Alþýðublaðið - 31.01.1975, Blaðsíða 2
„Þú ert allra laglegasta
stúlka”.
,,Ó, þú mundir alveg eins
segja það, þó að þér þætti það
ekki”.
,,Já, og þér mundi þykja
það, þó að ég segði það ekki”.
*
,,Ég hef oft verið beðin um
að giftast”.
„Hverjir hafa beðið þig um
það? ”
„Pabbi og mamma”.
*
„Hann segir, að sér finnist
ég skemmtilegasta stúlkna i
bænum. A ég að bjóða honum
heim?”
„Nei, lofaðu honum að hafa
þessa skoðun framvegis.”
Jf
„Láki og Lauga ætla að
ganga i heilagt hjónaband!”
„Lauga! Ég hélt, að hún
þættist ekki trúa á þessi
hjónabönd!”
„Það hélt Láki lika!”
„Hvað ertu að klippa úr blað-
inu?”
„Það er frétt um mann, sem
sótti um skilnað, vegna þess
að konan hans leitaði alltaf i
vösum hans.”
„Hvað ætlar þú að gera við úr-
klippuna?”
„Láta hana i vasa minn.”
Jf
„Hvernig get ég fengiö mann-
inn minn til að tala um það við
mig, hvernig verslunin
gangi?”
„Spurðu hann, hvort hann ætli
ekki að fá sér bil.”
Hann: „Hvers vegna þykir
konum vænna um fegurð sina
en gáfur?”
Hún: „Af þvi að maðurinn er
sjaldnast blindur, þótt hann sé
nautheimskur.”
Jf
„Er konan þin sparsöm?”
„Stundum. Hún hafði aöeins
26 kerti i f jörutiu ára afmælis-
tertunni i gærkvöldi.”
*
Húi W að skrifa syni þeirra,
sen '^r' nýtrúlofaður: „Elsku
drt..„_.inn minn! Hvilik
gleðifregn! Viö faðir þinn er-
um i sjöunda himni! Það hefur
lengi verið heitasta ósk okkar,
að þú eignaðist góða konu. Góð
kona er besta eign hvers
manns. Hún eykur þaö góða,
sem með honum býr, og upp-
rætir það vonda.”
Bréfinu lauk meö eftirskrift
með annarri hendi: „Mamma
þin skrapp eftir frimerki.
Forðastu kvenfólkið, fiflið
þitt!”
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Samband bankamanna 40 ára
Samband islenskra bankamanna
er 40 ára um þessar mundir. Upp-
haflega voru það starfsmenn
Landsbankans og Útvegsbank-
ans, sem voru stofnaðilar og á
Haraldur Jóhannesson (t.h.)
fyrsti form. sambandsins og
Hannes Pálsson núverandi form.
sambandsins.
fyrsta ári bættust svo starfsmenn
Búnaðarbankans við. 1 lok þess
árs voru félagar 144, en eru nú
1500.
Aöild að sambandinu geta átt
allir starfsmenn banka og spari-
sjóöa.
Markmið sambandsins er að
vinna að bættum kjörum félaga
sinna og þó enn meir að vinna að
aukinni menntun bankamanna.
Sambandið rekur i þvi skyni
Bankaskóla i húsnæði sinu á
Laugavegi 103. Þá gengst það
fyrir námskeiðum, hefur gefið út
Bankablaðið i 40 ár og sendir frá
sér fréttabréf mánaðarlega.
Allnáið samband hafa banka-
menn við Norðurlöndin og eru i
sambandi norrænna banka-
manna.
í tilefni af afmælinu mun sam-
bandið gangast fyrir hátiðahöld-
um I vor og gefa út sögu sfna, sem
einn af stofnendum, Einvarður
Hallvarðsson, er að skrifa.
|4b;fí | - CENCISSKRÁNINC Nr- 20 - 30- janóar 1975. Skrað írá Eimng KI. 13,00 Kaup Saia
29/1 1975 1 Bandaríkjadollar 118,60 119, 00
30/ i 1 Sterlingspund 282, 00 283, 20 *
- - 1 Kanadadollar 118,80 119,30 *
- - 100 Danskar krónur 2137,50 2146,50 *
- - 100 Norskar krónur 2350, 80 2360,70 *
- - 100 Sænskar krónur 2968,40 2980, 90 *
- - 100 Finnsk mörk 3381, 30 3395,60 ♦
- - 100 Franskir frankar 2743, 40 2755, 00 *
- - 100 Belg. frankar 339, 50 340, 90 *
- - 100 Svissn. frankar 4759, 10 4779, 20 *
- - 100 Gyllini 4877,60 4898, 20 *
- - 100 V. -t>ýzk mörk 5086, 00 5107,50 *
- - 100 Lírur 18, 52 18, 60 *
29/1 - 100 Austurr. Sch. 714,80 717, 80
- - 100 Escudos 488, 70 490, 70
- - 100 Pesetar 210, 95 211,85
30/1 - 100 Yen 39. 81 39, 98 *
2/9 1974 100 Reikningskrónur- 99,86 100, 14
Vóruskiptalönd
29/1 1975 1 Reikningsdollar - 118,60 119, 00
Vöruskiptalönd
* Breyting frá sfðustu skráningu.
25 ára
í dag
1 dag er Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar 25 ára. Fyrsti stjórnandi
hennar var Albert Klahn, um 12
ára skeið, eða þar til hann féll
frá. Þá tók Jón Ásgeirsson tón-
skáld við sveitinni og stjórnaði
henni i 3 ár, unz Hans Ploter
Fransson varð stjórnandi
hennar. Þessi 25 ár hefur lúðra-
sveitin starfað með miklum
þrótti og verið snar þáttur i
menningarlifi Hafnfirðinga.
Einnig hefur hún gert viðreist
og ferðast um meginland
Evrópu, leikið i sjónvarþ og út-
varpsstöðvar erlendis. Þá má
geta þess til gamans, að hún lék
i beinni útsendingu frá Loftleiða
Hótelinu i útvarpsstöðina i
Vinarborg fyrir nokkrum árum.
1 tilefni afmælisins ætlar
lúðrasveitin að halda hljóm-
leika i Bæjarbiói i Hafnarfirði
laugardaginn 1. febrúar kl. 3
e.h. Formaður Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar er Einar Sigur-
jónsson.
Lágmarkskröfur!
Furðuleg deila er nú upp
komin milli ráðamanna
Kjarvalsstaða og félags
islenzkra myndlistarmanna.
Virðist hafa þrútnað svo
óvild eða fjandskapur, aö
„myndlistarmenn” lýsa
staðinn i bann fyrir sýningar
verka sinna manna og hóta
þvi að veita „enga listræna
aðstoð” við sýningar á þeim
stað.
Þetta er nú raunar nokkuð
óljóstfyrir almenning. Hvað
þýðir, að veita listræna að-
stoð við sýningar? Er það
máske að aðstoða við að
hengja myndir upp á vegg,
eða hvað? Spyr sá, sem ekki
veit.
Auðvitað er það rétt, að
þar kann að vera nokkur
vandi á höndum. Það liggur
nefnilega ekki alltaf á ljósu
hvernig á að snúa myndum,
sem ýmsir af nútima lista-
mönnum eru aö bisa við aö
framleiða. En ef saman er
hvernig þær snúa, hvaða
vanda er hér við glíma?
Okkur hefur veriö sagt i
nokkra áratugi, að
„myndlistarmenn” væru aö
gera athyglisverðar tilraunir
um nýsköpun listforma. Vel
má vera rétt, að þetta sé og
hafi verið ætlunin og ein-
lægur ásetningur. Okkur
hefur ennfremur verið sagt,
að með þessum háttum eigi
að ala þjóðina upp i að kunna
að njóta listarinnar!
Samt virðist almenningur
vera fremur daufgerður enn
sem komið er i þessari
tegund „listneyzlu”, þó að
framboðið sé æriö.
Að sjálfsögðu er þó oftast
eitthvað keypt á sýningum.
Til þess geta legið margar
ástæður. Til er fólk, sem er
hreinlega á safnarastigi. Þar
er ekki ætið spurt um andleg
eða veraldleg verðmæti,
sizt andleg. Tvihöfðaðir
kálfar og höfuðskeljar af
ferhyrndum hrútum geta
sómt sér prýðilega i safni,
að þess mati. Enn eru til
„listsnobbar”, sem taka
fullyrðingar „listgagn-
rýnenda” full hátiölega, og
fleira mætti nefna.
En það er vissulega ein at-
hyglisverð yfirlýsing, sem
fram kemur frá myndlistar-
mönnum i þessari furðulegu
deilu. Við gerum aðeins lág-
markskröfur i mati á þvi
sem sýna á almenningi, eða
eitthvað i þeim dúr, er haft
eftir formanninum!
Ætlihérsénú ekki fundinn
lykillinn að þeirri ráðgátu,
sem það er fyrir æði mörg-
um, hvað veslings mennirnir
eru að fara, hvert þeirra
leiðarljós er i „listsköpun-
inni?”.
Að sjálfsögðu er það ekki
frekar skilgreint, hversu
langt niðri þetta lágmark sé
sett. Það er nú annar og
langtum örðugri sálmur! En
allt um það virðist þó, að
þeirra mati, lágmarkið vera
til, þótt sá sannleikur hafi
mönnum ekki ætið veriö
alltof auðsær.
Aftan i þessum hug-
leiöingum hlýtur þó að hanga
ein eða tvær smáspurn-
ingar.
Hvenær hefur þaö gerzt i
veraldarsögunni, að lifvæn
listaverk hafi verið sköpuð
með þvi að gera aöeins lág-
markskröfur?
Og er ekki slikur
hugsunarháttur llklegastur
til að framleiða aðeins lista-
menn i lágmarki?
Hafnarfjarðar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasími 51600.
BLÖMABÚÐIN
BL0MASKRE YTINGfl R
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA f KR0N
Dúnn
í GlflEIIBflE
/ími 84200
0
Föstudagur 31. janúar 1975.