Alþýðublaðið - 18.09.1975, Síða 9
íþróttir
Nýr gras-
völlur FH
Loksins hafa FH-ingar náð
þeim áfanga að hafa knatt-
spyrnugrasvöll til að keppa og
æfa á. Eftir svitadropa margra
ára starfs, þar sem skipst hafa á
skin og skúrir, náðu FH-ingar að
ljúka gerð grasvallar i Kapla-
krika siðasta laugardag.
Var siðasta hönd lögð á verkið á
laugardag, og var það gert að við-
stöddu fjölmenni. Voru þar sam-
ankomnir bæjarfulltrúar i Hafn-
arfirði, forystumenn FH og gaml-
ir og ungir velunnarar FH.
Grasvöllurinn, sem verður tek-
inn i gagnið næsta vor er 110x75
m, sem er stærsta leyfilega stærð
fyrir alþjóðlega- og millirikja-
knattspyrnuleiki og mót. Er völl-
urinn litlu sunnar en malarvöllur
FH-inga i Kaplakrika, og er lega
hans mjög ákjósanleg frá náttúr-
unnar hendi. Liggur hann lágt,
nær umkringdur hrauni á alla
vegu, og áhorfendapallar, sem
risa eiga fyrir næsta vor og verða
fyrir 4000 manns, verða byggðir á
sterkum berggrunni.
Framtiðaráform FH-inga við
gerð svæðisins i' Kaplakrika bera
vott um framsýni og hugdirfð.
Þarna eiga eftir að risa félags-
heimili, æfingaveilir fyrir knatt-
spymu, handknattleik og fleiri
iþróttagreinar.
Með tilkomu þessa nýja gras-
vallar, verður æfinga- og keppn-
isaðstaða FH-inga allt önnur en
verið hefur, og verða FH-ingar
örugglega erfiðir heim að sækja i
1. deildinni á næsta ári.
Úrslit í Evrópu
Úrslit i Evrópuleikjum i gærkveldi, Evrópukeppni meistaraiiða:
Bayern Munchen-Jeunesse D’Esch Luxemburg 5:0
Real Madrid-Dynamo Rumenia 4:0
Chorrow Póllandi-Pallaseura Finnlandi 5:0
Linfield N. Irlandi-PSV Eindhoven Hollandi 1:2
CSK Sofia Bulgariu-Juventus Italiu 2:1
Malmö FF Sviþjóð-FC Magdeburg A-Þýskalandi 2:1
Olympiakos-Grikklandi-Dinamo Kiev Sovét. 2:2
Ujpest Dozaa Ungverjalandi-Fc Zurich Sviss 4:0
KB. Danmörku-St. Etienne Frakklandi 0:2
Rangers Skotlandi-Bohemians Irlandi 4:1
Borussia Möncengladbach-Wacker Insbruck Austurriki 1:1
Molenbeek Belgiu-Viking Noregi 3:2
Evrópukeppni bikarhafa;
Frankfurt-Coleraine N-lrlandi 5:1
Floriana Valletta Malta-Hajduk Split Júgoslaviu 0:5
Panathinaikos Grikkl.-Zwickau A.-Þýskalandi 0:0
Arat Yerevan Sovét.-Anorthosis Kýpur 9:0
Home Farm Írlandi-Rc Lens Frakklandi 1:1
Rapid Bucharest Rúmenia-Anderlecht 1:0
Lahden Reipas Finnlandi-West Ham 2:2
Banja Luka Júgóslavia-Rumelange Lux 9:0
Besiktas Tyrkl.-Liorentina Italiu 0:3
Wrexham-Djurgarden 2:1
Slovan Bratislava Tékksl.-Derby Conty 1:0
Skeid Oslo-Rzeszow Pol. 1:4
Graz Austurriki-Slavia Bulgariu 3:1
Vejl-FC Haag Holl. 0:2
Fc Basel-Altetico Madrid 1:2
UEFA bikarinn:
Glentoran Írlandi-Ajax 1:6
Poak Grikkl.-Barcelone 1:0
Grasshoppers-San Sebastian Spáni 3:3
Molde Noregi-Vaexjoe Sviþjóð 1:0
Tirgen Rumenia-Dinamó Dresten A-Þýskal. 2:2.
Craiova Rúm.-Red Star Júgóslaviu 1:3
Dukla Prauge-Honved Ungverjalandi 1:2
Torpedo Moskva-Napoli 4:1
Odess5Laxio Roma 1:0
Novi Júgósl.-AEK Aþena 0:0
Linz Austurriki-Vasas Ungverjalandi 2:0
Hibernian-Liverpool 1:0
Everton-AV Milan 0:0
Rapid Vienna-Galatasary Tyrkl. 1:0
As Roma-Dunav. Bulgariu 2:0
Koln-B 1903 2:0
ZEiss Jena A. Þýskal.-Marseille Frakkl. 3:0
AIK Sviþjóð-Spartak Moskva 1:0
Holbæk-Milec Pól. 0:1.
Gais Sviþjóð-Weoclaw Pól. 2:1
Hertha Herlin-Hkj Finnl. 4:1
Antverpen-Aston Villa 4:1
Yong Boys Berne-Hamburg sv. 0:0
Haladas Ungverjalandi Valette Mata 7:0
Reyenoord-Ipswich 1:2
Aukaleikir i 2 umferð enska deildabikarsins fóru þannig:
Exeter City-Torquay 1:2
Oxford-Carlton 1:1
Leicester-Portsmouth 1:0
Man City-Norwich 2:2
'GETRAUNIRNAR’
Áttunda umferð ensku knact-
spyrnunnar verður leikin á
laugardaginn. Þessi umferð er
jafnframt 5. leikvika islenskra
getrauna. Eins og við höfum lof-
að, verður blaðið með fastan
þátt um getraunaspjall i vetur.
Arsenal — Everton 1.
Það eru aðeins um tiu dagar
siðan þessi lið léku saman á
Goodison Park I Liverpool. Sá
leikur var i 2. umferð deildar-
bikarsins og lauk honum með
jafntefli, 2:2. Leikmenn Arsenal
hljóta að hafa verið ánægðir
með þau úrslit og geri ég þvi ráð
fyrir að þeir sigri Liverpoolliðið
& Highbury i London á laugar-
daginn. Bæði liðin áttu ágætan
leik i siðustu viku, þó svo að
Arsenal hafi tapað fyrir Aston
Villa. En að sögn iþróttafrétta-
ritara var Arsenal betra liðið.
Everton vann góðan sigur yfir
Newcastle, en Tyneliðið var þá
afspyrnu lélegt, eins og oft vill
verða hjá þeim inn á milli, aðal-
lega þó á útivelli. Sem sagt
Arsenal vinnur, en þó er ekki
lokum fyrir það skotið að Ever-
ton merji jafntefli.
Birmingham — Burnley
X
Birmingham-liðið hefur ávallt
verið mjög neðarlega i 1. deild,
siðan þeir komust upp i hana ár-
ið 1972, og verður liklega einnig
svo á þessu ári. Þeir hafa
marga ágætisleikmenn á sinum
snærum en virðist vanta ein-
hvern neista til að ná betri ár-
angri. Burnley er ágætis lið og
sennilega nokkuð betra en and-
stæðingar þeirra i þessum jleik,
en heimavöllur hefur mikið að
segja, einkum þó fyrir Birming-
ham, sem hefur mjög fylgi-
spaka áhangendur, sem mikið
láta til sin heyra. Jafntefli eru
liklegustu úrslitin, þó sigurinn
gæti ient hjá báðum.
Coventry — Stoke X
Coventry liðinu hefur gengið
mun betur það sem af er keppn-
istimabilinu, en nokkurn óraði
fyrir i upphafi. Kannski það sé
af þvi að hinn gamli fyrirliði og
framkvæmdastjóri liðsins,
Jimmy Hill, er aftur kominn til
Tekur West Ham for-
ystuna í Englandi?
þeirra, nú i stjórn félagsins. Hill
þessi er þekktur knattspyrnu-
iþróttafréttamaður i Englandi.
Hann kom Coventry upp i 1.
deild 1967. Hill lék á Laugar-
dalsvellinum, þegar Coventry
kom hingað i boði KR. Stoke
vann siðan sigur yfir Leeds á
laugardaginn og hlýtur þetta
ágæta lið að fara að hressast,
enda var búist við miklu af þeim
i upphafi keppnistimabilsins.
Jafntefli eru likleg úrslit þótt
leikurinn geti farið alla vega.
Derby— Manchester City
1.
Það hlýtur að vera auðvelt að
geta sér til um úrslit þessa leiks.
Það er ekki venjan hjá Man-
chester City, þrátt fyr'ir það að
þeir eigi nokkra af bestu knatt-
spyrnumönnum Bretlands inn-
an sinna vébanda, að tapa á úti-
velli, en vinna á heimavelli. Alla
vega verður varla breyting á
þessari reglu hjá þeim gegn
meisturunum Derby, þóttsvo að
það hljóti að koma að þvi að þeir
fari að hala inn stig á útivelli.
Leeds — Tottenham 1
Tottenham liðið er betra en
þessi 4 stig, sem þeir hafa, segja
til um. Þeir hafa nær alltaf tap-
að leikjum sinum, sem af eru,
með einu marki, og þrisvar orð-
ið sama markatalan, 3:2. Þeir
bæta varla neinu af stigum við
sig gegn Leeds, sem eru góðir
að vanda, en ekki þó eins góðir
og þeir hafa oft verið. Totten-
hamliðið verður liklega nokkuð
neðarlega i ár, þótt þeir sleppi
sennilega við fallið niður i 2.
deild. Liðið er I mótun hjá fram-
kvæmdastjóranum Terry Neill
og hann verður að fá tima til að
endurnýja.
Liverpool — Aston Villa 1
Liverpoolliðið hlýtur að sigra
i þessum leik gegn nýliðunum
Aston Villa. Eins og áður hefur
verið getið i þessum þáttum
teljum við liklegt að Villa hljóti
megnið af stigum sinum á
heimavelli. Þeir hafa yfir
ágætis mannskap að ráða en
þeir eiga varla möguleika gegn
þekktum og snjöllum leikmönn-
um hafnarborgarliðsins.
Manchester United —
Ipswich X
Manchester United er nokkuð
gott lið um þessar mundir, en
ekki nógu gott til þess að vera á
toppnum i vor. Ipswich er lik-
lega betra lið en United, en
heimavöllur Manchesterliðsins
bjargar þeim i jafntefli, þó svo
að Ipswich verði án enska
landsliðsmannsins David John-
son. Það eru liklega margir,
sem ekki eru sammála mér um
það að Ipswich sé betra lið, etí
ég álit að fæstir geri sér grein
fyrir, i raun og veru, hversu gott
og skemmtilegt lið Anglia-liðið
er. Jafntefli er liklega best.
Middlesbrough — Q.P.R.
X
Þó svo að „Boro” hafi tapað
stórt fyrir Manchester City um
siðustu helgi, má ekki alveg
halda að þeir séu skildupundtar
fyrir hin liðin. Þeir eru aftur á
móti mjög gott lið á heimavelli
og berjast eins og tigrisdýr þar.
Eftir leik „Boro” á laugardag-
inn gaf Jackie Charlton út þá
yfirlýsingu, að ef lið hans fengi
ekki áhorfendur meir á bak við
lið sitt, segði hann fram-
kvæmdastjórastarfinu hjá fé-
laginu lausu. Vegna þessara
orða býstég við að „Boro” verði
i sérstökum ham á laugardag-
inn, sem ætti jafnvel að geta
gefið þeim sigur gegn einu besta
íiði Englands i dag, Q.P.R.
Jafntefli eru þó likleg úrslit.
Newcastle — Wolves 1
Newcastle hlýtur að vinna
þennan leik á St. James Park,
þvi að áliti margra iþrótta-
fréttaritara i Englandi er
Wolvesliðið i öldudal og ekki til
stórræðna i vetur. Newcastlelið-
ið er gott lið, en getur þó brugð-
ist til beggja vona. Þvi miður
fyrir áhangendur þeirra. New-
castle ætti að sigra þennan leik
nokkuð örugglega.
Norwich — Leicester 1
eða X
Norwichliðið er sennilega
nokkuð betra en menn héldu að
það yrði i upphafi keppnistíma-
bilsins. Þeir hafa mjög góða
framherja auk þess, sem
Martin Peters virðist vera i
góðu formi núna. Það er senni-
legt að þeir sigri Leicester, en
þó er sá möguleiki fyrir hendi að
miðlandaliðið nái jafntefli, þvi
þeir hafa einnig góða framlinu,
eins og West Ham komst að
raun um siðasta laugardag.
West Ham — Sheffield
United 1
Það fer nú varla milli mála að
West Ham vinni þennan leik,
eða ætti að gera það samkvæmt
árangri liðanna á þessu keppn-
istimabili.
Hull City — Fulham X
Fulham er talið eitt af bestu
liðum 2. deildar, en Hull City er
einnig þokkalegt lið og nægir
heimavöllur liklega til jafntefl-
is.
5. Getraunaseðill: 20. sept. 1975.
Heima úti 70 71 72 73 74 75
T V J Arsenal-Everton J V T 1-0 4-0 1-1 1-0 1-0 0-2
T T J Birmingham-Burnley T J T - - 2-0 - 2-2 1-1
J V J Coventry-Stoke V J T 1-3 1-0 1-1 2-1 2-0 2-0
T V V Derby-Manch. City T T T 0-1 0-0 3-1 1-0 1-0 2-1
V T V Leeds-Tottenham T T T 3-1 1-2 1-1 2-1 1-1 2-1
J V V Liverpool-Aston V. J T T - - -
V J V Manch. Utd.-lpswich J T T 2-1 3-2 1-0 1-2 2-0 -
J V V Newcastle-Wolves J T T 1-1 3-2 2-0 2-1 2-0 0-0
J V V Norwich-Leicester J T J 3-0 2-2 - 1-1 1-0 -
V V V West Ham-Shett. Utd. T T T - - 1-2 3-1 2-2 1-2
V V V Hull-Fulham J T V - 4-0 2-2 2-0 2-1
o
Fimmtudagur 18. september 1975.
Alþýðublaðið