Alþýðublaðið - 18.09.1975, Page 1
181. TBL. - 1975 - 56. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER
Ritstjórn Siöumúla II - Slmi 81866
Stefnuljós: Siguður
E. Guðmundsson
skrifar um nýtt
Grjótaþorp
LAUNÞEGASIÐA
í opnu blaðsms
1 Leiðbeiningar um get-
I raunir á íþróttasíðu
Samvinnuútgerð Islendinga og Belga:
Málið var rætt
við ráðherrann
Fiskkaupmenn i Ostende i
Belgiu hafa mikinn hug á að
stofna til samvinnu við islenska
aðila i þeim tilgangi að flytja
isfisk á markað i Ostende. Belgiu-
menn óttast mjög fiskskort þar
sem Þýskalandsmarkaðurinn er
lokaður Islendingum og þvi er
þeim i mun að tryggja sér fisk
beint af íslandsmiðum.
Dagblaðið Visir hefur skýrt frá
þvi að búið sé að stofna hluta-
félagið Faxa hf og muni það
kaupa nokkra báta hérlendis fyrir
15 MILLJONA
KRAFA VAR
DREGIN
TIL BAKA
Krafa um nauðungaruppboð
á kröfu kom til kasta uppboðs-
haldarans i Hafnarfirði fyrir
skemmstu, hversu ótrúlega
sem það kann nú að hljóða.
Auglýst var nauðungaruppboð
á kröfu Eldeyjar hf á hendur
Stálvik hf, en daginn sem upp-
boðið átti að fara fram var
krafan dregin til baka.
í júni 1968 afhenti Skipa-
smiðastöðin Stálvik vélbátinn
Eldey samnefndu hlutafélagi
sem þá starfaði i Keflavik. 1
október sama ár rakst skutur
bátsins á fjöruborðið i höfninni
i Keflavik vegna þess að
skiptiskrúfa lét ekki að stjórn.
Skipið var þá enn i ábyrgð og
við rannsókn kom i ljós að
óhreinindi voru i oliusium er
stjórna dælum skiptiskrúfunn-
ar. Skipt var um dælur á
kostnað Stálvikur og var það
hald skipasmiðastöðvarinnar
að málið væri þar með úr sög-
unni.
Fjórum árum siðar, eða i
október 1972 stefnir Eldey hf
Stálvik og krefst 14,7 milljónir
króna skaðabóta vegna
fyrrgreinds atvik . Um 9
millj. af upphæðinni voru
sagðar vegna aflatj. sem bát-
urinn hefði orðið fyrir vegna
ýmissa tafa sem orðið hefðu
frá veiðum. Engin greinar-
gerð fylgdi þó stefnunni og féll
þvi málið niður um sinn.
1 fyrra var siðan stefnt á
nýjan leik og þá fylgdu gögn
og greinargerð, en dómur hef-
ur ekki fallið i málinu. Bátur-
inn er fyrir löngu seldur og
annað fyrirtæki i Keflavik hef-
ur yfirtekið skuldbindingar
Eldeyjar.
Ekki mun það þó hafa tekið
á sig allar skuldir Eldeyjar,
þvi Arni Grétar Finnsson hrí
krafðist nauðungaruppboðs á
fyrrgreindri kröfu og mun
hafa gert fjárnám i henni fyrir
hönd skjólstæðinga sinna. Sem
fyrr segir var krafan um
nauðungaruppboð á kröfunni
dregin til baka á uppboðsdag-
inn.
Hafsteinn Baldvinsson hrl
er verjandi Stálvikur og
sagðist hann krefjast algjörr-
ar sýknunar af þessari kröfu.
belgiskt fjármagn, en eigendur og
áhafnir verða af islensku þjóð-
erni. bessir bátar eigi siðan að
selja aflann með reglubundnu
millibili i Belgiu.
Matthias Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra sagði i samtali við
Alþýðublaðið i gærkvöldi, að það
væri i sjálfu sér gleðiefni ef tækist
að vinna markað fyrir isfisk i
Belgiu. Fyrir nokkru gekk
viðræðunefnd Islendinga og
Belga'á fund ráðherra og ræddi
þessi mál við hann, en Matthias
kvaðst ekkert hafa frétt um málið
siðan. Að sjálfsögðu þyrfti leyfi
stjórnvalda til að taka erlent lán,
ef ætlunin væri sú, að Belgar
fjármögnuðu kaup á fiskiskipum,
sem gerð yrðu út frá íslandi.
Þá tók sjávarútvegsráðherra
fram, að leyfi alþingis þyrfti til,
ef erlend veiðiskip ætluðu að fá að
fiska hér i landhelgi og breytti
þar engu um þótt áhafnir væru
islenskar og skipin skráð hérlend-
is.
Vilhjálmur Ingvarsson
framkvæmdastjóri Isbjarnarins
sagði i viðtali við blaðið, að hann
vissi ekki til að neitt félag hefði
verið stofnað i þessum tilgangi og
sér vitanlega hefðu engar
ákvarðanir verið teknar i málinu.
Hinu væri ekki að leyna, að
Belgiumenn hefðu sýnt þessu
máli mikinn áhuga og það runnið
undan rótum þeirra. Vilhjálmur
neitaði þvi hins vegar ekki að
hann hefði tekið þátt i viðræðum
um þessa hlutafélagsstofnun.
Ingvar Vilhjálmsson forstjóri
tsbjarnarins sagðist aftur á móti
ekki eiga neina aðilda að málinu
og hann hefði litla trú á að úr
þessum áformum yrði.
Samkvæmt heimildum sem
blaðið hefur aflað sér, fara nú
fram athuganir á þvi i Belgiu
hvort unnt sé að fá þar f jármagn
að láni til kaupa á fiskiskipum til
handa fyrirhuguðu hlutafélagi. Ef
mistekst að fá lánsfé þar eru litl-
ar sem engar likur taldar á að
málið nái fram að ganga.
VATNIFULU...
,,í vatni fúlu viska býr
þá vitund enginn busi flýr.”
Þannig hljómuðu slagorðin
yfir aumingja busunum i
Menntaskólanum við Tjörnina i
gærdag, þegar þeir við „hátið-
lega” og „virðulega” athöfn
voru vigðir, sem fullgildir
menntaskólanemar inn i MT.
Allir urðu að taka vigslu,
hvort sem þeim likaði betur eða
verr. Fyrst var busunum smal-
að úr langferðabifreið inn i horn
áporti gamla Miðbæjarskólans,
þar sem MT er nú til húsa. Siðan
ók vatnsbill i hlaðið, við miRil
fagnaðarlæti og lúðrablástur, og
bleytti vel og vendilega upp i
busunum, svona til að kynna
þeim það sem i vændum var.
Siðan hófst sjálf vígslan. Hver
einstakur busi var tekinn
traustataki, ýmist borinn eða
dreginn að stórri tunnu, sem i
var ómengað Tjarnarvatn og
þar var honum dýft ofan i, á
bólakaf. Er allir höfðu tekið
vigslu, þrömmuðu busar, sem
eldri nemendur i friðri fylkingu
tjarnarhringinn til að innsigla
þá einingu, sem rikja mun innan
skólans i vetur.
I gærkvöldi innsigluðu nem-
endur siðan enn frekar einingu
sina, er haldinn var fjörugur
dansleikur i Sigtúni.
FÖRUM VIÐ
AÐ FLYTJA
INN TYRKI
ÓÞRIFALEG-
USTU STÖRF?
„Sannleikurinn er sá, að áður
en langt um liður munu íslend-
ingar einfaldlega ekki fást til að
vinna störf verkamanna og
verkakvenna vegna þess hve illa
þau eru launuð. Það er örugglega
stutt i það, að nauðsynlegt reynist
að flytja inn Tyrki eða eitthvert
annað erlent vinnuafl hingað til
lands. Þetta munu menn vafalitiö
sjá jafnskjótt og atvinnulff lands-
manna kemst í eðlilegt horf og
grósku fer að gæta i þvi á ný”,
sagöi Guðmundur J. Guðmunds-
son, varaformaður Dagsbrúnar, i
viðtali við launþegasiðu Alþýðu-
blaösins.
„Félagsmenn Dagsbrúnar eru
nú 3.500—4.000 talsins. Það er
staðreynd, að verkamönnum og
verkakonum fjölgar ekki, þó ekki
verði séð, að mikilvægi starfa
þessa fólks hafi minnkað.
Á þessu eru ýmsar skýringar.
Alkunna er, að unglingum er hót-
að þvi, ef þeir sýna ekki áhuga á
skólanáminu, að þeir verði sendir
ifisk eða á eyrina. I augum sums
ungs fólks verða þvi störf verka-
manna og verkakvenna sambæri-
leg við einhverja ægilega refs-
ingu.
Menn segja, að eðlilegt sé, að
verkamönnum og verkakonum
fækki sökum aukinnar tæknivæð-
ingar. Þetta er að sumu leyti rétt,
en að öðru leyti allsendis rangt.
Sjáum hvað gerist annars stað-
ar. Þrátt fyrir nýja tækni og si-
fellt fleiri tölvur, fjölgar starfs-
fólki i bönkum, skrifstofum og
hvers konar þjónustustörfum”,
sagði Guðmundur ennfremur i
samtalinu við launþegasiðuna.
Eins og annars staðar kemur
fram hér á siðunni voru stofnfé-
lagar Dagsbrúnar 384. Þá voru i-
búar Reykjavikur lOsinnum færri
en nú, eða tæplega 8.800.
Björgvin Guðmundsson um Ármannsfellsmálið
Flyt tillögu um málið á
næsta borgarráðsfundi
— Ég hef undirbúið tillögu
varðandi Ármannsfellsmálið,
sem ég mun flytja á næsta fundi
borgarráðs, sagði Björgvin
Guðmundsson, borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins, i viðtali við
Alþýðublaðið i gær. Björgvin hef-
ur verið erlendis og þvi ekki getað
sótt siðustu fundi borgarráðs, en
hann á þar sæti meö málfrelsi og
tillögurétti.
— Ég mun leggja þessa tillögu
fram á næsta fundi ráðsins, sem
verður annað hvort á föstudaginn
næstkomandi, eða n.k. þriðjudag,
sagði Björgvin.
1 Morgunblaðinu var nýlega
vest að Björgvin Guðmundssyni
og sagt, að hann hafi lagt til i
borgarráði, að lóð yrði veitt
ákveðnu byggingarfyrirtæki i
borginni án þess að sú lóð hefði
verið auglýst áður.
— Sú lóð, sem hér um ræðir, er
lóð sú við Hagamel, sem siðar var
veitt BYGGUNG, Bygginarsam-
vinnufélagi ungra Sjálfstæðis-
manna, sagði Björgvin. Ég lagði
til, að lóðin yrði veitt Byggingar-
samvinnufélagi stjórnarráðsins.
Ég fæ hins vegar ekki séð, að
hægt sé að leggja að jöfnu þá til-
lögu mina og ráðstöfun borgar-
stjórnarmeirihlutans á lóðinni til
Armannsfells án auglýsingar.
Annars vegar er um aö ræða
einkafyrirtæki — Ármannsfeil —
sem byggir og selur væntanlega
til þess að skapa sér ágóða. Hins
vegar er byggingasamvinnu-
félag, sem tekur að sér að byggja
fyrir félagsmenn sina og selur
ibúðirnar á kostnaöarverði án
álagningar og án ágóðasjónar-
miða.