Alþýðublaðið - 13.06.1975, Qupperneq 3
SKÁLATÚNS-
HEIMILIÐ
VIRÐIST GOTT
TIL AHEITA
Fyrir nokkrum vikum færði
kona, sem ekki vildi láta nafns
sfns getið, Skálatúnsheimilinu að
gjöf 500 þúsund krónur, sem hún
kvað vera áheit á heimilið og
veikluðu börnin,sem þar eru vist-
uð.
Þetta kemur fram i fréttatil-
kynningu, sem stjörn Skálatúns-
heimilisins hefur nýlega sent frá
sér. Þar er öllu þvi fölki, .sem
veitt hafa heimilinu gjafir og
stuðning færðar hjartanlegar
þakkir fyrir fórnfýsi, hlýhug og
vinsemd i garð vistmanna Skála-
túnsheimilisins og stofnunarinnar
sjálfrar.
1 fréttatilkynningunni segir
ennfremur um önnur áheit og
gjafir, sem Skálatúnsheimilinu
hafa borist:
Frá ABf. 1.500 kr., frá m.b.
Bergþóri 20.000kr., frá Vini 1.000
kr. og frá G.N. 5.000 kr. Ennfrem-
ur hafa nýlega borist gjafir frá
þessum aðilum: Jón Runólfsson
5.000 kr., Elfa, Auður, Ingunn og
Magna 10.300 kr., Félagið Um-
hverfis jörðina 4.013 kr., Feðgar
100 kr. og Sigurður Hjalti Egg-
ertsson og frú 50.000 kr.
A sl. ári barst Skálatúnsheimil-
inu 100.000 kr. gjöf frá 12 ára telpu
i Bolungarvfk, Jóninu Elvu Guð-
mundsdóttur, 150.000 kr. frá
Rebekkustúkunni nr. 4, Sigriði
IOOF, og frá konum úr Styrktar-
félagi vangefinna 300.000 kr., en
bæði þessi kvennasamtök hafa á
umliðnum árum margsinnis fært
heimilinu höfðinglegar gjafir.
Einnig bárust þessar gjafir frá:
Guðriði og Kirby Green 100.000
kr., Guðm. Bjarnasyni og Mariu
5.000 kr., Db Vilhjálms frá Ská-
holti 20.243 kr., Umdæmisstúk-
unni nr. 1 20.000 kr., Barnaheim-
ilissjóði Helgu ólafsdóttur kr.
21.754, Vilborgu Björnsdóttur
50.000 kr., G.N. 1.000 kr., Elinu og
Lárusi 1.000 kr., Vini 1.000, Jón-
steini Jónssyni 18.337 kr., Hannesi
Gamalielssyni 5.000 kr., N.N.
1.000 kr., Db. Láru Kolbeins
18.000. kr., Arna Þorsteinssyni 500
kr., Gretti Eggertssyni 50.000 kr.,
Þórunni 500 kr. Barnaheimilis-
sjóði 1.900 kr., Skarphéðni öss-
urarsyni 52.500 kr., G.J. 1.538
kr., H.A. 4.060 kr.
NORRÆN Blí-
VÍSMDIRÆDD
A ISLANDI
llmurinn er máske ekki indæll
— en bragðið þeim mun betra
Ef tilhugsunin um ilminn af
rjúkandi heitri nýsoðinni siginni
grásleppu freistar einhvers,
eins og hún eflaust gerir, þá má
benda á þennan athafnasama
grásleppukarl (eins og sú
starfsgrein nefnist) Ólaf Gunn-
arsson, — sem sctt hafði upp
vagn sinn á mótum Grandaveg-
ar og Eiöisgranda, nánar tiltek-
ið við JL-húsið við enda Hring-
brautar i gærdag.
GAMLIR SLOKKVIUDS-
BlLAR f FARARBRODDI
FYRIR SKRÚDGdNGUNUM
574 manns munu taka þátt i
ráðstefnu norrænna búvisinda-
manna, sem haldin verður i
Reykjavlk dagana 1.—4. júli, en
undirbúningi hennar er nú að
mestu lokið.
Margir þátttakendanna frá hin-
um Norðurlöndunum taka fjöl-
skyldur sinar meðhingað til lands
og koma þaðan samtals 832
manns í tilefni ráðstefnunnar.
Ráðstefnan verður haldin i
húsakynnum Háskóla tslands.
Setning hennar verður i Háskóla-
biói 1. júli. Þar verða flutt tvö er-
indi, annað af dr. Birni Sigur-
bjömssyni, en hitt flytur prófes-
sor Kalle Maijala frá Finnlandi.
Samtals verða flutt um 150 erindi
á þessari ráðstefnu búvisinda-
manna.
TOLL-
FREK
SLYSA-
GILDRA
Allmikið var um árekstra og
önnur umferðaróhöpp I
Reykjavík i gær, þar á meðal
tveir all harðir árekstrar, en
um veruleg slys á mönnum
var ekki að ræða.
Mjög harður árekstur varð á
mótum Flókagötu og Gunn-
arsbrautar, siðdegis i gær, þar
scm saman lenti tveim fólks-
bifreiðum. Áreksturinn varð
með þeim hætti, að Toyota bif-
reið, sem ekið var suður
Gunnarsbraut, sinnti ekki bið-
skyldu við Flókagötuna og ók
þá inn i hliðina á Datsun bif-
reið, sem ekið var vestur
Flókagötu.
Þessi gatnamót hafa verið
ein versta slysagildra borgar-
innar, og þarna hafa iðulega
orðið stórslys, þ.á.m. bana-
slys. Er skammt siðan bið-
skyldumerki var sett upp.
ökumaður Datsun bifreið-
arinnar hlaut áverka á höfði
og handlegg og auk þess tíma-
bundið minnisleysi og öku-
maður Toyota bifreiðarinnar
fékk taugaáfall.
Báðar bifreiðarnar eru mik-
ið skemmdar eftir árekstur-
inn, einkum Datsun bifreiðin,
sem gæti reynst ónýt.
,,Á siðastliðnum vetri var gerð
könnun meðal fólks i sveitum
landsins, hvort áhugi væri fyrir
þvi að taka á móti dvalargestum
úr þéttbýli i sumar. Undirtektir
fram til þessa hafa verið mjög
dræmar, þvi aðeins tólf heimili
hafa gefið kost á að vera með i
sumar.” Þetta segir i nýútkomnu
fréttabréfi frá Upplýsingaþjón-
ustu landbúnaðarins.
Þar segir ennfremur: „Þótt illa
hafi tekist til með útvegun á gisti-
Ráðstefnunni verður slitið i Há-
skólabiói, föstudaginn 4. júli, en
þá mun Forseti Islands, dr. Krist-
ján Eldjárn, flytja lokaerindi ráð-
stefnunnar.
Norðurlandaráðstefnup af
þessu tagi eru haldnar fimmta
hvert ár og er á þeim gefið yfirlit
um það helsta sem gerst hefur á
sviði landbúnaðarrannsókna og
tilrauna.
Undirbúningur og skipulag ráð-
stefnunnar hefur að mestu hvilt á
stjórn Islandsdeilda NJF, en for-
maður hennar er Sveinn Hall-
grimsson, ráðunautur, en fram-
kvæmdastjóri ráðstefnunnar er
Agnar Guðnason, blaðafulltrúi.
Jóhanna Þráinsdóttir hjá Ferða-
skrifstofu rikisins hefur veg og
vanda af skipulagningu allra
feröa fyrir þátttakendur, móttöku
þeirra og gistingu hér á landi.—
Byggingafræð-
ingar á aðalfundi
Nýlega var haldinn aðalfundur
Byggingafræðingafélags tslands.
Leifur Blumenstein var endur-
kjörinn formaður félagsins.
Aðrir i stjórn Byggingafræð-
ingafélags Islands eru: Asmund-
ur Ólason, varaformaður, og
meðstjórnendur Magnús Ingi
Ingvason, Lúðvik Leðson, Sveinn
Þorvaldsson og Jón Kaldal.—
„Bryddað verður upp á ýmsum
nýjungum á þjóðhátiðardaginn
17. júni að þessu sinni. Meðal ann-
ars verður þjóðhátiðargestum i
Reykjavik boðið i siglingu með
bátum siglingaklúbbanna Siglu-
nes og Brokeyjar. Dagskráin i
Laugardalnum verður nú fjöl-
breyttari en áður og siðasten ekki
sist skal þess getið, að gamlir
slökkviliðsbilar munu aka i farar-
broddi fyrir skrúðgöngunum.”
Þetta kom fram hjá Má
Gunnarssyni, formanni þjóðhá-
tiðarnefndar Reykjavikur, á
blaðamannafundi, sem nefndin
aðstöðu i sveit að þessu sinni,
mun verða haldið áfram i þeirri
von, að fleiri heimili bætist við
fyrir næsta sumar.
Það fólk úr þéttbýli, sem hefur
áhuga á að dvelja I lengri eða
skemmri tima á sveitaheimilum I
sumar, getur fengið lista yfir þá
staði, sem bjóða upp á gistingu i
sumar, hjá Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins i Bændahöllinni i
Reykjavik.”—
hélt i gær.
Á fundinum var dagskrá þjóð-
hátíðarinnar kynnt og lögðu
nefndarmenn áherslu á, að há-
tiðarhöldin og dagskrá þeirra
myndu i engu raskast, þó að til
verkfalla kynni að koma. Bentu
þeir á, að öllum undirbúningi
þjóðhátiðarhaldanna hafi verið
lokið siðastliðinn mánudag.
Alþýðublaðið spurði Má, hvern-
ig ætlunin væri að leysa hreinsun-
arvandamálið hinn 18. júni', ef
verkfall skylli á, en oft hefur
viljað brenna við, að mikið rusl
safnaðist á götum borgarinnar 17.
júnf. Þvi svaraði Már: „Við höf-
um unnið að undirbúningnum eft-
ir þrem áætlunum, þannig er til
áætlun, sem gildir, ef til verkfalls
kemur. 1 þvf tilfelli mun svörtum
plastruslapokum verða dreift
meðal samkomugesta, og fólk
beðiö um að láta allt sitt rusl i
pokana. Við munum leggja allt
okkar traust á, að samkomugest-
ir sýni þessum málum mikinn
skilning og gangi snyrtilega um.”
Már kvað ekki hafa komið til
greina að nýta Vinnuskóla borg-
arinnar I þessu sambandi, enda
yrði um verkfallsbrot að ræða, ef
fólk á launum yrði sett i að
hreinsa til.
I aðalatriðum verður þjóðhátið-
in með svipuðu sniði og undanfar-
in ár.
Dagskráin hefst með þvf, að
Kirkjuklukkur i Reykjavik munu
hljóma saman, en kl. 10.00 leggur
Ólafur B. Thors, forseti borgar-
stjórnar, blómsveig frá Reykvik-
ingum á leiði Jóns Sigurðssonar i
Kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Skrúðgöngur verða þrjár i
Reykjavik, og verður safnast
saman við Melaskólann, á Mikla-
torgi og Hlemmtorgi, en endað á
Lækjartorgi. Skátar munu að
venju ganga fyrir skrúðgöngun-
um.
Barnaskemmtun verður á
Lækjartorgi, i Arbæ og Breið-
holti. Þá verða kvöldskemmtanir
við sex skóla og munu hljómsveit-
ir leika þar fyrir dansi til mið-
nættis. Að sögn Más, hefur það
gefist vel að dreifa hátiðahöldun-
um'um borgina, og er mun betri
bragur á öllum samkomum.
Þá hefur sú stefna, að hafa
samvinnu við hverfasamtök i
Breiðholti og Arbæ um hátiðahöld
þar, gefist mjög vel, enda um
barnmörg hverfi að ræða, og mun
auðveldara fyrir börnin að sækja
hátföahöld svo nærri heimilum
sinum. Reynslan af kvöld-
skemmtununum hefur oröið sú,
að þær eru nú meiri fjölskyldu-
samkomur en áður, þegar hátiða-
höldin voru i miðbænum.
1 þjóðhátiðarnefnd eiga sæti:
Már Gunnarsson, formaður, Kol-
beinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri, Hilmar Svavarsson, ritari,
Nina Hjaltadóttir, Böðvar Pét-
ursson og Jóel Jacobsson.
Eru borgarbúar orðnir
illa séðir í sveitum?
©
Föstudagur 13. júní 1975