Alþýðublaðið - 13.06.1975, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 13.06.1975, Qupperneq 1
Bandarískir körfuboltamenn í íslensk lið? ■-------íþróttir 9 alþýðul - « FÖSTUDAGUR 13. júní 1375 - 132. tbl. 58. árg. YFIRLYS- ING GEIRS VIÐSKIPTARAÐHERRA FULLYRÐIR: BÚVðRUR HÆKKA EKKI! I tilefni af þeim ummælum Björns Jónssonar, forseta ASI, að nýir samningar um kaup og kjör gætu oltið á þvi, hvort land- búnaðarvörur hækkuðu nú eins og fyrirhugað hefur verið eða ekki, spurði Alþýðublaðið Ólaf Jóhannesson, dóms- og við- skiptaráðherra, i gær: — Hefur rikisstjórnin tekið til athugunar, hvort hækkun verði eða ekki á landbúnaðarvörum?— Spurningunni svaraði ráð- herrann á þessa leið: ,,Það hef- ur rikisstjórnin þegar gert og tekið ákvörðun.” — Og leyfist þá að spyrja, hver ákvörðunin er?— ,,Já. Það verður engin hækk- un,” svaraði ráðherra. Geir Hallgrimsson sendi niu- manna samninganefnd Alþýðu- sambands tslands bréf i gær. Þar segir, að til þess að greiða fyrir samningum um kaup og kjör milli samtaka launafólks og vinnuveitenda og i trausti þess, að vinnufriður haldist, lýsi rikisstjórnin yfir: Að sú hækkun á helstu neyslu- vörum heimilanna, mjólk, smjöri og kindakjöti, sem til framkvæmda átti að koma um siðustu mánaðamót, komi ekki til framkvæmda á gildistíma þess kjarasamnings, sem nú er unnið að. Þá muni rikisstjórnin beita :sér fyrir þvi, aö aðilar vinnu- markaðarins fái aðild að endur- skoðun laga og reglugerða um ákvörðun búvöruverðs. JiUW HÆKKfl UM 7.400 KR. A MANUÐI „Þó að samningar hafi enn ekki verið undirritaðir, er augljóst, að samkomulag er í sjónmáli," sagði Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands Islands, þegar blaða- maður Alþýðublaðsins ræddi við hann um miðnætti í nótt á samningafundi í tollstöðvarhúsinu við Tryggvagötu. Andrúmsloftið á samningafundinum benti ótvírætt til þess, að samningar yrðu undirritaðir í nótt, þó að enn væru ýmis atriði enn óútkljáð, og Ijóst var, að ágrein- ingsatriði höfðu komið upp á siðustu stundu, sem töfðu fyrir því, að undirritun gæti farið fram. Björn Jónsson, forseti ASI, sagði í samtali við blaðið, að sú kauphækkun, sem verið væri að ræða um, næmi tæplega 16% miðað við sjötta taxta Dabsbrúnar, eða kr. 7.400,00 á mánuði, og væri gert ráð fyrir, að sú krónutala gengi í gegnum allt launakerfið. En ennfremur væri gert ráð fyrir, að kaup hækkaði 1. október um kr. 2.100,00 miðað við sjötta taxta Dagsbrúnar. Byssumaður særði lög- regluþjón Fulltrúar frá Fjórðungs- sambandi Norðlendinga, með Sigurö Gizurarson i broddi fylkingar, fengu heldur en ekki óvæntan gest með leigu- flugvél sinni þegar þeir flugu frá Þórshöfn til Húsavikur eftir að hafa setið fund um byggðamál þar eystra um siðustu mánaöamót. Gestur- inn var óður byssumaður, sem tekinn hafði verið um nóttina :aðfaranótt sunnudagsins 1. júnl fyrir skotárás á lögreglu- stöð staðarins sem reyndar var mannlaus þar eö lögreglu- þjónninn hafði hætt störfum .um mánaðamótin, — aðeins nokkrum klukkustundum áður en atburðurinn átti sér stað. Maðurinn var undir áhrifum áfengis, þegar hann kom með hlaðna haglabyssu að lög- reglustöðinni. Skaut hann upp hurðina, en i þeim svifum bar að tvo menn, og var annar þeirra einmitt fyrrverandi lög regluþjónn staðarins. Tókst þeim að handsama manninn, en fengu báðir högl i fæturna áður en þeir höfðu yfirbugað hann. En þýðingarmestu atriði þcirra samninga, sem voru I sjónmáli um miðnætti i nótt, auk þeirrar beinu kauphækkunar, sem áöur er nefnd, er það ákvæði, aö fari framfærsluvisitalan fram úr 477 stigum, munu laun hækka um sömu prósentutölu og verðiagið frá og með sama tima. Ennfrem- ur haföi yfirlýsing rikisstjórnar- innar þess efnis, að þær hækkanir búvöruverðs, sem áttu að koma til framkvæmda X. júni s.l., yrðu ekki að veruleika, afgerandi áhrif á, að skriöur komst á viðræður samningsaðila, og er yfirlýsingin að sögn fulltrúa i niu manna nefndinni afar þýðingarmikill þáttur þessara samninga. Samkvæmt upplýsingum Björns Jónssonar er sú ákvörðun, að búvöruverðshækkunin komi ekki tii framkvæmda metin sem svarar 1.200 milljónum króna á ársgrundvelli. 1 samtalinu við Alþýðublaðiö sagði Björn Jónsson ennfremur: „Það má tvimælalaust segja, aö það bráöabirgöasamkomulag, sem hér er að nást, er i grundvall- aratriðum byggt á sömu stefnu, sem Alþýðusamband islands mótaði strax i haust. Það er sýnilegt, að við erum hér að ná einum mikilvægum áfanga að þvf marki að vinna upp þá kaupmátt- arskerðingu, sem við settum okk- ur á ráðstefnu ASt 30. desember I vetur. Við munum stefna að þvi markiáfram, þvi að auðvitað hef- ur þvi enn ekki verið náð.” ,,En ég vil benda á,” sagöi Björn, ,,að hér er um að ræöa meiri beina kauphækkun en dæmi eru um I samningum mjög lengi. Ég heid, að sjaldan hafi hærri krónutöiuhækkun náðst fram i samningum i 20—30 ár.” Aðspuröur sagði Björn, að sú samstaöa, sem mynduð var innan Alþýðusambands islands i upp- hafi þeirrar kjarabaráttu, sem nú virðist hafa náðst áfangi I, hafi reynst félagslega afar sterk og fyrir hennar tilstiiii hafi nú mikii- vægur áfangi náðst — að þvi er virtist. Björn benti á, að þær úrsiita- kröfur, sem „baknefnd” og samninganefnd ASt hefðu sett fram, eftir að sáttanefnd hafði reifað hugmyndir sinar til lausn- ar deilunni, hafi hlotið þann hljómgrunn, sem gat ráðið úrslit- um um lausn deilunnar. Hvort- tveggja hefði verið viðurkennt: Krafan um, aö búvöruhækkunin kæmi ekki tii framkvæmda á samningstimabilinu og sömuleiö- is, að laun hækkuðu i sama mæli og verðlagið, færi það á annaö borð fram úr þeirri áætlun, sem lögð var til grundvallar við samn- ingsgerðina. A fundi „baknefndar”, sem haldinn var I gærkvöidi, áður en siðasta viðræðulota samninga- nefndar ASt og vinnuveitends hófst, rikti mikil bjartsýni um, af> samkomulag væri að takast, og á þeim fundi var samninganefnd- inni veitt umboð tii að ganga frá samningum á þeim grundvelli. sem þá lá fyrir. Á „baknefndarfundinum” var nlu manna samninganefnd ASl og þó sérstaklega Birni Jónssyni færðar sérstakar þakkir fyrir mjög góða frammistöðu I þeirri baráttu, sem hún hefur háð Meðal þeirra aðiia, sem slikt þakklæti létu I ljósi, voru fulltrúar verkamannafélaganna innan ASt og samtaka verslunarfólks. AHar Hkur bentu til þess I gær- kvöldi, að samningar myndu tak- ast i deilu verslunarmanna og Kjararáðs versiunarinnar sam- hiiða hinu almenna samkomulagi ASÍ og vinnuveitenda.— RÆSISMÁLID TIL SAKSÓKNARA! Seðlabankinn sendi I gær frá sér eftirfarandi fréttatil- kynningu: „A vegum Seðlabankans á grundvelli laga um verðtrygg- ingu f járskuldbindinga nr. 71/1966, hefur farið fram athug- un á lánskjörum, er fyrirtækið Ræsir hf., Reykjavlk, veitti kaupanda leigubifreiðar I nóv- ember 1973. Bifreiðin var keypt og flutt inn frá Vestur- Þýskalandi með sex mánaða greiðsiufresti að 8/10 kaup- verðs, skv. þeim reglum, sem giltu um kaup leigubifreiða. Kaupandi bifreiöarinnar gaf út skuldabréf til umboðsins I vest- ur-þýskum mörkum I formi endurláns til lengri tima og meö hærri fjárhæð en nam hinu er- lenda láni og var mismuninum varið, skv. samkomulagi aðila, til greiðslu aðflutningsgjalda af bifreiöinni. Hefur kaupandi sfðan sýnt veruleg vanskil og neitar jafn- framt að greiða skuldina á grundvelli skráningar vestur- þýska marksins. Forstjóri fyrirtækisins hefur lýst þvi yfir, að fyrirtækið hafi taliö sér heimilt að nota lán vcgna annarrar bifreiðar, sem kom samtimis til landsins á sömu lánsskjölum, en var greidd út I hönd. Það hefur nú endurreiknað skuldina út frá þeirri forsendu, að skuldbinding kaupanda bifreiðarinnar i vest- ur-þýskum mörkum hafi ekki numið hærri fjárhæð en fyrir- tækið bjó sjálft við gagnvart hinum erlenda lánveitanda vegna þeirrar bifreiðar sem um var að ræða. Hinn hluti skuidar- innar hafi þvf verið krónuskuld- binding frá upphafi eða frá þeim tlma, er hin erlenda skuldbind- ing var greidd, enda semjist um endurgreiðslu lánsins og vaxta- kjör af þvi. Seölabankinn telur nú mál þetta upplýst og hefur afhent niðurstöður sinar og gögn máls- ins saksóknara til athugunar, svo hann geti fellt sinn úrskurð um, hvort tilefni sé tii frekari rannsóknar eða annarra að- gerða af opinberri hálfu f mál- inu.” „Ræsir h.f. hefur viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða I sambandi við endurlán fyrir- tækisins á eriendum lánum og hefur jafnframt skuldbundiö sig til þess að endurreikna allar skuldir kaupenda leigubifreiða viö fyrirtækiö, með tilliti til þess, þannig að þar sem skulda- bréf þeirra eru hærri, eða til lengri tima en heimilt er, verði skekkjan leiðrétt og bifreiða- kaupcndurnir ekki látnir greiða skuldir sinar á grundvelli vest- ur-þýska marksins, umfram þau lánakjör sem fyrirtækið býr sjálft við og má endurlána,” sagði Björn Tryggvason, að- stoðarbankastjóri við Seðla- bankann i viðtali við Alþýðu- blaðið I gær, þegar blaðið hafði samband við hann vegna frétta- tilkynningar þeirrar, sem birt- ist hér að ofan. „Hjá seðlabankanum var ekki tekið fyrir nema eitt mál þess- arar tegundar,” sagði Björn ennfremur, ,,en það var að á- bendingu og bciðni saksóknara, sem vildi fá upplýst eitt mál til reynslu. Seðlabankanum ber skylda til að upplýsa mál af þessu tagi, en hann er ekki dóm- stóll og ákvöröun um það hvort frekari rannsókn fer fram og hvort mál veröur höfðað vegna þessa, veröur tekin hjá sak- sóknara, sem nú hefur öll gögn málsins I sinum höndum. Varðandi niöurstöður Seðla- bankans er það að segja, að lög um þetta efni er mögutegt að túlka á fleiri en einn veg og þvl veröur það látið saksóknara cftir að ákvarða hvort um lög- brot er að ræða hjá Ræsi h.f. Það er ljóst, að athugun þcss- ari aflokinni, aö framvegis verður strangara eftirlit með viðskiptum af þessu tagi. Til dæmis verður að krefjast þess, að skuldabréf séu skrásett og fylgjast með þvi I banka að svo sé. Scölabankinn hefur einnig haft samband við bifreiða- stjórafélagið Frama,” sagði Björn að lokum, „og boðið þeim aðstoð sína i sambandi við svip- uð mál. Það er eitt af skyldu- verkum okkar að hjáipa mönn- um við að sjá hvar þeir standa og leiöbeina þeim I þessum við- skiptamálum.”

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.