Alþýðublaðið - 18.09.1975, Side 4
Kommúnistar tefja stjórn
armyndunina í Portúgal
José Pinheiro de Azevedo, sem
Costa Gomes hefur falið stjórnar-
myndun i Portúgal, lét þess getið
i gær að nokkurt hlé yrði á frekari
viðræðum. Um tima leit út fyrir
að samstaða næöist milli Jafnað-
armanna, Miðdemókrata og
Kommúnista um myndun stjórn-
ar auk fulltrúa úr hernum. Eftir
að deilur höfðu komið upp milli
Miðdemókrata og Kommúnista
um skiptingu ráðherrasæta varð
það að samkomulagi milli flokk-
anna, að unnið yrði að myndun
þjóðstjórnar en ekki samsteypu-
stjórnar eins og upphaflega var
ætlað. Með þessu var átt við að
ráðherrarnir, sem tækju sæti i
stjórninni yrðu ekki þar i umboði
flokkanna heldur sem einstakl-
ingar. Þrátt fyrir þessa breytingu
bar allt að sama brunni þegar
velja átti ráðherrana. Miðdemó-
kratar hafa lagt á það megin-
José Pinheiro de Azevedo
áherslu að fjöldi ráðherra verði
miðaður við úrslit þingkosning-
anna frá þvi i sumar. Jafnaðar-
menn hafa stutt Miðdemókrata i
þessu máli.
Ljóst virðist nú að Kommúnist-
ar hafa tekið nýja stefnu i málinu,
enda munu þeir telja aðstöðu sina
hafa versnað mjög i seinni tið.
Einnig munu þeir svartsýnir um
fylgi i fyrirhuguðum kosningum,
en i ráði var að stjórnin sæti þar
til kosningar færu fram, ef til vill
strax i haust.
Þá.er einnig ljóst að kommún-
istar vinna nú að þvi að endur-
skipuleggja starfsemi sina og má
þvi segja að ástandið sé mjög al-
varlegt.
Ef Kommúnistar hlaupa þannig
undan merkjum og neita að
mynda þessa stjórn, er ljóst að
borgarastyrjöld getur blossað
upp fyrr en varir. Ef svo færi má
vera að þjóðin sitji uppi með nýja
fasistastjórn, eins og Chile.
Frakk-
lands
forseti
heimsækir
Grikkland
Forseti Frakklands, Valery
Giscard d'Estaing, fór i opin-
bera heimsókn til Grikklands i
gær þar sem hann mun ræða
við forsætisráðherra landsins,
Constantine Karamanlis, sem
sjálfur dvaldist i Paris meðan
hann var i útlegö frá landi
sinu. Giscard og Karamanlis
eru sagðir m jög nánir vinir, en
Frakkar hafa heitið Grikkjum
stuðning bæði varðandi sölu á
vopnum, stuöning við inn-
göngu Grikklands i Efnahags-
bandalagið og i átökunum
milli Grikkja og Tyrkja á
Kýpur.
Mikill viðbúnaður var i
Aþenu við komu forsetans og
er talið að þessi heimsókn
verði til þess að treysta mjög
samskipti Frakkíands og
Grikklands.
,Verjum
gggróðurj
verndum
land
Er kalda stríðið
byrjað að nýju?
Breska dagblaðið Guardian
segir á forsiðu i gær að það sé
sameiginlegt álit utanrikisráð-
herra Bretlands, Bandarikjanna,
Frakklands og Vestur- Þýska-
lands, að Sovétrikin hefðu hafið
Kalda striðiðá ný, ekki aðeins að
þvi er við kemur Portúgal, heldur
einnig i með þvi að reyna að ná
stjórnmálalegum undirtökum i
þrem öðrum löndum Vestur
Evrópu, sem ekki eru tilgreind.
Þá segir einnig i fréttinni að það
sé skoðun ráðherranna, að þrátt
fyrir Helsinkiráðstefnuna fari
það ekki á milli mála að Sovétrik-
in og lönd Varsjárbandalagsins
leggi sig fram við að hafa áhrif á
stjórnmálaþróun i Vestur
Evrópu.
I fréttaskeyti Reuters frá
London i gærdag er greint frá þvi
að James Callaghan utanrikis-
ráðherra hafi visað á bug þessari
frétt og talið hana túlka ranglega
skoðanir utanrikisráðherranna
frá fundi þeim er þeir áttu i New
York fyrr i þessum mánuði.
Nunna og prestur
fyrir rétt á Italíu
Færeyjar og Grænland
□
Nýlendur eða landss
Á síðustu árum og ára-
tugum hafa fleiri
nýlendur og landssvæði
hlotið sjálfstæði en á
nokkru öðru tímabili í
sögunni. I gömlum
kennslubókum, sem
sumar hverjr eru
notaðar enn, má glöggt
greina þá miklu reisn,
sem einstakar þjóðir
hlutu fyrir það að eiga
miklar og auðugar
nýlendur víða um heim.
Veldi Stóra-Bretlands, allt
fram á þessa öld, lá fyrst og
fremst i auðlegð nýlendnanna
og yfirráðum þeirra yfir fjöl-
mennum landssvæðum i öllum
heimsálfum. Enda þótt saga
Breta, sem nýlenduveldis sé
ekki öll umleikin dýrðarljóma
verður þó að viðurkenna að
afskipti þeirra af nýlendunum
hafa viða verið til fyrirmyndar.
Á það að sjálfsögðu fyrst og
fremst við þá hlið málsins er
lýtur að þvi, að veita nýlendun-
um sjálfstæði.Rétt er að hafa i
huga að nýlendustefnan var á
sinum tima viðurkennd, ekki
aðeins réttlætanleg heldur
sjálfsögð.Nýlendubúar sáu hag i
viðskiptum við nýlenduveldin
og gerðu sér i upphafi ekki grein
fyrir þvi að þeir voru arðrændir.
Á hinn bóginn má einnig lita svo
á að nýlenduveldin hafi
menntað nýlendubúa til skiln-
ings á arðráninu.
Þetta leiðir hugann að þvi
hversu miklu það skiptir að
1 dag hefjast i Róm réttarhöld
yfir fyrrverandi nunnu, sem
ákærð hefur verið fyrir svindl og
fjárkúgunarstarfsemi i formi
betls. Talið er að hún hafi með
ýmsu móti náð nokkrum hundr-
uðum milljóna lira af fólki. Þessi
fyrrverandi nunna hafði áður
verið rekin úr klaustri i Frakk-
landi, þar sem hún hafði neytt hóp
20 stúlkna og unglinga til þess að
flakka betlandi um, sofa úti á
torgum, járnbrautastöðvumog á
viðavangi. Hafði nunnan, Elisa-
betta Ravasio, með þessum hætti
safnað offjár.
UNGMEYJ-
ARNAR
LOKAOAR
Við réttarhöldin i dag er einnig
ákærður kaþólskur prestur, sem
neyddi nunnuna til þess að greiða
sér 10 milljón lirur fyrir að koma
ekki upp um framferði hennar.
frumstæðar þjóðir geti veitt
þegnum sinum almenna
alþýðumenntun. Að vissu leyti
má segja að nýlendustefnan
hafi hvergi orðið jafn langlif
sem i þeim nýlendum þar sem
fáfræðin var hvað almennust.En
um leið og nýlenduveldin voru
farin að mennta verðandi yfir-
stétt þessara landa opnuðu þau
um leið dyrnar að sjálfstæöi
þeirra.
Þegar rætt er um vöxt og
þróun þeirra þjóða, sem nú eru
að fá sjálfstæði eða hafa fengið
það nýlega, er sú skoðun nokkuð
almennt rikjandi að sjálfs-
stjórn þjóðar sé mesta og sterk-
asta driffjöðrin.Þjóð sem lýtur
stjórn fjarlægs lands þar sem
hugsun og hættir eru oft á tiðum
mjög ólikir, hlýtur óhjákvæmi-
lega að fara á mis við þann
dinamiska kraft, sem af sjálfs-
stjórninni leiðir. Tengslin milli
stjórnenda og fólksins geta þvi
einungis orðið virk ef báðir
aðilar lifa og hrærast i sama
heimi, ef svo má að orði komast.
En nú er öld nýlenduveldanna
úti og dagur frelsis i nánd, eða
er þetta ekki einmitt orðalag
sem við Islendingar hefðum
getað notað eftir að rofa tók i
sjálfstæðismálinu. Ekki er ólik-
legt að svo sé. En hvað getur
fyrrverandi nýlenda eins og
tslendingar lagt af mörkum i
umræðum um sjálfs-
ákvörðunarrétt þjóða? Eða
vorum við ef til vill ekki
nýlenda, heldur aðeins hluti af
Danaveldi. Ef sú væri raunin,
væri einnig athyglisvert að gera
sér grein fyrir mismun þess, að
vera nýlenda og þvi að vera
sérstök þjóð undir stjórn
annarrar, fjarlægrar þjóðar.
Það var einmitt i þessu máli,
sem siðasta stóra nýlenduveldi
heimsins, Portúgal, hafði
ákveðna skoðun. Samkvæmt
lögum og stjórnarskrá
Portúgals voru nýlendur þeirra
ekki nýlendur heldur lands-
Átök í b
vegna v
Létu eyðileggja sannanir
_ . .... 1 . i - l_ • i: „ K Tjn T TT' A Koco r
Talsmenn bandarisku airikis
lögreglunnar FBI neituðu i dag að
gefa nokkra yfirlýsingu um frétt
The N.Y. Times þess efnis að
æðstu foringjar FBI hafi skipað
svo fyrir að eyðilagður skyldi
miði sem skrifaður var af morð-
ingja John F. Kennedys,Lee Har-
vey Osvald. 1 frétt blaðsins segir
að þáverandi yfirmaður FBI Ed-
gar J. Hoover hafi verið einn
þeirra sem þessa ákvörðun tóku.
I frétt blaðsins segir að FBI
hafi fengið miðann, þar sem Os-
vald hótaði að myrða forsetann^-i
hendur 10 dögum áður en morðið
var framið i Dallas þ. 22. nóv.
1963.
Einnig er þess getið að þegar
Warren nefndin yfirheyrði Hoov-
er og starfsmann hans Hosty þá
sóru báðir að viðlögðum eiði að
þeir hefðu enga ástæðu til að ætla
að Osvald væri sekur um ofbeldi.
Engu að siður úrskurðaði nefndin
Osvald sekan um morðiðá Kenn-
edy.
Olli dauða 25 manna
Um þessar mundir stendur yfir
i Bæheimi i Vestur Þýskalandi
meiriháttar heræfing. Heræfingin
stendur yfir i námunda við þorpið
Bogen, sem telur um 400 ibúa.
Nokkru áður en hermennirnir
komu á vettvang héldu þorpsbúar
iund og var þá samþykkt að ung-
meyjar þorpsins skyldu allar
halda sig innan dyra. Frétta-
maður sem var þarna á ferð lét i
ljós furðu sina á þvi að sjá engar
stúlkur á götunum og er hann
spurði hvað þær hefðust að var
honum sagt að þær prjónuðu.
Hvirfilvindurinn Eloise stefnir
nú frá Puerto Rico eftir að hafa
valdið dauða 25 manna og tug-
milljóna tjóni á mann-
virkjum. Um 5000 manns hafa
misst heimili sin i hvirfilbylnum
sem er sá fimmti á þessu regn-
timabili. Veðurstoiur i Venesuela
segja að vindurinn hafi náð allt að
150 km hraða á klst. og áhrifa
hans kunni að gæta á Kúbu, i
Dóminikanska lýðveldinu og á
Bahamaeyjum. 10 manns hafa
þegar látist i flóðbylgjunni sem
fylgir i kjölfar fellibylsins og
a.m.k. 10 annarra er saknað.
Flóðbylgjan er sú stærsta sem
komiðhefur i áratug og hefur hún
valdið alvaregu ástandi á suður-
hluta eyjanna.
Olían á að hækka um 10%
Efnahagsmálaráðherra Vene-
suela sagði i dag að rikisstjórn sin
myndi standa fast á þeirri á-
kvörðun sinni að hækka verð á
hráoliu um 10% frá og með októ-
berbyrjun.
Þegar hann var beðinn að segja
álit sitt á ummælum Kissingers
um að nýtt oliuverð kynni að setja
sambúð Bandarikjanna og oliu-
framleiðslurikjanna i hættu sagði
hann:
Auövitað tökum við það al-
varlega sem hinir amerisku vinir
okkar segja en það mun þó ekki
letja okkur i baráttunni fyrir
sanngjörnu oliuverði.” Aðspurður
um afleiðingar verðhækkunar
sagði ráðherrann: ,,Við skulum
sjá hvað setur þegar sú staðreynd
blasir við að OPEC Samband
oliuframleiðslurikja hefur hækk-
að verð á óunninni oliu frá og með
byrjun næsta mánaðar.”
Alþýðublaðið
4
Fimmtudagur 18. september 1975.