Alþýðublaðið - 18.04.1975, Page 4

Alþýðublaðið - 18.04.1975, Page 4
Neytendavernd? Enginn dregur í efa að verzlun og viðskipti séu snar þáttur i lifi hvers einasta borgara, yngri og eldri. Hér á hvert einasta heim- ili, hvort sem mannmargt er eða mannfátt, mikilla hags- muna að gæta. Það liggur þvi i hlutarins eðli að menn festi auguá.hvernig þeim málum er háttað. Og jafnvel þótt verðskyn manna brenglist, eins ög gerzt hefurhér i rikum mæli á siðustu og verstu timum, rriinnir budd- an á þegar upp er gert og kem- ur að skuldalúkningu. Nokkrir tilburðir hafa verið haföir uppi, til þess að opna augu neytandans fyrir þvi að hann eigi þó einhvern rétt. En það er beizkur sannleikur, að allt slikt er i ótrúlega miklum molum. Áhugi stjórnvalda virð- ist afar takmarkaður i þvi efni að lita á hagsmuni hins stóra hóps, neytendanna, sem stærst- an hlut á að máli. Það virðist vera nægilegtað hægt sé að kria út úr landslýðnum með illu eða góðu, það sem þessir „keisar- ar” telja sitt. Umhyggjan nær sjaldan miklu lengra. Það er þó enn beizkari sannleikur en áhugaleysið um einhverjar úr- bætur til handa neytendum með löggjöf um þeirra rétt, að svo virðist sem engin rikisstjórn hafi haft i sér neinn dug, til þess að taka á verzlunarmálum og verzlunarháttum öðruvisi en með belgvettlingum, helzt alls ekki. Þegar litið er yfir ástandið i verzlunarmálunum, verða tveir aðilar mönnum einkum fyrir augum, einkaverzlun og hin s.n. samvinnuverzlun. Óþarft er að rifja upp að mörg óþvegin orð hafa fallið fyrr á timum frá þeim, sem tekið hafa bjargfasta trú á samvinnuverzlunina, til heildsala, sem hafa oft verið notaðir viðlika og Grýla gamla við börn i upphafi aldarinnar. Endalaust er hægt að deila um það sem var. En það er fyrst og fremst nútiminn, sem menn standa frammi fyrir og það er borin von, að unnt sé að skreyta sig nú með stássfjöðrum eins og þeim, að samvinnusamtök Þingeyinga t.d. hafi greitt örum & Wulffs banahögg á lið- inni öld. Siðan er mikið vatn til sjávar runnið, sem virðist hafa, þvi miður, skolað með sér drjúgum hluta af hinum fornu hugsjónum. Varla verður nú betur séð en að hinir fornu fjendur, samvinnu- og einkaverzlun, likist mest ein- eggja tviburum uppöldum i sama húsi. Þar virðist ekki hnif- ur ganga milli i viðskiptum og viðhorfi til almennings. Þessa dagana berast okkur nokkuð kynlegar fréttir um furðulegt ástand i viðskiptamál- unum. Um nokkurt skeið hafa þeir, sem eitthvað hafa fylgzt með fregnum frá útlöndum, vit- að að sykur hefur hriðlækkað i verði þar. Það hefur nýlega verið upplýst og á vegum nokk- urra fyrirtækja hér á Reykja- vikursvæðinu, að unnt sé að selja þessa vöru á fast að þvi helmingi lægra verði en verzl- anir almennt krefja um. Auðvit- að þurfa þessi fyrirtæki að kaupa inn á heimsmarkaðs- verði. En það er nú ekki aldeilis þvi að heilsa, að fólk fái, að neinu marki notið þessarar verðlækkunar. Af hverju? Jú, vegna þess að hinir stóru inn- flytjendur eiga svo miklar birgðir! Þegar svo þess er gætt, að álagningin miðast við hundr- aðshluta af innkaupsverði, má geta sér til um áhugann á að kaupa ódýrt inn. Það voru fleiri en utanrikisráðherrann, sem lögðu leið sina austur fyrir tjald á dögunum. Timburkaupmenn stungu þar einnig við stöfnum. Og nú upplýsir Morgunblaðið með stóru ietri, að Rússarnir hafi slegið 20-22% af timburverðinu. t undirfyrirsögn upplýsir svo sama blað, að þessi verðlækkun komi þó naumast fram i útsölu- verði! Þarna virðist sama sag- an á ferð eins og i sykurmálun- um. ,,..þama vantar i þumalinn þvi hljóta að borga enn skap- þungir skilamenn.....” kvað Jónas Hallgrimsson forðum. Ætli oliugróðinn hans Einars verði ekki á svipaða lund? Það virðast vera æði margir „þuml- arnir”, sem vantar i' og þarf að fylla. En það eru ekki „þumlar” almennings, sem umhyggja er borin fyrir. l/ontor í hiim4 ilinn”? vdllldl 1 M|IUIIh dllllll : SKEMMTANIR — SKEMMTANIR HÓTEL LOFTLEIÐIR Cafeteria, veitingasalur með sjálfsafgreiðslu opin alla daga. HÓTEL LOFTLEIÐIR Blómasalur, opinn alla daga vikunnar. HÓTEL BORG við Austurvöll. Resturation, bar og dans i Gyllta salnuin. Simi 11440. HÓTEL SAGA Grillið opið alla daga. Mfmisbar og Astrabar, opiö alla daga nema miövikudaga. Simi 20890. INGÓLFS CAFÉ við Hverfisgötu. —Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826. ÞÓRSCAFÉ Opið á hverju kvöldi. Simi 23333. SKEMMTANIR — SKEMMTANIR Ingólfs-Café Gömludansarnir í kvöld kl. 9 Hljómsveit Garðars Jóhannessonar. SÓngvari Björn Þorgeirsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826. Verkakvennafélagið Framsókn Aðalfundur félagsins verður haldinn i Iðnó sunnudag- inn 20. april kl. 14.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. önnur mál. Félagskonur fjölmennið og mætið stund- vislega. Sýnið skirteini við innganginn. Stjórnin. ÚTIVISTARFERÐIR Útivistarferðir Laugardaginn 19/4 : Helgafell — Valahnúkar, sunnan Hafnarfjarðar. Leiðsögumaöur Friörik Danfels- son. Sunnudaginn 20/4 : Sauðadalahnúkar — Eldborgir, sem Svínahraunsbrunar runnu frá um miðja 14. öld. Leiðsögu- maður Jón I. Bjarnason. Brott- fararstaður B.S.I. (vestanverðu), brottfarartimi kl. 13, verö 500 kr. útivist Lækjargötu 6, simi 14606. VIPPU - BltSKÖRSHUROlM Lagerstærðir miðað við múrop^ Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270sm Aðrar stærðir.smlSaðar eflir beiðni. GLUGGASMIÐJAN •Síðumúla 12 - Sími 38220 UR UU SKARiuHIPIR KCRNELÍUS JONSSON SKÚLAVÖROUSIÍG 8 8ANKASTRÆII6 *«"*m5B8-1860'Q Minningar spjöld Hallgríms kirkju fást f Hallgrlmskirkju (GubbrVnds- stofu), opið virka daga nema laugardaga kl. 2-4 e.h„ simi 17805, Bló m a versluninni Domus Medica, Egilsg. 3, Versl. Hall- dóru ólafsdóttur, Grettisg. 26, Versl. Björns Jónssonar, Vestur- götu 28, og Biskupsstofu, Klapp- arstig 27. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. PÓSTUR OG SÍMI óskar að ráða BIFVÉLAVIRKJA nú þegar. Nánari upplýsingar verða veittar i starfs- mannadeild Pósts og sima. Lausar stöður Deildarstjórastöður i fræðslumáladeiid og verk- og tækni- menntunardeild menntamálaráðuneytisins eru lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur til 16. mai nk. Umsækjendur láti fylgja umsókn sinni upplýsingar um menntun og fyrri störf. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rlkisins. MENNTAMALARADUNEYTIÐ, 16. aprll 1975. Föstudagur 18. apríl 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.