Alþýðublaðið - 25.11.1974, Side 12
alþýðu
n RTflfil
Bókhaldsaóstod
með tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
KOPAVOGS APÓTEK
Opið öli kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
Hvað segja þeir um töku þýska veiðiþjófsins?
ÆTLUM AÐ HERÐA AÐGERÐ
IR GEGN ÞJÓÐVERJUM
Ólafur Jóhannesson, dóms-
málará&herra:
„Já, það er meiningin að
herða aðgerðir gagnvart Þjóð-
verjunum vegna siendurtek-
inna brota þeirra i islenskri
fiskveiðilandhelgi”, sagði
Ólafur Jóhannesson, dóms-
málaráðherra, er blaðamaður
Alþýðublaðsins spurði hann i
gær, hvort rikisstjórnin hefði
tekið upp ákveðnari og harð-
ari stefnu varðandi gæslu og
eftirlit innan 50 sjómilna
markanna.
Dómsmálaráðherra sagði
ennfremur i samtali við
Alþýðublaðið: ,,En annars
hefur handtaka aldrei verið
neitt markmið i sjálfu sér,
heldur að torvelda Þjóðverj-
um veiðarog koma i veg fyrir,
að þeir gætu fiskað innan fisk-
veiðimarkanna.
Það hefur verið stefnt að þvi
að reyna að komast að bráða-
birgðasamkomulagi við
Vestur-Þjóðverja, en þó með
þvi ófrávikjanlega skilyrði, að
verksmiðjuskipum og frysti-
togurum yrði ekki hleypt inn
fyrir fiskveiðimörkin. Þessa
ófrávikjanlegu kröfu fyrir
bráöabirgðasamkomulagi
viröast V.-Þjóðverjar ekki
hafa skilið til þessa. Þess
vegna er að mlnum dómi eðli-
legt, að hert sá á aðgerðum
gegn þeim — eftir þvi sem
geta okkar framast leyfir”.
Gagnrýnt hefur verið m.a.
af hálfu skipherrans, sem
stjórnaði töku vestur-þýska
togarans Arcturus, hve skipa-
kostur Landhelgisgæslunnar
er litill miðað við það viðáttu-
mikla svæði, sem íslenska
fiskveiðilögsagan spannar nú
orðið. Um þetta sagði Ólafur
Jóhannesson: „Ég er sam-
mála þvi, að skipakosturinn
þyrfti að vera meiri. En
spurningin er um það, hversu
miklu fé fjárveitingavaldið
vill veita til gæslunnar”.
Fréttir af töku vestur-þýska
togarans bárust islenskum
fjölmiðlum erlendis frá og
fyrstu fréttir af þessum at-
burði birtust erlendis eftir
fulltrúum útgerðar togarans,
en ekki Islensku landhelgis-
gæslunni eða stjórnvöldum.
Hver er skýringin á þessu,
Ólafur Jóhannesson?
,,MIn skýring er sú, að ekki
sé hægt fyrir fram eða meðan
á handtöku stendur að skýra
frá henni. Slikt hefði hugsan-
lega i þessu tilfelli getað leitt
til þess, að aðrir þýskir togar-
ar — eða önnur þýsk skip —
hefðu komið á vettvang og
komið hefði til meiri árekstra.
Hins vegar var ekki hægt að
hindra, að togarinn sendi út
frétt um atburðinn, áður en
hann var tekinn, og einhverjir
næðu sendingum hans. Þetta
er sem sagt eingöngu út frá
löggæslusjónarmiði, en ekki
til þess að sniðganga frétta-
menn út af fyrir sig”.
„Það má segja, að málstað-
ur Islendinga i landhelgismál-
inu sé kynntur frá hverju
sendiráði, auk þess sem allir
sendimenn tslands á alþjóða-
fundum, hjá Sameinuðu þjóð-
unum og annars staðar, hafi
það sérstaka verkefni að
kynna málstað Islendinga.
Annars býst ég við þvi, að
farið verði að vinna sérstak-
lega að kynningu landhelgis-
málsins erlendis með 200
milna lögsöguna I huga”.
Að lokum sagði Ólafur Jó-
hannesson i samtalinu við
Alþýðublaðið: „Bæði yfir-
menn flugvélarinnar og
gæsluskipsins, sem tók vestur-
þýska togarann, munu gefa
skýrslu um atburðinn við rétt-
arhöldin.
Að siðustu vil ég taka fram,
að mér sýnist sennilegt, að
leggja verði I framtiðinni enn
meiri áherslu á notkun flug-
véla við gæslu fiskveiðiland-
helginnar”. —
Fagna því að lögum sé
komið yfir ill-
ræmdan veiðiþióf
ur hafi þau áhrif, að Vestur-
Þjóðverjar og aðrir, sem eru
svipaðrar skoðunar og þeir,
ættu að sannfærast um, að við
meinum allt, sem við höfum
sagt i þessu lifshagsmunamáli
okkar og látum einskis ófreist-
að til framgangs þvi.
Karvel Pálmason, alþingis-
maður, Samtök frjálslyndra:
„Ég fagna þvi að sjálfsögðu,
að núhefurnáðst sá áfangi að
koma lögum yfir einn þessara
illræmdu veiðiþjófa innan is-
lenskrar fiskveiðilögsögu.
Það mætti ætla, að einhver
stefnubreyting hafi orðið hjá
rikisstjórninni varðandi gæslu
landhelginnar og veiðiþjófnaði
Vestur-Þjóðverja þar.
Um áhrif þessa atburðar á
hugsanlega samningsgerð við
Vestur-Þjóðverja um veiði-
heimildir innan 50 milnanna
vil ég aðeins segja það, að ég
er andvigur samningum við
þá og ég held, að þessi atburð-
Ummæli skipherrans á
varðskipinu Ægi hafa vakið
athygli. Þó að ég hafi ekki
heyrt þau sjálfur, hygg ég að
hann hafi mikiö til sins máls
um vandkvæði á gæslu land-
helginnar vegna ónógs skipa-
kosts. Sé svo, er hér um svo
mikilvægt mál að ræða, að
stjórnvöld mega einskis til
spara I þeim efnum.”—
VERID AÐ FRAMFYLGJA
ÍSLENSKUM LÖGUM
Forsætisráðherra sendi frá
sér fréttatilkynningu siðdegis
i gær, þar sem segir: „Rai-
mund Hergt, sendiherra Sam-
bandslýðveldisins Þýska-
lands, gekk i dag á fund Geirs
Hallgrimssonar, forsætisráð-
herra, og flutti honum harðorð
mótmæli rikisstjórnar sinnar
vegna töku togarans Arcturus
BX-739 I gær.
Forsætisráðherra áréttaði
sjónarmið tslendinga og kvað
málið nú i höndum dómstól-
anna.”
t stuttu samtali við Alþýðu-
blaðið sagði Geir Hallgrims-
son, forsætisráðherra, enn-
fremur um töku togarans Arc-
turus:
„Þýski togarinn braut með
itrekuðum hætti gegn fyrir-
mælum varðskips og ég vil á-
rétta það, sem fram kemur i
fréttatilkynningunni, og enn-
fremur að með tökunni er ver-
ið að framfylgja islenskum
lögum. Nú er dómstólanna að
kveða upp sinn dóm vegna
meints landhelgisbrots togar-
ans og er málið nú i höndum
dómstólanna.”
Sjálfsagt að taka
þá, færa til hafn-
ar og dæma þá
Jón Sigurðsson, formaður
Sjómannasambands tslands:
„Mér þykir I sjálfu sér vænt
um, að þetta skuli hafa gerst.
Það er alveg sjálfsagt, þegar
svo vel liggur við eins og
þarna var, að taka erlendu
landhelgisbrjótana.færa þá til
hafnar og dæma þá.
Hér er beitt sömu aðferðum
og áður hefur verið beitt gagn-
vart Bretum og þessum áð-
feröum eigum viö að beita.
„Hins vegar er ég alveg
sammála skipherranum, sem
stjórnaði töku þýska togar-
ans, að við þurfum að fá fleiri
gæsluskip og jafnframt fleiri
flugvélar. Þetta eru alltof fá
skip til að þau geti annast
gæslu innan þeirra fiskveiði-
lögsögu, sem við höfum tekið
okkur.
Sennilega þyrftum við að
hafa minnst sex fullkomin
skip til að annast eftirlit og
gæslu landhelginnar.
Það hefur nú sannast, hve
mikilvægar flugvélarnar eru i
þessu efni. Þær komast yfir
ólikt stærra svæði en skipin,
en góð samvinna flugvélar og
skips getur orðið að ómetan-
legu gagni.”—
VONANDI VISBENDING
UM AUKNA HÖRKU
Ragnar Arnalds, formaður
Alþýðubandalagsins:
„Ég er mjög ánægður með
töku togarans. Við Alþýðu-
bandalagsmenn höfum verið
mjög óánægðir með þá lin-
kind, sem okkur viröist, að
Landhelgisgæslan hafi sýnt
gagnvart landhelgisbrotum
vestur-þýskra togara.
Vonandi er þetta visbending
um meiri hörku framvegis I
gæslu islensku fiskveiðiland-
helginnar.”
FIMM á förnum vegi
Hvernig Ifst þér á töku vestur-þýska togarans?
Pétur Eyfjörö, kjötiðnaöarmaö-
ur: „Mér list vel á togaratök-
una, sérstaklega af þvi að þetta
var I þriðja skiptið á einum sól-
arhring, sem hann framdi land-
helgisbrot.”
Hansina Jónsdóttir, húsmóöir:
„Mérlist mjög vel á hana, þetta
tókst mjög vel, og Þjóðverjarnir
áttu þetta auðvitað skiliö.”
Einar Arnason, ieigubilstjóri:
„Mér list mjög vel á þetta.
Þetta hefði þurft að gera fyrr,
þvi fyrr, þvi betra,”
Gisli Ragnarsson, járnamaöur:
„Það eina rétta sem þeir hafa
gert i langan tima. Ég er mjög
ánægður með þetta, og þeir ættu
að gera meir af þessu.”
Guöni Ingvarsson, iönnemi:
„Bara mjög vel. Mér fannst rétt
að farið.”