Alþýðublaðið - 31.01.1975, Blaðsíða 1
VIÐ EIGUM NÚ FYRST OG
FREMST AÐ EFLA FERÐA-
LÖG OKKAR SJÁLFRA
UM EIGIÐ LAND
blendiverksmiðjuna
líklega flutt í næstu viku
SMYGLFUNDUR!
Lögreglan i Kópavogi stöðvaði i fyrrinótt bil einn,
eftir ábendingu sem henni hafði borist og reyndust
þar vera á ferðinni skipverjar af Reykjafossi, með
smyglað áfengi. Mun þar hafa verið um að ræða 13
kassa.eða 156 flöskur af sterku vini, sem þeir voru
með á leiðinni frá Hafnarfirði, þar sem skipið ligg-
ur. Frumrannsókn málsins fór fram i Kópavogi, en
siðan var það afhent Rannsóknarlögreglunni i
Hafnarfirði, sem nú hefur það i athugun.
samgðngumálaráðherra
,,Ég hef sagt það skýrt
og skorinort, að meðan ég
er samgönguráðherra,
verða engar „Paradís-
ar”-framkvæmdir i
Krisuvik. Ég tel að okkur
standi nær aðrar fram-
kvæmdir i ferðamálum
og þá fyrst og fremst að
efla ferðalög Islendinga
innanlands”, sagði Hall-
dór E. Sigurðson, sam-
gönguráðherra i viðtali
við Alþýðublaðið i gær.
A þriðjudaginn birti Al-
þýðublaðið viðtal við
Ragnar Ragnarsson,
hótelstjóra KEA á Akur-
eyri. 1 viðtalinu, sem bar
fyrirsögnina ,,Nú eigum
við að snúa okkur að inn-
lendum „túristum”,”
sagði Ragnar m.a.:
„Fækkun erlendra ferða-
manna hérlendis er bein
afleiðing af velheppnuð-
um áróðursherferðum i
heimalöndum þeirra, þar
sem mikil áhersla er lögð
á að fólk ferðist innan-
lands, en sem minnst til
annar.ra landa. Slikar
herferðir eru i gangi i
flestum löndum öðrum en
Islandi og ég held að ekki
sé seinna vænna að við
reynum að byggja ferða-
málin innanlands meir á
Islendingum sjálfum i
stað þess að miöa allt við
útlendinga”. 1 viðtalinu
gagnrýndi Ragnar störf
sérfræðinga frá Samein-
uðu þjóðunum, sem unnið
hafa áætlanir um fram-
kvæmdir i ferðamálum
hér á landi. Meðal þess,
sem sérfræðingarnir
leggja mikla áherslu á er
áætlanagerð um „ferða-
mannaparadis” i Krisu-
vik fyrir erlenda ferða-
menn.
„Ég hef ekki viljað
standa i vegi fyrir þvi, að
þessir menn lykju sinu
verki”, sagði samgöngu-
ráðherra i viðtali við Al-
þýðublaðið i gær. „Það
starf verður þá upp á
framtiðina, þvi lifið hefur
kennt mér að segja aldrei
aldrei. En nú standa okk-
ur önnur verkefni nær og
þar vil ég taka undir orö
Ragnars i viðtalinu við
ykkur um nauðsyn þess
að efla ferðalög tslend-
inga sjálfra um landiö.
Við erum nú með
endurskoðun á ferðamál-
unum i gangi, meðal ann-
ars erum við að endur-
skoða lagafrumvarpið frá
i fyrra og markmiðið er
að þessi endurskoðun
verði til þess að efla
ferðalög tslendinga um
tsland”.
HALLDÓR E. SIGURÐSSON: |
Engin ..túristaparadís”
í Krísuvík á meðan ég er
Frumvarp um málm-
neinar ákvarðanir um
notkun þessarar orku, en
iðnaðarráðherra benti á I
samtalinu við blaðið, að
almenn raforkunotkun
innanlands færi að sjálf-
sögðu vaxandi ár frá ári.
,,Við fáum vinnu
og betri nýtingu á
okkar nýja slátur-
húsi með þessu
m ó t i ", s a g ð i
Finnur Kristjáns-
son í símtali við Al-
þýðublaðið i gær.
Kaupfélag Þing-
eyinga á Húsavík
hefur undanfarin
tvö ár unnið nokk-
„Nú er að duga
eða drepast,”
hugsar hann
eflaust sá litli.
Nánar um
skautaíþróttina á
I 12
uð af lambakjöti í
neytendapakkn-
ingar til sölu á
Bandaríkja-
markaði.
„Það má segja að
þetta sé enn á tilrauna-
stigi,” sagði Finnur
ennfremur. „Við pökk-
um kjötið eftir sama
fyrirkomulagi og Ný-
Sjálendingar og höfum
náð nokkrum árangri
með þvi að vera með
vandaðri vöru og betur
frágengna, þannig að
tæknilega séð og hvað
vinnuna snertir er þetta
i góðu lagi.
En við eigum i kapp-
hlaupi við dýrtiðina.
Þótt verð hafi farið
hækkandi erlendis, þá
vex dýrtiðin hér innan-
lands miklu örar, svo
við eigum í varnarbar-
áttu. Við höfum þó ekki
viljað gefast upp.”
Arið 1974 voru flutt út
tæp fjörutiu tonn af kjöti
þannig pökkuðu. Verð
er nú um 260 islenskar
krónur fyrir kilóið
miðað við afhendingu i
New 'York.
SJÁLENDINGA Á
AMERÍKUMARKAÐI
HÚSVÍKINGAR
KEPPA VIÐ NÝ-
alþýðu
»e
FOSTUDAGUR
31. janúar 1975 — 25. tbl. 56. árg
„Mér þykir liklegt, að i
næstu viku verði lagt
fram á Alþingi stjórnar-
frumvarp um stofnun og
rekstur járnblendiverk-
smiðju, sem staðsett
verði I Hvalfirði”, sagði
Gunnar Thoroddsen,
iðnaðarráðherra, i sam-
tali við Alþýðublaðið i
gær.
Sagði ráðherrann, að i
frumvarpinu yrði miðað
við, að eignaraðild að
verksmiðjunni verði
þannig háttað, að ts-
lendingar eigi 55%, en
bandariska félagið Union
Carbide 45%.
1 samtalinu kom fram,
að raforkuþörf fyr-
irhugaðrar járnblendi-
verksmiðju sé 60-68
megavött, en raforkuna
mun verksmiðjan fá frá
Sigölduvirkjun. Fullgerð
mun raforkuframleiðsla
Sigölduvirkjunar verða
150 megavött.
Eins og fram kom i Al-
þýðublaðinu s.l. miðviku-
dag, hafa viðræður farið
fram milli islenskra
stjórnvalda og ÍSAL um
stækkun álversins i
Straumsvik. Hefur m.a.
verið rætt um stækkun 2.
kerskálaverksmiðjunnar.
Samkvæmt upplýsing-
um Gunnars Thoroddsen
myndi raforkuþörf ál-
versins, ef af stækkun
kerskálans yrði, aukast
um 20 megavött.
Þannig er auðsætt, að
verði af stofnun málm-
blendiverksmiðjunnar og
umræddri stækkun ál-
versins i Straumsvik,
mun sú raforka sem þá
verður eftir til ráðstöfun-
ar frá Sigölduvirkjun
vera 64-70 megavött.
Ekki hafa verið teknar
Bið kann að
verða á leigu
Norgtobal
Einhver bið kann á þvi
að verða, að gengið verði
frá leigu á norska verk-
smiðjuskipinu Norglobal.
1 fyrradag samþykkti
gjaldeyrisnefnd að veita
heimild til gjaldeyrisyfir-
færslu fyrir leigunni með
þeim skilyrðum, að Út-
vegsbankinn teldi hana i
lagi. Útvegsbankinn er
viðskiptabanki leigutak-
anna og til hans var sótt
um gjaldeyri. Hins vegar
hafði bankinn ekki gefið
út gjaldeyrisheimildina i
gærkvöldi.
Leiguupphæð skipsins
er 65 milljónir islenskra
króna og skulu 20 milljón-
ir greiddar i upphafi.
Það sem nú stendur á,
er að Útvegsbankinn sem
hefur orðið mjög litinn
gjaldeyri, jafnvel svo, að
einhver hluti þessarar
upphæðar þarf að fara
um Landsbankann, hefur
sett það skilyrði fyrir út-
gáfu gjaldeyris-
heimildarinnar, að stað-
greiðsla kæmi á móti. Þá
greiðslu höfðu leigutakar
ekki innt af hendi.