Alþýðublaðið - 19.03.1975, Síða 12
alþýðu
n rnrnTii
PlililStlKt llF
PLASTPO KAVE RKSMIÐJA
Símar 82639-82655
Vetnogör&um 6
Bcx 4064 — Reykjavik
KOPAVOGS APÓTEK
Opifl öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
P1
„Er verkalýðsbaráttan
orðin PLAT?”
ennþá, og mín vinna sé
bæði i uppmælingu og á
tímakaupi, þá sé ég
hreint ekki, hvernig
verkamennirnir geta
komist af. Mér sýnist, að
f jölskylduf aðir, með
nokkra á framfæri þurfi
ekki minna en 100 þús. kr.
á mánuði til þess að
framfleyta sér. Þetta á
nú bara við daginn í dag.
En ef þú kemur hér eftir
viku og spyrð, mætti
segja mér að þörf in hefði
hækkað í 120 þúsund, því
ég býst ekki við að kom-
inn sé stans á hækkanirn-
ar." Undir þetta tók
Skarphéðinn Sigursteins-
son, annar rafvirki, og
hann bætti við: ,,Skatta-
lækkanir gætu komið að
nokkru haldi, en þó er
það nú svo, að þær koma
þeim, sem hafa verulega
lág laun alls ekki eins til
góða. Þeir eru skattlitlir,
A myndinni eru, talið frá vinstri: Guðmundur Pálsson, Svavar Guðbrands-
son og Skarphéðinn Sigursteinsson. Myndirnar tók ljósm. Alþbl. Hallur.
lendum blöðum um verð-
lækkanir, þá búum við
hér við sífelldar hækkan-
á öllum viðstöddum, að
þeir höfðu ákveðnar
grunsemdir um að milli-
Staðreynd er, að f ólk þarf
íbúðarhúsnæði og ennþá
hefur ekki borið á kaup-
„Verkföll eru sannar-
lega alvarlegur hlutur,"
sögðu byggingarmenn,
sem blaðið ræddi við í gær
í Krummahólum 6 í
Breiðholti. „Hvað skal
samt segja, ef ekki er
annað fram undan en
sultur?"
„Þegar ég er búinn að
greiða skatta og skyldur,
spari merki og orlof, er
mánaðarkaupið, sem ég
fæ í vasann 28 þúsund
krónur," sagði Guðmund-
ur Pálsson, verkamaður.
„Það tekur ekki langan
tíma að ráðstafa því,
nema ef vera skyldi að
velta krónunni fyrir sér,
áður en hún er látin af
hendi. Þessar láglauna-
bætur, sem verið er að
tala um er ekki hægt að
líta á, nema sem hunds-
bætur, sem engan dregur.
Hér þarf bæði að koma til
skattalækkun og umfram
allt lækkun og stöðvun á
vöruverði. Enginn heldur
lengi út með svona kjör,
síst ef hækkanir héldu
áfram. Hér þarf snögg
umskipti."
„Það er nú kannske
ekki að miða við mig og
mína líka," sagði Svavar
Guðbrandsson, rafvirki.
Okkur er núið því um nas-
ir, að við séum að setja
allt á hausinn og í strand
með uppmælingartöxt-
um. En þó að ég komist af
„SKATTALÆKKANIR KOMA LAGLAUNAFOIKI EKKI
TIL GÓDA - ÞAB ER SKATTLÍTIÐ HVORT SEM ER”
ir. Er ekki eitthvað bogið
við þetta og það meira en
lítið? Hér þarf að taka til
höndum."
„Rýrnun kaupmáttar-
ins er orðin gífurleg á
þessum síðustu tímum,"
sagði Guðjón Sigur-
björnsson, smiður. „Það
er ekki aðalatriðið um
krónutöluna, heldur hvað
fyrir þær fæst. Mér finn-
ast margar þessar er-
lendu hækkanir tortryggi
legar. Tökum t.d. kaffi,
sem hefur verið að sí-
hækka og svo heyrum við
að kaff if ramleiðendur
séu að rotta sig saman
um að stöðva verðlækk-
anir á vörunni með ein-
hverjum ráðum." „Já"
sögðu menn í kór. „Við
borðum víst dýrasta syk-
ur í heimi, meðan sykur-
verð stórlækkar á heims-
markaði." Auðheyrt var
liðir væru óþarflega
margir, sem tækju sinn
toll af innfluttum vörum.
Allir létu í Ijós óþolin-
mæði, vegna þess hve
seint gengur um samn-
inga, og einn aðvífandi,
sem aðeins leit inn,
kastaði fram spurningun-
um: „Er þessi barátta,
sem talað er um, ekki
bara plat? Eru þessir
verkalýðsforkólfar ekki
orðnir samdauna vinnu-
veitendum, svo að þeir
berjist bara í þykjust-
unni?"
Við inntum eftir, hvort
menn teldu hættu á því að
byggingarvinna færi að
dragast saman. Því svar-
aði Jón Björnsson, verk-
stjóri svo: „Atvinnuleysi
í byggingariðnaði, ef til
kæmi, eru hreinlega
heimatilbúin vandræði.
endaskorti. Hinsvegar
vantar lóðir undir f jölbýl-
ishús, og það er Phöndum
borgaryf irvaida, mál,
sem ekki er auðvelt að
greiða úr. Stór bygginga-
fyrirtæki, sem hafa alla
nýjustu tækni eiga auð-
velt með að þrýsta verð-
inu niður, og það kemur
líka fólki sannarlega til
góða. Fullyrða má, að þar
muni ekki minna á en 1
milljón á meðalíbúð í
verði eftir því hvort um
stórfyrirtæki eða smá-
f ramleiðendur er að ræða
og þó getur allt verið
heiðarlegt hjá þeim
smærri. Annars er ekki
því að neita, að ef menn
hafa ekki til hnífs og
skeiðar, byggja menn
ekki íbúðireða kaupa. En
þetta ástand getur ekki
varað lengi. Hér verða að
koma bráðar kjarabætur
til."
hvort sem er. Það er ann-
ars undarlegt, að um leið
og við erum að lesa í er-
,,UM LEIÐ OG VIÐ LESUM I ERLENDUM
BLÖÐUM UM VERDLÆKKANIR ÞÁ BÚUM VIÐ
HÉR VIÐ SÍFELLDAR HÆKKANIR. ER EKKI
EITTHVAD BOGIÐ VID ÞAÐ?
Guðjón Sigurbjörnsson Jón Björnsson
Alþýðublaðið ræðir við verkafólk
um stöðuna í samningamálunum