Alþýðublaðið - 13.06.1975, Page 2
KAUPMENN ÚTI A LANDIFÁ
NÚ AÐ SETJA ÁLAGNINGU
SÍNA OFAN Á „SANNAN-
LEGAN FLUTNINGSKOSTNAД
Góö aðsókn hefur verið að sýn-
ingunni List til lækninga i kjall-
ara Norræna hússins. I kvöld
verða þar sérstakir kynninga-fyr-
irlestrar. Thomas Bergman ljós-
myndari frá Sviþjóð talar um
börn á sjúkrahúsum og aðstöðu
fjölfatlaðra barna og kynnir sýn-
ingar sinar, — og Rafael Wardi
frá Finnlandi talar um list til
lækninga á geösjúkrahúsum, og
sýnir myndir. Fyrirlestrarnir
hefjast kl. 20:30 og er öllum
heimill aðgangur.
Siðasti fyrirlesturinn um List til
lækninga verður siðan á morgun,
laugardag kl. 14.00. Þá talar Lise.
Giödesen iðjuþjálfi frá Danmörku
um „Börn á sjúkrahúsum”. Hún
sýnir einnig kvikmynd um þetta
efni, sem vakið hefur athygli og
fengið góða dóma. Fyrirlesturinn
og kvikmyndasýningin verða i
samkomusal Norræna hússins og
er öllum heimill aðgangur.
Sýningin i kjallara Norræna
hússins verður opin frá kl. 14-22 i
dag, og frá 14-19 á morgun. Ekki
verður hægt að hafa sýninguna
opna lengur, þar sem erlendu
ráðstefnugestirnir halda utan
með sýningarmunina á sunnu-
dagsmorgun.
ÁREKSTUR
Allharður árekstur varð á mót-
um Elliðavogs og Suðurlands-
brautar. Bifreið, sem ekið var
suður Elliðavog sveigði inn að
Nesti, i veg fyrir bifreið, sem ekið
var norður Elliðavoginn. Þrennt'
var flutt á Slysavarðstofu, en um
veruleg meiðsli var ekki að ræða.
Bifreiðarnar tvær eru nokkuð
skemmdar.
V
„Þegar nýju áiagningar-
reglurnar voru auglýstar 30. april
sl. virðist hafa verið laumað inn
ákvæði sem heimilar kaupmönn-
um úti á landi að leggja flutnings-
kostnað á vöruverðið eftir að á-
lagning og söluskattur hafa verið
reiknuð á það, án þess að almenn-
ingi væri nokkuð tilkynnt um
það,” sagði Eyjólfur Jónsson,
verðlagseftirlitsmaður á Isafirði,
þegar fréttamaður Alþýðublaðs-
ins ræddi við hann i gær.
„Efnislega hljóðar ákvæðið
þannig, að kostnaðarverð vöru
skuli reiknað eins og hún kostar
komin i vörugeymslu verslunar-
innar. Ég hef nú gert útreikninga
á þvi hvernig þetta kemur út og
sent verðlagsyfirvöldum i
Reykjavik, ásamt athugasemd-
um, en ekkert svar fengið enn-
þá,” sagði Eyjólfur.
Þótt almenningur hafi ekki ver-
■/
ið látinn vita um þessar breyting-
ar á verðlagsákvæðum hafa upp-
lýsingar um þær komist rétta
boðleið til kaupmanna, vafalaust
fyrir tilstilli kaupmannasamtak-
anna og SIS, og að sögn Eyjólfs
hafa kaupmenn vestra ekki svik-
ist um að framfylgja þeim.
Sem dæmi um það hvernig
þessar nýju álagningareglur
koma út nefndi Eyjólfur, að sé
flutningskostnaður milli Reykja-
vikur og Isafjarðar kr. 11.30 á
hvert kiló, sem sé algengt, hækki
hann i kr. 17.24 miðað við 27,2%
álagningu, en geti farið allt upp i
kr. 18.82 sé miðað við hæstu leyfi-
legu álagningu á matvöru.
Hljóp fyrir bíl
og fótbrotnaði
Sex ára gamall drengur fót-
brotnaði i gær, þegar hann hljóp
út á götu i Hvassaleiti og lenti ut-
an i jeppabifreið, sem ók austur
Hvassaleitið. ökumaður jeppans
sá drenginn koma hiaupandi og
sveigði frá honum og bremsaði,
en drengurinn lenti á vinstra
framhjóli bílsins, með þeim af-
leiðingum sem fyrr greinir.
Drengurinn var fiuttur á Slysa-
varðstofu og siðan lagður á
Borgarsjúkrahúsið, en ekki var
talið að hann væri meiddur að
öðru leyti en að vera fótbrotinn.
ÚSAMKOMULAG INNAN LðGREGLULIÐS
KEFLAVlKUR LEIÐiR TIL UPPSAGNA
„Það er erfitt að meta og vega
stöðuna, og um niðurstöðu fer
allt eftir þvi, hvernig tekið
verður á málinu,” sagði Ingvi
Jakobsson, lögregluvarðstjóri i
Keflavik, er fréttamaður Al-
þýðublaðsins leitaði álits hjá
honum á „lögreglumálinu” i
Keflavik. „Ég get ekki tjáð mig
um annað en það, sem menn
hljóta að vera sammála um, að
það er ófært að missa úr starfi
þaulreynda menn, sem eru
viðurkenndir i starfi og hafa auk
þess umtalsverða menntun og
þjálfun umfram það, sem ai-
mennt gerist,” sagði Ingvi.
Nokkrar stöður lögreglu-
manna i Keflavik hafa verið
auglýstar til umsóknar. Er hér
jm að ræða stöður aðstoðaryfir
lögregluþjóns, varðstjóra og að-
stoðarvarðstjóra.
Orsaka þessarar auglýsingar
er að leita alllangt aftur i tim-
ann. Tildrögin eru i stuttu máli
þau, að þegar fjórar aðstoðar
varðstjórastöður voru auglýstar
i Keflavikurlögreglunni
snemma á árinu, taldi einn um-
sækjenda, sem ekki fékk stöðu,
að fram hjá sér væri ómaklega
gengið. Brást hann svo við, að á
viðbrögð hans var litið sem upp-
sögn án fyrirvara. Ekki reynd-
ist þó hugur hafa fylgt máli,
þegar til kastanna kom. Gekk
nú I nokkru þjarki um það, hvort
þessistarfsmaður væri, eða ætti
að vera, I lögregluliði ellegar
ekki. Skarst dómsmálaráðu-
neytið að lokum i leikinn og
gegndi maðurinn störfum
áfram i Grindavik, venjulegan
uppsagnartima, eða þrjá mán-
uði.
Þegar hann kom svo aftur til
starfa i Keflavik sögðu 7 lög-
reglumenn upp störfum, flestir
yfirmenn i lögregluliði Kefla-
vikur.
I Keflavikurlögreglúnni eru
nú 28 menn, og er þetta þvi eitt
fjölmennasta lögreglulið á land-
inu. Er hér sýnilega mikill
vandi á höndum, þar sem sýnt
þykir, að persónuleg sundur-
þykkja ráði ferðinni að miklu
leyti, en miklu varðar, að unnt
reynist að setja niður ágreining
þann, sem eins og horfir, kann
að valda alvarlegum hnekki i
iögregluliði Keflavikur.
Hafnarfjörður — Spónaplötur
Spónaplötur fyrirliggjandi — pressa 650
kg. Þykktir : 8 —10 — 12 —16 — 18 — 22 —
25mm,
IÐNVÉLAR
Hjallabraut 7, s. 52263
Hafnarfirði.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast I byggingu fbúða fyrir aldraöa við Furugerði
1, Reykjavik.
(Jtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3,
gegn 20.000.- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, föstudaginn 18. júli
1975, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fn'liirlcjuvegi 3 — Simi 25800
Umsóknir um sumarnámskeið
i Englandi á vegum SCANBRIT þyrftu að
berast sem allra fyrst. Upplýsingar hjá
Sölva Eysteinssyni i sima 14029.
Hátíðafundur í Haskólabio í tilefni
hins alþjoölega kvennaárs
Laugardaginn 14. júní kl. 14 verður setning Kvennaráðstefnunnar,
sem halda á að Hótel Loftleiðum dagana 20. og 21. júní n.k.
DAGSKRÁ HÁTÍÐ AFUNDAR:
1. Sigriður Thorlacius, formaður Kvenfélaga-
sambands íslands, setur fundinn.
2. Kammersveit Reykjavikur leikur.
3. Eva Kolstad, formaður kvennaársnefndar
Noregs, flytur ræðu.
4. ,,Ljóð Drífu” Geirlaug Þorvaldsdóttir les og
Jórunn Viðar leikur frumsamda tónumgerð.
5. Frumflutt verður samfelld dagskrá um
verkakonur á tslandi fyrr og nú.
Starfshópur úr islenskudeild Háskóla íslands
tók saman undir leiðsögn óskars Halldórs-
sonar, lektors.
Flytjendur eru:
Bríet Héðinsdóttir
Guðrún Alfreðsdóttir
Margrét Helga Jóhannsdóttir
Steinunn Jóhannesdóttir
ásamt Hjördisi Bergsdóttur, Kjartani
Ragnarssyni, Magnúsi Péturssyni og Normu
Samúelsdóttur.
Kynnir á fundinum verður Vigdis Finnbogadóttir, leikhússtjóri.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Samstarfsnefnd:
Kvenfélagasambands tslands, Menningar- og friðarsamtaka Islenskra kvenna,
Kvenréttindafélags isiands, Félags háskóiamenntaðra kvenna og
Rauðsokkahreyfingarinnar, Kvenstúdentafélags Islands.
0
Föstudagur 13. júní 1975