Alþýðublaðið - 15.08.1974, Síða 8

Alþýðublaðið - 15.08.1974, Síða 8
 :::;wWpw>> PiPlliiM# plÍilÍiÉÍl lilillísillll liillp PlillP ||§§l|tjg deildarkeppnin hefst á laugardaginn og jafnframt byrja íslenzkar getraunir starfsemi sína að nýju og við byrjum okkar fyrstu getraunaspá A laugardaginn byrjar enska deildarkeppnin aftur eftir að leikmenn liðanna hafa tekið sér sumarfri. Liðin hafa að undan- förnu leikið æfingaleiki til að vera sem best undirbúin þegar að slagurinn byrjar. Hér að neðan eru liðin talin upp i röð eftir þvi hvar þau voru i röðinni, eftir siðasta keppnis- timabil. Neðst eru liðin þrjú sem komu upp úr 2. deild. Leeds: Ef leikmenn liðsins ná saman undir stjórn nýja fram- kvæmdarstjórans Brian Clough verður erfitt að ná stigi frá þeim. Hins vegar er það trú okkar að liðið verði ekki eins sterkt og það var i fyrra. Liverpool: Nú hefur Bill Shankley hætt störfum sem framkvæmdarstjóri hjá liðinu. Það er ekki gott að segja hvernig nýja framkvæmdar- stjóranum gengur. En Liver- pool er alltaf Liverpool og þeir verða alltaf erfiðir and- stæðingar sérstaklega á heimavelli. Derby: Það verður gaman að fylgjast með hvernig Dave Macay gengur í ár, en eins og kunnugt er þá tók hann við eftir að Brian Clough hafði verið rekinn ogundirhans stjórn náði félagið þriðja sætinu i fyrra. Við spáum að liðið verði eitt hinna stóru i vetur. Ipswich: Liðið kom mjög á óvart siðasta keppnistimabil með góðri frammistöðu og vann þá marga góða sigra. 1 ár verður frammistaða þeirra stórt spurningamerki. Stoke: Félagið hefur löngum verið skipað gömlum stjörnum, nú eru hins vegar ungir leikmenn að taka við en við hlið þeirra munu eitthvað af gömlu köppunum leika enn og ætti það ekki að veikja liðið að hafa leik- reynda menn. Við spáum að Stoke verði ofarlega i deildinni. Burnley: Liðið kom upp úr annarri dei'd og lék þvi i fyrsta skipti i 1. deild eftir nokkra fjarveru þaðan i fyrra. Liðið er að mestu skipað ungum leikmönnum sem stóðu sig mjög vel til að byrja með i fyrra, en þegar liða tók á keppnis- timabilið fór að halla undan fæti hjá félaginu, þvi hefur gengið illa að vinna til verðlauna. Við spáum að það verði fyrr neðan miðju. Everton: Liðið virðist vera til- búið til stórataka aftur eftir nokkra lægð. Gæti hugsanlega orðið eitt af toppliðunum. QPR: Félagið hefur yfir að ráða mörgum frábærum leik- mönnum. Ef þeir ná vel saman i vetur ætti liðið að verða meðal þeirra sem berjast um meistaratitilinn. Leicester: Félagið hefur lika marga snjalla leikmenn og getur orðið meðal þeirra stóru nái þeir vel saman. Arsenal: Hvað er hægt að segja um lið eins og Arsenal? Þeir urðu fyrir miklu áfalli þegar að Allan Bali fótbrotnaði aftur. Ekki er trú okkar að liðið sé liklegt til afreka i vetur. Tottenham: Við skipum liðinu á bekk með Arsenal, liðið á marga góða leikmenn en þeir hafa hingað til ekki náð saman og ekki er trúlegt að nokkrar breytingar verði á þvi. Wolves: Lið átti skinandi leiki i fyrra, en þess á milli datt botninn úr öllu liðinu. Félagið ætti að verða fyrir ofan miðju. Sheffield Utd: Hefði getað orðið gott lið, en seldi of marga leikmenn. Liðið gerir sennilega ekki betur en að halda sæti sinu i deildinni. Manchester City: Liðið á marga góða leikmenn, og verður að okkar mati meðal þeirra stóru i vetur. Newcastie: Fyrirliði þeirra Bobby Mocur var nýlega seldur til Sunderland og ekki gott að segja hvaða áhrif það hefur á gang mála. Frammistaða iiðsins i fyrra olli vonbrigðum þvi að miklu var búist við af meðal þeirra stóru i vetur og þvi þýði ekki annað en að fara að hala inn stigin strax. Leicester — Arsenal 1 Lið Arsenal virðist ekki vera eins sterkt og það hefur verið félaginu. Við spáum að þeim gangi betur i ár. Coventry: Liðið hefur ekki gert nein stór afrek eftir að það vann sæti i 1. deild. Við spáum að leikmenn liðsins geri ekki betur en að halda sætinu i 1. deildinni. Chelsea: Félaginu gekk mjög illa i fyrra, við höfum ekki trú á að neinar stórbreytingar verði á frammistöðu liðsins i ár. West Ham: Liðið hefur misst nær allar skrautfjaðrirnar og verður að öllum likindum i botn- baráttunni. Birmingham: Slapp með skrekkinn i fyrra, félagið gerir sennilega ekki betur en að halda sæti sinu i deildinni. Middlesbrough: Liðið sigraði 2. deildina i fyrra með miklum glæsibrag undir stjórn Jack Charltons. Menn búast við miklu af liðinu i ár, en frammi- staða þess nú i Texacobikarnum gefur ekki tilefni til þess. Luton: Vann sér rétt til að leika i 1. deild i fyrra. Um frammi- stöðu liðsins á komandi keppnistimabili er ekki nema eitt að segja. Hún verður eitt stórt? Carlisle: Þar er sama sagan, kom upp úr 2. deild og frammi- staðan i vetur verður ? Til gamans virtum við spá veðbankanna ensku, en hún litur þannig út: 3-1 Leeds og Liverpool...... 9-1 Derby................... 14-1 Ipswich.................. 16-1 Everton.................. 20-1 Leic ester og Stoke...... 25-1 Arsenal, Burnley og QPR .. 28-1 Man. City og Middlesbrough ....... 33-1 Newcastle og Tottenham ... 40-1 Wolves................. 50-lChelsea................. 66-1 Coventry............... 80-1 Sheff. Utd og West Ham 100-1 Birmingham ........... 150-1 Carlisle og Luton..... Birmingham — Middlesbrough 1 Við spáum Birmingham sigri i fyrsta leiknum, Middlesbrough sem Jack Charlton stjórnar fékk stóran skell um siðustu helgi i Texacobikarnum gegn Newcastle, sem sigraði 4-0. Það virðist þvi einhver lægð vera i liðinu um þessar mundir eftir góða frammistöðu á siðasta keppnistimabili. Jafntefli er ekki óliklegt. Burnley — Wolves 2 Útisigur hjá Úlfunum er spá okkar, þó er okkar annar mögu- leiki jafntefli. Chelsea — Carlisle X Chelsea gekk ekki sem best á siðastliðnu keppnistimabili og með það i huga ætti Carlisle að ná öðru stiginu. Hinn möguleikinn virðist vera heimasigur. Everton — Derby 2 Við spáum Derby sigri i leiknum, þvi að trú okkar er sú að liðið komi til með að verða undanfarin ár. Leicester virðist aftur á móti vera i mikilli framför, og það að þeir eru erfiðir heim að sækja, þá er spáin heimasigur. Luton — Liverpool X Þessi spá kemur kannski mörgum á óvart, en Liverpool er frægt fyrir jafntefli sin á úti- velli og sigra sina á heimavelli. Manch. City — West Ham 1 Heimasigur og hann á þeirri forsendu að varnarmenn West Ham ráði ekki við hina frábæru framlinumenn City. 1 fyrra slapp West Ham með skrekkinn, þvi að lengi vel leit út fyrir að liðið félli, en sigrar i siðustu leikjunum bjargaði liðinu frá falli. Newcastle — Coventry 1 Sigur Newcastle ætti að vera nokkuð öruggur I leiknum, liðið virðist vera mjög sterkt um þessar mundir ef marka má úrslitin i leikjum liðsins i Texaco bikarnum. Coventry hefur aftur á móti komið mjög lélega út úr sömu keppni. Sheffield Utd. — QPR X Eins og annars staðar kemur fram þá hefur Sheffield selt marga af sinum bestu leik- mönnum og hefur það að miklu leyti dregið úr árangri hjá félaginu. En vegna þess hve QPR hefur gengið illa á útivelli er jafntefli liklegast i leiknum þó þeir hafi yfir betri leikmönnum að ráða á pappirunum. Stoke — Leeds 1 t fyrra var það Stoke sem batt enda á sigurgöngu Leeds og sigruðu þá verðskuldað. Með það i huga og að þrir af máttar- stólpum Leeds leika ekki með þeir Clark, Hunter og Bremner þá ætti heimasigur að vera iiklegri. Tottenham — Ipswich X Erfiður leikur að geta sér til um úrslit, en með góða frammi- stöðu Ipswich i fyrra i huga og iremur slaka frammistöðu Spurs, þá teljum við að heima- völlur hjálpi aðeins upp á sakirnar hjá þeim siðarnefndu. Otisigur virðist lika koma iterklega til greina. WBA — Fulham X Bæði liðin virðast vera svipuð að styrkleika en WBA seldi nú nýlega sinn besta miðvallar- leikmann Asa Hartford til Manc. City. Við teljum samt að félagið nái öðru stiginu og ráði heimavöllurinn þar mestu um. Upphafið að látunumáWembley.dómarinn bókar Tommy Smith Liverpool fyrir gróft brot. Uppþot á Wembley dómarinn visar þeim Keegan Liverpool og Upphafiö að látunum á Wembley, dómarinn bókar Tommy Smith Liverpool fyrir gróft brot. Enski boltinn að byrja Fimmtudagur 15. ágúst 1974. t o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.