Alþýðublaðið - 30.10.1974, Blaðsíða 12
alþýðu
mum
Bókhaldsaóstoó
meó tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
KÓPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
r
SENDIBILASTÖÐIN HF
Dýraspítalinn
Dýraspítalinn í Víð.dal
er nú risinn af grunni og
er hið snotrasta hús. Er
það f okhelt og hef ur verið
steypt og fínpússað gólf
hússins og einangrun sett
i veggi.
Þegar við fórum þarna
upp eftir, var ekki verið
að vinna við húsið, en
sýnilega er enn nokkuð í
land, að það verði tekið í
notkun. Mestu varðar þó,
að húsið sé tryggilega
varið fyrir veturinn og
virðist svo komið, að unnt
sé að Ijúka smíði hússins
eða uppsetningu með
eðlilegum hraða, hvernig
sem viðrar.
Mark Watson, fslands-
vinurinn alkunni, gaf
þessa höfðinglegu gjöf,
en þetta er fyrsta dýra-
sjúkrahús á fslandi. Hús-
iðer um 100 ferm. að f lat-
armáli. Fylgja því nauð-
synleg tæki í dýraspítala,
svo sem röntgentæki og
fullkomin skurðstofa
fyrir smærri dýr, þar
með talin svæf ingartæki.
Að öðru leyti er öllu
mjög haganlega fyrir
komið, enda öll gerð
þessa einingahúss byggð
á langri og mikilli reynsiu
þar, sem dýrahjúkrun og
dýravernd hefur verið
raunhæfari en lengst af
hérlendis.
Blaðið hef ur áður skýrt
frá gangi dýraspítala-
málsins og ýmsum erfið-
leikum, uns skarið var
tekið af og gjöf þessi var
þegin með þökkum af
Reykjavíkurborg og bæj-
ar- og sveitarfélögum í
nágrenni borgarinnar.
Borgin tók síðan að sér
að leggja til lóð undir
spítalann og sjá um upp-
setningu og byggingu
hans. Enda þótt mörgum
þyki framkvæmdin ekki
hafa gengið vonum hrað-
ar er þó full ástæða til að
fagna því, sem áunnist
hefur. Er þess að vænta,
að nú verði þess ekki
langt að bíða, að spítalinn
verði tekinn í notkun.
tslandsvinurinn, Mark Watson.
■
Dýraspitalinn er risinn af grunni i ViOidal. t baksýn er BreiOholtiO.
PIMM á förnum vegi
Telur þú dýraspítalann til bóta?
Erla Guömundsdóttir, kaup-
kona: Ég á nú bara páfagauk,
en mér þætti gott að eiga
dýraspitalann aö. Hann hlýtur
aö vera fagnaðarefni fyrir eig-
endur dýra og dýravini.
Július Maggi Magnús, versi-
unarmaöur: Dýraspitalinn er
fullkomin nauösyn. Ég hefi átt
bæöi hesta og hunda, og myndi
hiklaust nota hann, ef ég eign-
aöist aftur dýr. Ekki hvaö slst
ætti hann aö vera til stórbóta
fyrir aöstööu dýralækna.
Jóhannes Proppé, deildarstjóri:
Ég myndi eiga hund, ef það væri
leyfilegt, og að sjálfsögðu nota
dýraspitalann, ef þörf geröist.
Ég fagna honum, og tel þaö
veigamikið uppeldisatriði að
leyfa hundahald.
Magnús Jónsson, 12 ára: Ég á
kött, og ef hann yröi veikur,
myndi ég fara meö hann á dýra-
spitalann.
Frank Cassata, kaupmaöur: Jú
vissulega fagna ég dýraspltala.
Ég á hund, og bið þess með
óþreyju aö viö getum fariö
saman út aö ganga, ef hunda-
hald veröur leyft.