stæðis ............................... MOO Flateyri: 69. Hjálmur h.f.: Lán v/uppbyggingar frystihúss .. 2.000 70. Kaupfélag önfirtiingœ Lán v/vélakaupa og endurbygg- ingar á fiskverkunarhúsi.............. 300 71. Flateyrarhreppur: Lán v/byggingar áhaldahúss .... 500 H Föstudagur 9. ágúst 1974

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.