Alþýðublaðið - 18.04.1975, Page 12

Alþýðublaðið - 18.04.1975, Page 12
alþýðu m\m Plastiffi 1.1 PLASTPOKAVERKSMIÐJA Símar 82639-82655 Votnogörfcum 6 Box 4064 — Reykjavlk GUNNAR THORODDSEN Á IÐNÞINGI: STEFNT AO TOLLFRELSI TÆKJA TIL IONAOAR Samþykkt lán Iðnlánasjóðs á árinu 1974 námu samtals 420.5 milljónum króna, sem er tæp- lega þriðjungur af heildarupp- hæð þeirra lánsumsókna, sem bárust honum á árinu, en þær námu samtals 1.341 milljón króna. Þetta kom í'ram i ávarpi, sem Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- ráðherra, flutti á aðalfundi Fé- lags islenskra iðnrekenda i gær. Ráðherra sagði ennfremur: ,,Er augljóst að stefna verður að verulegri eflingu útlánagetu sjóðsins, frá þvi sem nú er”. 1 ávarpi iðnaðarráðherra kom fram að stofnlánasjóðir iðn- aðarins eru tveir, Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður. Iðnþró- unarsjóður tók til starfa við inn- göngu tslands i EFTA og veitir hann lán til fjárfestingar i út- fiutningsiðnaði, svo og þeirra fyrirtækja, sem verða fyrir vax- andi samkeppni á innanlands- markaði vegna aukinnar fri- verslunar. Til þessa hefur sjóð- urinn getað sinnt svo til öllum lánsbeiðnum, sem að mati stjórnar og framkvæmdastjórn- ar hafa fallið undir verksvið sjóðsins og verið taldar láns- hæfar. Samþykkt lán Iðnþró- unarsjóðs á árinu 1974 námu 434.2 milljónum króna. Iðnlána- sjóður hefur mun viðtækara verksvið en Iðnþróunarsjóður, enda tekur hann einnig til hvers kyns þjónustuiðnaðar, en, svo sem fyrr segir, gat hann hvergi nærri sinnt öllum umsóknum á árinu 1974. t ávarpi ráðherra kom enn- fremur fram, að til athugunar hefur verið, að sameina Iðn- lánasjóð og Iðnrekstrarsjóð, sem stofnaður var til styrktar útflutnings og öflunar erlends markaðar, og gera þá að sér- stakri deild, framleiðnideild, sem hefði það hlutverk að að- stoða iðnaðinn enn frekar við aðlögun að breyttum aðstæðum og vaxandi samkeppni, vegna aukinnar friverslunar og tolla- lækkunar. Meðal þeirra aðgerða, sem verða mættu til stuðnings islenskum iðnaði, nefndi ráð- herra svo áfangalækkun og end- anlega niðurfellingu á aðflutn- ingsgjöldum af vélum og tækj- um, sem flutt eru inn tii iðn- aðarframleiðslu. Um það atriði sagði ráðherra: „Inn i fjárlög 1975 voru þvi sett heimildará kvæði þess efnis, að fella mætti niður eða endurgreiða að hálfu söluskatt af vélum og tækjum til samkeppnisiðnaöar. Kom þessi lækkun til framkvæmda i árs- byrjun 1975. Hér er aö visu að- eins um áfanga að ræða og verð- ur unnið að þvi, að fella niður aðflutningsgjöld af þessum mikilvægu fjárfestingarvörum iðnaðarins, svo fljótt sem verða má. Siðan ræddi ráðherra verð- lagsmál og minntist á, að unnið væri að nýrri löggjöf um verð- myndun, viðskiptahætti og verðgæslu. Ennfremur minntist hann á langtima iðnþróunará- ætlun, sem unnin var á árunum 1971—1973 og að lokum ræddi svo ráðherra um hugsanlega tækniþjónustu við iðnaðinn og kvað brýna nauðsyn bera til þess, að auka stórlega framboð á alhliða þjónustu, sem iðnfyrir- tækin hafa möguleika á að hag- nýta sér, bæði á viðskiptalegu og tæknilegu sviði. Minntist hann, i þvi sambandi, á frum- varp um Iðntæknistofnun Is- lands, sem nú er til endurskoð- unar i iðnaðarráðuneytinu og kvaðst vænta þess að leggja það fram, annaðhvort á þessu þingi eða i byrjun þess næsta. KÓPAVQGS APÓTEK Opið öll kvöld til.kl. 7 iaugardaga til kl. 12 SENDIBIL ASTOÐIN Hf NIÐURSKURÐUR BORGARINNAR 660 MILLJÓNIR ALDRAÐIR SVIKNIR UM 95 MILLJÓNIR „Það hlýtur að vekja sérstaka athygli fólks og þá alveg sérstak- lega hins almenna launþega, að álagning aðstöðugjalda er engan veginn i hámarki, enda þótt heimildarákvæði um hækkun út- svarsálagningar hafi verið gjör- nýtt strax við gerð fjárhagsáætl- unar á sl. hausti. Þetta gerist samtimis þvi og skera á niður framlag til félags- mála um hvorki meira né minna en 200 milljónir króna, þar með taldar 95 milljónir króna, sem er beinn niðurskurður á framlögum til stofnana iþágu aldraðra”. Þannig fórust Guðmundi Magnússyni, borgarfulltrúa Ai- þýðuflokksins, m.a. orð i ræðu i borgarstjórn Reykjavikur i gær, þegar rætt var um tiliögur meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins um stórkostlegan niðurskurð á fjár- hagsáætlun borgarinnar. Guðmundur sagði ennfremur: „Fullnýting aðstöðugjaldsins hefði þýtt það, að borgarstjórn hefði staðið við loforð sin og skuldbindingar gagnvart gamla fólkinu um byggingu stofnana i þágu þess. Það er ekki til of mikils mælst, að borgarstjórn standi við fyrir- heit sin i þessum efnum á yfir- standandi ári, þegar þess er gætt, að á siðasta ári voru aðeins not- aðar 20 milljónir af þeim 140 mili- jónum, sem samþykkt var á sin- um tima að verja til þessara hluta”. Tillögur meirihluta Sjálfstæðis- flokksins i borgarstjórn um „breytingar á fjárhagsáætlun” gera ráð fyrir niðurskurði, sem nemur samtals 660 milljónum króna. Þar af niðurskurði bygg- ingarframkvæmda, sem nemur 289,7 milljónum króna, niður- skurði félagsmála, sem nemur 200 milljónum króna og niður- skurði gatna- og holræsagerðar, sem nemur 169,6 milljónum króna. Guðmundur Magnússon, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, lagði rika áherslu á, að þrátt fyrir erfiðleika i fjármálum Reykja- víkurborgar verði gamla fólkið i borginni ekki svikið á marggefn- um loforðum. Hann lagði til eftir- farandi tillögu: „Borgarstjórn Reykjavikur er ljóst, að brýna nauðsyn ber til þess að hraða sem mest bygg- ingarframkvæmdum i þágu aldr- aðra, bæði byggingu ibúðarhúsa og hjúkrunarheimila. Borgarstjórn telur þvi ekki koma til greina að skera niður fjárveitingu þá, sem er i fjár- hagsáætlun yfirstandandi árs til stofnana i þágu aldraðra. Borgarstjórn samþykkir að koma nú þegar á fót byggingar- nefnd til þess að gera tillögu um ráðstöfun umræddrar fjárveit- ingar”. » AF F0RSIÐU » RÁDUNEYTISATÖK ingu i stöðuna. Lauk svo vinnu- degi almennra starfsmanna ráðuneytisins, að ekki var séð fyrir endann á málinu, né hver áhrif mótmælin og átökin öll hefðu. í fyrrakvöld var siðan þeirri fyrirspurn komið til Sigurðar, hvort hann tæki setningu i starf öryggisatriði á vinnusvæðinu sem hefur verið ábötavant, og loks hafa þeir lofað aðkoma til móts við verkalýðsfélögin um lausn þess ágreinings, sem upp hefur komið. Ekki er ætlunin, að • Júgóslavarnir kippi þessum málum i lag alveg hjálpar- laust, þvi Landsvirkjun mun veita þeim fjárhagslega fyrir- greiðslu á þann hátt, að af- borganir á fyrirframgreiðsl- um þeim, sem þeir fengu hjá Landsvirkjun i upphafi fram- kvæmdanna, verður seinkað. og auk þess verður fjárupp- deildarstjóra fræðsludeildar til bráðabirgða, væri staðan auglýst strax daginn eftir laus til um- sóknar, og féllst hann á það. Að lokum er rétt að taka fram, að auglýsingin um hinar lausu stöður birtist fyrst i hádegisút- varpi, einum átta klukkustundum eftir að Alþýðublaðið kom úr prentun i gær. hæð, sem haldið er eftir af mánaðarreikningi þeirra, lækkuð — að uppfylltum ákveðnum skilyrðum þó og gegn fullnægjandi banka- tryggingu. Þá hafa Júgóslavarnir lofað að flytja inn fjármagn til að tryggja öruggan framgang verksins, svo þvi megi ljúka á tilsettum tima. Þessilausn mála er árangur af viðræðum Landsvirkjunar, verkfræðilegra ráðunauta og Energoprojekt, — en fulltrúar Alþjóðabankans tóku einnig þátt I þeim. Enn iafntefli FRIÐRIK: „EKKI ÖLL NÖTT ÖTI” Friðrik ólafsson og Ulf Anderson sömdu um jafntefli eftir að hafa leikið tvo leiki af biðskák sinni úr sjöundu umferð i gærkvöld. Ljubojevic og Mecking eru enn efstir, en Friðrik er I 7. sæti. „Það er ekki öll nótt úti,” svaraði Friðrik er við ræddum við hann I gærkvöldi og spurð- um hann hvort hann teldi sig enn eiga möguleika á að blanda sér í lokabaráttuna um efstu sætin. Keppendur áttu fri I gær, að- eins ein biðskák var tefld. Petrosjan sigraði Bellon. 1 dag teflir Friðrik við Visier. » AF F0RSIÐU » SLÖR JIÍSÖSLAVA FIMM ó förnum vegl Ertu fylgjandi auknu frelsi í sambandi við fóstureyðingar? Gunnar Karlsson, sjómaður: „Já, það er ég, en aðeins að tak- mörkuðu leyti. Ég vil alls ekki gefa þær algerlega frjálsar og hygg að félagsráðgjafar og læknar eigi að hafa mikið að segja um þær”. Svava Gestsdóttir, sjúkraliði: „Nei, alls ekki. Ég vil halda þeim máium sem mest i sömu skorðum og verið hefur. Konan á alls ekki að ráða ein, hvort fóstureyðing er framkvæmd eða ekki”. Sigrlður Ester Hansdóttir, skrifstofustúlka: „Nei, ég er al- gerlega mótfailin þvi. Það má ef til vill taka meir tillit til félags- legra aðstæðna en gert er, en alls ekki að gera þær frjálsar”. Kormákur Eiriksson, nemi: „Nei, ég vil alls ekki hafa fóst- ureyðingar frjálsar. Það hefur að visu ekki reynt neitt á skoð- anir minar i þessum efnum, þar sem ég hef aldrei átt hlut að fóstri, en ég tel þó að strangar reglur verði að gilda um slik mál”. Guðmundur Eiriksson, nemi: „Nei, ég vil alls ekki gefa þær frjálsar. Ef sjúkdómar, eða ein- hverjar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, þá er auðvitað sjálf- sagt að veita heimild til fóstur- eyðingar, en þar vil ég setja markið.”

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.