Alþýðublaðið - 06.10.1974, Page 7

Alþýðublaðið - 06.10.1974, Page 7
ómar Ragnarsson leysir af hendi fyrstu þrautina, aö aka viðstöðulaust úr Skúlagötu við Rúgbrauðsgerðina inn i „bilskúr”. Siðan er mælt, hvað hann stoppar langt frá „veggjunum”. Þarna er einn af Fiatbilunum i keilusviginu, en það var eina þrautin þar sem tekinn var timi. (Myndir Friðþjófur) Góðaksturskeppni leiðir til endurmats á akstursvenjum Umsjónarmaður síðunnar ae r ■ ■ ■■ r •• oir ■ ■ varð attundi i roðmm Þeir sem aka daglega mikið um borgina, leggja kannski að baki 1000-1500 km á mánuði á götum hennar, hljóta að mynda sér smám saman ákveðnar akstursvenjur, og allar athafnir undir stýri hljóta að verða meira og minna ósjálfráðar. 1 þessa gryf ju er stórhættulegt að falla, þvi eftir þvi sem menn framkvæma aksturinn meira ómeðvitað hlýtur athyglin að slakna, og þeir verða siður við- búnir hinu óvænta. Þetta fann ég vel á laugar- daginn fyrir viku, þegar ég tók þátt i góðaksturskeppni BFÖ, og 40-50 verðir og lögregluþjónar fylgdust með hverri hreyfingu minni á um klukkustundar akstri um borgina. Góðaksturs- keppni er nefnilega nánast eins og ökupróf þar sem prófdómari situr ekki i framsætinu, heldur er fjöldi prófdómara á hverju götuhorni, sem tekur eftir minnstu hreyfingu og litilfjör- legustu villu og skráir hana samviskusamlega hjá sér. Undir slikum kringumstæðum, þegar fylgst er nákvæmlega með öllu þvi sem við gerðum, fer ekki hjá þvi, að við tökum sjálfir betur eftir þvi hvernig við högum okkur. Við sjáum aksturinn i öðru ljósi en áður og uppgötvum fjöldann allan af ávanavillum, og reynum að endurskoða aksturinn jafnóðum til þess að fá sem fæstar villur i akstrinum. Við sjáum það, að við höfum ekki tekið vinstri beygjurnar nákvæmlega rétt, tekið hana of krappa og ekið yfir stöðvunarlinuna á götunni, sem við erum að beygja inn á, — og þegar við komum að stöðv- unarskyldu erum við að flýta okkur svo mikið, að við gefum okkur ekki tima tii að stöðva bii- inn alveg, — aðeins hérumbil. En það er ekki nóg. Og stöðvum við bilinn á stöðvunarlinunni? Förum við alveg rétt i gegnum hringtorgin? Gefum við stefnu- ljós, þegar við förum af stað frá gangstéttarbrún? Ötal atriði fleiri mætti nefna, sem menn kannski athuga ekki i daglegum akstri, — eða hirða ekki um að fara eftir, — en verðirnir tóku vel eftir i góðakstrinum og skráðu samviskusamlega sem minusa. Ekki var heldur erfitt að afla sér minusa i þrautunum, sem lagðar voru fyrir menn á meðan á keppninni stóð, og siðan á leiðarenda, við Laugar- dalshöll. Og þær þrautir vekja menn lika til umhugsunar um hæfni þeirra til að aka i umferð- inni, — það er nefnilega ekki nóg að geta ekið beint áfram eða bakkað beint afturábak, eða Hcypokanum bjargaft á siftustu stundu. Hann flaug fyrir biia keppenda vift Elliftaárnar, skammt irá stiflunni. beygt sæmilega sæmilega auð- veldlega til hægri eða vinstri. Til að komast nokkurn veginn klakklaust i gegnum umferðina þurfa menn að hafa tilfinningu fyrir bilnum sjálfum og stjórn- tækjum hans. Daglega þurfa menn að leggja i þröng stæði eða ná bilum sinum út úr þröng- um stæðum, og oft kemur það fyrir að menn þurfa að aka þar sem þröngt er. og þá er betra að vita nokkurn veginn hvar ystu punktar bilsins eru og hafa það nákvæmlega á tilfinningunni hvenær á að leggja á, og hvað mikið. Eins og ég sagði hér að ofan er góðaksturinn nánast eins og ökupróf, og þó strangari en nokkurt ökupróf. 1 lok þessara lauslegu hugleiðinga um góð- aksturskeppni BFö vil ég skjóta fram þeirri hugmynd, að um- ferðarlögreglan skipuleggi sinn eigin góðakstur fyrir þá öku- menn, sem boðaðir eru til endurnáms vegna of margra óhappa i umferðinni. Það er trúa min, að með þvi mætti endurhæfa menn og gera þá öruggari i umferðinni, fyrir þá sjálfa og aðra, en á nokkurn hátt annan. Og er ekki skoðun þeirra, sem að öryggismálum vinna, að þar megi alls ekkert spara, sem mætti stuðla að auknu umferðaröryggi? UMSJÓN: ÞORGRiMUR GESTSSON Sunnudagur 6. október 1974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.