Alþýðublaðið - 24.04.1975, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 24.04.1975, Blaðsíða 8
n Leigjendur garða Ví Kópavogi Vinsamlegast greiðið gjöldin fyrir 1. mai. Gjaldið er: Fyrir 300 fermetra 1000.- kr. Fyrir 150 fermetra 600.- kr. Fyrir 100 fermetra 400.- kr. Gjöldunum er veitt móttaka á Bæjarskrif- stofunum, Félagsheimilinu 3.h., suðurdyr, daglega frá kl. 9—12. GARÐYRKJURÁÐUNAUTAR. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. 34. leikvika — ieikir 19. april 1975. Vinningsröð: 212 — IX 1 — ÍXX — 121 1. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 97.000.00 9874 35654+ 37355 + 2. VINNINGUR: 9 réttir — kr. 3.100 540 4507 9679 35226 36822+ 37508+ 37830 1941 5276 10431 36077 36822+ 37638 37924 2161 5585+ 10811 36172 36826+ 37654 38177 + 2397 6641 11595 36627 36936 37830 38177 + 3889 8331 35012 36725+ 37018 37830 38205 4479 9159 35014 36772 37052 + nafnlaus Kærufrestur er til 12. mal kl. 12 á hadegi. Kærur skulu vera skrifiegar. Kærueyftublöft fást hjá umboftsmönnum og aftalskrifstofunni. Vinningsupphæftir geta lækkaft, ef kærur verfta teknar til greina. Vinningar fyrir 34. leikviku verfta póstlagftir eftir 13. mal Handhafar nafnlausra seftla verfta aft framvlsa stofni eoa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilis- fang til Getrauna fyrir greiftsludag vinninga. GETRAUNIR — tþróttamiftstöftin — REYKJAVtK Skátafélagið Hraunbúar ætlar að minnast þess á sumardaginn fyrsta, að hinn 22. febrúar síðast- liðinn voru liðin 50 ár frá því að fyrsti skátaf lokkur- inn hóf göngu sína í Hafn- arf irði. Að vísu minntist félagið þessa atburðar á afmælis- daginn hinn 22. febrúar s.l. með afmæliskvöldvöku í Hraunbyrgi. Dróttskátar félagsins höfðu veg og vanda af þeirri kvöldvöku, sem var fyrir yngri Hráun- búa og tókst hún með hinni mestu prýði. En þá hafði verið ákveðið að minnast afmælisins frekar á sum- ardaginn fyrsta, en i Hafnarfirði hefur hann alltaf veriðáberandi dagur skáta og skátastarfs. Hraunsbúar byrja sumardag- inn fyrsta með þvi að mæta klukkan 10 árdegis við skáta- heimilið Hraunbyrgi. Þaðan leggja þeir svo af stað í skrúð- göngu klukkan 10.15 og ganga til kirkju. Lúðrasveit Hafnarfjarðar Ieikur fyrir göngunni. Athöfnin i kirkjunni hefst klukkan 11 og að- stoða skátar við guðþjónustuna. Páli Gislason skátahöfðingi íslands flytur ræðu. Sira Garðar Þorsteinsson þjónar fyrir altari . Skátaheimilið Hraunbyrgi og félagsheimili Hjálparsveitar skáta i Hafnarfirði verða opin frá klukkan 2 til 4 e.h. og til sýnis öli- um þeim, sem áhuga hafa á að skoða þau og kynnast starfi skát- anna. Skátaflokkar verða við ýmis konar skátastörf i Hraun- byrgi og hjálparsveitarmenn r I svara spurningum og kynna starfsemi sina i Hjálparsveitar- húsinu. Allir eru velkomnir á báða staðina á fyrrgreindum tima eins og áður segir. Klukkan 5 e.h. verður skemmtivaka i Hraunbyrgi fyrir yngri skáta, ljósálfa og yflinga. Um kvöldið verður afmælis- fagnaður fyrir dróttskáta og eldri Hraunbúa og gesti félagsins. Allir gamlir Hraunbúar eru velkomnir i þennan afmælisfagnað, sem hefst klukkan 9 um kvöldið I Hraunbyrgi. 1 sumar 13. til 16. júni verður svo 35. vormót Hraunbúa. Það verður haldið i Krýsuvik og sérstaklega til þess vandað i til- efni afmælisins. Gera má ráð fyrir að þangað leggi fjöldi skáta leið sina, þvi að vormót Hraunbúa hafa alltaf verið vinsæl. Þegar er vitað um nokkrar skátasveitir og félög, sem ætla að taka þátt i mót- inu. Labbi, mótsblaðið 1975, er þegar kominn út 1. tolublað og er þar að finna ýmsar upplýsingar um mótið. Páll Kr. Pálsson leikur á kirkju orgelið og stjórnar söngnum. SKATASTARF HAFNARFIRÐI í HÁLFA ÖLD UTAVER Allt til að fegra heimilið, teppi, gólfdúkar, veggfóður og málning. Lítið við í Litaveri, það hefur ávallt borgað sig. GRENSASVEGI 18-22-24 MÁLNING, VEGGFÓÐUR, DÚKAR SÍMI 30280, 32262 — TEPPI 30480. Risastyrja, 800 kiló að þyngd, veidd i Kaspiahafi. Ekki fyrir löngu var ég i Bakú við Kaspiahafið. Þar sá ég, að bátar bjuggust til veiða við hlið oliustöðvanna úti á opnu hafi. Bakúbar sögðu mér, að þetta sumar gætu þeir baðað sig i miðjum Bakúflóa, en færu ekki eins og áður á baðströndina, sem er 6 km frá Bakú. Aidyn Mamedov, borgarstjóri i Bakú er ekki alveg ánægður með hreinsunartæki borgarinnar og sagði mér frá þvi, hvernig þau verða eftir nokkur ár. Gasan Alijev, forstjóri Landfræði- stofnunarinnar sagði, að enn væri langt frá þvi, að alit hefði verið gert, en þó hefði mengun Kaspiahafsins minnkað mikið. Til þess að komast hjá hlut- drægu mati, lagði ég spurning- una „Oliu eða fisk úr Kaspia- hafi?” fyrir Ivan Borodav- tsjenko, vararáöherra i Ráðu- neyti vökvunar- og áveitufram- kvæmda i Sovétrikjunum. Hann fullvissaði mig um, að i Kaspia- hafi yrði bæði olia og fiskur. Nú er verið að framkvæma með góðum árangri ákvörðun sovésku rikisstjórnarinnar frá 1972 um ráðstafanir gegn meng- un Volgu og fljóta Úral, sem falla i Kaspiahaf. 700 milljón rúblur hafa verið veittar til hönnunar hreinsitækja fyrir 421 fyrirtæki, sem eru i nágrenni þessara fljóta. Einnig hafa ver- ið veittar 300 milljónir rúblna til uppsetningar hreinsitækja i 15 borgum. Miklu fé verður varið til að koma i veg fyrir mengun Volgu og Orals. Á árunum 1974—1975 verða hönnuð hreinsitæki fyrir 200 fyrirtæki i 20 borgum. Oliuiðnaðarfyrir- tæki i borgunum Gorki og Rja- zan eru nú útbúin nýjustu hreinsitækjum og vatnið, sem þau láta frá sér i Volgu er hreinna, heldur en það, sem þau taka úr ánni. Árið 1968 var tekin sérstök á- kvörðun um ráðstafanir gegn mengun sjálfs Kaspiahafs. Tug- ir ráðuneyta og deildir eru skylduð til að gera ráðstafanir til að koma i veg fyrir mengun Kaspiahafs af völdum oliu og úrgangsvatns. Samkvæmt þeirri ákvörðun er nú engin borhola á Kaspiahafi tekin i notkun, nema útilokuð hafi verið hættan á, að olia mengi umhverfið. Komi upp slik hætta, verður borholunni sam- stundis lokað. Akvörðunin kveður svo á um, að sjávarútvegsmálaráðuneyti Sovétrikjanna skuli efla vernd fiskistofnanna og tryggja aukn- ingu styrjustofnanna með eldi. Samkvæmt ákvörðuninni hafa stór svæði i norðurhluta Kaspia- hafs og ósar Volgu og fljótanna frá Ural verið friðuð. Þessar ráðstafanir sanna það, BÆÐI FISKUR OG OLIA að tækniframfarir geta haft sinn framgang án þess að skaða sjávarlifið. En þær bjarga þvi miður ekki Kaspiahafinu. Und- anfarið hefur yfirborðið lækkað um 2.5 metra þó að rennsli ánna sé hið sama, sem hefur það i för með sér, að saltmagn vatnsins hefur aukist og þess vegna er dýralifið i sjónum i hættu. Vis- indamenn íelja eina ráðið að veita vatni úr ánum Petsjoru og Vytsjegdu (sem eru i norður- hluta Sovétrikjanna) i Kaspia- haf og síðar vatni úr fljótum Siberiu. Æ meira fé er veitt til nátúru- verndar i Sovétrikjunum. t rússneska sovétlýðveldinu einu hefur 1 milljarður rúblna verið veittur til þeirra mála og er það tvöfalt meira en árið 1972. t heild fylgjast 4600 eftirlitsstöðv- ar, 80 visindastofnanir, 20 þús- und læknar, 600 verkfræðingar, efnafræðingar og liffræðingar daglega með ásigkomulagi vatns, andrúmslofts, og jarð- vegs i Sovétrikjunum. Rikis- stjórn Sovétrikjanna fylgist stranglega með þvi, að ákvörð- unum hennar sé framfylgt. Frá og með þessu ári verður eftirlit- ið hert enn meir, þar sem nátt- úruvernd og skynsamleg nýting náttúruauðlinda er orðinn óað- skiljanlegur hluti af áætlunum þjóðarbúskapsins. Allt þetta gerir kleift að segja fyrir með vissu, að Kaspiahafið veröi al- veg hreint og gefi af sér oliu og fisk eins og áður. þaö_____________ um minna! Litavers lága verö á öllum vörum ERTU AÐ BYGGJA? VILTU BREYTA? ÞARFTU AÐ BÆTA? o Fimmtudagur 24. apríl 1975. Fimmtudagur 24. april 1975. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.