Alþýðublaðið - 18.10.1974, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 18.10.1974, Blaðsíða 5
Útgefandi: Blað hf. Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.) Sighvatur Björgvinsson Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir ASsetur ritstjórnar: Skipholti 19. simi 28R00 Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10. simi 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, sími 14900 Prentun: Blaðaprant SJÓMONNUM ógrað Ýmislegt bendir til þess, að rikisstjórnin hafi enn ekki látið af óheillavænlegum afskiptum sinum af frjálsri samningsgerð verkalýðsfélag- anna i landinu. í Morgunblaðinu sunnudaginn 13. október s.l. birtist þannig viðtal við Matthias Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, sem ómögu- legt er að skilja á annan veg en þann, að rikis- stjórnin sé að búa sig undir að skerða hlutskipti sjómanna. 1 umræddu viðtali ræðir Matthias um sjóða- kerfi sjávarútvegsins og nauðsyn þess að gera það ,,einfaldara” —eins og hann kemst að orði. Siðan segir Matthias orðrétt: ,,Til þess að svo megi verða þarf hins vegar að gerbreyta hluta- skiptafyrirkomulaginu og vil ég fyrir mitt leyti vera þess hvetjandi, að það verði gert...” Þessi ótviræða viljayfirlýsing Matthiasar Bjarnasonar hlýtur að hafa vakið athygli sjó- manna og stéttarfélaga þeirra. Með henni er Matthias i rauninni að undirbúa það, að rikis- stjórnin breyti hlutaskiptaákvæðunum — sjálf- um grundvelli sjómannasamninganna — með lagaboði. Svona yfirlýsingar, sem koma i kjöl- far þess, að sjómenn segja upp samningum sin- um, eru hrein og bein ögrun við sjómannastétt- ina i landinu og er sjálfsagt ætlað að vera það af hálfu rikisstjórnarinnar. Edward Heath, formaður breska lhalds- flokksins, notaði svipaðar aðferðir i viðureign- um sinum við bresku verkalýðshreyfinguna á meðan hann var forsætisráðherra. Hann fylgdi sömu linu og ólafur Jóhannesson um, að það væri hreint glapræði af rikisstjórn að reyna að hafa samráð og samvinnu við verkalýðshreyf- inguna til lausnar á efnahagsvanda. Þess i stað ögraði hann verkalýðshreyfingunni til átaka með þvi að segja: Það er ég sem ræð, og ég geri það eitt, sem mér gott þykir alveg án tillits til þess hver er afstaða verkalýðshreyfingarinnar. En þessar starfsaðferðir reyndust Heath og flokki hans ansi dýrkeyptar. Þegar hann efndi til kosninga á Bretlandseyjum i febrúarmánuði s.l. og spurði þjóðina: Hver á að stjórna? — þá svaraði breska þjóðin: Ekki þú! Það svar end- urtók hún svo i kosningunum nú á dögunum og virðist stjórnmálaferill Heaths þar með allur. Nákvæmlega sama hátt ætlar núverandi rik- isstjórn að hafa á um samskipti sin við verka- lýðshreyfinguna á Islandi. Ráðherrarnir ögra henni með yfirlýsingum eins og þeirri, sem Matthias Bjarnason gaf i Morgunblaðinu og grunntónninn er: Það er ég, sem ræð! En ef rikisstjórnin leitaði nú til almennings á íslandi og spyrði hann i kosningum: Hver á að stjórna? — þá fengi hún sama svarið og Edward Heath fékk: Ekki þú! Það er ógerlegt að leysa þann efnahagsvanda, sem nú er við að fást, með þvi að stjórnvöld ögri verkalýðshreyfingunni og ali á tortryggni eins og gert er. En það virðist ihaldsstjórnin á Is- landi ekki skilja — fremur en ihaldsstjórnin á Bretlandseyjum á sinum tima. alþýðu i h i i WILSON OG ADKOMAN I BRESKA NÓ0ARB0IN0 Breskir kjósendur hafa einn leiðan ávana: Þeir kjósa yfir sig stjórn Verkamannaflokksins, þegar illa árar, en fella hana, þegar betri timar fara i hönd. Þrisvar siðan seinni heimsstyrj- öldinni lauk hefur Verkamanna- flokkurinn tekið við stjórn Bret- lands, þegar efnahagslegt öng- þveiti hefur rikt i landinu: Á ár- unum 1945, 1964 og 1974. Efnahagserfiðleikarnir 1945 áttu rætur að rekja til styrjaldar- innar og breytingunum á þeirri efnahagsstefnu, sem fylgt var á striðstimum annars vegar og á friðartimum hins vegar. En bæði 1964 og 1974 fær rikisstjórn Verkamannaflokksins það hlut- verk að „hreinsa til” eftir ihalds- stjórn. Þegar Harold Wilson myndaði sina þriðju rikisstjórn i byrjun mars á þessu ári, blasti við algert skipbrot i bresku efnahagslifi. Komist var hjá skipbroti með lausn á deilu kolaverkamanna og öðrum vandamálum henni tengd. En áfram rikir aivarlegt ástand i Bretlandi. „Alvarlegasta ástand siðan 1945”, að þvi sjálfur for- sætisráðherrann segir. Það eina, sem stjórnmála- mennirnir gátu lofað kjósendum sinum fyrir kosningarnar 10. október siðastliðinn, var hófsemi I efnahagsmálum. Fjórða rikisstjórn Harold Wil- sons stendur frammi fyrir þvi grundvallarverkefni að koma efnahagsmálum landsins i sæmi- legt lag. Þar ber langsamlega hæst, að henni takist að draga úr verðbólguvextinum, minnka greiðsluhallann við útlönd og halda fullri atvinnu i landinu. Vandinn er ekki sá að ráða fram úr einhverju af þessu þrennu, heldur að leysa öll þessi stóru verkefni af hendi samtimis. Rikisstjórnin getur ef til vill dregið úr verðbólgunni á svipað- an hátt og gert var á millistriðs- árunum, þegar milljónir manna urðu atvinnulausir. Greiðsluhall- ann við útlönd mætti lika bæta með þvi að skerða mjög verulega lifskjör almennings i landinu. Og atvinna getur haldist, eigi rikis- stjórnin að taka þá áhættu, að áfram verði mikil þensla i efna- hagsmálum. En þetta eru ekki réttu úrræðin að áliti Verka- mannaflokksins. Þegar Wilson lét af völdum árið 1970, tók Heath og Ihaldsflokkur- inn við hagstæðustu greiðslustöðu við útlönd, sem dæmi eru um i breskri stjórnmálasögu. I vetur tók svo Wilson við bresku þjóðar- búi á nýjan leik og þá var greiðslustaðan gagnvart útlönd- um verri en nokkru sinni i sög- unni og hafði gengi sterlings- pundsins þá fallið um 20%. Það hlýtur þvi að vera biturt fyrir Wilson og félaga hans að taka til við hreingerningu eftir stjórnartið Ihaldsflokksins. En hjá þessu verður ekki komist og reyndar eru skilyrði Verka- mannaflokksins til að leysa að- kallandi verkefni vel af hendi alls ekki sem verst. Fyrir kosningar lýsti Verka- mannaflokkurinn þvi skýrt yfir, að hann myndi ekki beita sér fyrir lausn i efnahagsmálum, sem hefði i för með sér fjöldaatvinnu- leysi i landinu. Einstaka stjórnmálamenn á hægra væng Ihaldsflokksins hafa reynt að blása lifi i gamla drauga frá sparnaðartimabili millistriðs- áranna. En það kemur annað hljóð úr horni frá fjármálaráð- herranum, Denis Healey. Hann mun i næsta mánuði gera grein fyrir endurskoðun á fjárlögum rikisins, sem miðar að þvi að örva hagvöxt, en hindra, að atvinnu- leysi aukist i landinu. Healey leggur meiri áherslu á, að at- vinna haldist, en draga úr verð- hækkunum. Atvinnuöryggið er mál, sem hefur forgang. Mikið hefur verið rætt og skrif- að um efnahagserfiðleikana i Bretlandi að undanförnu. En ástæða er til að benda á, að sumt bendir til þess, að þar sé ekki allt i kalda kolum. Það hefur komið i ljós, að útflutningur frá Bretlandi hefur aukist á siðustu mánuðum. Greiðsluhallinn við útlönd, sem ekki stafar af hækkun oliuverðs, er nú ur sögunni og gengi sterl- ingspundsins virðist vera orðið stöðugt aftur. Þessir „ljósu punktar” gefa þó alls ekki til kynna, að efnahags- kreppan sé yfirstigin. Bretar eiga þess varla að vænta, að þeir verði varir mikilla breytinga næstu tvö árin. En ástandið nú gefur ekki tilefni til algers vonleysis um framtiðina. Bretar hafa hingað tii sýnt undraverða hæfni til að kom- ast i gegnum efnahagserfiðleika. Breska þjóðin ræður yfir mjög verulegum orkuauðlindum, hin- um mestu i Vestur-Evrópu. Kosningarnar 10. otkóber fæddu af sér rikisstjórn, sem er reiðubúin að heyja baráttu gegn félagslegu óréttlæti og misrétti, sem einkennir breskt þjóðfélag. misrétti, sem kann að verða bresku þjóðinni miklu þyngri byrði en hin bráða efnahags- kreppa, sem nú er mest um rætt. FLOKKSSTARFIÐ KVENFÉLAG ALÞÝÐUFLOKKSINS í REYKJAVÍK lieldur félagsfund mánudaginn 21. október n.k. kl. 20.30 i Iðnó (uppi). GylfiÞ. Gislason, formaður Alþýðuflokks- ins, ræðir um stjórnmálaviðhorfið. STJÓRNIN FRAMHALDSAÐALFUNDI ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGS REYKJAVÍKUR veröur fram haldið þriðjudaginn 22. októ- ber kl. 20.30 i Alþýðuhúsinu (niðri). Dagskrá: Lagabreytingar. Framsögu- maður Helgi Skúli Kjartansson. Lög félagsins og drög að nýjum lögum liggja frammi á skrifstofu Alþýðuflokks- ins. STJÓRNIN Föstudaqur. 18. október. 1974

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.