Alþýðublaðið - 30.10.1974, Page 6

Alþýðublaðið - 30.10.1974, Page 6
r r Fyrsta matreiSslunámskeiS kvennadeildar 1932. Efri rcíS frá vinstri: GuS- munda Jónsdóttir, H ulda Einarsdóttir, Steinunn. Tómasd. Halldóra Árna- dóttir, Sesselja Jóhannesd., Ásdís Ásmundsd., Arnóra Oddsd., GuSný Tómasd. NeSri röS frá vinstri: Elísabet Hallgrímsdóttir, Ingileif GuSjónsdóttir, Ásta SigurSard., Soffia Skúlad., kennari, Jórunn Ármanns- dáttir, Elísabet Jónsdóttir, GuSrún SigurSardóttir. Stjórn VerkalýSsfélagsins 1973. Fremri röS fr. v. GarSar Halldórsson, Skúli ÞórSarson, GuSm. Kr. Ólafsson, efri röS, Jón GuSjónsson, BjarnfríSur Leósdóttir, Árni Ingvars- son, Herdís Ólafsdóttir, Steinþór Magnússon. Vaskfólk á Kampinum hjá Halldóri í ASalbóli. Mynd- in mun vera frá árinu 1932. Frá vinstri: Arnóra Odds- dóttir, GuSIaug Einarsdótt- ir, Margrét Helgadóttir, Valbjörg Kristmundsdóttir, Vilhjálmur Benediktsson Fanney Gurmarsdóttir, Maria GuSjónsdóttir, GuS- laug Jónsdóttir, GuSrún Gunnarsdóttir, GuSríSur GuSmundsdóttir, Ásta Torfadóttir. wsnsm kw ú nHTUIffnyiBff sveit Akraness lék „Inter- nationalinn” og samkomugestir tóku undir. Hátiðarræðu flutti Guðmundur Kr. ólafsson, sem er einn af stofnendum félagsins, en hann hefur lengi átt sæti i stjórn þess, m.a. sem ritari og formaður. Að hátiðarræðunni lokinni, lék lúðrasveitin „Vor- menn tslands”. Þá flutti for- maður félagsins, Skúli Þórðar- son, ávarp. t lok ávarps hans færði hann öllum stofnfélögum félagsins, sem viðstaddir voru, mund Kr. Ólafsson og Þóreyju Jónsdóttur við undirleik Gisla Einarssonar. Undir borðum voru sungin ættjarðarlög. Ýmsir gestanna á hátiðar- samkomunni fluttu ávörp og færðu félaginu gjafir. Forseti bæjarstjórnar Akraness, Daniel Agústinusson, færði félaginu að gjöf frá bæjarstjórn „Sögu Akraness”, innbundna i fjórum bindum, sem i rauninni er heild- arsafn blaðsins „Akraness”. einn af stofnendum kvenna- deildar félagsins, svo og fyrir hönd stofnenda félagsins Guð- bjarni Sigmundsson og Sigrikur Sigriksson, sem lengi var for- maður sjómannadeildar félags- ins. Auk áðurnefndra gjafa barst félaginu mikið af blómum og blómakörfum, svo og heillaósk- um og kveðjum. Að lokum þakkaði formaður félagsins, Skúli Þórðarson, fé- „öllum, sem um eitthvert skeið hafa unnið að málefnum heildarsamtakanna, er ljóst, að Verkalýðsfélag Akraness hefur um langan aldur gegnt skyldum sinum og hlutverki i verkalýðs- hreyfingunni með mikilli sæmd. Það hefur aldrei látið á sér standa, þegar til átaka hefur þurft að gripa, og hefur átt hinn ágætasta hlut i farsælli lausn mála. Félagið hefur lika átt þvi láni að fagna að njóta frá Sœmundur FriSriksson, 1. formáSur. Oddur Sveinsson, 1. ritari. Jörgen Flansson, meÖstjórnandi. Sveinbjörn Oddsson, 1. varaform. Gísli Gíslason, 1. vararitari. Jónas GuSmundsson, 1. varaféhirSir. Stofnendurnir heiðraðir í veglegu afmælishófi Verkalýðsfélag Akraness átti hálfrar aldar afmæli hinn 14. október s.l. í tilefni afmælisins hefur fé- lagið gefið út myndarlegt af- mælisrit. Föstudaginn 18. októ- ber efndi félagið til afmælishófs, þar sem fram fór kaffidrykkja, afmælisávörp voru flutt, ýmis skemmtiatriði voru á dagskrá og félaginu færðar ýmsar veg- legar gjafir. Bjarnfriður Leósdóttir, vara- formaður kvennadeildar félags- ins, setti hátíðina. Skólalúðra- að gjöf borðfána Verkalýðsfé- lags Akraness og færði þeim þakkir fyrir áralanga tryggð við félagið og baráttu fyrir það frá upphafi til þessa dags. Þá flutti Herdis ólafsdóttir, formaður kvennadeildar félags- ins, ávarp og færði nokkrum af stofnendum deildarinnar borð- fána að gjöf og þakkaði þeim störf og baráttu i þágu félagsins og verkalýðshreyfingarinnar. Siöan flutti Garðar Halldórs- son, ritari félagsins, frumort hátiðarljóð I tilefni 50 ára afmælisins. Jörundur Guðmundsson flutti eftirhermuþátt og fór með gam- anmál. Jórunn Jóhannesdóttir söng gamanvlsur eftir Guð- Þorvaldur Loftsson, formaður Sveinafélags málmiðnaðar- manna á Akranesi færði félag- inu að gjöf fagurt vikingaskip, skorið út I hvaltönn. Karl Steinar Guðnason, for- maður Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavikur, færði félag- inu að gjöf fyrir hönd sins félags fagran borðfána á fæti. Þá talaði Hinrik Konráðsson frá Ólafsvik og færði Verkalýðs- félagi Akraness að gjöf frá verkalýðsfélögunum á Snæfells- nesi áletraðan fundarhamar auk brettis, sem hamarinn stendur á. Auk ofannefndra fluttu ávörp frú Þóra Einarsdóttir, sem er lögum og gestum fögur orð, góð- ar gjafir og hlýhug I garð fé- lagsins. Bað hann viðstadda að gera félaginu þá ánægju að þiggja að gjöf borðfána félags- ins til minningar um þessa kvöldstund á timamótum i sögu félagsins. ,,Hefur aldrei lótið ó sér standa til ótaka þegar ó hefur þurft að halda" Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands Islands, ritar afmæliskveðju i 50 ára afmælis- rit Verkalýðsfélags Akraness. I kveðjunni segir hann m.a.: fyrstu tið leiðsagnar mikilhæfra og fórnfúsra forustumanna, sem notið hafa almenns álits i hreyfingunni og sett svip sinn á þing hennar og ráðstefnur. Minnist ég, og ugglaust aðrir, i þvi efni sérstaklega þeirra Sveinbjarnar Oddssonar, frum- herjans, sem stóð við stýrið á mestu erfiðleikaárunum, þegar félagið barðist fyrir lifi sinu og viðurkenningu, og Hálfdáns Sveinssonar, sem siðan tók upp merki Sveinbjarnar og hélt þvi hátt á loft I aldarfjórðung. Þá er það forustufólk, sem i dag fer fyrir félaginu, og vel þekkt og að góðu einu nú um árabil, og hefur á margan hátt komið við sögu hinnar sameiginlegu baráttu verkalýðshreyfingarinnar. Þegar nú er staðnæmst og horft til baka um farinn veg hálf rar aldar, er það þvi ekki aðeins félagarnir i Verkalýðsfé- lagi Akraness, sem minnast brautryðjendanna með þakklát- um huga og aðdáun fyrir vaska framgöngu, heldur öll verka- lýðshreyfingin i landinu, sem notið hefur ávaxtanna af bar- áttu þeirra. En það er lika horft fram á veginn og ný markmið sett, sem fáa hefði dreymt um fyrir 50 árum, og enn mun reyna á þann baráttuvilja og samstöðu sem einkennt hefur Verkalýðs- félag Akraness allt frá stofnun þess. Og þá er gott að minnast sögunnar og sækja þangað þann eld, sem brann i brjóstum frum- herjanna. Megi gifta fylgja störfum Verkalýðsfélags Akraness á ókomnum árum”. Neituðu að semja, nema félagið segði sig fyrst úr Alþýðusambandinu I hið myndarlega afmælisrit Verkalýðsfélags Akraness ritar Guðmundur Kr. Ólafsson, einn af stofnendum félagsins, stjórnarmaður um áraraðir og formaður félagsins um skeið, veigamikla grein um 50 ára sögu félagsins. Alþýðublaðinu þykir við hæfi að birta hér kafla úr greininni um fyrstu árin: „Það kom fljótt i ljós, eins og viðast annars staðar, þar sem slik verkalýðsfélög voru stofn- uð, að atvinnurekendur brugð- ust hart við, og reyndu að ganga að félagsskapnum dauðum og svo varð einnig hér á Akranesi. Atvinnurekendur neituðu alger- lega að semja við verkalýðsfé- lagið. Sögðust „geta samið við sina verkamenn og sjómenn án aðstoðar félagsins”, eins og sagt var i bréfi atvinnurekenda til félagsins i fyrsta skipti, sem það stóð i samningatilraunum fyrir félagsmenn sina. Þegar eftir stofnun verka- lýðsfélagsins gekk það i Alþýðu- samband íslands og varð þar með einn hlekkur i keðju verka- lýðssamtakanna. A fundi félaganna hinn 22. nóvember 1924 skýrir Svein- björn Oddsson svo frá, að at- vinnurekendur neiti algerlega að semja við verkalýðsfélagið, nema það gangi úr Alþýðusam- bandi tslands. Fundarmenn töldu þetta læ- vist bragð, gert i þeim tilgangi að sundra félaginu, og sam- þykktu að gefa út taxta, annan fyrir sjómenn og hinn fyrir verkafólk. — Fundarmenn hétu þvi að standa fast að þvi, sem þeir höfðu samið og samþykkt að gera, þ.e. að ráða sig eftir þeim taxta, er samþykktur var á fundinum. I fundarlok sungu menn „Sjá hin ungborna tið”, og fleiri baráttu- og ættjarðar- söngva, en það virðist hafa ver- ið venja að hefja og ljúka fund- um með söng, og mun þar hafa gætt áhrifa frá ungmennafélög- unum, en margir af félags- mönnum og þeir áhrifamestu höfðu starfað mikið að ung- mennafélagsmálum og fyrstu forystumenn V.L.F.A. voru þjálfaðir ræðumenn, vegna starfa sinna i Ungmennafélagi Akraness. Samt sem áður náði þessi taxti ekki fram að ganga vegna harðrar mótstöðu atvinnurek- enda og virðist sem félagsmenn hafi átt I vök að verjast og félag- ið staðið höllum fæti, enda var atvinna stopul og allmargir sjó- menn og verkamenn stóðu enn utan við félagið og samtaka- mátturinn þvi ekki nægilega traustur. A fundi félagsins 1. desember 1924 er samþykkt tillaga um, að félagið segi sig úr Alþýðu- sambandi tslands, gegn þvi að atvinnurekendur gangi að ó- högguðum þeim skilmálum, Skúli Þórðarson, formaSur IrBsfélaes Akraness. ekki semja við verkalýðsfélagið né láta félagsbundna verka- menn fá vinnu, vegna stuðnings þeirra við sjómenn, er þá áttu I deilu um kjör sin. Um þessar mundir var starfandi deild úr Fiskifélaginu (Báran) og voru allmargir sjómenn starfandi i henni, ásamt útgerðarmönnum. Fiskideildin hafði þó ekki haft með samninga að gera fyrir sjó- menn. En þar sem útgerðar- menn höfðu ráðið miklu i starfi deildarinnar, tóku þeir upp það ráð að láta hana gera samninga við einstaka sjómenn, sem ekki voru félagar i verkalýðsfélag- inu. A fundi i verkalýðsfélaginu var þessu harðlega mótmælt og barSigurður Simonars. fram þá tillögu, gð sjómenn, sem væru félagar i V.L.F.A. skrifuðu und- ir yfirlýsingu um, að þeir fælu samninganefnd félagsins, þ.e. V.L.F.A., að fara með samn- inga fyrir sina hönd. Allir við- staddir sjómenn skrifuðu undir þetta skjal. Ennfremur var samþykkt á sama fundi tillaga frá Indriða Jónssyni um að mót- mæla samningagerð Fiski- deildarinnar og skorað á sjó- menn i Verkalýðsfélagi Akra- ness að segja sig úr Fiskideild- inni i mótmælaskyni. Verkalýðsfélagið gekk að nýju i Alþýðusamband tslands 16. des. 1927.” Verka- Sigurdór Sigurðsson, U formaður Sjómannadcildar. sem setti fram með taxta sinum 22. nóvember. Þessi samþykkt var gerð eftir itarlegar viðræð- ur við þáverandi forseta A.S.t., Jón Baldvinssson, en hann hafði hvað eftir annað átt viðræður við atvinnurekendur og reynt að fá þá til að semja við verkalýðs- félagið, en atvinnurekendur voru ósveigjanlegir i garð þess. A nýársdag 1925 er haídinn fundur i verkalýðsfélaginu og þar er skýrt frá fyrsta samn- ingnum við atvinnurekendur um kaup og kjör sjómanna. I fyrstu samninganefnd félagsins áttu sæti þeir Sæmundur Friðriksson, Sveinbjörn Odds- son og Sigurður Björnsson. Fyrsti samningur, sem gerð- ur var vegna verkafólks, náðist ekki fyrr en 19. júní 1925 og gilti sá samningur til 1. april 1926. Samkvæmt samningum þessum var dagvinna talin frá kl. 7 f.h. til 7 e.h. og greidd með 1 krónu á klst. Eftirvinna greidd með kr. 1.50 á klst. og helgidagavinna með kr. 2.00 á klst. — t fyrstu samninganefnd fyrir verkafólk voru þeir Sveinbjörn Oddsson, Gisli Gislason og Vilhjálmur Jónsson. Enda þótt samningar þeir, sem hér er um getið, næðust fram að ganga, var langt frá, að þar með hefðu atvinnurekendur viðurkennt félagið að fullu sem samningsaðila fyrir sjómenn og verkafólk, þvi að á fundi i félag- inu hinn 17. janúar 1927 tilkynna atvinnurekendur i bréfi til stjórnar félagsins, að þeir muni 0 Miövikudagur. 30. október. 1974 Miðvikudagur. 30. október. 1974 o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.