Alþýðublaðið - 24.04.1975, Qupperneq 3
REKSTUR AKRABORGARINNAR
STRAND í REYKJAVÍKURHÖFN?
„Það hefur gengið mjög vel
vinna við væntanlega aðstöðu
Akraborgar hér á Akranesi og ég
reikna með að hún verði tilbúin
um miðjan júni,” sagði Guð-
mundur Vésteinsson einn af
stjórnarmönnum Skallagríms
h/f, sem gerir Akraborgina út. i
simtali við Alþýðublaðið.
„Það er komið efni i ferjubrýr
bæði i Reykjavik og hér á Akra-
nesi og ég held, að lausn á aðstöð-
unni i Reykjavik komi samhliða
aðstöðunni hér. Að minnsta kosti
hefur samgönguráðherra heitið
okkur þvi. Þetta má þó ekki drag-
ast mikið meira fyrir sunnan og
það ræður úrslitum að takist að
koma þessari aðstöðu upp fyrir
sumarið og óneitanlega erum við,
orðnir óþreyjufullir eftir að fa
niðurstöðu,” sagði Guðmundur
ennfremur.
Um rekstur Akraborgarinnar
sagði Guðmundur: „Égsegiekki,
að hann hangi á horriminni, en
þvi er ekki að neita, að útgerðin
hefur lent i erfiðleikum yfir vetr-
armánuðina, sérstaklega vegna
þess að bryggjuaðstöðuna vant-
aði. Það hefur hins vegar verið
mikil hjálp í skemmtanahaldinu,
sem verið hefur um borð.”
Hjá hafnarstjóranum i Reykja-
vik var blaðinu tjáð að ekkert nýtt
væri af þessu máli að frétta. Sam-
gönguráðuneytinu hafi verið sent
bréf, þegar fjárhagsáætlun hafn-
arinnar var gerð. Það hefur verið
ræðst við, en endanleg niðurstaða
liggur ekki fyrir.
ENGAR HORFUR Á
SKJÓTRI LAUSN
HJÁYFIRMÖN NUM
Hásetar og yfirmenn á togara-
flotanum mættu hjá sáttasemjara
i fyrradag. „Engin niðurstaða og
raunar varla nokkurt samtal fór
fram viðsamninganefnd háseta”,
sagði Hilmar Jónsson við blaðið i
gær. „Fundur hefur ekki verið
boðaður, en það liggur i loftinu að
hann gæti orðið á föstudaginn”,
sagði Hilmar. Blaðið hafði sam-
FYRlR
BÖRNIN
Barnavinafélagið Sumargjöf
gengst, að vanda, fyrir hátiða-
höldum barna i dag, sumardag-
inn fyrsta. Efnt verður til sex
skrúðgangna sem hér segir: Kl.
13.15 Frá mótum Þórufells- og
Brciðholtsbrautar. Frá Hvassa-
leitisskóla. Frá Leikvellinum við
Alftamýri,og kl. 14.15. Frá Árbæj-
arsafni. Frá Vesturbæjarskóla
við öldugötu. Frá mótum Lang-
holtsvegar og Álfheima.
Lúðrasveitir leika fyrir öllum
göngunum. Sex inniskemmtanir
verða I borginni i þessum húsa-
kynnum.
t Austurbæjarbió kl. 2 og kl. 3.30.
Þar verður frumsýndur leikur
með söngvum, byggður á æfintýr-
um. Hópvinna nemenda SAL.
i Réttarhoitsskóla ki. 2 og kl. 4.
Brúðuleiksýning, Leikbrúðuland
sýnir þætti fyrir börn 10-12 ára
t Brciðhoitsskóla kl. 2 og Arbæj-
arskóla ki. 4.
Nemendur úr Fósturskóla Islands
annast skemmtunina, ætlaða
börnum 2-10 ára.
Aðgöngumiðar verða seldir á
skemmtistöðunum frá 10-12 og
eftir kl. 1, nema i Austurbæjarbfó
frá kl. 11.
Kvikmyndasýningar verða I
Austurbæjar-, Hafnar-, Gamla-
og Nýja bíói.
Hestamannafélagið Fákur leyf-
ir börnum yngri en 10 ára, að
koma á hestbak við gamla skeið-
völlinn kl. 4-5 siðdegis.
Merki Sumargjafar verða seld,
og afhent i öllum barnaskólum
borgarinnar 10-12. Þá verða og
seldir islenskir fánar á sömu
stöðum og I skrúðgöngunni.
band við Ingimar Einarsson
framkv.stj. FÍB og spurði hann
um horfur. „Mér sýnast ekki
horfur á skjótri lausn”, var hið
eina, sem hann vildi segja.
Alþýðublaðið hefur aflað sér
upplýsinga um kröfur yfirmanna,
sem einnig eru nú hjá sáttasemj-
ara og eru eins og hér segir:
1. Mánaðarkaup yfirmanna
verði kr. 70 þúsund.
2. Dagpeningar, þegar skip
liggurihöfn til viðgerðar kr. 3500.
3. Fæðispeningar i landi verði
kr. 1000.
4. Þegar selt er erlendis og ekki
komið i heimahöfn milli veiði-
ferða hækki fastakaup um 25%.
Eins og nú standa sakir dregst frá
brúttóafla 47% áður en kaup er
greitt. Annar stýrimaður hefur
1,4% af þeim afgangi (53%). Far-
ið er fram á að það hækki i 1.6%.
5. Þegar skip er lengur i veiði-
ferðen 10 daga, greiðist allur afli
á 1. flokks verði.
6. Þegar yfirmaður hefur verið
i 8 samfelldum veiðiferðum fái
hann fri I 9. veiðiferðinni á fullu
kaupi (fastakaup og aflahl.)
7. Þegar landað er, liði 30 timar
án skerðingar fridaga i stað 21
tima nú.
Mörgum íslendingi hefur lengi
verið ráðgáta, hvernig stendur á
þvi, að fiskverð á íslandi er svo
miklu lægra en i Noregi t.d. Hér á
hið margslungna og flókna sjóða-
kerfi áreiðanlega mikinn hlut i.
Það mun vera um 36%, sem i það
fara áður en kemur til skipta-
verðs. En þrátt fyrir það virðist
eitthvaðfara i handaskolum, þeg-
ar þess er gætt, að Norðmenn
geta greitt kr. 81 á kg fyrir fisk i
frystingu meðan við getum ekki
greitt nema kr. 38 fyrir dýrasta
flokkinn. Þar að auki er norskum
hásetum greitt i orlof 12% en hér
eru greidd 8.33% i orlof. Að visu
er greitt af óskiptu is og hreinsun
á fiskkössum þar.
VORU MOTFALLNIR
HÆKKUN TIL ALDRAÐRA
Atkvæði voru greidd um frum-
varp rikisstjórnarinnar um ráð-
stafanir i efnahagsmálum á fundi
neðri deildar Alþingis i gær. Um
miðjan dag fór fram atkvæða-
greiðsla um tillögur þær, sem
bárust við 2. umræðu málsins, en
ætlunin var að taka frumvarpið
til þriðju umræðu i neðri deild
eftir kvöldmat.
Breytingartillaga Gylfa Þ
Gislasonar um að ráðgerð skatta-
lækkun yrði eingöngu á sviði
beinna skatta var felld að við-
höfðu nafnakalli með 10 atkvæð-
um gegn 24. 1 umræöunum höfðu
þingmenn SFV lýst eindregnum
stuðningi við þessa tillögu og
óskir ASI um framkvæmd skatta-
lækkunarinnar og greiddu þeir
tillögunni atkvæði ásamt þing-
mönnum Alþýðuflokksins og
flestum þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins. Meðal þeirra til-
lagna, sem stjórnarliðið felldi,
voru tillögur um hækkun elli- og
örorkulifeyris svo og tillaga um
framkvæmd og greiðslu á þriggja
mánaða fæðingarorlofi kvenna.
Vakti það athygli, að Ragnhildur
Helgadóttir greiddi atkvæði gegn
þeirri tillögu, þótt hún sé
flutningsmaður tillögu um sama
mál, sem talsvert hefur verið
haldið á lofti.
(SLANDS-
BRIDGE UM
HELGINA
Undanúrslit í sveitakeppni
verða spiluð I Domus Medica 25,-
27. april. Spilað verður i 4 sex
sveita riðlum og veröa tvær efstu
sveitir úr hverjum riðli sigurveg-
arar, sem keppa i úrslitum 15.-19.
maf. Þar munu allir spila við alla.
Skipting sveita i undanúrslitum
verður sem hér segir: Úr Rvik
keppa 8 sveitir. Frá Reykjanesi 7
sveitir. Frá Akranesi 5 sveitir og
ein sveit frá hverjum eftirtaldra,
Vestfjörðum, Siglufirði, Selfossi
og Austurlandi.
K/ö/ur sf
Tjarnargata 35 — Keflavik
Simar: 92-2121 & 92-2041
Termel rafmagnsofnar
Barniö finnur - og reynslan staðfestir -
að Finnsku TERMEL olíufylltir rafmagnsofnarnir
— gefa þægilegasta hitann í íbuðina
Leitiö
upplýsinga
um verð og kjör
RITSTJÓRN ALÞÝÐU-
BLAÐSINS ER í SÍÐU-
MÚLA 11 SÍMI 81866
íAuglýsið í Alþýðublaðinu:
: Sími 28660 og 14906 j
Fimmtudagur 24. april 1975.
o