Alþýðublaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 4
Gull á hafsbotni í þrjátí
í myrkri og ískulda 330
fet undir yfirborði At-
lantshafsins er hópur
kafara kominn að auðæf-
um í mynd gullstanga.
i rúm 30 ár hafa 69 gull-
stangir, sem eru rúmlega
milljón punda virði á
markaðnum legið á ó-
hreinum sjávarbotninum
umkringd ryðguðum plöt-
um, sem eru leifarnar af
f lutningaskipinu, sem
átti að flytja gullið til
Englands. Nú liggur gull-
ið vel geymt í hvelfingu
Englandsbanka í London
eftir þessa merkilegu
björgunartilraun, sem
fór svo leynt.
Með þessu var bundinn
endir á einn kynlegasta
atburðinn, sem kom fyrir
iheimsstyrjöldinni síðari.
Þegar f lutningaskipið
„Empire Manor" sökk
200 mílur suður af Cape
Race við Nýf undnaland í
janúar 1944 flutti skipið
gullstangir. Þetta var
skotmark, sem hver kaf-
bátaforingi hefði verið
stoltur af að skjóta niður,
en það voru mistök, þegar
„Empire Manor" var
sökkt og gulltjónið ó-
heppni hjá Bandamönn-
um, því að það var
kanadískt herskip, sem
sendi gullið á sjávarbotn.
UNGT SKIP
,, Empire Manor" entist
stutt. Short Brothers í
Sunderland byggðu skipið
1943. Það var eitt af
mörgum gufuskipum af
sömu gerð, sem hermála-
ráðuneytið pantaði á
stríðsárunum til að flytja
fryst kjöt.
Það var annars konar
varningur, sem settur var
í fremstu lestina að
morgni 22. janúar 1944,
þegar skipið sigldi úr
höf ninni í New York til að
sigla í 40 skipa lest, sem
send var til Englands.
Þetta var þriðja og ör-
lagarikasta ferð hennar.
Kvöldið áður komu
vopnaðir verðir með
stóra kassa niður að skipi
og þeir voru bornir niður í
fremstu lestina. Látið var
í veðri vaka, að þetta
væru vélarhlutar, en það
voru raunar gullstangir,
sem voru hluti af láns- og
leigusamningi milli Stóra
Bretlands og Bandaríkj-
anna.
ERFITT
FERÐALAG
Fyrstu fimm daga
ferðalagsins gerðist svo
sem ekkert nema hvað
veðrið var vont, en það
hafði hver einasti sjó-
maður, sem sigldi í þess-
um skipalestum lært að
þola. Veðrið var óvenju
vont veturinn 1943—44.
Síðustu þrjá mánuði 1943
var ofsaveður á Norður-
Atlantshafi í 72 af 92 dög-
um!
Að morgni þess 28.
janúar sigldi skipalestin
hægt áfram í ofviðrinu.
H.R.M. Smith skipstjóri á
„Empire Manor" var
uppi í brú kl. 8.42 til að
breyta um stefnu.
Flutningaskipin 40 í
skipalestinni breyttu sí-
fellt um stöðu innbyrðis.
Stjórnborðs megin við
skipið sigldi bandaríska
Liberty-skipið Edward
Kavanagh. Um leið og
skipin beygðu rakst
stefnið á Edward Kavan-
agh stjórnborðsmegin á
Empire Manor við f jórðu
lest. Það kom gat á síðu
skipsins undir yfirborði
sjávar og gráar öldur
Atlantshafsins streymdi
inn í mikið skemmt skip-
ið. Vélamennirnir forð-
uðu sér, þegar kaldur
sjórinn flæddi inn í vélar-
rúmið og kom í veg fyrir
að dælur og vélar ynnu.
Empire Manor velktist
hjálparvana um í ósjón-
um og byrjaði að sökkva
meðan skipið hallaðist
mikið á stjórnborða.
LINA UM BORÐ
Kanadíska skipið Keno-
gami sigldi umhverfis
Empire Manor til að
vernda það fyrir hugsan-
legum kafbátaárásum,
en aðrir bátar reyndu að
koma línu um borð til að
unnt væri að draga skipið.
Þrátt fyrir óveðrið tókst
það hvað eftir annað, en
línan brast hverju sinni.
Ástandið varð verra um
borð á Empire Manor,
þegar sjórinn streymdi
inn í lest nr. 3, en í þeirri
lest voru tunnur með ef n-
um, sem í kviknaði og
eldslogarnir blossuðu upp
um lúgurnar. Engin dæl-
anna var nothæf og
mennirnir reyndu að
slökkva eldinn með því að
hella á hann vatni úr föt-
um.
Meðan eldurinn var
hvað mestur skipaði
Smith skipstjóri mönnum
sínum að yfirgefa skipið.
Þeir komust allir frá
borði í fjóra björgunar-
báta og um borð í Keno-
gami. Skipið hélt sig alla
nóttina nálægt brennandi
skipinu og birtan frá því
hlaut að gera öll hin skip-
in að auðveldri bráð kaf-
báta nasistanna.
Næsta morgun logaði
enn í skipinu. Smith skip-
stjóri vildi ekki yfirgefa
það, ef einhverjar líkur
væru á að bjarga því.
Hann ákvað að f ara af tur
um borð með sjálfboða-
liða og honum tókst það
um leið og dráttarbátur
f rá sjóhernum kom.
Dráttartaug var komið i
skipið og nú hófst hin
Gullstöngum, sem voru milljón punda virði sök
0
Sunnudagur 1. desember 1974