Alþýðublaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 4
Rúgmjöl 5 kg. kr. 450,-
Haframjöl 1 kg. kr. 162,-
Gróft salt 1 kg. 61,-
Hveiti 5 ibs. kr. 202,-
Hveiti 50 lbs. kr. 1980,-
Strásykur 1 kg. kr. 205,-
Strásykur 25 kg. kr. 4975,-
Egg 1 kg. kr. 350,-
Sláturgarn og rúllupylsugarn
Opið til kl. 10 föstudag.
Lokað laugardag.
(ML irumarhaðunnn fil. o
úla 1A HúftQsgn* og hsimiliad S 86 t 1 2 . worudcild S 86 1 1 1 V«»naftarv d S 86 t 1 3
BARNAFATAVERSLUNIN - “f 13
(Næsta hús við Hótei Borg).
Mikið úrval af fallegum barnafatnaði á litlu börnin.
Góðar vörur, gott verð.
Gjörið svo vel að lita inn.
Opið frá 12 til 6 eftir hádegi.
Barnafataverslunin Pósthússtræti 13.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Sértilboð helgarinnar
Hveiti, 25 kg á kr. 2.269.
” , 10 lbs. á kr. 396
” , 5 lbs., á kr. 198
Flórsykur, 1 lbs., á kr. 121
Strásykur 50 kg, kr. 8.700.00
Lybbys tómatsósa á kr. 144
Kaffi, Rió kr. 109 pk.
Ora grænar baunir, 1/1 dós kr. 130.00
Kellog’s Com Flakes, stór pakki kr. 160.00
Sviö, lkg kr. 190.00
Opið alla föstudaga til kl. 10.
Kostaboð á
kjarapöllum
KJÖT OG FISKUR
SELJABRAUT 54/SlMT- 74200
m
Alþýðublaðió
Kosið á
Allsherjar-
þinginu
Fulltrúi Noregs var í gær kjör-
inn einn af varaforsetum Alls-
herjarþingsins. Reglur um kjör
til hinna ýmsu trúnaðarstarfa á
þinginu og um kjör fulltrúa i hin-
ar ýmsu starfsnefndir eru mjög
ákveðnar og miðast við fjölda
rlkja'á afmörkuðum svæðum, en
eitt þeirra er Vestur Evrópa og
önnur lönd, þ.á.m. Kanada,
Bandarikin og Ástralía. Innan
þessa hóps hafa siðan minni
hópar nokkra samvinnu og eru
Norðurlönd einn þeirra. Island
hefur að vfsu komið þar við sögu
en mjög oft hafa Islendingar látið
hinum Norðurlöndunum eftir
sæti, sem þeim annars bar. Má
Framhald á 11. siðu.
HættirFranco
12. október?
í Reutersfrétt frá Madrid I gær
er haft eftir systur Francos ein-
ræðisherra á Spáni, að miklar lik-
ur séu til þess að einræðisherrann
afhendi völdin i hendur hinum út-
valda prinsi, Juan Carlos. Segir i
fréttinni að hinn 82 ára Francisco
Franco muni leggja niður völd
hinn 12. október næstkomandi, en
það er hátiðisdagur á Spáni til-
einkaður minningunni um að
Kristöfer Kólumbus fann
Ameriku.
Það vakti nokkra almenna at-
hygli i siðasta mánuði þegar það
fréttist að Juan Carlos hefði
heimsótt Franco og átt við hann
viðræður. Að visu neitaði tals-
maður einræðisherrans að um
nokkrar meiriháttar breytingar
væri að ræða i stjórn landsins. A
hinn bóginn hefur það legið i loft-
inu að Franco sé um það bil
að láta af störfum. Ef sú verður
raunin á má ef til vill búast við
einhverjum meiriháttar breyt-
ingum i stjórnarháttum landsins.
Veilur vest-
ræns lýðræðis
Á þessu ári eru 30 ár liðin frá
þvi lýðræðisrikið Vietnam var
stofnsett. Að visu mun það láta
nokkuð undarlega i eyrum Vest-
urlandabúa að nefna lýðræði i
tengslum við stjórnarhætti þá,
sem gilt hafa i þessu landi. En þá
er okkur rétt að hafa i huga það
geigvænlega djúp sem staðfest er
i hugsun og athöfnum vestrænna
þjóða annarsvegar og lifsháttum
og menningu annarra þjóða
heims hins vegar.
Hugtakið lýðræði hefur reyndar
verið skilgreint á ýmsa vegu eins
og svo mörg önnur fræðileg hug-
tök. Einn visindamaður benti á
það i fræðiriti, sem hann skrifaði,
að raunverulega þyrfti fræðimað-
ur að skilgreina öll visindaleg
hugtök, sem hann notaði i hverju
einstöku verki um sig. Ástæðan er
augljóslega sú, að hugtak hefur
oft margar hliðar, eða öllu heldur
nær yfir misjafnlega vitt svið. Ef
lesandinn leggur aðra merkingu i
hugtak heldur en sá sem skrifar,
það sem lesið er, liggur ljóst fyrir
að misskilningur getur átt sér
stað. Einnig er vert að gera sér
grein fyrir þvi, að fræðimenn nota
oft annan orðaforða, ef svo má
segja, i fræðilegum ritverkum
heldur en i daglegu tali eða jafn-
vel i blaðagreinum, sem ætlaðar
eru almenningi. Meðal almenn-
ings er hugtakið lýðræði venju-
lega afgreitt með þvi móti að tal-
að er um vestrænt og austrænt
lýðræði. Hið fyrrnefnda er án
frekari skilgreiningar það lýð-
ræði sem þekkist á Vesturlöndum
en hið siðara tekur fyrirmynd
sina frá Sovétrikjunum.
Enginn vafi er á þvi að hvort
lýðræðið um sig tekur á sig fjöl-
margar myndir, sennilega eins
margar að tölu sem þessi riki eru
á heimskringlunni. En lýðræði er
ekki aðeins hugtak heldur einnig
töfraorð, sem fær fólk til að gráta
af gleði eða sorg og til þess að
berjast og fórna lifi sinu fyrir
réttlætið. Og þá erum við aftur
komin i strand, þvi hvað er rétt-
læti? Fyrirhinn almenna borgara
er réttlætið algilt, það er að segja
lög landsins. Við tslendingar
undirstrikum þetta með þvi að
visa til forfeðranna strax á land-
námsöld, sem sögðu: „Með lög-
um skal land byggja”. Þannig
hefur það verið með flest ef ekki
öll þjóðlönd veraldar, að þau hafa
sett sér lög, meðal annars til þess
að framfylgja réttlætinu.
*
Kristin kirkja hefur alla tið litið
á Bibliuna, sem lög, ekki mann-
anna, heldur Guðslög, þ.e.a.s. lög
sett mönnum af Guði. Að visu
hafa þessi lög verið túlkuð á ýmsa
vegu en þrátt fyrir það er sá
r ^1
%SUk/
Breytt viðhorf í Portúgal
Eftir að Alþýðublaðið fór i
prentun i fyrrakvöld bárust þær
fréttir frá Portúgal að Kommún-
istar hefðu tekið þá ákvörðun að
ganga að kröfum Miðdemókrata
um skiptingu þingsæta. Enda þótt
ljóst sé að samkomulag hefur
náðst milli Jafnaðarmanna, Mið-
demókrata og Kommúnista um
fjölda ráðherra úr hverjum flokki
fyrir sig, virðist enn óráðið um
skiptingu ráðuneytanna. Þó er
talið að Jafnaðarmenn fái fjóra
ráðherra, Miðdemókratar tvo og
Kommúnistar einn. Auk þess hef-
ur verið rætt um það að Komm-
únistar fái að tilnefna einn eða tvo
ráðuneytisstjóra og mun það hafa
veriö sett inn sem einskonar
málamiðlun.
Þessi skyndilega stefnubreyt-
ing Kommúnista varðandi stjórn-
armyndunina hlýtur að vera
mikið gleðiefni fyrir alia vinstri-
menn, sem gera sér grein fyrir
þvi alvarlega ástandi, sem gæti
skapast i landinu ef vinstri öflin
næðu ekki samstöðu um stjórn
landsins.
I fréttum frá Lissabon kl. 17.00 i
gær var greint frá þvi að Ernesto
Malo Antunes verði utanrikisráð-
herra og að fulltrúi hersins i
stjórninni fari með innanrikismál
og atvinnumál. Þá er einnig
greint frá þvi að Francisco Sal-
gedo Zenhaa úr flokki Jafnaðar-
manna, verði fjármálaráðherra,
en hann gegndi áður embætti
dómsmálaráðherra. Þá er talið
að Lopes Cardoso úr flokki Jafn-
aðarmanna fari með landbún-
aðarmál og flokksbróðir hans,
Jorge Campinos, fari með við-
skiptamálin. Miðdemókratinn
Jorge Sa Borges mun fara með
félagsmálin, en flokkur hans er
einnig sagður fá yfirstjórn dóms-
mála. Að lokum er greint frá þvi
að Kommúnistinn Alvaro Veiga
Oliveira muni fá annað hvort
samgöngumál eða ráðuneyti
opinberra framkvæmda.
Átökin í Líbanon halda áfram
Atökin i borgunum Beirut og
Tripoli halda áfram milli
kristinna manna og Múhameðs-
trúar og hafa nú um 200 manns
failið i þessum átökum og mikill
fjöldi óbreyttra borgara særst.
Tripoli er nú algerlega á valdi
Múhameðstrúarmanna en
ástandið I borginni er taliö mjög
ótryggt. Sauleiman Frangien for-
seti ræddi um siðustu helgi við
Pierre Gemayel leiðtoga Falan-
gista, sem krafðist þess að stjórn-
in geröi einhverjar ráðstafanir til
þess að stöðva þessi átök i land-
inu.
Hinn vinstri sinnaði
Farouk-Moukadamm-
hópur virðist nú ráða öllu
i Tripólis.
►
Föstudagur 19. september 1975.