Alþýðublaðið - 18.04.1975, Side 9

Alþýðublaðið - 18.04.1975, Side 9
Umsjón: Björn Blöndal ÍÞKÍTTIK Dankersen í úrslit: Axel nefbrotnaði „Vonast tii að geta leikið úrslitaleikinn” „Það á ekki af manni að ganga”, sagði Axel Axelsson þegar við höfðum samband við hann f gær hvernig gengi í úrslitakeppninni. En eins og fram hefur komið þá er lið Ax- els, Dankersen komið i 4ra liða úrslitakeppnina um meistaratitilinn þýska. ,,Ég fékk mjög slæmt högg á nefið á æfingu um daginn”, hélt Axel áfram. ,,Og hef nef- brotnað við höggið, þvi ég átti mjög erfitt um andardrátt. Það varð svo til þess að ég varð að leggjast inn á spita þar sem gerð var aðgerð á mér. Ég gat þvi ekki leikið með i fyrsta leiknum í úrslita- keppninni, en þar lékum við gegn Hofweier, efsta liðinu úr suðurdeildinni og unnum heima 22—11. Það er þvi nær öruggt að við komumst i úrslit þvi óliklegt er að þeir nái að vinna upp þennan markamun i seinni leiknum. Þá lék Gummarsbach gegn Rintheim á útivelli og töpuðu 17—16. Það eru þvi allar likur á að við leikum gegn Gummers- bach i úrslitum þvi óliklegt er að eitt mark nægi Rintheim á heimavelli Gummarsbach. En Rintheim og Hofwier um 3.-4. sætið. Það lið sem hlýtur meistaratitilinn tekur svo þátt i Evrópukeppni meistaraliða, en liðin sem verða i 2.-3. sæti leika um hvort liðið kemst i Evrópukeppni bikarhafa sem verður á dagskrá næsta vetur. Hvort ég verð með í seinni leiknum gegn Hofweier get ég ekki sagt um, en ég vonast til að geta leikið- með i úrslita- leiknum”. Þá sagði Axel að hann hefði átt viðræðurvið forráðamenn félagsins og þeir lagt hart að sér að vera áfram og væri hann nú kominn i verslunar- nám og allar horfur á að hann yrði um kyrrt fyrst um sinn. Axel Axelsson hefur verið ó- heppinn i vetur og hefur lltið getað leikið vegna meiðsla. Gullbjörninn kominn í gang Jack Nicklaus US Masters... sigraði - eftir hörku keppni og nú munar aðeins 230 dölum á honum og Johnny Miller en þeir tveir hafa haft mestar tekjur allra í ár Um siðustu helgi lauk einni af meiriháttar golfkeppnum at- vinnumanna i Bandarikjunum, Masters golf tournament i Augusta i Georgia. Keppnin var mjög spennandi allt til loka og börðust þá þrir frá- bærir golfleikarar um efsta sætið, Jack Niclaus, Tom Seiskopf og íohny Miller og lauk þeirri við- ureign með sigri Nicklaus en þeir Weiskopfog Miller urðu jafnír í 2. sæti. Þegar keppnin var hálfnuð hafði Nicklaus tekið 5 högga for- ystu, lék þá 36 holurnar i 135 höggum. Næst kom svo Bobby Nichols með 140 högg, en Weis- kopf var á 141 höggi og Miller 146 höggum. Það áttu þvi flestir von á að Nicklaus ynni auðveldan sigur i keppninni. En þvi var nú ekki svo farið og i þriðju umferðinni lék hann hringinn afar illa eða á 73 höggum og féll við það i 2. sætið með 208 högg, en Weiskopf náði forystunni, lék á 66 höggum og var með 207 þögg. En Miller náði bestum árangri þann daginn og lék á 65 höggum og komst við það i þriðja sætið með 211 högg. Siðasta umferðin var þrungin spennu og skiptust þeir Weiskopf og Niclaus á um forystuna en Miller fylgdi þeim eins og skugg- inn. Nicklaus lék á undan Weiskopf og þegar hann var að byrja á 16. holunni, sá hann Nicklaus slá frá- bært upphafshögg á þeirri 17. og siðan pútta af 40 fetum. Þetta hafði slæm áhrif á Weis- kopf og hann lék 16. holuna á einu yfir pari. t lokin áttu svo Weiskopf og Miller möguleika á að jafna við Nicklaus en báðum mistókst að pútta i lokin og Nicklaus bar þar með sigur úr býtum, lék á 276 höggum eða I2umdir pari.en þeir Weiskopf og Milliei voru á 277 höggum. En bestum árangri sið- asta daginn náði Hale Irvin, lék á 64 höggum og skaust i 4. sætið. tirslit efstu manna i keppninni urðu þessi: Jack Nicklaus Johnny Miller Tom Weiskop Hale Irvin Bobby Nichois (68-67-73-68)276 <75-71-65-66)277 (69-72-66-70)277 (73-74-71-64)282 (67-74-72-69)282 Le Trevino gekk ekki vel og hafnaði i 12. sæti á 286 höggum og sigurvegarinn frá i fyrra og 1961, Gary Player, varð 29. á 292 högg- um. Jack Nicklaus hlaut 40 þúsund dali i verðlaun og munar nú að- eins 230 dölum á honum og Johnny Miller sem hefur haft mest fyrir sinn snúð á árinu. Miller hefur haft 149.470.00 dali, en Nicklaus 149.240.00. 1 þriðja sæti er Tom Weiskopf með 112.000.00 og fjórði Bob Murphy með 82.000.00 dali. Þetta er i fimmta skipti sem Jack Nicklaus sigrar Masters golf keppnina oghefur engum tek ist það fyrr. Tom Weiskopf náði lika árangri, sem engum hefur tekist fyrr en hann hefur náð 2. sætinu i fjögur skipti i þessari keppni. Þvi má bæta við að þetta er þriðja meiriháttar keppnin sem Nicklaus vinnur nú á stuttum tima. En siðustu keppni atvinnu- manna fyrir Masters keppnina, Greensboro Open, sigraði Weis- kopf. Þvi má bæta við að það voru þekkt nöfn sem féllu úr Masters- keppninni, en til að komast áfram urðu keppendurnir að leika fyrstu Jack Nicklaus púttaði af 40 fetum á 17. hoiunni í siðustu uniferðinni. tvo hringina undir 148 höggum. Má þar nefna Tony Jacklin sem lék á 151 höggi, Peter Oosterhuis á 151 höggi, Lee Elder á 152 og Bruse Carmton á 155 höggum. En þeir voru alls 30 keppendurnir sem komust ekki áfram. MUNIO Ibúðarhappdrætti H.S.I, 2ja herb. ibúðað verðmæti kr. 3.500.00. Verð miða kr. 250. I þr óttafréttar i tarar fá aðstöðu í íþróttamiðstöðinni 1 gær afhenti Gisli Halldórs- son forseti ÍSl,íþróttafréttarit- urum formlega aðstöðu i íþróttamiðstöðinni i Laugar- dalnum. Eneinsog kunnugter þá hafa nær öll sérsambönd innan ISÍ þar aðstöðu fyrir starfsemi sina. Jón Asgeirsson formaður fé- lags iþróttafréttaritara tók við lyklunum að herberginu og þakkaði fyrir hönd samtak- anna. Jón gat þess að félagið stæði nú i' stórræðum þar sem þing iþróttafréttaritara Norður- landa yrði haldið hér i sumar. Væri mikill áhugi fyrir þessu þingi hjá frændum okkar og væri útlit fyrir að færri kæm- ust hingað en vildu. Það væri mikið verkað und irbúa slik þing og kæmi þvi þessi aðstaða sér vel. Þá má bæta þvi' við að aðal- fundur samtakanna verður haldinn i hinum nýju húsa- kynnum i kvöld. Föstudagur 18. apríl 1975.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.