Alþýðublaðið - 25.05.1975, Page 2

Alþýðublaðið - 25.05.1975, Page 2
KVIKMYNDIR Eftir Halldór Valdimarsson AMERICAN GRAFFITI: LIKT OG OPAL: BÆTIR, HRESSIR, KÆTIR Laugarásbió American Graffiti Leikstjórn: Ron Eveslage og Jan d’Alquen Aðalh lu tverk : Richard Dreyfuss Ronny Iloward, Paul LeMat Charlie Martin Smith, Cindy Williams Candy Clark Mackenze Philips. Asamt mörgum öðrum, sem vert væri að telja fram. Hér verður þó aðeins minnst á meistara plötusnúðanna, Wolf- man Jack, sem á stóran þátt i myndarferlinu, og svo á mann sem er i litlu hlutverki, en ber svo stórt nafn að það stingur i augun Johnny Weissmuiler junior, sem að sjálfsögðu birtist I átakasenu. Æ, já. Hvar var ég árið 1962. Ef ég man rétt, þá var ég burstaklipptur, fremur feitlag- inn og þunglamalegur strák- bjálfi og gekk i barnaskóla. Það var á þessum árum þegar dis allra drauma var stelpan á hæð- inni fyrir ofan, nú eða þá sú sem bjó tveim hæðum neðar. Timar sakleysis og sundurleitra ásta, þegar siðgæðið var brotið með þvi að haldast i hendur og kyss- ast ofurlétt i lyftunni á leiðinni upp. Það var einmitt árið 1962 sem verðmæta matið tók að breytast og sektin að virðast eftirsóknarverð. Fátt fer Bandarikjamönnum jafn vel og það, að gera grin að sjálfum sér. Einkum og sér i lagi þegar þeir hleypa engum hæðinsbroddi þar að og beina ekki spjótum sinum að neinni einstakri stétt þjóðfélags sins. Þá komast þeir i essið sitt, leika við hvern sinn fingur i þess orð- taks fyllstu merkingu. American Graffiti er eitt skýrasta dæmi þess, hve inni- lega, dásamlega, hlýlega Bandarikjamenn geta gert grin að sjálfum sér — innilegar og hlýlegar en flestar þjóðir aðrar. Eitt kvöld og ein nótt i lifi ungmenna i bandariskrar smá borgar, á þvi herrans ári 1962, reynist ævintýri i sérflokki. Og ekki aðeins eitt ævintýri, heldur mörg og margvisleg og misjöfn að inntaki og gildi. Einn lendir i útistöðum við unnustu sina, sem kvelur hann og pinir eftir bestu getu, af þvi hún vill ekki missa hann frá sér. „Við erum ekki börn lengur", lýsir hann yfir, með mannalegu yfirbragði. „Nei”, samþykkir hún, „við erum ekki lengur börn og getum þvl rætt þetta af skyn- semi.” En i þeim orðum töluðum, tekur hún af sér háls- keðjuna hans, barnalega særð og móðguð og skortir algerlega skilning hins fullorðna á þvi, sem er að ske. Hann ætlar á há- skóla i öðrum bæ og hún skynjar aðeins tómið, sem hann skilur eftir sig i lifi hennar. Annar eyðir mestum hluta kvölds og nætur til þess að leita uppi gyðju, eða opinberun — þvi hann er alls ekki fullviss þess að hún sé raunveruleg — sem birt- ist honum i T-fugli. Þeim þriðja býðst fyrsta tæki- færi lífs sins til þess að sýnast maður með mönnum og aka um á bíl, I stað þess að væflast um á vesputötri. Aragamall draumur hans rætist, en breytist þó fljót- lega i martröð, semvirðist ekki geta ræst úr. Hinn fjórði ekur um, stoltur sem konungur. Hann er enda konungur — konungur kapp- aksturshetjanna — ósigrandi I malbikskrumpi, eða I það minnsta ósigraður. Ástir og önnur vandamál þessara unglinga, sem i raun eru aðeins ofþroskuð börn, flækjast og tvinnast saman eitt kvöld og eina nótt. Þau þekkjast flest fyrir, hafa sótt sama skóla um árabil og þvi kemur fátt þeim sjálfum á óvart. Það er hæfileiki þeirra til að koma öðr- um á óvart, þar á meðal kvik- myndahússgestum, sem gerir kvöldið og nóttina eftirminnileg. Og þó skeður ekkert verulega óvænt — ekkert sem markar þessa nótt umfram aðrar. Þrátt fyrir léttleik sinn og kátlegt yfirbragð, er þó myndin „American Graffiti”, háalvar- leg I eðli slnu. Unglingarnir taka llf sitt hátiðlega, athafnir sinar tilfinningar og viðhorf einnig. Þau lifa af alvöruþunga og eru farin að finna ofurlitið fyrir ábyrgðinni, sem væntanlega mun hlaðast á herðar þeirra með komandi árum. Hún er einnig forspá, þvi af látbragði, llfsviðhorfum og lifsstöðu hvers og eins, má ráða allnokkuð um forlög hans, eða hennar, likt og sýnir sig I myndarlok. örlögin eru ef til vill ekki skráð i lófa hvers og eins, en vissulega þó I handfjötlun hans á lifinu sjálfu. Já, þau eru margvisleg ævin- týri þessara bandarisku ung- linga og þau sjálf misjöfn að upplagi. Margir þættir I skap- höfn þeirra og viðhorfum eru þó sameiginlegir og ekki aðeins meö þeim, heldur með öllum unglingum veraldar, hvar sem er og hvenær sem er. Jafnvel kappaksturskonungurinn ber merki þess að vera unglingur, með auðsært stolt og allt það er fylgir. Jafnvel átrúnaðargoðið Wolfman Jack er ekki ger- sneyddur unglingaeiginleikum slnum enn, þrátt fyrir árafjölda sinn. Svo sem ráða má af skrifum þessum, þykir mér American Graffiti harla góð mynd. Hún er hlýleg og fordómalaus, sinnir smáatriðum og gerir góðlátlegt grím að öllu og öllum, án þess að verða nokkurn tima nöpur. Myndin er næsta ádeilulaus og þessvegna þörf og góð hvild frá þeirri framleiðslu, sem einna mest fer fyrir á hvíta tjaldinu um þessar mundir. Hún er góð — mjög góð — mér liggur við að segja næsta fullkomin. Slikt má ég þó ekki leyfa mér, þvl engin mannanna verk geta verið fullkomin. Þó er það með hana likt og Opal, að hún hressir, bætir og kætir. Farir þú að sjá hana, þá hlærð þú ef til vill ekki oft eða hátt og færð ef til vill ekki I magann, llkt og þegar þú horfðir á „Vitskerta veröld” hér um árið, en spá mín er sú, að þér verði innilegá skemmt allan timann og að þú komir hvild(ur) og endurnærð(ur) út. Ef til vill ofurlitið bjartsýnni á lífið, til- veruna, kreppuna og vig- búnaðarkapphlaupið lika. H.Karl Gull: Hélt þeir væru hættir að framleiða svona myndir... Tónabíó Gull Leikstjórn: Peter Hunt Aðalhlutverk: Roger Moore, Susannah York, Ray Milland, Bradford Dillman, Simon Sabela Gerð eftir skáldsögu Wilbur Smith. Hetjur og heimskupör, fláræði i fjármálum, gull og ginningar. Mikiö skal til mikils vinna. Ekki siður við gullgröft en ann- að. Það hefur og sannast einna best og skýrast á þeim hópi manna, sem reynt hafa gegnum árin, að nota kvikmyndir I stað gullnámunnar sem þeir fundu ekki i Klondike. Ef til vill fóru þeir heldur ekki til Klondike og ekki heldur til Suður-Afriku. Ef til vill sátu þeir allan timann i þægilegum hægindastólum, inni i skrifstofubáknum kvikmynda- veranna og hugsuðu gullið upp úr sinni jörð. Rod er góður maður inn við beinið og I eðli sinu hrekklaus og heiðarlegur, þrátt fyrir ýmis bemskubrek og barnslega óra. Hann er svo góður, að hann liður ekki einu sinni hvitum verk- stjórum að vera vondir við svarta verkamenn. Það er eng- inn vafi á því hvar samúð áhorf- andans hlýtur að liggja. Terry Steyner er lika góð og heiðarleg og hrekklaus. Hún er llka rík — forrik —- og hreint ekki óálitlegt kvonfang. Þau erú glæsileg saman, hún og Rod. Einn galli er þó á gjöf Njarðar, sumsé sá, að Terry er þegar gift. Það sem verra er, er þó það, að hún er gift hinum versta læðupúka og varmenni, sem ætlar að eyðileggja nám- umar hennar, gera hana bláfá- tæka og drepa fullt af góðum, svörtum verkamönnum — sem eru hlýðnir og auðsveipir, eins og svertingjum ber að vera, þótt þeir séu ef til vill ofurlltið heimskir og barnalegir — til þess eins að hækka gullverð upp úr öllu valdi. Auðvitað er Steyner ekki einn I spilinu, þvi lög og reglur kvik- myndaheimsins gera jú ráð fyrir að I svona söguþræði sé um samsæri að ræða. Það eru rlkir menn, sem vilja verða enn rlk- ari, sem jafnframt standa að samsærinu. Allir eru þeir eitt- hvað vondir, misjafnlega þó. Einn þeirra er ekki mjög vond- ur, svo þeir verða að drepa hann. Auðvitað fer allt vel að lokum og hetjan Rod bjargar heimin- um og fær kóngsdótturina. Skárra væri það nú lika. Annað væri hreint svindl. Fyrir utan augljósa og yfir- þyrmandi vankanta, er þessi mynd ef til vill ekki vitlausasta afþreying sem völ er á. Hitt er svo annað mál, að hún er ekki heldur sú vitmesta. Myndir af þessari tegund og með þessari framsetningu (ein hetja, ein falleg og góð kona, eitt reglulegt varmenni og eitt samsæri) eru aldrei nógu sannar til að komast nálægt mér sem kvikmynda- hússgesti. Það slær alltaf við einhvern falskan tón I þeim, ýmist I leik, handriti eða öðru. „Gull” er að mörgu leyti þokka- lega gerð mynd og stöku sinnum bregður fyrir ofurlltilli spennu i henni. Þó er það svo, að minnis- stæöust verða orð eins af gest- um Tónabíós, þegar hann gekk út eftjr að hafa horft á mynd þessa. Þá sneri hann sér að samferðamanni sinum og sagði: „Ég hélt þeir væru hættir að framleiða svona myndir.” Þar liggur ef til vill hundurinn einmitt grafinn. Myndir af þessu tagi tilheyra fortlðinni. Ekki efast ég raunar um að hún nái meðal aðsókn hér núna, en fáir held ég geti hrósað henni mjög og raunar er mér til efs að kvikmyndahússgestir muni náið eftir henni, þegar út er komið. FEÐGARNIR: FYNDIN FYRSTU MlN- IÍTURNAR EN ÞREYTANDIIÍR ÞVf Hafnarbió Skrítnir feðgar Aðalhlutverk: Wilfrid Bram- bell, Harry H. Corbett Ofgar geta sjaldan haldið at- hygli I kvikmyndahússgesta fanginni um tveggja klukku- tima skeið. Þetta vita flestir kvikmyndaframleiðendur og taka til greina. Þó er það stöku sinnum, að þeir reyna — reyna — og reyna. Þær tilraunir eru, i flestum tilvikum, dæmdar til að mistakast. Steptoe andson” er þar engin undantekning. Myndin er um flesta hluti ýkt og ofleikin, þannig að eftir fyrstu tuttugu mlnúturnar eða svo, finnur á- horfandinn til fyrstu merkja um þreytu, sem siðar ágerast, þannig að um síðir sofnar at- hyglin og myndin liður fyrir of- an garð og neðan. Þokkaleg af- þreying það. Guðhræðsla barna gagnvart foreldrum sínum er misjafnlega mikil og vissulega mætti gera góða mynd um öfgatilfelli af þvi tagi. 1 sllkri mynd verður þó að brjóta gömlu regluna, um að einir öfgar kalli aðra heim, þvi framsetning efnisins verður að vera hógvær, til þess að öfgarn- ir njóti sin. I stuttu máli: Reglulega gam- an fyrstu mlnútur myndarinn- ar. Eftir það fór kátinan dvin- andi en þreytan vaxandi og út var komið eftir á úrvinda af þreytu og leiða. H. Karl Sunnudagur 25. mal T975

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.