Alþýðublaðið - 15.02.1975, Side 5
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Afgreiðslustjóri örn Halldórsson
Ritstjórn: Skipholti 19, simi 28800
Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, simi 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, simi 14900
Prentun: Blaðaprent hf,
ÖGRUN VIÐ ASl
öllum hugsandi mönnum hefur lengi verið
það ljóst, að íslendingar standa andspænis mjög
erfiðum vanda i efnahagsmálum. Þetta var ljóst
þegar fyrir einu ári, en rikisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar, sem þá hafði misst þingmeirihluta
sinn, neitaði samt sem áður að vikja með þeim
afleiðingum, að landið var stjórnlaust allan s.l.
vetur. Þetta stjórnleysi var auðvitað til þess
eins fallið að magna vandann.
Á s.l. vori hafði þvi enn syrt i álinn og ljóst var
þá þegar, að samræmdar og árangursrikar að-
gerðir þyldu enga bið. Jafnframt var auðsætt,
að til þess að árangur gæti náðst, sem i senn
tryggði frambúðarlausn vandans og það, að
byrðunum yrði skipt réttlátlega niður á þegna
þjóðfélagsins þyrfti til að koma sem viðtækust
samvinna rikisstjórnarinnar og hagsmunaaðila
og þá fyrst og fremst verkalýðshreyfingarinnar.
Einmitt þess vegna krafðist Alþýðuflokkurinn
þess, að samstarf yrði haft við verkalýðs-
hreyfinguna um lausn vandans. Þeirri kröfu Al-
þýðuflokksins var algerlega visað á bug og sú
rikisstjórn, sem mynduð var — rikisstjórn Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknarflokksins — tók
upp þá stefnu að hafna öllu samráði við verka-
lýðshreyfinguna jafnvel þótt verkalýðshreyf-
ingin byði það að eigin frumkvæði. Er nú að
koma i ljós, hverjar afleiðingar sú stefna hefur
haft i för með sér fyrir þjóðina og svo harkalega
hefur rikisstjórnin veitst að verkalýðshreyfing-
unni og svo ákaft hefur hún ögrað henni og snið-
gengið hana að engu likara er, en að rikisstjórn-
in sé beinlinis að hvetja til átaka á vinnumark-
aðinum.
Siðustu aðgerðir rikisstjórnarinnar, sem
gengisfellingin virðist aðeins vera upphafið að,
eru gerðar án nokkurs samráðs við verkalýðs-
hreyfinguna og eru tilkynntar á þeim tima sem
verkalýðshreyfingin á viðræður við rikisstjórn-
ina um hvernig sé hægt að leiðrétta að einhverju
leyti þær kjaraskerðingar, sem hlutust af þeim
ráðstöfunum, er rikisstjórnin gerði fyrir nokkr-
um mánuðum. 1 þvi sambandi hefur verkalýðs-
hreyfingin sérstaklega rætt um aðgerðir i hús-
næðismálum og i skattamálum. En verkalýðs-
hreyfingin hefur engin svör fengið frá rikis-
stjórninni um þessi mál. Fundir samninga-
nefnda verkalýðshreyfingarinnar með rikis-
stjórninni hafa verið einbert sjónarspil. Þeir
hafa engan árangur borið og af rikisstjórnarinn-
ar hálfu aðeins verið til þess að tefja timann.
Einasta svarið, sem verkalýðshreyfingin hefur
fengið, er tilkynning stjórnvalda um 20%
gengislækkun og fréttir um, að rikisstjórnin
hyggist hnykkja enn betur á með skattahækkun-
um og nýjum álögum umfram þær, sem til-
kynntar hafa verið.
Með þessu móti hefur rikisstjórnin nú þrýst
lífskjörum almennings niður á það stig, sem
óhugsandi er að þolað verði, einsog segir i sam-
þykkt miðstjórnar ASl. Jafnframt hafa atvinnu-
rekendum verið gefnar milljarðafúlgur af
sparifé landsmanna án þess að nokkurt eftirlit
sé með þvi, hvernig þeir ráðstafa þeirri eigna-
og teknaaukningu, sem af þvi mun hljótast.
Verkalýðshreyfingin mun að sjálfsögðu ekki
sitja aðgerðarlaus hjá þegar slikir atburðir ger-
ast. Hún hefur boðið samstarf. Það samstarf
hefur rikisstjórnin ekki þegið. Nú verður hún að
taka afleiðingunum af þvi.
lalþýöul
FRÁ ALÞINGI
Sighvatur Bjðrgvinsson um efnahagsráðstafanirnar
Stjórnin hvessir kutann
Almenningur skattlagður fyrir forréttindastéttirnar
Eins og frá var skýrt I Alþýöu-
blaðinu I gær tók Sighvatur
Björgvinsson, alþm., til máls á
fundi neöri deildar Alþingis s.l.
miövikudagskvöld, þegar fjallaö
var um frumvarp rikisstjórnar-
innar um ráöstafanir vegna geng-
isfellingarinnar. Gagnrýndi Sig-
hvatur mjög harðlega efnahags-
stefnu rikisstjórnarinnar, sem
hann sagði mótast af þvi aö flytja
grlðarlega fjármuni frá fólkinu i
landinu til forréttindastéttanna.
Næstur á undan Sighvati talaöi
Pétur Sigurösson, alþm., og
gagnrýndi hann ráðstafanir
stjórnarinnar harölega. Sagöi
hann m.a., aö útgeröarmenn
væru engin heilög stétt, sem ekki
mætti gagnrýna og lauk ræöu
sinni með þvi aö segja: ,,og haföu
þetta Sverrir Hermannsson”, en
sjálfstæðisþingmaöurinn Sverrir
Hermannsson er einn helsti tals-
maður útgeröarmanna á Alþingi.
í upphafi ræðu sinnar vék Sig-
hvatur Björgvinsson að þessum
ummælum Péturs Sigurössonar.
Sighvatur sagði:
,,Ég vek athygli þingheims á
þvi, aö sá maöur, sem lauk hér
máli sinu með þeim orðum: ,,og
hafðu þaö Sverrir Hermanns-
son.” Sá maður, sem lýsti ástand-
inu þannig, að hann teldi þjóöina
nú gjaldþrota eftir setu núv.
rikisstj. Sá maöur, sem sagði:
,,Ég veit ekki meir.” Sá maður,
sem spuröi: „Hvað um verka-
lýöshreyfinguna?” Sá maður,
sem sagöi: „Hvaða ósköp eru aö
gerast?” Sá maöur, sem sagöist
mótmæla þeim fyrirætlunum
rikisstj. að leggja á nýja skatta.
Sá maður, sem sagöi: „Afleiöing-
arnar af þeim aögerðum, sem nú
er veriö aö tilkynna, eru óöaverö-
bólga i þjóöfélaginu.” Þessi maö-
ur, hv. 8. þm. Reykv. Pétur Sig-
urðsson er kjörinn hingaö á Alþ.
fyrir Sjálfstæöisfl. Þetta er dæmi
um þá upplausn sem nú rikir i
stjórnarherbúöunum. Þetta dæmi
um þaö ósamkomulag, sem nú
rikir innan stjórnarflokkanna.
Þetta er dæmi um þaö, aö jafnvel
stuöningsmenn rikisstj., sem
fylgja verkalýöshreyfingunni aö
málum, gera sér nú ljóst hvaö er
aö gerast. Þetta er dæmi um
skoðanir Péturs Sigurössonar,
„og hafðu þaö Sverrir Hermanns-
son”.
Hnefahögg í andlit
verka lýöshrey f inga r
og stjórnarandstöðu
Þetta er i annað skiptiö á tæp-
um 5 mánuöum, sem núverandi
rikisstjórn leggur til alvarlegrar
atlögu við lifskjör almennings i
þessu landi. Þetta er i annaö
skiptiö á innan viö hálfu ári, sem
til gengisfellingar er gripiö. Og
hvaöa timi er valinn til þess aö
gripa til þessara ráðstafana? Þaö
er valinn sá timi, þegar verka-
lýöshreyfingin stendur i samn-
ingaviðræðum viö hæstv. rlkisstj.
til þess aö reyna aö rétta sinn hlut
frá siöustu árásum hennar á al-
menning og launþega I þessu
landi. Við eigum aö baki ár meö
50% veröbólgu. Viö eigum að baki
ár með 36% kjaraskerðingu.
Verkalýöshreyfingin hefur komiö
aö máli viö rikisstj. og viljaö
semja viö hana um einhverjar
bætur. Verkalýöshreyfingin hefur
boðiö hæstv. rikisstj. samstööu,
hún hefur boðið henni samkomu-
lag, hún hefur rétt fram hönd sina
á móti hæstv. rikisstj. til þess aö
reyna aö ná einhverju samkomu-
lagi við hana um aögeröir. Stjórn-
arandstaöan hefur gert þaö lika.
Fyrir tveimur dögum var þaö til-
kynnt hér á Alþingi aö stjórnar-
andstaöan væri reiöubúin til
samningaviöræöna viö rlkisstj.
um hvernig eigi aö leysa máliö.
En hvert er þaö svar, sem hæstv.
rikisstj. gefur i kvöld? Þaö er
hnefahögg i andlit verkalýös-
hreyfingarinnar i landinu og
stjórnarandstööunnar. Þaö er til-
kynning um enn eina nýja áraáa á
lifskjör almennings i þessu landi.
Þetta er svar stjórnarinnar viö
tilboði verkalýðshreyfingarinnar
og stjórnarandstööunnar um aö
reyna aö taka þessi mál til sam-
eiginlegrar úrlausnar meö hæstv.
rikisstj.
Stjórn
forréttindastéttanna
Allt frá þvi, að núv. hæstv.
rikisstj. var mynduð hafa ráðh.
Sighvatur Björgvinsson
hennar og áörir málssvarar haft
þungar áhyggjur af afkomu at-
vinnuveganna i þessu landi. Af-
komu forstjóranna. Afkomu fyr-
irtækjanna. En þaö hefur veriö
minni áhyggjur aö merkja á
hæstv. rikisstj. og málsvörum
hennar fyrir afkomu heimila
launþega i landinu.
Ný rikisstjórn i þessu landi hef-
ur hafið til valda nýja stétt, stétt
forstjóranna, stétt fjármagnseig-
endanna. Þar ná Frams.og Sjálf-
st.fl. saman. En þeir hafa gleymt
annarri stétt manna. Þeir hafa
gleymd öldruöum þeir hafa
gleymt öryrkjum, þeir hafa
gleymt sjúkum, þeir hafa gleymt
láglaunafólki á sama tima og þeir
hafa staðið aö yfir 50% verðbólgu
á einu ári, yfir 36% kjararýrnun á
einu ári. Þaö hefur verið tekiö hér
fram m.a. af 8. þm. Reykjav.
Pétri Sigurðssyni, sem kjörinn
var á Alþingi fyrir Sjálfst.fl. i siö-
ustu kosningum, aö þessi rikis-
stjórn hafi enga heildarstefnu
mótað. Hún hefur starfað meira
en hálft ár, en allan þann tima
hafa aðgeröir hennar einkennst af
smáskammtalækningum. Hæstv.
ráöherrar eru skottulæknar i isl.
efnahagsmálum.
Það er mikið rætt um þaö af
hæstv. rikisstjórn að atvinnu-
reksturinn á Islandi, fyrirtækin,
forstjórararnir, þeir séu sjúkir.
Hæstv. rlkisstjórn litur á sig sem
einkahjúkrunarkonu þessara for-
réttindastétta og hvernig á aö
koma sjúklingnum til heilsu? Þaö
á aö beita skuröarhnifnum á blóð-
æöar almennings i landinu. Þaö
er búiö aö gera þaö i hálft ár og
þaö er veriö aö gera þaö enn. Þaö
á aö taka almenningi blóö, til þess
aö veita þvi inni sjúkar æöar at-
vinnurekstrarins i landinu, sem
rikisstjórnin segir nú aö hangi á
heljarþröminni. Bildurinn skal
brýndur, kutinn skal skerptur, al-
menningur skal skorinn. Þaö er
ekki furöa þó Morgunblaöiö æpi
daglega, skera, skera, niöur, nið-
ur, hausa, hausa. Og hverja á ab
skera, skera? Hverjir skulu niö-
ur, niður? Hverja skal hausa,
hausa? Það er almenningur i
landinu. Þaö eru launþegarnir.
Þetta er hróp Morgunblaðsins.
Þaö á aö skera af launþegum i
landinu allar þær kjarabætur,
sem þeir hafa unnið sér'I umliön-
um árum. Það á aö skera sjúkra-
sjóðina, það á aö skera atvinnu-
leysistryggingarnar, það á að
skera af launþegum I landinu all-
ar félagslegar réttarbætur, sem
þeir hafa unniö sér. Sá er boð-
skapur Morgunblaðsins.
Hvernig var svarað?
Það er von að hæstv. rikisstj.
hvessi nú bildinn einu sinni enn.
Þeir hæstv. ráðherrar, sem i dag
hafa tekið ákvöröun um það, aö
gera enn nýja atlögu að almenn-
ingi i landinu, gera sér það ekki
ljóst, aö láglaunafólkiö i landinu
hefur aöeins 34 þús. kr. I laun á
mán. fyrir dagvinnu. Samkvæmt
útreikningum um hvað venjuleg
meöalfjölskylda á lslandi þarf aö
hafa til að framfleyta sér, þá þarf
súi fjölákylda aö hafa 75 þús. kr.
Ög ég spyr hæstv. rikisstjórn:
Hvar á verkafólkið, sem nú er
verið að segja upp i Keflavik, aö
ná þessum 40 þús. sem þaö vantar
til þess að lifa mannsæmandi lifi?
Ég spuröi um þetta í, sjónvarps-
þætti fyrir viku. Þa spuröi ég
hæstv. sjávarútvegsráðherra á
þessa lund: „Það hefur verið til-
kynnt af atvinnurekendum i
Keflavik, aö nú standi yfir upp-
sagnir á öllu láglaunafólki, sem
starfaöi viö fiskibjuver I Keflavik.
Hvað ætlar þú aö gera? Hverju
ætlar þú aö svara þessu fólki?”,
spurði ég. Og hvert er svarið?
20% gengislækkun! Það er svariö,
sem fiskverkafólkið i Keflavik
fær frá hæstv. rikisstjórn.
Almenning á ekki
að skattleggja fyrir
heimilisrekstri
forstjóranna.
Okkur hefur verið sagt það hér,
aö afkoma sjávarútvegsins væri
slök, fyrirtækin I sjávarútvegin-
um væru að leggja upp laupana.
Þab hafa veriö geröir meöaltals-
útreikningar á þessu, sem eiga
aö sýna, aö allt sé i kalda koli i
sjávarútveginum. Einasta leiöin
sé sú, aö taka enn nýjan skatt af
launþegum þessa lands og flytja
hann yfir til fyrirtækja og for-
stjóra i sjávarútvegi. .
Ég og Alþfl. neitum aö viður-
kenna þessa niðurstöðu. Við neit-
um aö fallast á aö þær séu réttar.
Hvers vegna neitum við þvi?
Vegna þess einfaldlega, að viö
vitum þaö einsog almenningur i
landinu veit þaö, aö þetta eru ekki
réttar tölur. Þaö má vel vera að
út af fyrir sig sé þetta rétt niður-
staöa þegar reiknaö er út frá
þeim forsendum, sem gefnar eru.
En við vitum þaö, t.d. Vestfirð-
ingar, aö afkoma útgerðarfyrir-
'tækja og fiskvinnslustöðva á
Vestfj. hún er ekki svona. Vest-
firðingar kunna aö reka útgerbar-
fyrirtæki, þeir sýna ekki svona
afkomu, og viö neitum aö trúa
þvi, viö neitum aö samþykkja þaö
og við neitum aö styöja þaö, aö al-
þýða landsins sé skattlögð fyrir
forstjóra og framkvæmdastjóra,
sem ekki kunna að reka sin fyrir-
tæki. Ég neita þvi að það sé lagö-
ur skattur á launþega til þess að
tryggja hallalausan rekstur út-
gerðarfyrirtækis, sem rekur bif-
reiö útgeröareigandans. Ég neita
þvi, aö alþýöa Islands og laun-
þegar á Islandi séu skattlögö til
þess aö mæta hallarekstri útgerö-
ar, sem rekur eiginkonu forstjór
ans. Ég neita þvl, aö almenningur
á Islandi sé skattlagöur til þess að
mæta halla útgeröarfyrirtækis,
sem rekur börn forstjórans. Ég
neita þvi aö almenningur á Is-
landi sé skattlagöur til aö mæta
halla útgeröarfyrirtækis, sem
rekur heimili útgjeröarforstjf-
ans. Ég neita þessu. Þetta er
spilling. Þarna þarf aö skera
upp.
Hæstv. rikisstjórn hefur hvesst
Laugardagur 15. febrúar 1975