Alþýðublaðið - 24.04.1975, Qupperneq 11
Umsjon: Björn Blöndai
ÍMÍTTIR
NM í lyftingum haldið hér um helgina:
„flllir mæta með sína
sterkustu menn”
Verður sett heimsmet hér í fyrsta sinn?
knattspyrnumaður
Um árangur annarra keppenda
er ekki gott að segja, en þeir gætu
allir átt möguleika á að vinna til
verðlauna.”
Þá sagði Omar að þetta væri i
14. sinn sem NM væri haldið en i
fyrsta skipti hér á landi en ísland
hefði átt fulltrúa á mótinu allt frá
1967 en þá kepptu þeir Óskar
Sigurpálsson og Guðmundur
Sigurðsson á mótinu i fyrsta sinn.
Þar hefði Öskar staðið sig með
miklum ágætum og hefði komið
heim með bronsverðlaun.
Sfðan hefði okkur tekist að
vinna til fleiri verðlauna á NM og
Óskar Sigurpálsson hefði t.d. tvi-
vegis hlotið brons, Guðmundur
Sigurðsson silfur ogþrons og þeir
Gústaf Agnarsson, gull og silfur
og Atli Þór Helgason gull á NM
móti unglinga.
Þá sagði Ómar að þeir byggjust
jafnvel við heimsmeti og hefðu
Leif Nilsen sem væri Olympiu-
meistari og Finninn Juhanni
Avellan látið hafa eftir sér að þeir
myndu stefna að þvi að setja
heimsmet á mótinu hérna.
Þeir kepptu báðir i milliþunga-
vigt svo þar mætti búast við
hörkukeppni. Hefði t.d. Finninn
verið mjög nálægt að setja heims-
met fyrir nokkru.
Að lokum sagði Ómar að meðal
keppenda væri náungi frá Svi-
þjóð, Lennard Dalgren sem fyllti
öll hús í Sviþjóð, þar sem hann
keppti og væru tilburðir hans oft
stórkostlegir.
islenska landsliðið verður skipað
þannig:
Sigurður Grétarsson, dvergvigt
Kári Eliasson, fjaðurvigt
Skúli Óskarsson, millivigt,
Guðmundur Sigurðss. miltiþ.vigt
Friðrik Jósepsson, milliþ.vigt,
Gústaf Agnarsson, þungavigt
Óskar Sigurpálsson, þungavigt
Hreinn Halldórsson, yfirþunga-
vigt.
Laugardaginn 26. april
verður haldið golfmót i Golf-
klúbbnum Keilir i Hafnarfirði
og hefst það kl. 9.00 f.h.
Mótið er 18 holu keppni, með
og án forgjafar.
Mótstjóri verður Þorvaldur
Asgeirsson. Tilkynna má þátt-
töku til hans i sima 53360.
Þetta er fyrsta opna golf-
keppni ársins og er öllum
heimil þátttaka. Myndin sýnir
eina verðlauna styttuna.
- Alan Mullery
GOLF
UNIROYAL KEPPNI
Óskar Sigurpálsson var fyrsti islendingurinn til að vinna til verðlauna
á NM og verður meðal keppenda á mótinu núna.
arsins i
Alan Mullery var i gær út-
nefndur af iþróttafréttariturum i
Englandi knattspyrnumaður
ársins.
Mullery sem leikur með 2.
deildarliðinu Fulham er fyrsti
leikmaður hjá félaginu sem
hlýtur þessa útnefningu. Mullery,
sem er 33 ára hefur leikið marga
Iandsleiki fyrir hönd Englands og
lék þá með Tottenham og var
m.a. iliðinu sem sigraði Chelsea i
úrslitum bikarkeppninnar á
Wembley 1963.
Mullery kemur þvi ekki i fyrsta
skipti á Wembley i maibyrjun
þegar hann leiðir lið sitt þar fram
i úrslitaleiknum i ensku bikar-
keppninni gegn West Ham.
Annað sætiö i kosningunni hlaut
Colin Todd (Derby Conty), en
Allan Hudson (Stoke City) var
þriðji.
ÍÞRÖTTIR-M-M
„Það er nú ljósUað af þessu
móti verður”, sagði ómar Úlf-
arsson formaður Lyftingasam-
bandsins á blaðamannafundi i
gær. En um tima leit ekki vel út
fyrir erlendu keppendurna
vegna verkfalls flugmanna.
„Við höfum þegar fengið nöfn
þátttakenda á mótinu”, hélt
Ómar áfram” og eftir þvi að
dæma munu þjóðirnar allar
mæta með sina sterkustu menn.
Við byrjum með að halda
Norðurlandaþing á föstudaginn,
en þar verður tekið fyrir m.a.
notkun hormónalyfja lyftinga-
manna.
Mótið hefst svo á laugardaginn
kl. 15:00 og verður þá keppt i
fluguvigt, dvergvigt, fjaðurvigt,
léttvigt og millivigt.
A sunnudaginn verður keppn-
inni svo haldið áfram kl. 15:00 og
keppt i léttþungavigt, milliþunga-
vigt, þungavigt og yfirþungavigt.
Við munum senda 8 keppendur i
mótið og gerum okkur miklar
vonir með aö þeir Gústaf
Agnarsson og Guðmundur Sig-
urðsson vinni gull i sinum
þyngdarflokkum og þá á Kári
Eliasson mikla möguleika á að
hljóta brons i fjaðurvigtinni. Eins
gerum við okkur vonir með að
komast á verðlaunapall i sveitar-
keppninni.
Englandi
Frá Tækniskóla
íslands áætluð
starfsemi 75/76
Almenn menntun:
Undirbúningsdeild i Reykjavik, á
Akureyri og ísafirði.
Raungreinadeild i Reykjavik, á Akureyri
og ísafirði.
Raungreinadeild fyrir tækna i Reykjavik.
Tæknadeildir i Reykjavik
Þetta nám tekur 3 kennsluannir eftir undirbúningsdeild —
sérákvæði gilda þó I meinatæknadeild.
rafmagn: Framhaldsmenntun fyrir iðnaðarmenn I raf-
virkjun og rafeindavirkjun.
vélar: Framhaldsmenntun fyrir málmiðnaðarmenn.
byggingar: Framhaldsmenntun fyrir byggingariðnaðar-
menn.
útgerð: Framhaldsmenntun fyrir stýrimenn og aðra með
drjúga starfsreynslu.
Tæknifræðideildir i Reykjavík
Þetta nám tekur 3 ár (og rlflega þó i byggingadeild) eftir
raungreinadeild.
1. hluti I byggingum, vélum, rafmagni, rekstri, og skipum
(Námi 12. og 3. hluta I öðru en byggingum verður að ljúka
erlendis.)
2. og 3. hluti I byggingum og auk þess lokaverkefni I 2 1/2
mán.
Inntökuskilyrði
Bókleg
Krafist er þessarar eða hliðstæðrar undirbúnings-
menntunar:
I undirbúningsdeild: Burtfararpróf úr iðnskóla, gagn-
fræðapróf eða landspróf miðskóla. Auk þess búfræðingar,
hverju sinni eftir tilmælum Bændaskólans á Hvanneyri.
1 raungreinadeild: Undirbúningsdeild tækniskóla, 4. stig
vélstjóranáms stúdentspróf (önnur en eðlissviös).
1 tæknideildir (aðrar en meinat.d.): Undirbúningsdeild
tækniskóla.
t 1. hluta tæknifræöi: Raungreinadeildarpróf tækniskóla,
stúdentspróf eðlissviðs.
Verkleg
1. Vegna náms I rafmagni, vélum og byggingum:
Sveinspróf eða verkleg þjálfun, sem felur I sér jafngilda
þekkingu á vinnubrögðum og veitt er f skyldu iönnámi,
þótt umsækjandi þurfi ekki aö hafa náð þeirri starfs-
leikni og bóklegri fagþekkingu, sem krafist er til sveins-
prófs. t vafatilfellum er haldið inntökupróf.
2. Vegna náms I útgerð:
Starfsreynsla á fiskiskipum og við fiskvinnslu a.m.k. 12
mán. viö upphaf náms og a.m.k. 18. mán við lok náms.
3. Vegna náms f skipatæknifræöi:
Eftir raungreinadeildarpróf geta nemendur fariö I 4ra ára
nám í skipatæknifræði f Helsingör i Danmörku. Hér er
ekki gerö forkrafa um verkkunnáttu. Sérstakra tak-
markana getur orðið þörf á fjölda nemenda á þannig
námsbraut.
Umsóknarblöð fást á skrifstofu skólans að Skipholti 37,
mánudaga til föstudaga kl. 0800-1600.
Umsóknir þurfa að hafa borist skólanum fyrir 10. júni og
skriflega svör verða send fyrir 14. júnl.
Skrifstofan verður lokuð 14. júnl til 20. júlf.
Starfræksla allra deilda er bundin fyrirvara um þátttöku
og húsrými.
Skólaáriö 75/76 hefst 1. sept. Kennsla i undirbúningsdeild
og byggingadeild IV (lokaverkefni) hefst þó ekki fyrr en 1.
okt. þegar öll starfsemi skólans I Reykjavlk verður flutt
að Ilöfðabakka 9.
Nemendum, sem hyggjast stunda nám f undir-
búningsdcild og raungreinadeild á Akureyri eöa tsafirði,
ber að snúa sér til skólastjóra iðnskóla á þessum stöðum.
Ath: Um starfsemi meinatæknadeildar verður auglýst
sérstaklega um næstu mánaðamót.
Rektor
Staða
tilraunastjóra,
sem jafnframt annist bústjórn við fjár-
ræktarbúið að Hesti i Borgarfirði, er laus
til umsóknar frá 1. júni nk.
Umsóknir sendist landbúnaðarráðuneyt-
inu fyrir 20. mai nk.
Landbúnaðarráðuneytið.
Fimmtudagur 24. apríl 1975.