Alþýðublaðið - 28.08.1974, Qupperneq 3
Fólksfjölgun en ekki þing-
mannafækkun úti á landi
„Að mínu viti væri hyggilegra
fyrir stjórnmálamenn að stuðla
að örari fólksfjölgun út um landið
og jafna með þeim hætti gildi
hinna pólitisku atkvæða, sem
misst hafa gildi sitt við Faxa-
flóa,” sagði Jóhann T. Bjarnason,
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga, á fjórð-
ungsþinginu fyrir skömmu. Hann
rökstuddi málflutning sinn með
eftirfarandi:
„Að afloknum alþingiskosning-
um nú i sumar, var talsvert um
það rætt á vettvangi stjórnmál-
anna, hver ójöfnuöur væri orðinn
á tölu þingmanna milli einstakra
kjördæma, ef miðað væri við
fjölda kjósenda. Var einkum bent
á Vestfirði, sem að þessu sinni
eiga sjö þingmenn.
Fækkun landsbyggðarþing-
manna jafngildir aðför að hinum
dreifðu byggðum. Þeir, sem
fylgst hafa með baráttu þing-
manna landsbyggðarinnar, fyrir
málum þeim á Alþingi, sem
snerta landsbyggðina sérstak-
lega, dylst ekki, að þurft hefir
harðsnúið lið landsbyggðarþing-
manna til að fá dreifbýlismálum
framgengt á Alþingi, jafnvel á
sama tima og stórmálum, sem
snerta mesta þéttbýli landsins,
hefir verið ráðið til lykta með
samningum utan Aiþingis, en
þingmenn svo látnir að formi til
afgreiða málin. Nægir að benda á
byggingu 1200 ibúða i Breiðholts-
hverfi, sem landsbyggðin hefir
þurft og þarf ennþá að súpa
rammt seyðið af.
Það er ástæðulaust að sverfa að
landsbyggðafólki á einum vett-
vangi til viðbótar, sjálfu lög-
gjafarþinginu, með þvi að svifta
það með lögum hluta af þing-
mannaf jölda sinum. Þvi fólki sem
ennþá býr út um land, verður ekki
um það kennt, að þar hefir
fækkað fólki. Fólk, sem býr hér á
Vestfjörðum, og annarsstaðar út
um landið, hefir barist hetjulegri
baráttu við þá erfiðleika, sem
verið hefir við að etja heima
fyrir, og við sogkraftinn frá
Faxaflóasvæðinu, oftog tiðum við
takmarkaðan skilning stjórn-
valda á þvi, að sporna þyrfti gegn
fólksfækkun út á landi með opin-
berum aðgerðum.”
Bara loðnan kemur vel
út úr klakinu — þorsk-
urinn varð verst úti
Að loðnu undanskilinni fjarða norðanlands en
má segja að árið 1974 haf i oftast áður.
verið eindæma lélegt Hins vegar var út-
klakár, segir í fréttatil- breiðsla og magn loðnu-
kynningu frá Hafrann- seiða meiri en undanfarin
sóknastofnuninni, og er ár og virðist vera um
þá átt við klak helstu teg- metárgang að ræða. Þess
unda nytjaf iska. ber að gæta að loðnuár-
Þessar upplýsingar eru gangur undanfarinna
fengnar eftir seiðarann- ára, hafa allir verið mjög
sóknir við ísland og sterkir sem seiði.
Grænland, en þetta er 5. Sigfús Schopka, fiski-
árið sem þessháttar fræðingur, sagði í viðtali
rannsóknir eru fram- við blaðið í gær, að þetta
kvæmdar. ástand í ár, þyrfti ekki að
í niðurstöðunum segir hafa afgerandi slæm
m.a. að öfugt við þorsk- áhrif eitt sérstakt ár, í
klakið i fyrra, sem tókst náinni framtíð, þar sem
mjög vel, hefur klakið í þessir fiskstofnar væru
ár mistekist og er mjög mismunandi fljótir að ná
lítið í samanburði við þeirri stærð, sem mest er
hvað það var í fyrra. Eins veitt af hverju sinni, og
og hjá þorskinum, hefur því kæmi þessi brestur
ýsuklakið gengið illa, en fram á nokkurra ára
þó illskár. Heildarmagn tímabili. Eitt ár sem
karfasei'ða var í slöku þetta þyrfti ekki að hafa
meðallagi. Tegunda eins mjög alvarlegar afleið-
og steinbíts, grálúðu, og ingar í f ör með sér, ef ár-
ársgamals hrognkelsis ið á undan og eftir væru
varð minna vart en oftast góð, en enginn veit
áður á undanförnum ár- hvernig næsta ár verður.
um. Talsvert fékkst af Loðnuseiðin lofa góðu,
ársgamalli sumargotsíld en þau seiði, sem nú
í Hvalfirði, en minna sáust, koma ekki til veiða
varð vart við hana inn- fyrr en eftir þrjú ár. —
Haustsýning Félags
íslenskra
myndlistarmanna
Haustsýning FIM verður haldin á Kjar-
valsstöðum 7. til 22. september.
Eyðublöð fást á sama stað i dag og á
morgun kl. 14—18. Tekið verður á móti
myndum föstudaginn 30. ágúst kl. 14—19.
FIM sér um tryggingu verka gegn
greiðslu iðgjalds. Þátttökugjald er kr.
2000.00.
Sýningarnefnd |FÍM.
Vita- og hafnarmálastofnunina
verður að skipuleggja upp á nýtt
Þjónusta Vita- og hafnar-
málastofnunarinnar er nú orðin
svo léleg, „að hvorki Hafnar-
málastofnunin eða þeir, sem
hún á að þjóna, geta lengur við
unað”, er ályktun Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga.
1 skýrslu sinni ræddi fram-
kvæmdastjóri sambandsins
Jóhann T. Bjarnason þetta mál
og er ályktun þingsins mjög
samhljóða máli hans. Benti
Jóhann á nauðsyn þess að stofn-
uninni verði skipt upp I deildir,
sem starfi úti um land i
nágrenni við verkefnin. „Sú
reynsla, sem nú þegar er fengin
af deild Vegamálaskrifstof-
unnar á Isafirði, þann stutta
tima, sem hún hefir starfað, ætti
að vera örugg vísbending i
þessu efni”, sagði Jóhann.
1 ályktun Fjórðungssambands
Vestfiröinga sem hélt fjórðungs-
þing i Bolungarvik 23. — 24.
ágúst sl., um hafnarmál segir:
„Sifelld stækkun og endurbætur
hafnarmannvirkja hefir viðast
hvar haft forgang á fjárhags-
áætlunum sveitarfélaganna.
Framkvæmdum hefir þó oft
miðað hægar en þörf var fyrir.
Þvi hefir oft verið kennt um , að
fjárveitingar á fjárlögum væru
ónógar, en nú siðari árin hafa
hins vegar orðið æ háværari
kvartanir vegna þjónustu Vita-
og hafnarmálastofnunarinnar.
Svo almennar eru þessar kvart-
anir orðnar, að hvorki Hafnar-
málastofnunin eða þeir, sem
hún á að þjóna, geta lengur við
unað. Eitt brýnasta verkefnið I
hafnarmálum landsins er þvi að
taka starfsemi Hafnarmála-
stofnunarinnar til gagngerrar
endurskoðunar og gera þær
breytingar á henni, sem þeir, er
þjónustunnar eiga að njóta, geta
verið ánægðir með. Við slika
endurskoðun á starfsháttum
verður að gera þá kröfu, að
stofnuninni verði skipt upp i
deildir, sem starfi út um land, I
nágrenni við þau verkefni, sem
leysa þarf. Er þess að vænta, að
með þeirri skipan verði nánari
tengsl milli hönnuða, verkefnis-
ins og þeirra, sem unnið er fyr-
ir.”
Samdráttur í fram-
kvæmdum borgarinnar
Borgarráð Reykjavíkur
— sem gegnir hlutverki
borgarstjórnar meðan hún
er í sumarf ríi — samþykkti
i gær tillögu Birgis (sleifs
Gunnarssonar, borgar-
stjóra, um samdrátt í
framkvæmdum Reykja-
víkurborgar. Einnig sam-
þykkti borgarráð í gær að
heimila borgarstjóra að
semja um lántöku að upp-
hæð 700 milljónir króna.
Meðal þeirra fram-
kvæmda sem ákvörðun
borgarráðs nær til eru
framkvæmdir við skóla-
byggingar, barnaheimila-
byggingar, leikvallagerð
og undirbúning nýrra
byggingasvæða í
Reykjavík. Þar á meðal
verður að mestu leyti
frestað framkvæmdum
vegna nýrra einbýlishúsa-
og keðjuhúsabygginga í
Seljahverfi og sömuleiðis
byrjunarframkvæmdum á
Eiðsgrandasvæðinu og í
nýja miðbænum og víðar,
þar sem undirbúningur
nýrra íbúðasvæða áttu að
hef jast á þessu ári.
Eins og Alþýðublaðið
skýrði frá á dögunum hef-
ur þróun f jármála Reykja-
víkurborgar verið mjög
óhagstæð á þessu ári. Læt-
ur nærri, að reksturs-
kostnaður borgarinnar
haf i hækkað á árinu — eða
frá því fjárhagsæaætlun
var gerð í desember 1973 —
um 670 milljónir króna. Og
er talið, að greiðslustaða
borgarinnar eigi eftir að
versna til muna frá því,
sem þessi tala gefur til
kynna, og muni halla-
reksturinn á þessu ári
nema að minnsta kosti 700
milljónum króna.
Til þess að mæta hinum
miklu kostnaðarhækkun-
um að undanförnu hefur
borgarsjóður yfirdregið
svo nemur hundruðum
milljóna króna á hlaupa-
reikningi sínum í Lands-
banka Islands. En nú er
ætlun borgarstjórans að
reyna að semja við Lands-
bankann um, að þessum
mikla yfirdrætti verði
breytt i föst lán. Þess
vegna af laði hann sér í gær
heimildar borgarráðs til að
semja um lántöku að upp-
hæð 700 milljónir króna. —
Stöðvar hreppsnefnd Mos-
fellssveitar BP á Geithálsi?
Eftir þvi sem Alþýðublaðið
hefur komist næst, mun ekki
verða af þvi að Oliuverslun Is-
lands h/f, BP ljúki við þær fram-
kvæmdir, sem hafnar eru við
Geitháls i landi Mosfellssveitar.
Þar hefur verið steyptur grunnur
bensín- og veitingasölu en i sumar
hafa framkvæmdir legið niðri,
þar sem ekki hefur fengist,,grænt
ljós” frá heilbrigðisnefnd Mos-
fellssveitar.
Nærri Geithálsi eru vatnsból
nærliggjandi byggða, s.s.
Reykjavikur, Kópavogs, Sel-
tjarnarness og Mosfellsveitar og
hefur heilbrigðisnefnd Mosfells-
sveitar lagst eindregið gegn
starfrækslu bensínsölu á Geit-
hálsi.
Svan Friögeirsson, stöðvar-
stjóri hjá BP, sagði i samtali við
fréttamann blaðsins i gær, að þeir
gerðu sér vonir um að geta haldið
áfram mjög fljótlega og að skiða-
menn fengju einhverja þjónustu á
Geithálsi i vetur. — Það stendur á
hreppsnefndarfundi, sem á að
taka endanlega ákvörðun um
málið, og hann verður haldinn
einhvern næstu daga, sagði Svan.
— Vatnsveitustjórinn i Reykjavik
setti ýmis skilyrði fyrir starf-
rækslu þessarar stöðvar og þau
hafa öll verið uppfyllt af okkar
hálfu.
En I Mosfellsveitinni var annað
hljóð i strokknum. Sigsteinn Páls-
son, hreppstjóri, kvaðst að sjálf-
sögðu ekkert geta fullyrt um
endanlega afstöðu hreppsnefnd-
arinnar, en hann benti á, að heil-
brigðisnefnd byggðarinnar hefði
leitað umsagnar fjölmargra að-
ilja, er væri málið viðkomandi, og
hefði alls staðar fengið neikvæö
svör.
— Mengunarhættan er talin
allt of mikil, sagði Sigsteinn, er
fréttamaður blaðsins hafði sam-
band við hann i gær, — og án þess
að ég vilji nokkuð fullyröa, þá
finnst mér heldur neikvætt hljóð I
mönnum hér gagnvart þessu.
21 árs Akureyringur ráðinn
framkvæmdastjóri í Tónabæ
Borgarráð staðfesti á fundi sin-
um i gær ráðningu Ömars Einars-
sonar i stöðu framkvæmdastjóra
Tónabæjar. Var ráðningin stað-
fest með 3 samhljóða atkvæðum:
minnihlutinn sat hjá.
Ömar Einarsson er 21 árs
gamall Akureyringur og lauk sl.
vor tveggja ára námi i æskulýðs-
leiðsögn og starfrækslu æskulýðs-
og tómstundaheimila I Göteborgs
Folkhögskola i Sviþjóð. Hann
hefur siðan starfað hjá Æskulýðs-
ráði Reykjavikur.
Handíðakennara
drengja vantar við Barnaskóla Akraness.
— Umsóknarfrestur til 5. september.
Fræðsluráð Akraness.
Miðvikudagur 28. ágúst 1974.
Q