Alþýðublaðið - 15.08.1974, Síða 3

Alþýðublaðið - 15.08.1974, Síða 3
ETRI KINN lokið! Þetta er það, sem fólst i tilmælum Alþýðuflokksins um raunhæft samráð við ASl. Það, sem fólst i tillögum Ólafs um „samráð” við ASt að stjórnarmyndun LOKINNI var aftur á móti það, að stjórnmála- flokkarnir kæmu sér fyrst niður á það, sem gera ætti — veldu og höfnuðu án samráðs við ASI eða vitneskju um hug verkalýðs- hreyfingarinnar — og kæmu svo á eftir til launþegasamtakanna með fullmótaða efnahagsstefnu og umsamdar ráðstafanir sin á milli og segðu: Gott og vel, hér er það, sem við ætlum að gera. Hvernig list ykkur svo á? Það var einmitt á þessari teg- und af „samráði” sem vinstri stjórn ólafs Jóhannessonar sprakk i loft upp i vetur, þegar forseti ASl Björn Jónsson, yfir- gaf hana. Þá neitaði Ólafur Jóhannesson að hafa samráð við launþegasamtökin um mótun efnahagsstefnu og val ráðstafana, en hugðist leita til þeirra eftir á með fullmótaðar hugmyndir til þess að leyfa þeim að skoða. Og þess konar „samráð” gat Alþýðuflokkurinn ekki fellt sig við. Menn skyldu þvi hafa það hugfast, að það er ekki bara formsatriði, sem skilur á milli um það, hvort haft skuli samráð við launþegasamtök á meðan á stjórnarmyndunarviðræðum stendur eða eftir að rikisstjórn hefur verið mynduð. Deilan snýst um það, hvort hafa eigi verkalýðshreyfinguna með i ráðum um myndun efna- hagsstefnu stjórnarinnar — val um leiðir — eða hvort eigi að leyfa henni að kikja á pappirana eftir á. Deilan um þessa máls- meðferð stóð á milli Alýðu- flokksins, sem telur sig vera fulltrúa launþega i þessu landi, og Framsóknarflokksins, sem sneri sér beinustu leið yfir til ihaldsins eftir að hafa hafnað eðlilegum og sjálfsögðum til- mælum Alþýðuflokksins um samráð við launastéttirnar i landinu. En sagan af þessu máli er þó ekki öll búin enn. E.t.v. hefði Ólafur Jóhannesson ekki reynst svo harður á stefnu sinni um að sniðganga Alþýðusamband ts- lands ef Alþýðuflokkurinn hefði fengið stuðning frá hinum flokkunum i viðræðunum — þ.e.a.s. Alþýðubandalaginu og tætingsliðinu hans Torfa. En svo undarlega brá við, að báðir þessir flokkar tóku afstöðu með Ólafi Jóhannessyni i þessu máli gegn Alþýðuflokknum — báðir þessir flokkar töldu það ekkert atriði, hvort verkalýðshreyfing in yrði höfð með i ráðum eða ekki. Þannig fór sem sé ný og betri vinstri stjórn i vaskinn. t fyrsta lagi á afdráttarlausum kröfum kommúnista um varnarlaust land, en með þvi fóru i raun við- ræðurnar út um þúfur. Og i öðru lagi á þvi, að allir flokkarnir ut- an Alþýðuflokkurinn höfnuðu þeirri sjálfsögðu málsmeðferð að hafa samráð við launþega- samtök um aðgerðir, sem þó snerta bæði kjör og kjarasamninga launafólksins i landinu — allir flokkar utan Al- þýðuflokkurinn slógu á fram- rétta samstarfshönd miðstjórn- ar ASt. E.t.v. má þvi segja, að farið hafi fé betra en sú rikisstjórn, sem mögulegt hefði verið að koma á fót við slikar aðstæður. Sighvatur Björgvinsson. „Fáið ykkur appelsínur, — reynið að tina úr þessu það sem er ekki ó- nýtt", kölluðu verka- menn, sem voru að flytja appelsínufarm á vörubíl i gærdag og voru svo óheppnir, þegar bíll- inn beygði úr Kalkofns- veginum inn í Tryggva- Laugardagslokunin hefur reynst vel götu, að nokkrir kassar hrundu af pallinum, nið- ur á götu, og megnið af appelsínunum kramdist í sundur. Þessum orðum var einkum beint til öku- manna, sem komu á eft- ir vörubílnum, en töfð- ust vegna þessa óhapps og komust ekki fram- hjé. Voru því appelsín- urnar eins konar sárabót handa þessum bílstjór- um, og þeir dunduðu sér við að taka utan af appelsínunum á meðan lokið var að þrífa upp hrúguna á götunni. „Margir kaupmenn hafa áhuga á þvi að hafa verslanir áfram lok- aðar á laugardögum,” sagði Magnús E. Finnsson fram- kvæmdastjóri hjá Kaupmanna- samtökunum en upphaflega var aðeins rætt um að hafa lokað tiu laugardaga yfir sumarmánuðina. Magnús sagði að kaupmenn ætluðu að þinga á næstunni og ræða þá almennt um reynsluna af laugardagslokuninni. Hann sagði að þetta hefði yfirleitt gefið góða raun og margir kaupmenn hefðu náð fyrri sölu. Einnig væri al- menn ánægja með þetta hjá starfsfólkinu, þvi ekki veitir af fridögum þar sem sumarið er svo stutt. Magnús sagði ennfremur að kaupmenn hefðu ekkert á móti þvi að hafaopið álaugardögum ef leyfi fengist til aö hækka álagn- ingu. Með þvi að hafa lokað á laugar- dögum hafa kaupmenn dregið úr rekstrarkostnaði þvi þá hefur ekki þurft að greiöa starfsfólki eftirvinnukaup i eins rikum mæli. Laugardagslokunin hefur leitt til þess að fólk hefur breytt verslunarvenjum sinum og kaup- ir nú meira inn i einu i stað þess að hlaupa út i búö i hvert skipti er eitthvað vantar. ÁTTA HAFA LÁTIST í UMFERÐINNI ÞAÐ SEM AF ER ÁRINU Þá sjö mánuði, sem af eru árinu, hafa orðið 4040 um- ferðaróhöpp, þar af 530 með meiðslum, þar sem 714 slösuðust og 8 létust. Sömu mánuði ársins 1973 var skráð 4051 óhapp, þar af 507 með meiðslum. Slys með meiðslum eru 23 f leiri þótt færri óhöpp séu skráð á þessu ári. Þessa sjö mánuði, sem af eru árinu létust 8 manns í umferðar- slysurn, en á síðasta ári 17 miðað við sömu mánuði. Af þeim 714 vegf arendum, sem slasast haf a á þessu ári, voru 544 akandi og 170 gangandi. Akandi vegfarendur skiptast þannig: 242 ökumenn, 245 farþegar og 57 hjól- reiðamenn. Þeir 714, sem slasast hafa skiptast þannig milli aldurs- hópa: 0—6 ára: 49, 7—14 ára: 122, 15—17 ára: 107, 18—20 ára: 108, 21—24 ára: 72, 25—64 ára: 229 og 65 ára og eldri: HORNIÐ vegagörn o l] O „ökuþór” skrifar: „Menn eru orðnir svo daufir fyrir slæmum samgöngum milli Reykjavikur og Hafnarfjarðar, sem er þó mest farna leiö á landinu, að það er ekki fyrr en nú, þegar verið er að lagfæra veggörnina þar á milli að menn átta sig fyrir alvöru á, hversu samgöngurnar þarna á milli eru algerlega ófullnægjandi. Verið er að bæta ofan á mal- bikið á leiðinni þessa dagana, en þar sem ekki er nema ein akrein i hvora átt, verður að beina allri umferðinni út á troðninga, sem ekki einusinni hefur verið haft fyrir að lagfæra til að mæta mestu umferð á íslandi. Þegar upp er staðið, fer öll umferö frá Suðurnesjum, Kefla- vik, Hafnarfirði og Garða- hreppi, til Reykjavikur eftir einni akrein á illa upplýstum vegi og þaðan af verr merktum. Þetta fyrirkomulag flokkast nánast undir öryggismál al- mannavarna, ef á það er litið að ef til náttúruhamfara kæmi i Reykjavik, geta Reykvíkingar ekki farið nema til austurs, ef brúin á Kópavogslæk bregst, en hún er gömul og þolir vart mik- inn hamagang. Þar með væri höfuðborgin einangruð frá millilandaflugvellinum á Kefla- vík, nema hvað hægt væri að komast eftir troöningi á borð við afskekkstustu sveitavegi á milli höfuðborgarinnar og milli- landaflugvallarins”. Þeir fengu lán * 1 Afram höidum við að tiunda úr reikningum Framkvæmda- stofnunar rikisins þá, sem fengu lán og styrki úr Byggða- sjóði 1973. t þessum fjórða hluta höldum við úr Vestf jarðakjördæmi, yfir Norðurlandskjördæmi vestra og fetum okkur aðeins inn I Norðurlandskjördæmi eystra: Hólmavik 113. Kaupfélag Steingrimsfi'arSar: BráðabirgSalán v/byggingar slétnr- liúss .......................... 2.500 114. Asgeir ó. SigurSssorv Lán v/kaupa á m/b Nonna VE-85 235* 115. Vélsmiðja Jóhanns og Unnars: Lén v/endurbóta og vélakaupa .. 300 StaZarhreppur: 116. StáSarskáli h.f.: Lán v/uppbyggingar veitinga- og gistihúss ................... 1.800 Fremri-TorfustaSahreppur: 117. Rœktunarsamband Vestur-Húna- vatnssýslu: Lán v/kaupa á jarðýtu......... 800 Hvammstangi: 118. Meleyri h.f.: Lán v/uppbyggingar rækjuvinnslu 500 119. Tangi h.f.: Lán v/kaupa á m/b Gullfaxa VE- 102 .......................... 260* 120. Snorri Jóhannessorv Lán v/viðbótarbyggingar og véla- kaupa fjrrir trésmiðju ........ 300 121. Björn E. Haraldssorv Lán v/knupa á m/b Straumi HU-5 155* Þorkelshólshreppur: 122. Halldór; Jónssow Lán v/uppbyggingar bifreiSaverk- stæSis o. fl.......................... 800 Blönduós: 123. Þorsteinn G. HúnfjörS: , Lán v/uppbyggingar brauSgerSar- húss .v......................... 250 124. Blðnduóshreppur: Lán v/býS*nKar iSnaSarhúsnæSis 8.000 125. Pólarprjón h.f„- t Lán til greiSslu f járfestingarskuldar 1.000 SkagaströncL — 126. Hólanes h.f.: Lán v/endurbóta é frystihúsi .... 1.000 Saubárkrókur: 127. Birgir Sigurbjörnssorv Lán v/kaupa á m/b Farsæl SH-142 200 128. VeiSivötn h.f.: Lán v/byggingar laxastiga í Svartá 500 129. Samverk h.f.: Lán v/fjárhagserfiSleika ....... 2.000 130. Hartmann Halldórssorv Lán v/nýsmí8i 11 lesta fiskibáts 5% ........................... 220* 131. SteypustöS SkagafjarZar h.fj Lán v/kaupa á vélum og tækjum 800 132. VeiSivötn h.f.: Lán v/byggingar laxastiga 1 Svartá 300 Hofs&v 133. StuSlaberg h.fj Lán til eflingar reksturs félagsins 1.500 134. Nöf h.f. og OtgerÖarfélag SkagfirÖ- inga h.f.: Lán af fé NorSurlandsáætlimar v/skuttogarakaupa .................. 4.000 135. Nöf h.f. og OtgerÖarfélag SkagfirÖ- inga h.f.: ViSbótarlán v/skuttogarakaupa frá Noregi ........................ 3.000 136. Nöf h.f. og OtgerÖarfélag SkagfirÖ- • inga h.fj 5% lán v/skuttogarakaupa frá Noregi ......................... 7.000* SiglufjðrÖur: 137. SiglufjarÖarprentsmiÖja h.f.: Lán v/vélakaupa ..................... 500 138. ÞormóÖur Rammi h.f: lán v/endurbóta á- m/b Selvik SI-4 ........................... 300* 139. GeirharÖur Valtýssorv Lán v/vélakaupa og húsnæSis vef- stofu................................. 500 * 140. Húseiningar h.f.: Lán til uppbyggingar framleiSslu á einingarhúsum úr tré ........... 4.000 141. SiglufjarÖarkaupstáÖur: Lán v/hlutnfjárfromlngs I Húsein- ingar h.f.: .......................... 500 142. Þormóöur Rammi h.f„- Lán v/byggingar frystihúss .... 5.500 143. Togskip h.fr Lán v/endurbóta á m/s Dagnýju SI-70 ........................... 1.000 144. Isafold h.f- Lán v/endubóta á frystihúsi .... 1.000 146. GuÖlaugur Stefártssorv Lán v/nýsmi8i 11 lesta fiskibáts 5% ............................ 285* 146. Haukur Jónssorv Lén v/kaupa á m/b Hafemi EA- 155 ................................. 420* 147. Togskip h.fj Lán v/endurbóta á m/s Dagnýju SI-70 ......................... 600 148. LagmetisiÖjan Siglósild: Lén v/endurbóta og vélakaupa .. 2.000 OlafsfjörÖur: 149. Magnús Gamalielssorv Lán v/uppbyggingar frystihúss .. 1.500 150. Björn Þór ólafssorv Lán v/uppbyggingar saltfiskverk- unarhúss ...................... 200 151. ólafsfjarÖarkaupstáÖur: Styrkur tii greiSsIu léns v/athug- unar á rekstri spónaverksmiSju .. 350 152. Tréver s.f.: Lán v/kaupa á byggingarvinnu- vélum ........................ 1.200 o Fimmtudagur 15. ágúst 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.