Alþýðublaðið - 06.04.1975, Síða 6
HUGLEIÐINGAR
IIM DALLV
í tilefni af rally FÍB sem fer
fram um hvítasunnuna
BÍLAR
OG
ÍJMFERÐi
Umsjón:
Þorgrímur Gestsson
Vegirnir okkar, sem við
blótum vanalega f sand og ösku,
þegar við á sumarleyfisferðum
um landið erum að hrista i
sundur bilana okkar, týna púst-
rörum og hljöðkútum og eyði-
leggja dempara hafa upp á einr
þann möguleika að bjóða, sem
við hugleiðum sjaldan. Þeir eru
eins og ætlaðir til að stunda á
þeim þá iþrótt, sem til skamms
tima var nær óþekkt hér á landi,
en nú verður upp tekin og
stunduð i fyrsta sinn um hvita-
sunnuna, sem er 18. og 19. mai.
Þessi grein iþrótta er nefnd
rally á útlendu máli, — en hefur
ekki fengið fslenskt nafn ennþá
frekar en aðrar greinar þeirra
iþrótta, sem nefndar eru einu
nafni „bflasport”. En væntan-
lega liður ekki á löngu þar til
orðhagir menn finna islenskt
nafn við hæfi. Það verður að
teljast nokkuð undarlegt að
rally skuli ekki hafa verið
stundað á Islandi fyrr, það hefur
verið stundað áratugum saman
i flestum nágrannalöndum
okkar, og i Bretlandi er þetta
mjög vinsælt sunnudagasport,
— þar taka hundruð eða jafnvel
þúsundir manna þátt i stuttum
rallyum um hverja helgi, auk
stóru rallyanna þar sem eknir
eru nokkur þúsund kilómetra. 1
Danmörku er þetta lika mjög
vinsæl iþrótt, og keppt um
Danmerkurmeistaratitil á
hverju ári.
En á tslandi þar sem ekki þarf
að fara nema stutt út fyrir þétt-
býli til þess að komast á góða
rallyvegi hefur aldrei verið
haldin aksturskeppni i nokkurri
mynd, nema torfærukeppni
éppa nú á allra siðustu árum og
góðakstur i þéttbýli — og þó
höfum við orð frægra rally-
manna fyrir þvi, að islensku
vegirnir séu jafnvel „betri” en
vegirnir, sem ekið er á i Austur-
Afriku safari. En það er ekki
nóg, að aðstæður séu góðar,
þegar umferðarlögin eru
þannig, að innan ramma þeirra
ererfitt að koma „bilasportinu”
fyrir — til þess þarf laga-
breytingar og þær laga-
breytingar þurfa alþingismenn
að samþykkja. Alþingismenn-
irnir þurfa hinsvegar að hugsa
um almenningsálitið (atkvæðin
sin), og til þessa hefur að
minnsta kosti verið álitið, að
almenningsálitið sé á móti
kappakstri.
En hvað er rally? Hingað til
hafa menn svarað þvi einfald-
lega þannig, að rally sé kapp-
akstur, — en það er mikill mis-
skilningur. Rally er frekar þol-
akstur þar sem ekin er ákveðin
vegalengd á ákveðnum tima,
ýmist I dagsljósi eða myrkri,.og
á milli endastöðva er nákvæmt
tima-og hraðaeftirlit. Séu menn
of lengi á milli þessara eftirlits-
staða eru dregin af þeim stig, og
sömuleiðis ef þeir eru of fljótir.
Þannig er ákvarðaður viss
meðalhraði, sem keppendur
verða að halda, og á meðan ekki
fást undanþágur frá reglum um
hámarkshraða hér verður
keppnin einfaldlega höfð innan
ramma þeirra. Hinsvegar er
keppnisleiðin valin með það
fyrir augum, að sá tiltöiulega
litli hraði, sem er leyfður,
verður erfiður og gerir miklar
kröfur til ökumannanna. Þetta
er algengasta fyrirkomulagið á
rally, en þegar um er að ræða
alþjóðlegt rally á leiðum eins og
London-Mexico eða London
Sidney, eða Austur-Afriku
safari, eru engin hraðatakmörk,
og eingöngu um það að ræða að
komast á leiðarenda á sem
skemmstum tima. Þar er lika
ekki minnstur vandinn að
komast yfirleitt á leiðarenda, en
stór hluti keppenda verður yfir-
leitt að hætta keppni vegna
ýmissa óhappa. Um slys á
mönnum er þó varla að ræða,
þvi rallybilar eru allir styrktir
og búnir þeim besta öryggis-
búnaði sem völ er á.
Rally gengur þannig fyrir sig,
að I hverjum bil eru tveir menn.
Annar ekur en hinn hefur ná-
kvæma leiðarlýsingu og segir
ökumanninum til um hvar aka
skal —hvenær óhætt er að aka á
hámarkshraða og hvenær
nauðsynlegt er að draga úr
ferðinni vegna hindrana, sem
eru framundan. Þar eru um að
ræða þéttbýli, brú eða annað,
sem merkt er inn á kortið-
Aðstoðarmaðurinn hefur lika
skeiðklukku og tekur timann á
milli ákveðinna punkta þannig
að ökumaðurinn getur fylgst
nákvæmlega með þvi, hvort
hann er á eftir áætlun eða á
undan. Og ef hann er á undan
áætlun stöðvar hann einfaldlega
bilinn og biður þar til liklegt er
að hann komi á næsta timatöku-
stað á rettum tima, með þvi að
aka á réttum hraða. En það er
betra að vera ekki of mikið á
undan áætlun, þvi á milli hinna
opinberu timatökustöðva eru
faldar stöðvar þar sem hraðinn
er mældur, yfirleitt með aðstoð
lögreglu. Þeir sem eru staðnir
að þvf að aka á of miklum hraða
(oft er miðað við 20% yfir leyfi-
legum hraða) fá svo mörg stig i
minus, að betra er að hypja sig
heim.
Það er aðstoðarmaðurinn,
sem hefur eftirlit með öllu
þessu, en auk þess verður hann
að sjá um, að ekin sé rétt leið,
þvi sá sem fer framhjá eftirlits-
stöð er úr leik. Þannig byggist
keppnin ekki siður á eftirlits-
manninum en ökumanninum
sjálfum.
Það erfiðasta i rally eru þó
hraðakaflarnir. Þar er um að
ræða lokaða vegarspotta,
misjafnlega langa, þar sem
ekkert gildir annað en hraðinn
— og þar er hann ekki tak-
markaður af öðru en aðstæðum.
Vanalega eru það þessir kaflar
sem ráða úrslitum i keppninni,
þar sem hver sekúnda er
reiknuð sem minus i stigaút-
reikningnum. Þvi miður eru
litlarlikur á þvi, að slikir hraða-
kaflar verði i fyrsta islenska
rallyinu um hvitasunnuna, og
verður ekki annað sagt en
mikils sé misst. En vonandi
tekst að koma einhverjum
undanþáguákvæðum inn i
umferðarlögin, sem eru nú i
endurskoðun, og það hef ég fyrr
satt, að FIB vinni ötullega að
þvi máli.
Af þessari stuttlegu lýsingu á
rally má sjá, að þar er alls ekki
um kappakstur að ræða, og ekki
er gert ráð fyrir þvi, að
keppendur fari framúr hver
öðrum. Þarna er eingöngu um
að ræða keppni I þoli og úthaldi
og keppni um það hverjum tekst
að aka með jöfnustum hraða. Að
sjálfsögðu er leikni öku-
mannsins mikilvæg, þvi reikna
má með, að þeir þurfi að aka á
tiltölulega miklum hraða við
erfiðar aðstæður, svo sem i
beygjum og á holóttum og
blautum vegum, til þess að
halda meðalhraðanum og vinna
upp hægan akstur i grennd við
þéttbýli, og hugsanlegar tafir
vegna bilana.
1 rallyinu um hvitasunnuna er
kannski ekki þörf á svo miklu
úthaldi, þar sem leiðin er innan
við 200 km , en athuga verður,
að þetta er aðeins upphafið, það
er verið að brjóta isinn og
innleiða nýja og spennandi
iþróttagrein. Þegar isinn er
brotinn myndast möguleikar á
að halda hér lengra rally, og þá
með þátttöku erlendra rally-
manna, — rally sem gefur stig i
alþjóðlegu rallykeppninni, og
rally sem gefur Islandi nýja
möguleika sem ferðamanna-
land, og islenskum ökumönnum
færi á að spreyta sig á alþjóða
vettvangi I grein sem þeir ættu
að hafa mikla möguleika á að ná
góðum árangri i.
Myndirnar með þessari grein
voru teknar i rally i Dan-
mörku á siðastliðnu sumri.
Svíar í fyrsta og þriðja sæti
í Austur-Afríku safari rally
Austur-Af ríku safari
rally lauk á mánudaginn
var eftir að keppendur
höfðu lagt að baki 5700
km á fimm dögum, og
komu Svíarnir Ove
Anderson og Arne Hertz á
leiðarenda sem sigurveg-
arar á Peugeot 504. Þeir
hlutu 718 mínusstig. í
öðru sæti varð ítalinn
Sandro Munari á Lancia
Stratos með 756 mínus-
stig, en í þriðja sæti Sví-
arnir Björn Waldegaard
og Hans Thorszelius,
einnig á Lancia Stratos,
og fengu þeir 837 mínus-
stig.
Þetta er i annað skipti i
23 ára sögu Austur-Af ríku
safari rally, sem sigur
vegarinn er ekki heima-
maður, en sá heimamað-
ur, sem náði bestum ár-
angri að þessu sinni lenti í
fimmta sæti. Það var
Brent Schanklan frá
Tanzaniu á Peugeot.
78 þátttakendur hófu
keppnina, en aðeins 14
komust á leiðarenda, og
þar af urðu sex að hætta á
síðasta degi. Talsverðar
tafir urðu á keppninni
vegna grjótkasts frá íbú-
um héraða þar sem ekið
var um, sandbylja og
hitabeltisrigninga.
Sigurvegarinn í Safari rally 1973, Mehta og Drews á Datsun 240 Z
„Litla harnið” hjá VW-Polo
Enn hefur bæst nýr meðlimur f nýju Voikswagenf jölskylduna,
og um leið sá minnsti. Hann hefur hlotið nafnið Polo, og með hon-
um hefurlbiliverið settur endapunkturinn á hina nýju VW-línu I
bili að minnstakosti, en hún var sett upp fyrir nokkrum árum til
þess að vinna upp minnkandi sölu á gamla Volkswagen„bjöll-
unni” og kostaði verksmiðjurnar I Wolfsburg tvo framkvæmda-
stjóra. t þessari linu eru Passat, Sirocco, Golf, og nú slöast Polo.
„Litla barnið” hjá Volkswagen var kynnt fyrst I siðasta mán-
uði, en að sögn Sæbergs Þórðarsonar sölustjóra hjá Heklu er
ekki von á að farið verði að flytja hann hingað fyrr en I fyrsta
lagi næsta haust. Um veröið sagðist hann ekkert geta sagt, nema
hann vonaði, að það verði undir milljón, þegar þar að kemur.
Litlar sem engar tæknilegar upplýsingar hafa borist um bilinn
ennþá, og þvi getum við ekkert frekar um hann sagt umfram það
sem segir hér að framan annað en vélin er 900 rúmsm , vatns-
kæld, og svipuð að gerð og vélarnar i Passat, Sirocco og Golf.
o
Sunnudagur 6. apríl 1975.