Alþýðublaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 1
Ritst|órn Slðumúla II - Slmi 81866 OUIN INUL/nVjOLLIL/r\r\ IIMIN' alþýðu i p.Tl l Landbúnaðarmálin Þvi miður verða umræður um stjórnmál og efnahagsmál hér á landi ekki taldar vera á háu stigi. Ekki hvað sizt hefur þetta sannast i þeim umræðum um málefni islenzks landbúnaðar, sem átt hafa sér stað á undanförnum árum. Þegar sá, sem þetta ritar, minntist nokkrum sinnum á það i þingræðum og ritaði um það nokkrar greinar fyrir 10 — 15 árum, að stefna sú, sem fylgt væri i landbúnaðarmálum væri röng —hún væri einkum neytendum, en raunar einnig bændum, þegar til lengdar léti, óhagstæð —var ekki svarað með rökum, heldur fúkyrðum um fjandskap i garð bændastéttarinnar. Ýmsir töluðu þá t.d. um ranga stefnu i viðskipta- málum. Engum datt í hug að kenna þá gagnrýni við fjandskap i garð verzlunarstéttarinnar. Stefnan i málefnum iðnaðarins var umdeild. Þeim, sem vildu aðrar ráðstafanir en þær, sem gerðar voru, var ekki svarað með þvi, að þeir vildu iðnað á íslandi feigan. Það var einvörð- ungu, þegar málefni landbúnaðarins bar á góma, sem ýmist kjörnir eða sjálfskipaðir málsvarar hans komust algerlega úr vitsmuna- legu jafnvægi og svöruðu rökstuddri gagnrýni með upphrópunum, sem áttu ekkert skylt við málefnalegar rökræður. Auövitaö eiga Islendingar aö halda áfram aö stunda landbúnaö, eins og þeir hafa gert frá upphafi landsbyggöar. En þaö gildir ekki einu, hvernig landbúnaöur er stundaður, fremur en aörir atvinnu- greinar. Mergur málsins er, aö þvl er íslenzkan landbúnað snertir, að landbúnaöarframleiöslan er dýr og öþarflega fábreytt og að rikisvaldiö hefur á undanförnum áratugum stuölaö aö því, með rangri stefnu I styrkja- og fjárfestingarmálum landbúnaöarins, aö þetta vandamál hefur fariö vaxandi og aö nú er svo komiö, aö stefnan I þessum málum er orðin rlkissjóöi og þar meö Islenzkum skattgreiöendum algjörlega ofviöa. Hvaö á aö segja um þá forystumenn atvinnuvegasamtaka og þá stjórnmálamenn, sem viröast ekki gera sér grein fyrir þvl, aö þaö getur ekki gengið til lengdar aö greiöa um einn milljarö á ári af skattpeningum lands- manna I uppbætur á útfluttar landbúnaöarvörur, þ.e. aö láta Islenzka skattgreiöendur greiöa útlendingum um einn milljarð króna fyrir aö kaupa islenzkar landbúnaöarvörur og neyta þeirra? Hvaö á aö segja um þá forystumenn atvinnuvegasamtaka og þá stjórnmálamenn, sem sjá ekkert vandamál I þvl, aö framleiöslu- kostnaður innanlands á kindakjöti er um þaö bil 50% hærri en veröiö, sem fæst fyrir þaö kjöt, sem flutt er út, þ.e. útflutnings- veröiö er um 2/3 hlutar af innlendu kostnaðarveröi? Þeir hljóta einnig að vita, aö veröið, sem fengizt hefur fyrir útflutta osta, hefur ekki numiö þriöjungi innlends kostnaöarverös. Hvernig eru þeir menn geröir, sem sjá ekkert vandamál I þessum staö- reyndum? Hvernig er hægt að tala um „fjandskap viö bændur”, þegar bent er á nauösyn þess, aö breyta hér um til batnaöar? A þessu ári munu niöurgreiöslur á innlendum landbúnaöar- vörum liklega nema 5200 millj. kr. Þaö er rétt, sem lögö hefur verið áherzla á af málsvörum landbúnaðarins, að hér er ekki um styrk að ræöa til bænda, heldur hagstjórnartæki, sem ríkisvald hefur lengi beitt I misjafnlega rlkum mæli I baráttu sinni viö verð- bólgu. Hitt hlýtur þó forystumönnum hagsmunasamtaka bænda aö vera ljóst, aö bændastéttin nýtur með óbeinum hætti mjög góös af þessu kerfi, þar eö það eykur söluskilyröi, hennar innanlands og bætir samkeppnisaðstööu gagnvart erlendum matvælum. En einnig niðurgreiöslumálin eru komin út I algerar ógöngur. Niður- greiöslurnar eru á sumum vörum orönar allt aö helmingi raun- verulegs verös. A öðrum eru þær engar. Þetta brenglar allt verð- skyn neytandans og veldur misrétti innan bændastéttarinnar. Undir lok slöasta þings fluttu þingmenn Alþýöuflokksins tillögu um, aö kannaö y/öi, hvort ekki mætti hagnýta niðurgreiösluféð betur en nú á sér stað, bæöi I þágu neytenda og bænda, meö þvl að breyta niöurgreiöslunum I greiöslur til neytenda, sem þeir gætu slöan variö eftir vild sinni. Miöaö viö núverandi aöstæður ættu hjón með 3 börn aö geta fengiö um 100.000 kr. á ári, en yröu þá aö sjálfsögöu aö greiöa rétt verö fyrir þær landbúnaöarafuröir, sem þau keyptu. Þeir menn, sem ritaö hafa af mestri afturhaldssemi um málefni landbúnaöarins undanfariö, eru annars vegar formaður Stéttarsambands bænda, Gunnar Guðbjartsson, og hins vegar ritstjóri Tlmans, Þórarinn Þórarinsson. Afstaöa formanns- ins mun eflaust mótast af þvl, hvaö hann telur umbjóöendum sín- um, bændunum fyrir bestu. En er ekki kominn tlmi til þess fyrir ritstjórn Tímans að minnast þess, aö hann er þingmaður Reykvík- inga, sem eru fyrst og fremst neytendur? alþýðu mm SUNNUDAGSBLAÐ Skák í minningu Paul Petrovich Keres Fæddur 7. janúar 1916 í Narva, Eistlandi. Dáinn 5. júni 1975 i Helsinki, Finnlandi. Allir skákmenn sakna hans. Við, sem ekki þekktum hann per- sónulega getum minnst hans sem eins stórkostlegasta skákmanns, sem uppi hefur verið. Eftirmælin hér eru upprifjun á skákum hans við núverandi og fyrrverandi heimsmeistara. Hann hafði náð því að tefla við tiu heimsmeistara af þeim tólf sem krýndir hafa verið. Niu af þessum tlu tókst honum að sigra og suma oftar en einu sinni. Sá' eini, sem slapp án þess að tapa er núver- andi heimsmeistari, Karpoy, þeir geröu tvívegis jafntefli. Skákirn- ar nlu hér á eftir við menn, sem ýmist voru eöa áttu eftir að verða heimsmeistarar, eru verðugustu eftirmæli, sem nokkur skák- maöur getur fengið, Hvltt: Keres, svart: Aljekine. Spánskur leikur. Teflt I Margate 1937.1. e4, e5. 2. Rf3, Rc8. 3. Bb5, a6. 4. Ba4, d6. 5. c4, Bd7. 6. Rc3, g6. 7. d4, Bg7. 8. Be3, Rf6. 9. dxe5, dxe5. 10. Bc5! Rh5. 11. Rd5, Rf4. 12. Rxf4, exf4. 13. e5, g5? (Rxe5 var besti möguleikinn) 14. Dd5, Bf8. 15. Bxf8, Hxf8. 16. 0—0—0, De7. 17. Bxc6, Bxc6. 18. Dd3, Bd7. 19. Rxg5, 0—0—0. 20. Rf3, f6. 21. exf6, Hxf6? (Dxf6 hefði gefið mun meiri möguleika) 22. Hhel, Db4. (Svartur var I miklum erfiöleik- um, en nú kemur eitt af gullkorn- um Keresar) 23. Dxd7+ gefið. Hvitt: Euwe, svart: Keres. Drottningar indversk vörn. Ni- unda einvigisskák 1939—1940. 1. d4, Rf6. 2. c4, e6. 3. Rf3, b6. 4. g3, Bb7. 5. Bg2, Be7. 6. 0—0, 0—0. 7. Rc3, Re4. 8. Dc2, Rxc3. 9. Dc3, d6. 10. Dc2, f5. 11. Rel, Dc8. 12. e4, Rd7. 13. d5?, fxe4. 14. Dxe4, Rc5. 15. De2, Bf6. 16. Bh3, He8. 17. Be3, Dd8. 18. Bxc5, exd5. 19. Be6 + ?, Kh8. 20. Hdl, dxc5. 21. Rg2, d4. 22. f4, d3. 23. Hxd3, Dxd3. 24. Dxd3, Bd:4+. 25. Hf2, Hxe6. 26. Kfl, Hae8. 27. f5 He5. 28. f6, gxf6. 29. Hd2, Bc8. 30. Rf4, He3. 31. Dbl, H13+ 32. Kg2, Hxf4. 33. gxf4, Hg8+. 34. Kf3, Bg4+. 35. Gefið. Hvitt: Keres, svart: Capablanca. Frönsk vörn. A.V.R.O. Hollandi 1938. 1 e4, e6. 2. d4, d5. 3. Rd2, c5. 4. exd’5 , exd5. 5. Rgf3, Rc6. 6. Bb5, De7+. 7. Be2, cxd4. 8. 0—0. Dc7. 9. Rb3, Bd6. 10. Rbxd4, a6. 11. b3, Rge7. 12. Bb2, 0—0. 13. Rxc6, bxc6. 14. c4, Be6. 15. Dc2, dxc4. 16. Bxc4, Bxc4. 17. Dxc4, Hfb8. 18. h3, Hb5. 19. Hacl, Hc8. 20. Hfdl, Rg6. 21. Rd4, Hb6. (Ef Hd5, 22. Rxc6, Hxdl+. 23. Hxdl, Dxc6. 24. Hxd6). 22. Re6, Db8. 23. Rg5, Hb7. 24. Dg4, Bf4. 25. Hc4, Hb5? (Bxg5, var nauðsynlegt). 26. Rxf7, He8. 27. g3, Dc8? (Bxg3 var slöasti möguleikinn) 28. Hxf4, Dxg4. 29. Hxg4, Kxf7. 30. Hd7+, He7. 31. Hxe7+, Kxe7. 32. Bxg7, Ha5. 33. a4, Hc5. 34. Hb4. Ke6. 35. Kg2, h5. 36. Hc4, Hxc4. 37. bxc4, Kd6. 38. f4 og svartur gaf. Hvltt: Keres, svart Botvinnik. Frönsk vörn. Sovétmeistaramót- iö 1955. 1. e4, e6. 2. d4, d5. 3. Rd2, Nei/ ég vil ekki giftast þér Helgi, mátt koma í brúðkaupið mitt... en þú Rc6. 4. c3, e5. 5. exd5, Dxd5. 6. Rgf3, Bg4? 7. Bc4, Bxf3. 8. Db3, Ra5. 9. Da4+, Dd7. 10. Bxf7+, Kd8. 11. Dxd7, Kxd7. 12. Rxf3, exd4. 13. Rxd4, c5. 14. Rf3, Ke7. 15. Bd5, Rf6. 16. Bg5, h6. 17. Bxf6+ Kxf6 18.0-0-0 Bd6. 19. g3 Hhe8. 20. Rd2, Bf8. 21. Re4 + , Kf5. 22. f3, Hed8. 23. h4, Rc6. 24. h5, Be7 25. Hhel, Re5. 26. Rf2, g5. 27. hxg6 og svartur gaf. Hvltt: Keres, svart: Smyslov. Grundfeldsvörn. Heimsmeistara- keppnin 1948.1. c4, Rf6. 2. Rf3, c6. 3. Rc3, d5. 4. e3, g6. 5. d4, Bg7. 6. cxd5, Rxd5. 7. Bc4, 0—0. 8. 0—0, b6? 9. Db3, Rxc3. 10. bxc3, Ba6 11. Ba3, Bxc4. 12. Dxc4, He8. 13. e4, b5. 14. Db3, Rd7. 15. c4, Hb8? 16. Hadl, Da5. 17. c5, b4. 18. Bb2, e5. 19. Rg5, He7. 20. f4. exd4. 21. f5, Rxc5 22. Dh3, h5. 23. f6, Bh6. 24. fxe7 Bxg5. 25. Df3, f6. 26. Bxd4, Rd7. 27. h4. (Bxh4. 28. Df4-og ef 27. — Dh6, Dg3). Svartur gaf. Viö birtum ekki alla skákina við Tal, sem var tefld I „Kandidat- mótinu” 1959. Staðan var þessi á boröinu: Hvitt: Tal, svart: Keres: Hvitt: Kc8, De6, Rf5. Svart: Kh3, Df4, Re4, h4, g5. Svarturlék sinn 79.1eik Dg4 og Tal gaf. Hvltt: Keres, svart: Petrosian. Kóngsin dversk vörn. Sovét- meistaramótið 1949. 1 d4, Rf6. 2. Rf3, g6. 3. c4, Bg7. 4. Rc3, d6. 5. Bf4, Rh5. 6. Bg5, h6. 7. Be3, c6. 8. g3, Rd7. 9. Bg2, Rhf6. 10. h3, 0—0. 11. 0—0, Kh7. 12. g4, e5. 13. Db3, exd4. 14. Rxd4, Re5. 15. Hadl, De7. 16. BÍ4, h5. 17. g5, Rfd7. 18. Re4, Rb6. 19. Dg3, Rexc4. 20. b3, Re5. 21. Rxd6, Dxd6. 22. Rf5, Da3. 23. Rxg7, Red7. 24. Bd6, Da5. 25. Bxf8,Rxf8. 26. Re8, Be6. 27. Rf6+, Kh8. 28. Df4, Rh7. 29. Dd4, Rxf6. 30. Dxf6+, Kh7. 31. e4, Dxa2. 32. f4, Bxb3. 33. Hd6, Hg8. 34. f5, Hg7. 35. Hd8, Da5. 36. Dd6, f6, 37. Df8, gxf5. 38. Dh8+, Kg6. 39. Dh6+ og svartur gaf. Hvítt: Keres, svart: Spassky. Nimzoindversk vörn. „Kandidetakeppnin” 1965. 1. d4, Rf6. 2. c4, e6. 3. Rc3, Bb4. 4. e3, b6. 5. Bd3, Bb7. 6. Rf3, Re4. 7. 0—0, Bxc3. 8. bxc3Rc3Dc2, Bxf3. 10. gxf3, Dg5+, 11. Khl, Dh5. 12. Hgl, Dxf3+, 13. Hg2, f5. 14. Ba3, Re4. 15. Hfl, Hg8. 16. Be2, Dh3. 17. f3, Rf6.18. d5, Kf7. 19. e4, c5. 20. Bb2, ■f4. 21. e5, Rh5. 22. Kgl, g6. 23. Hg4, Hd8. 24. Bd3, Hg8. 25. Hf2 (25. —Rg7. 26. Bxg6+, hxg6. 27 Dxg6+, Ke7. 28. Df6+, Ke8. 29. Hxg7 og vinnur). Svartur gaf. Hvítt: R. Fischer, svart: Keres. Caro-Kann vörn. Kandidata- keppnin 1959. 1 e4, c6. 2. Rc3, d5. 3. Rf3, Bg4. 4. h3, Bxf3. 5. Dxf3, Rf6. 6. d3, e6. 7. g3, 'Db4. 8. Bd2, d4. 9. Rbl, Db6. 10. b3, a5. 11. a3, Be7. 12. Bg2, a4. 13. b4, Rbd7. 14. 0—0, c5. 15. Ha2, 0-0. 16. bxc5, Bxc5. 17. De2 e5. 18. f4, Hfc8. 19. h4, Hc6. 20. Bh3, Dc7. 21. fxe5, Rxe5. 22. Bf4, Bd6. 23. h5, Ha5. 24. h6, Rg6. 25. Df3, Hh5. 26. Bg4, Rxf4. 27. Bxh5, R4xh5. 28. g4, Bh2+. 29 Kg2, Rxg4. 30. Rd2, Re3+. Fischer gafst upp. Svavar Guöni Svavars son Sunnudagur 14. september 1975. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.