Alþýðublaðið - 30.10.1974, Síða 8

Alþýðublaðið - 30.10.1974, Síða 8
ÞEGAR CELTIC MÆTTI HIBERNIAN í ÚRSLITALEIKNUM í DEILDARBIKARNUM Ekki er hægt að segja að lifið hafi brosað við mark- skoraranum mikla í Celtio Dixie Deans f lok síðasta keppnistímabils. Þá veiktist hann skyndilega á mjög dularfullan hátt/ með þeim afleiðingum að hann lamaðist bæði á höndum og fótum. Héldu þá flestir að frami Deans á knattspyrnuvellinum hefði fengið mjög dramarfskan endi. Þessu var haldið leyndu á meðan að læknarnir við Royal Alexandria Infirmary sjúkrahúsið reyndu að greina sjúkdóminn. Þeir komust ekki að neinni niðurstöðu og enn er þeim hulin ráðgáta hvað varð þess valdandi að Deans lamaðist. Ekki varð undrun lækn- anna minni þegar lömunin hvarf jafn skyndilega og hún hafði komiðj Þeir héldu rannsóknum sínum áfram eftir að Deans hafði fengið máttinn aftur og létu hann gangast undir allskonar próf. En það var sama sagan, þeir komust ekki að neinni niðurstöðu og að lokum sögðu þeir honum að hann mætti fara heim. „Þið getið ekki imyndað ykkur hversu fljótur ég var að hypja mig i burtu af sjúkrahúsinu”, sagði Deans eftir þessa undarlegu reynslu sina. „Það var hryllilegt að liggja i rúminu og geta hvorki hreyft hendur ná fætur og hugsa um að núna væri ég búinn að vera. Þetta er sú hryllilegasta lifsreynsla sem ég hef orðið fyrir um ævina og um tima var andlegt jafnvægi mitt i hættu. En þá skeði kraftaverkið og lömunin hvarf jafn skyndilega og hún hafði komið og ég fékk mátt- inn aftur”. Eftir að Deans kom af sjúkrahúsinu byrjaði hann strax æfingar hjá Celtic og lagði mjög hart að sér á æfingunum, jafnvel eftir að æfingu var lokið hélt hann áfram til að komast sem fyrst i þjálfun aftur. Núna er Dixie Deans aftur komin i liðið, búinn að ná sinu fyrra formi, og byrjaður að skora mörk. A laugardaginn sigraði Celtic Hibernian i úrslitaleiknum i deildarbikarnum 6-3, og i þeim leik skoraði Deans þrjú mörk og virðist þvi vera búinn að finna sitt fyrra form aftur. Þess má geta til gamans að sá sem flest mörk' hefur skorað i deildarkeppni i Englandi hét lika Dixie Deans og lék með Everton. Það met verður sennilega seint slegið, en á einu keppnistimabili skoraði hann hvorki meira né minna en 60 mörk i deildarkeppninni. Nýtt landslið Sovétríkjanna mætir frum á miðvikudaginn Landslið Sovétrikjanna var ekki með í lokakeppni heimsmeistaramótsins í V* Þýskalandi og mátti segja, að sl. ár væri rólegt fyrir liðið. Það var rétt eins og liðið og yfirþjálfari þess/ Konstantin Beskov, sem tekið hefur aftur við starf- inu eftir 20 ára hlé, hefðu tekið sér frí til af- slöppunar og til að stokka upp í liðinu og skipuleggja leik sinn. t april og maf lék sovéska landsliðið við landslið Tékkóslóvakiu og Júgóslaviu. Leikur sovéska liðsins var i meðallagi eins og svo oft er á vor- in og fór leikur Sovétrikjanna; Júgóslaviu 1:0 Sovétrikjunum i hag. En þegar tékkneska lands- liðið sigraði hið sovéska með 1:0, fór Beskov, þjálfari að leita nýrra leiða til að hressa upp á leik liðs- ins, þar sem hann vissi, að fyrsti opinberi leikurinn átti ekki að fara fram fyrr en i árslok. Farið var að fylgjast með knattspyrnumönnum i fyrstu og annarri deild. Boskov fór að at- huga leik fjölmargra ungra knattspyrnumanna. Fylgst var með leik margra þeirra i til- raunaleikjum á leikvöngum i Pól- landi, Hollandi og Italiu. Þegar kom að þeirri stund, að skipað skyldi I landsliðið i undankeppni i Evrópu-meistarakeppninni, þar sem Sovétrikin keppa við Irland, hafði Beskov stokkað upp i liðinu. Leikur Sovétmanna og Ira á að fara fram i Dublin 30. október. Siðasta æfing sovéska landsliðsins var i Moskvu tveim vikum fyrir leikinn við Irland, þegar það keppti við búlgarska liðið, hefðbundinn andstæðing sinn, eða satt að segja búlgarska tilraunalandsliðið. Reyndar mátti segja, að, að sovéska liðið væri lika tilraunalið. Nýir menn voru i lykilstöðum sovéska liðsins. Hinn 23ára gamli Vjatseslav Losjúk úr „Tsjernomoreta-liðinu” frá Odessu var miðherji gegn hinum reynda varnarmanni, Vladimir Eaplitsi. Hinn 19 ára gamli Vladimir Fedorov, leikmaður „Pakhtakora” frá Tashkent var i sókninni á móti öleg Blokhin, besta knattspyrnumanni sl. árs og Mikhail Ana úr sama liði var i hlutverki bakherja. Hann stóð sig ekki sem skyldi. Þessi framúrskarandi knattspyrnu- maður, sem leikur svo glæsilega með sinu eigin liði, var óöruggur við hinar nýju leikaðstæður. 1 leik þessum virtist nýja liðið hans Beskov vera fremur sundur- leitur hópur, en sóknarmennirnir voru góðir. Hinn ungi Vladimir Fedorov, sem hefur tilhneigingu til að leika einleik, reyndist góður mótleikari Oleg Blokhin. Þegar Vladimir Onisjenko bættist i hópinn i síðari hálfieik fór sókn sovéska liðsins að bera árangur. Áður eða á 58. minútu leiksins urðu mistök Vjatsjeslav Lesjúk og Nikolja Khúdijev, sem lék i stað Vladimirs Troshkin, sem var frá leik vegna meiðsla, til þess að sovéska liðið varð af marki. En þó að heildarleikur liðsins væri ekki sem skyldi, þá átti það samt meira I leiknum og búlgarska vörnin gat ekki staðist leik fram- varðanna þriggja. Hver þeirra átti gott tækifæri oftar en einu sinni, en búlgarski mark- vörðurinn Jórdan Filippov var frábær. Að lokum gaf Fedorov knöttinn til Onisjenko, sem skoraði mark og skildu liðin jöfn 1:1. Sovéskir knattspyrnuáér- fræðingar vörpuðu fram þeirri spurningu, hvað hefði áunnist eft- ir allar breytingarnar. Niður- staðan varð sú að nýja liðið mundi lagast smátt og smátt, þó að miðjan væri ekki sem skyldi. Hin sterka sóknarlina gerir liðinu kleyft að búa sig áhyggjulaust undir næsta keppnistimabil, en þá verða leiknar undanrásir i Evrópu- meistaramótinu við lið Irlands, Tyrklands og Sviss. Oleg Blokhin er sá, sem ber af i liðinu. Hann hefur skorað 17 mörk i Sovétmeistarakeppninni I ár, og enn er henni ekki lokið. Hann er einnig sá, sem skorar oftast i leikjum við erlend lið. Vladimir Onisjenko er einnig framvörður og nú þegar Vladimir Fedorov frá Tashkent hefur bætst i hópinn, má segja með fullri vissu, að þeir hafi fengið verðugan meðleikara. Segja má að Beskov þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af varnarlínunni. Hún verður sterkari, þegar Revas Dzodzúashvili, frá „Dinamó” i Thilisi kemur aftur til leiks, en hann hefur leikið 47 sinnum með landsliðinu. Einnig eru nokkrir góðir varnarmenn i varaliðinu. Markmaðurinn Vladimir Pilgúi úr „Dinamó” i Moskvu er smám saman að öðlast ró og jafnvægi og þar með er hann kominn i gott form. Það er aðeins miðjan, sem ekki er nægilega góð og þetta vanda- mál verður að lagast sem fyrst. Takist það, ætti sovéska landsliðiö að geta náð góðum árangri i Evrópumeistaramótinu. Úrslitin hjá kvenfólkinu lokatölur leiksins 18-5. Þá mætti Ármann Vikingi og | var það nokkuð jöfn keppni | lengi vel. 1 fyrri hálfleik var leikurinn mjög jafn og skildi að- eins eitt mark liðin i hálfleik, en þá var staðan 5-4 fyrir Armann. 1 seinni hálfleik léku Ar- mannsstúlkurnar mjög vel og tókst þeim að auka aðeins for- skotið og sigra verðskuldað 10-7. Eftir þennan ósigur Vikings er ljóst að baráttan stendur hér eftir milli Vals og Fram i mót- inu. A sunnudaginn voru leiknir tveir leikir i m.fl. kvenna i Reykjavikurmótinu I hand- knattleik. Upphaflega áttu þeir að vera þrir, en lið Þróttar mætti ekki til leiks i leik sinum við KR, sem þar fékk tvö auð- unnin stig. 1 fyrsta leiknum sigraði Valur 1R stórt, I fyrri hálfleik geröu Valsstúlkurnar strax útum leik- inn og höfðu þær yfirburða stöðu i hálfleik 10-2. 1 seinni hálfleik skoruðu þær svo 8 mörk gegn 3 og urðu þvi °l Dixie Deans er byrjaður að skora mörk aftur fyrir Ceitic. Síöasti leikurinn A laugardaginn léku Fram og Valur kæruleikinn á Mela- vellinum, ekki er hægt að segja að aðstæður hafi verið góðar til að leika knattspyrnu, SV rok og rigning. Leiknum lauk með sigri Fram 2-1, eða sömu úrslit og urðu fyrr i sum- ar. Það var Kristinn Jörunds- son sem skoraöi fyrst fyrir Fram, en Jóhannes Eðvalds- son jafnaði fyrir Val. Siðast I seinni hálfleik fékk svo Framari boltann greini- lega rangstæður, linu- vörðurinn veifaði og allir hættu. Dómarinn gerði sig hinsvegar ekki likiegan til að dæma neitt, heldur baðaði út öllum öngum langt úti á velli. Þá gerði Marteinn Geirsson sér litið fyrir og sendi boltann i markið án þess að Valsmenn gerðu minnstu tilraun til varnar. Urðu miklar deilur vegna marks þessa og lauk þvi með að Inga Birni Albertssyni var visað af leikvelli, en aðrir fengu að sjá gula spjald sómarans. Ingi Björn fékk að sjá rauða spjaldið o Miðvikudagur. 30. október. 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.