Alþýðublaðið - 15.01.1975, Qupperneq 3
EYJOLFUR
KONRÁÐ
KOMMISS-
AR?
Eyjólfur Konráð
Jónsson, fyrrum rit-
stjóri Morgunblaðsins,
er nú talinn líklegastur
sjálf stæðismanna til
þess að hljóta stöðu
„kommissars" við
Framkvæmdastofnun
ríkisins.
Eins og áöur hefur komiö
fram i fréttum hafa fulltrúar
SFV og Alþýöubandalagsins i
„kommisserahópnum” — þeir
Bergur Sigurbjörnsson og
Guömundur Hjartarson — lát-
iö af þeim störfum, en i lögum
um Framkvæmdastofnunina
er gert ráð fyrir þvi, að sér
hver ný rikisstjórn geti ráöiö
sina „kommissara”.
Þá er einnig töluvert til um-
ræöu i stjórnarherbúðunum aö
gera verulegar breytingar á
lögunum um Framkvæmda-
stofnun rikisins — m.a. i þá
átt, að takmarka mjög völd
hennar og þá einkum og sér i
lagi i fjárfestingalánamálum.
MJOLKURDAGUR
Á FÖSTUDAGINN
„Mjólkurdagur” skal föstu-
dagurinn næstkomandi heita.
Það eru fyrirtæki mjólkuriönað-
arins, sem aö deginum standa
og er þá ætlunin að kynna lands-
mönnum nýjar mataruppskrift-
ir, þar sem mjólkurvörur eru
uppistaöan. Fyrir tveimur ár-
um var haldinn sérstakur
„skyrdagur”, þar sem meðal
annars var efnt til samkeppni
um skyruppskriftir,
Af þessu innvegna magni fóru
46 milljónir kg i hreina neyslu,
þar er þó súrmjólk innifalin. Þá
hafa farið i allskonar vinnslu
um 69 milljón kg. á árinu, sem
um er rætt. Smjörframleiösla
nam á þessum sama tima 1727
tonnum. Aftur á móti hefur
smjörsalan verið drjúgum
meiri eöa 2152 tonn. Það er um
34% aukning á heildarsölu, en
fyrstu 9 mánuði ársins nam
söluaukning allt að 50% miöað
viö jafnlangan tima áður. ís-
lendingar eru nú á góöum vegi
meö aö eta upp sitt smjörfjall,
þvi aö birgðir i árslokin voru að-
eins 221 tonn á móti 646 tonnum
áöur.
Framleiösla rjóma nam 1
milljón tonna. Framleiösla alls-
konar osta nam röskum 2100
tonnum. Þar af hafa selst innan-
lands um 1050 tonn. Ostasalan
hefur ekki aukist nema um ná-
lægt 3%, þegar frá eru taldir
bræddir ostar (smurostar) þar
hefur salan aukist um 43%.
Ostabirgðir i landinu þann 1.
september námu 678 tonnum.
Skyrframleiðslan nam 1708
lestum. Það hefur allt selst inn-
anlands enda eru Islendingar
eina þjóðin, sem framleiöir og
neytir þessa réttar. Eigi aö siö-
ur hefur framleiðslan dregist
saman um 2% á árinu. Allar lík-
ur benda til aö framleiösla á
Yogurt sé ástæðan fyrir þessu,
en af þeirri vöru voru fram-
leiddir um 290 þús litrar.
Nokkuð var framleitt af
mjólkurdufti, sem einkum tveir
staðir á landinu framleiða,
mjólkurbúin á Blönduósi og
mjólkurbú Flóamanna. Af ný-
mjólkurdufti voru framleidd um
35 tonn, en af undanrennudufti
303 tonn. Þessi vara selst yfir-
leitt á góöu veröi, en hún er not-
uð bæði i bakstur og ennfremur i
fóðurblöndu. Bændur nota mikið
kálfafóður, sem undanrennu-
duft er notað i. Við duftið er bætt
feiti, s.s. bræddum mör og ým-
iss konar steinefnum, s.s. fosfór
og kalki og þykir það gefa
ágæta raun.”
l.okt.'71 l.des. '72 l.sept.'73 I4.apr.'74 l.okt.'74
1. Afskriftir 29.415.- 43.038.- 57.645.- 60.119.- 87.750.- 1 . , 1 1 11 • 1 J 99,900-
2. Ber®in 23.408.- 28.160.- 40.480.- 54.560.- 84.480.- 89,760-
3. Smuming 2.182,- 2.200.- 3.250.- 4.350.- 5.600.- 6000-
4. HJólbarðar 6.750.- 7.318.- 8.263.- 9.888.- 6.390.- i4ooo-
5. Varahlutir 12.300.- 14.600.- 17.100.- 18.810.- 26.500.- 38000-
6. Viðgerðir 14.400.- 18.600.- 24.000.- 42.000.- 52.860.- 54000-
7. Abyrðartr, 5.873.- 6.438.- 7.515.- 12.004,- 14.006.- 14006-
8. Kaskótrygging 5.594.- 14.652.- 17.176.- 17.785.- 20.966.- 22900-
9. Blfreiðaskattur I.508.- I.696.- 1.904.- 2.212.- 2.212.- 2212-
10. tftvarpsgjald 980.- 1 • £ 00 572.- 0 0 0
11. Ymislegt 2.440.- 2.600.- 3.000.- 4.000.- 5.500.- 7 500-
104.850,- 140.172,- 180.905.- 225.728.- 306.264.- 347.258.
Alþýðublaðið birti
i gær frétt um það,
að reksturskostn-
aður bifreiðar af
gerðinni Wolkswag-
en 1300 væri nú
347.258 krónur á ári.
Taflan hér til hlið-
ar sýnir útreikninga
F.Í.B. um meðaltals-
kostnað við rekstur
slikrar bifreiðar sið-
ustu árin miðað við
verðlag á hverjum
tima.
HORNIO
SKERUM UPP HERðR GEGN
HEM KÚMS OG KYNFÆRA
Guðmundur
skrifar:
Guðmundsson
„Fyrr i vetur urðu nokkrar
umræður um klámritasölu hér á
landi.Eitt dagblabið bað nokkra
lesendur sina að segja álit sitt á
þessum málum. Þaö kom fram
siðar, aö bóksalar, sem flytja
inn danska klámblaðið Rapport,
heföu hætt við aö selja eitt
eintakið, þeim hafði þótt það of
svæsið. Margir undrast, að bók-
salar skuli yfirleitt hafa þetta
skolpræsablað á boðstólum i
verslunum sinum. Það er sýnis-
horn af sumu þvi versta, sem
þróast hefur i Danmörku á
siðari árum og Danir hafa oröið
frægir fyrir — að endemum. 1
einu eintakinu af Rapport er t.d.
grein með myndum af stutt-
klæddum og buxnalausum
stúlkum. önnur grein með
myndum af stuttklæddum og
buxnalausum stúlkum. önnur
grein með myndum segir frá
manni, sem sogar vatn inn um
afturendann og spýtir þvi svo
aftur út um endaþarminn. Enn
er sagt fráfrönskum skötu-
hjúum, sem eru gift, en þó svo
„frjáls”, að þau geta vel hórast
með öðrum, ef svo ber undir.
Hömlur skulu bannfærðar!
Lengi lifi frelsið, lika frelsið
undan velsæminu, a.m.k. ef
maður getur grætt peninga á
ósömanum, og þess vegna láta
þau Rapport birta af sér
margar ljósmyndir, þar sem
þau eðla sig i rúminu. 1 blaðinu
eru margar auglýsingar frá
fólki, sem óskar eftir elsk-
hugum, frillum og friðlum.
Jafnvel hjón vantar önnur hjón
til saurlifisiðkana með sér. —
Þetta er blaðið, sem bóksala-
félagið flytur inn — að því er
virðist helst i gustukaskyni við
Dani.
En þeir selja fleiri blöð i sama
dúr. Ég nefni Qui. Það er
ósvikið klámblað og gæti verið
búið til i pútnahúsi, svo skolleitt
er efni þess. Mottó útgefenda
gæti verið: „Saurlifnaður, það
er okkar lif!”
En Islendingar sjálfir skulu
lika standa sig i samkeppninni i
þessum iðnaði, þó að þeir séu
fáir og smáir i landinu kalda.
Eitt islenska subbublaðið heitir
Samúel. Eg veit ekki betur en
það hafi verið auglýst sem
unglingablað, enda eru það
vafalaust aöallega unglingar
sem lesa það. Þið foreldrar,
hvaða hugmyndir gerið þið
ykkur um ritstjóra, sem bjóöa
börnum ykkar upp á efni með
fyrirsögnum eins og þessum:
„Nauðguðu mér allir, smituðust
af lekanda”. „Krafturinn milli
fótanna”. „Ég er nektarfyrir-
sæta”. „Oft hef ég sofnað, ef ég
hef verið liggjandi i stellingu”.
„Þeir héldu mér, meðan þeir
rifu utan af mér fötin. Eftir að
hafa nauðgað mér hlupu þeir i
burtu”. „Jón Björgvinsson
ræöir við- 17 ára stúlku,
semhefur upplifað nær allar
sóðahliðar mannlifsins ”.
„Nágranni minn fór að reyna
viö mig, og ég kunni ekkert illa
við það”. — Skrýtlur þessa
blaðs bera með sér, að útgef-
endur kunna best við sig i heimi
kláms og kynfæra. Blaðið býður
offjár i greiðslu til handa
stúlkum, sem vilja leyfa
myndatökur af sér fyrir blaðið.
Hvar er menningarreisn
bóksalafélagsins? Hvar er sam-
kennd og ábyrgðartilfinning?
Ég veit ekki, hvort þeir selja
allir islensk klámblöð. En
útlendi saurinn er svakalegur.
Af hverju moka þeir ekki út?
Útgefendur og seljendur slikra
blaða græða peninga á þvi að
höföa til lægstu hvata mannsins,
draga það, sem er fagurt og gott
i réttu samhengi, niður i svaðið.
Það er verið að byrla æskunni
eitur. 1 stað ástar, tryggðar,
ábyrgðar og heilbrigðs
hjúskapar kemur losti, stundar-
svölun, sem skilur eftir
ægilegan tómleika og lifsleiða
og gefur alranga mynd af
undirstöðuþáttum mannlegs
lifs, einangra fólk og gerir það
dáðlaust.
Hér er mein, sem þarf að
vinna gegn. Allir góöir menn
ættu að leggja lið i þeirri
baráttu. Skólastjórar
kennarar, kirkjumenn.
bindindisleiðgogar, skerið upp
herör! Látið heyrast i ykkur,
lika i þessu máli. Það er verið
að eyðileggja unga fóikið okkar
og grafa undan þjóðfélaginu.
Réttum unga fólkinu hjálpar-
hönd. Þetta er neyðarkall.”
FRÉTTIR
A siðastliðnu ári var hafin
bygging á aðeins 786 nýjum i-
búðum i Reykjavik, en árið á
undan hófst bygging á samtals
1.133 nýjum ibúðum i höfuð-
borginni.
Nú um áramótin voru i
( smiðum i Reykjavik samtals
1.318 ibúðir, þar af eru 606 i-
búðir fokheídar eöa meira.
A árinu 1974 voru teknar i
notkun samtals 918 nýjar Ibúð-
ir, þar af 168 i einbýlis- og rað-
húsum úr steinsteypu, 745 i
öðrum ibúðarhúsum úr stein-
steypu. Langflestar ibúðanna,
sem teknar voru i notkun á sl.
ári, eru fjögurra herbergja i-
búðir i fjölbýlishúsum, 368
talsins, tveggja herbergja i-
i búðir, 191, þriggja herbergja
ibúðir, 121, fimm herbergja i-
búðir, 54.
Alls var lokið við að byggja i
Reykjavik á sl. ári húsnæði að
stærð 85.981,3 rúmmetrar, og
667.627 rúmmetrar, og er það
2,7% meira en árið 1973.-
* Samningamál bátasjó-
manna og togaramanna eru
nú bæði komin til sáttasemj-
ara. Til stóð að halda fund um
togarasamningana i dag, en
honum var frestað að beiðni
atvinnurekenda að sögn Jóns
Sigurðssonar, formanns Sjó-
mannasambands tslands.
Sagði Jón, að næsti fundur um
togarasamningana hafi verið
boðaður nk. þriðjudag.
Fundur um bátakjarasamn-
. ingana verður svo haldinn hjá
sáttasemjara kl. 2 i dag, mið-
vikudag.
• Þeim fjölgar smám saman,
sem ganga i hjónaband hjá
borgardómaraembættinu i
Reykjavik. Arið 1974 fóru 172
hjónavigslur fram hjá em-
bættinu, en voru 144 árið áður.
Hjónaskilnuðum fjölgar einn-
ig ár frá ári. I fyrra voru af-
greidd 550 hjónaskilnaðarmál
hjá embættinu á móti 526 árið
1973 og leyfisbréf til skilnaðar
að borði og sæng voru 198
(175).
Þingfest dómsmál voru
5137, en afgreidd mál 5010.
Dæmt var i 2208, áskorunar-
mál voru 1666, sættir urðu i
618, hafin þ.e. dregin til baka
voru 459 mál, kjörskrármál
voru 47 og vitnamál 12. Árið
1973 voru 4621 mál þingfest en
4737 mál afgreidd.
• Þeim, sem skráöir eru at-
vinnulausir, fjölgaði um 292 i
desember. Um áramótin voru
þeir 611 á 31 stað af þeim 61,
sem skráningin nær til, en
voru 319 á 22 stöðum i nóvem-
berlok. Flestir voru skráðir
atvinnulausir á Vopnafirði eða
75 (voru 37 i nóvemberlok) þá
Húsavik 68 (19) og siðan
Reykjavik 66 (52).
A 18 stöðum á landinu voru
fleiri en 10 atvinnulausir um
áramótin, en atvinnulausum á
skrá haföi fækkað i desember
á sjö stöðum.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Kópavogi og Garðahreppi
heldur fund fimmtudaginn 16. janúar kl.
20.30 i Félagsheimilinu i Kópavogi, efri
sal.
Fundarefni:
1. Fundarstörf
2. Upplestur
3. örn Eiðsson segir frá þvi sem er að
gerast i Garðahreppi.
Stjórnin
o
Miðvikudagur 15. janúar 1975.