Alþýðublaðið - 18.10.1974, Page 1
KAPÍTALISTI,
SEM EKKI VILL
VERA ÞAÐ
alþýðu
FÖSTUDAGUR
18. okt. 1974 - 205. tbl. 55. árg.
Tveir tólf ára strákar
fóru aö heiman frá sér á
Akureyri um niuleytið á
sunnudagsmorguninn.
Flæktust þeir um bæinn
þann dag og fram eftir
kvöldi, en þá voru þeir
orðnir leiðir á fánýti
umheimsins og vildu
hasar — og mat, enda
ekkert látið ofan I sig
allan daginn og misst af
sunnudagssteikinni.
Upp úr miðnættinu
héldu þeir niöur að höfn
og brutust þar inn í
þrjár eða fjórar triliur
til að leita sér að mat.
Ekkert fundu þeir þar
og þá sneru þeir sér að
björgunarbátunum. Þar
var heldur ekkert mat-
arkyns og sáu þeir því
ekki aðra leið til björg-
unar en að leggja á haf
út og fara i viking. Settu
þeir eina trilluna,
þriggja tonna. i gang og
sigldu yfir fjörðinn á
Svalbarðsströnd. Þar
voru þeir orðnir heldur
þreyttir og slæptir, svo
þeir lögðust fyrir i hlöðu
og sváfu fram eftir
mánudagsmorgninum.
Foreldrar þeirra voru
heldur farnir að óttast
um þá, en að sögn lög-
reglunnar á Akureyri er
þetta ekki i fyrsta
skipti, sem þessir tveir
taka til sinna ráða.
Endar Silli & Valdi í
sprengingu vegna leigu-
samningsins við S.S.?
„Það er engin breyting á þvi. Við höfum bindandi samning við fyrirtækið Silla & Valda og samkvæmt honum hef jum
við verslunarrekstur i Glæsibæ 1. nóvember n.k.”, sagði Jón H. Bergs, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, i viðtali við Al-
þýðublaðið i gær.
„Það er rétt, ég skýrði frá þvi á fundi með leigjendum i Glæsibæ, að engin breyting yrði á verslunarrekstrinum og að
Silli & Valdi yrðu áfram með matvöruverslunina”, sagði Baldur Ágústsson, verslunarstjóri Silla & Valda i Glæsibæ, i
viðtali við Alþýðublaðið i gær. „Sveinn Snorrason hefur tilkynnt okkur það, að engin breyting verði. Annað veit ég ekki”.
Fyrir skömmu vakti Alþýðublaðið athygli á auglýsingu i Lögbirtingablaðinu, þar sem Helga Jónsdóttir, ekkja Sigur-
liða Kristjánssonar, kaupmanns, — Silla, veitti Sveini Snorrasyni, hrl„ „fullt og ótakmarkað umboð til að hafa umsjón
allra eigna minna, hverju nefni sem nefnast, og ráðstafa þeim með hverjum þeim hætti, sem hann telur þjóna best hags-
munum minum, með sömu réttaráhrifum og ég hefði sjálf verið að verki”. Fyrirsögn Alþýðublaðsins á þessu var:
„Hvað er að gerast hjá Silla & Valda?,, Sveinn Snorrason svaraði Alþýðublaðinu þá, að hann vildi ekki gera að blaða-
máli þær ástæður, sem lægju á bak við þessa auglýsingu i Lögbirtingablaðinu.
Valdimar Þórðarson, kaupmaður, — Valdi, gerði eftir fráfall Sigurliða og um tiu dögum áður en framangreind aug-
lýsing birtist i Lögbirtingablaðinu leigusamningfyrir hönd fyrirtækisins Silla & Valda við Sláturfélag Suðurlands, þar
sem SS tók á leigu matvöruverslunarhúsnæði það, sem Silli & Valdi reka nú verslun i i Glæsibæ. Miðar samningurinn við
það að SS yfirtaki verslunina 1. nóvember n.k.
Eftir þvi sem Alþýðublaðið kemst næst var það venja Silla og Valda i áratuga samstarfi þeirra, að aðeins annar þeirra
undirritaði leigusamninga fyrir hönd fyrirtækis þeirra og gilti undirskrift annars bindandi fyrir báða i samskiptum
þeirra.
Hins vegar virðist nú sem Sveinn Snorrason vilji að engu hafa samning Valdimars Þórðarsonar við Sláturfélag Suður-
lands, en Valdimar stendur fast á sinu að standa við samninginn, eins og orð Jóns H. Bergs hér að framan bera með sér.
Alþýðublaðinu tókst ekki að ná sambandi við Svein Snorrason i gær.
Fari svo sem horfir, virðist þvi endirinn á samsteypunni Silli & Valdi, sem þeir Sigurliði Kristjánsson og Valdimar
Þórðarson ráku af einstökum dugnaði, ætla aö veröa meiriháttar sprenging. Hinn 1. desember n.k. hefði Silli & Valdi
orðið 49 ára.
LEIDABÚK SJÚFARENDA OFÁANLEG -
VAR SIÐAST PRENTUÐ ÁRIÐ 1951!
Leiðsögubók sjómanna
er nú ófáanleg og hefur
ekki fengist i mörg át,_
Hún var siðast prentuð og
útgefin 1951 og að sögn
Gunnars Bergsteinsson-
ar, forstöðumanns Sjó-
mælinga íslands, geta lið-
ið að minnsta kosti eitt
eða tvö ár þangað til hún
verður gefin út næst.
— Við höfum verið
uppteknir við kortaútgáfu
og endurskoðun á kort-
um, sagði Gunnar i sam-
tali við fréttamann blaðs-
ins i gær, — og þvi hefur
leiðsögubókin verið látin
sitja á hakanum. Sjókort-
in eiga að fylla i skarðið
að nokkru leyti, þvi eftir
þvi sem kortin batna,
þeim mun minni þörf
verður fyrir leiðsögubók-
ina.
Ekki eru þó allir skip-
stjórnarmenn jafn
ánægðir með, að leið-
sögubókina sé hvergi að
fá. Magnús Þorsteinsson,
skipstjóri á Bakkafossi,
kvartaði yfir skorti á bók-
inni I útvarpsþættinum
„Við sjóinn” i gærmorg-
un, og sagði ástandið
bagalegt fyrir sjófarend-
ur.
A hverju ári er prentað
i Sjómannaalmanakinu
endurskoðaður og endur-
bættur kafli úr leiðsögu-
bókinni, „Vitar og sjó-
merki”, og gegnir hann
að sjálfsögðu sinu hlut-
verki. 1 Vita og sjómerki
vantar þó nær allar leiöa-
lýsingar.
Gunnar Bergsteinsson
sagði öll þessi mál vera i
endurskoðun um þessar
mundir viða erlendis,
þannig að „við erum ekk-
ert sérstaklega verr stæö-
ir en aðrar þjóðir”.
Með 40 rjúpur
eftir daginn
„An þess að ég slái
neinu föstu, býst ég við að
rjúpan i ár verði á svip-
uðu verði og i fyrra, og
hækki ekki, sagði Páll
Guðjónsson, verslunar-
stjóri i Kjötverslun
Tómasar við Laugaveg,
er við spurðum hann i gær
hvort að hann væri kom-
inn með rjúpur til sölu.
Hann sagði að svo væri
ekki, það yrði ekki fyrr en
eftir helgina, og þá yrði
einnig búið að ákveða
verðið. Rjúpan kostaði i
fyrra 270 kr. en þar sem
búist er við mun meira
framboði nú en þá, mun
verðið liklega ekki
hækka.
„Hér er mikið af rjúpu
og i gær komust menn i
upp undir 40 rjúpur yfir
daginn og algengt var að
þeir hefðu um 30 stykki,”
sagði Hafsteinn Ólafsson,
veitingamaður að Forna-
hvammi, er við töluðum
við hann i gær.
1 gær var hinsvegar
þoka á heiðunum og ekki
veiðiveður, en Hafsteinn
bjóst við, að mikið yrði
um að vera um helgina. —
VERÐIÐ A RJÚPUNNI SVIPAD OG í FYRRA