Alþýðublaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 3
FYRIRTÆKI ÖRUM VEXTI ,,Ég lifi og hrærist í fyrirtækinu. Það er og hefur verið númer eitt hjá mér,, að heimilinu slepptu." Þetta sagði Úlfar Guðjónsson, forstjóri f yrirtækjanna Úlfar Guðjónsson h/f, hús- gagnaf ramleiðsla, og Húsgagnahússins h/f, Auðbrekku 61, Kópa- vogi. Btaðamaður og Ijós- myndari Alþýðublaðsins brugðu sér i heimsókn til úlfars Guðjónssonar nú i vikunni. Happy-húsgagna samstæðan: Eftirsótt af ungu fólki ,,Ég stofnsetti fyrir- tækið Úlfar Guðjónsson h/f, húsgagnaf ram- leiðslu, árið 1967. Fyrir- tækið hóf starfsemi sína i leiguhúsnæði að Auð- brekku 63. Fyrir réttum fjórum árum, opnuðum við svo húsgagnaversl- un, samhliða húsgagna- f ramleiðslunni. Hús- gagnahúsið h/f, á þvi fjögurra ára afmæli um þessar mundir." ,,Það var árið 1974, að við fluttum svo í okkar eigið húsnæði að Auð- brekku 61. Húsnæðið er um 1800 fermetrar, á þremur hæðum. Versl- unin, skrifstofaog lager á neðstu hæð og hús- gagnaf ramleiðslan á hinum tveimur hæðun- um. " ,,Við seljum fyrst og fremst okkar eigin framleiðslu í Húsgagna- húsinu, en erum svo með til uppfyllingar þá hluti, er ekki eru framleiddir hjá okkur, en nauðsyn- legt er að hafa á boð- stólnum í slíkri versl- un. " ,, Við höf um einkaleyf i og f ramleiðsluréttindi frá norsku fyrirtæki, sem heitir Aavik Happý settið hefur verið framleitt hjá tflfari Guðjónssyni i tvö ár og nýtur mikilla vinsælda. industri og hefur okkar framleiðsla að mestu byggst upp á því. Frá þeim er meðal annars komið hið vinsæla Happy sófasett, sem við erum nú bráðum búnir að framleiða í tvö ár og hefur selst mjög vel, enda á viðráðanlegu verði og sniðið við hæfi ungs fólks." ,,Við flytjum stærstan hluta af hráefni okkar inn, i gegnum Aavik og njótum þeirra magnaf- sláttarkjara, er Aavik fyrirtækið aflar sér. Með þessu móti tekst okkur að fá hráefnið miklu ódýrara en ella. Stafar það af því mikla magni, sem Aavik pant- ar í einu. Til dæmis get ég nefnt, að panti þeir á- klæði, taka þeir aldrei minna en 50 km í lit, í einu!" Minnsta áklæðis pöntun hjá AAVIK: 50 kílómetrar ,,Við erum nú að hef ja framleiðslu á tveggja manna svefnsófum úr Happy húsgagnasam- stæðum, en höfum áður verið með eins manns svefnsófa, sem hafa notið mikilla vinsælda." Olfar Guðjónsson, forstjóri. ,,Hjá fyrirtækinu eru nú á launaskrá tuttugu manns, að meðtalinni 1 manneskju í verslun- inni. Það má geta þess, svona til gamans, að hjá norska fyrirtækinu Aavik, eru 80 starfs- menn og Norðmenn eru um 5 milljónir talsins, svo getur hver reiknað fyrir sig." Blaðamaður spurði Úlfar að lokum nokk- urra persónulegra spurninga. Aron sófasettið hefur verið framleitt i eitt ár hjá fyrirtækinu, og hefur selst mjög vel. ,,Ég er fæddur í Vest- mannaeyjum, í austan- átt og hafgolu. Ég kom svo uppá land árið 1948. Þá stundaði ég sjó- mennsku, aðallega á varðskipunum og milli- landaskipum." Vinnan og fyrirtækið er helsta tómstundaiðjan ,,Eiginkona mín heitir Jónína Jóhannsdóttir og við eigum 4 börn. Þegar við kynntumst, neitaði hún algerlega að búa með sjómanni. Ég varð því að velja, dreif mig í land og fór að læra hús- gagnabólstrun. Annars stóð hugurinn alltaf til sjómennskunnar, en ég er sem betur f er laus við þá bakteríu." ,,Það má segja að ég sé samt sem áður orðinn skipstjóri, þó það sé ekki á sjónum og brúin sem ég stend í sé ekki á sama stað og á skipi." ,,Tómstundirnar eru ekki margar og ég held ég geti sagt að aðal- hobbýið sé fyrirtækið. Ég geri mikið af því að sitja á skrifstofunni að afloknum vinnudegi og stúdera hlutina. Þá er ró og næði og enginn til að trufla mann." ,,Annars hef ég gert dálítið af því að veiða lax, en varla svo mikið að það geti kallast tóm- stundagaman," sagði Úlfar Guðjónsson að lokum. Atvinnulífskynning Alþýðublaðsinsi Úlfar Guðjónsson hf. og Húsgagnahúsið hf.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.