Alþýðublaðið - 13.06.1975, Page 9
ÍÞItOTTIIt
Umsjon: Björn Biöntíal
ÍSLENSKA FRJÁLSÍÞRÓTTALANDSLIÐIÐ í PORTÚGAL
STEFNIR AÐ 7 ÍSLANDSMETUM
í EVRÓPUBIKARKEPPNINNI
„ERUM EINS OG RISAR MEÐAL ÞEIRRA INNFÆDDU” - SAGÐI
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN GUÐMUNDUR ÞÓRARINSSON í GÆR
„Það eru allir i miklu stuði hér,” sagði Guðmund-
ur Þórarinsson þjálfari islenska karlalandsliðsins i
frjálsum iþróttum, þegar við höfðum samband við
hann i Lissabon i gær. En á morgun og sunnudaginn
keppir liðið i Evrópubikarkeppni landsliða ásamt
Belgum, írum, Hollandi, Portúgölum, Spánverjum
og Svisslendingum.
„Við höfum verið að fara yfir
keppnisgreinarnar og teljum
okkur eiga möguleika á að setja 7
íslandsmet. Strákarnir eru allir
að komastí mjög góða þjálfun, en
það skyggir nokkuð á að óvist er
hvort Vilmundur Vilhjálmsson
getur keppt, því hann hefur ekki
enn náð sér að fullu eftir meiðslin,
sem hann hlaut heima í mai.
1 kastgreinunum gætu metin
komið I spjótkasti hjá óskari
Jakobssyni, i sleggjukasti hjá Er-
lendi Valdimarssyni og i
kúluvarpinu hjá Hreini Halldórs-
syni.
í hlaupunum bindum við vonir
við að þeim Sigfúsi Jónssyni,
Agústi Ásgeirssyni og Jóni
Diðrikssyni takist vel upp og eiga
þeir allir möguleika á metunum i
10.000 metra, 3000 metra
hindrunarhlaupi og i 1500 metra
hlaupinu. Gryfjan i hindrunar-
hlaupinu er að visu ekki góð, en
vonir standa til að búið verði að
laga hana fyrir keppnina. Þá má
ekki gleyma Stefáni Hallgrims-
syni sem keppir I 400 metra
grindahlaupinu, þar virðist hann
vera mjög liklegur til að bæta Is-
landsmet sitt.
Við búum hér á stórum Iþrótta-
skóla, þar sem nemendurnir eru
yfir 1000 talsins og er allur
aðbúnaður ágætur, maturinn
góður og þjónustan fyrir fyrir-
myndar. Það gerir okkur nokkuð
erfitt fyrir að þeir tala helst ekki
ensku hérna, bara portúgölsku og
þvi erfitt að gera sig skiljanlegan.
Fólkið hérna er mjög smávaxið
og erum við eins og hálfgerðir
risar hérna, þegar við göngum
um á meðal þeirra innfæddu.”
Þá sagði Guðmundur að lokum
að völlurinn þar sem keppnin færi
fram væri mjög góður og væru
allar keppnisbrautir með
gerviefninu „tartan” sem er
komið á alla meiriháttar iþrótta-
velli. Annað teldist ekki boðlegt
nú á dögum.
EVROPUKEPPNILANDSLIDA
Búlgarir náðu V-Þjóö-
verjum að stigum
Búlgararnir náðu
V-Þjóðverjum að stigum I 8.
riðli Evrópukeppni landsliða á
miðvikudagskvöldið, þegar þeir
unnu stórsigur á Möltubúum I
Soffiu 5-0.
Búlgararnir voru alltaf betra
liðið á vellinum og aldrei
spurning um, hver úrslit
leiksins yrðu, heldur hve mörg
mörk yrðu skoruð.
í fyrri hálfleik skoruðu
Búlgararnir þrivegis, fyrst
Dimitrov á 2. min. og síðan þeir
Denev og Panov meö tveggja
minútna millibili um miðjan
hálfleikinn.
í seinni hálfleik hægðu
búlgörsku leikmennirnir heldur
á ferðinni, en skoruðu þá samt
tvivegis, fyrst Boney úr viti og
siðan bætti Milanov fimmta
markinu við, svona til að hafa
markatöluna i samræmi við
gang leiksins.
Staöan I 8. riðlinum er nú
þessi:
Grikkkland
Búlgaria
V-Þýzkaland
Malta
5 2 2 1 11-8 6
4 12 1 10-6 4
3 1 2 0 4-3 4
4103 2-10 2
Guömundur Þórarinsson landsliösþjálfari, ásamt einum af landsliösmönnunum Erlend: Valdimars-
syni, sem keppa mun I kringlukasti og sleggjukasti. Aö sögn Guömundar telur hánn aö Erlendur eigi
talsveröa möguleika á aö setja met I sleggjukastinu.
Hreinn Halldórsson byrjaöi á þvl aö setja islandsmet á fyrsta móti
vorsins og kastaöi þá kúlunni 18.99 metra.
Tekst honum aö ná 19 metra markinu I Portúgal?
Styrkja bandarískir körfu-
knattleiksmenn félagsliðin
hér á nssta keppnistímabili?
,,A þingi körfuknattleikssam-
bandsins sem verður háð um
helgina, verður rætt um áhuga
tveggja Reykjavikurfélaga, um
að fá hingað bandariska körfu-
knattleiksmenn”, sagði Einar
Bollason formaður KKS i viðtali
við Alþýðublaðið i gær.
„Þarna veröur ekki um neina
atvinnumenn að ræða”, sagöi
Einar, „heldur eru þetta há-
skólastúdentar sem mætti kalla
skiptincma. Þeir myndu stunda
hér nám i Háskólanum og hug-
myndin er aö þeir aðstoðuöu viö
þjálfun yngri flokkanna hjá fé-
lögunum.
Nú um nokkurra ára skcið
hefur það færst mjög I vöxt að
bandariskir körfuknattleiks-
menn leiki með liðum i Evrópu
og hefur það gefið mjög góöa
raun. Bæöi hefur getan hjá
heimamönnum aukist gifur-
lega, samfara þvi aö nú er
körfuknattleikur leikinn fyrir
fullum húsum áhorfenda.
Ég get nefnt sem dæmi, aö I
Luxemborg byrjuðu þeir aö
nota Bandarikjamennina fyrir
tveim árum, en þá lék landsliö
þeirra hér og vann þá islenska
körfuknattleikslandsliðið stór-
sigur. Við erum nýkomnir frá V-
Þýskalandi þar sem viö lékum
við landsliö Luxemborgar og
þar hefur oröiö mikill munur á
frá þvi að það lék hér siðast og
hafa framfarirnar oröið hreint
ótrúlegar. Nú máttum viö
þakka fyrir aö vinna.
Það er lika hægt að nefna Svi-
þjóð, þeir voru lengi vel hræddir
við að sú ráðstöfun að leyfa
Bandarikjamönnum aö leika
meö félagsliöunum, myndi
draga verulega úr árangri
„Hefur gefið góða raun víða í Evrópu”
- segir Einar Bollason formaður
Körfuknattleikssambandsins
landsliösins. Þvi þeirra menn
fengju ekki þau tækifæri sem
skyldi meö félagsliöunum. En
þessi ótti hefur reynst ástæöu-
laus, þvi sænska landsliöið lék
einmitt I þessari sömu keppni i
V-Þýskalandi og tapaöi þar
fyrir pólska landsliöinu meö aö-
eins eins stigs mun, en Pólverj-
arnir eru meö citt sterkasta
landsliöiö I Evrópu.
Hugmyndin hjá félögunum
hérna er ekki að hefja neinn
stórinnflutning, heldur er hér
aöeins um einn eöa tvo leik-
menn aö ræöa. 1 dag er þetta aö-
eins hugmynd sem viö viljum
heyra álit aöildarfélaganna á,
og ef þetta mál fær jákvæöar
undirtektir sé ég ekkert til fyrir-
stööu aö af þessu geti oröiö”,
sagöi Einar að lokum.
Föstudagur Í3. júní 1975
O