Alþýðublaðið - 19.09.1975, Side 5
grundvallarskilningur almennur
meðal kristinna manna, að Bibli-
an sé lög frá Guði. Samkvæmt þvi
eru þessi lög rétt, óskeikul og ó-
umbreytanleg og vegna þess að
þetta eru lög Guðs hljóta þau
einnig að vera staðfesting á rétt-
lætinu.
Þessi skilningur á Guðslögum
hefur að verulegu leyti færst yfir
á lög þau, sem þjóðir heims setja
þegnum sinum, þ.e.a.s. að lög séu
réttlát og að þeim beri að hlýða.
*
Ef vikið er aftur að lýðræðinu
er enginn vafi á þvi að austrænt
lýðræði, eins og við höfum nefnt
það, hefur tileinkað sér i höfuðat-
riðum skilgreiningu katólsku
kirkjunnar á Guðslögum, þ.e.a.s.
að lög séu óumbreytanleg i
grundvallaratriðum. Að visu hef-
ur valdhafinn, á svipaðan hátt og
páfinn, rétt til þess að gera
breytingareftir þvi sem aðstæður
leyfa. Grundvallarboð austræns
lýðræðis til þegnanna er hlýðni,
en það er einnig grundvallarboð-
orð katólsku kirkjunnar.
Spurningin um hlýðni og undir-
gefni þegnanna leiðir hugann að
þvi, hvort svonefnt vestrænt lýð-
ræði leggi minni áherslu á hlýðn-
ina heldur en katólska kirkjan
eða einræðisstefnur kommúnism-
ans og fasismans. Enginn vafi er
á þvi að svo er, enda er grund-
vallarinntak hins vestræna lýð-
ræðis einmitt það að allur al-
menningur sé frjáls til að hugsa
og starfa og um leið frjáls til að
vega og meta það réttlæti, sem
lagasmiðir leggja fram sem
grundvöll þjóðlifsins.
1 upphafi var vikið nokkrum
orðum að 30 ára afmæli Vietnam
en þar höfðu Frakkar um langt
skeið ráðið rikjum eða allt til árs-
ins 1954. Skipting landsins i Norð-
ur- og Suður-Vietnam og afskipti
Bandarikjanna af málefnúm
þessara landa hefur hvort
tveggja haft áhrif á hugsunarhátt
fólksins, sem þar býr og mótað
afstöðu þess til þjóðlifsins. Það
þarf ekki alþýðu undirokaðra ný-
lendna til þess að efast um ó-
skeikulleika vestræns lýðræðis.
SU opinberun blasir við i löndum
hins vestræna lýðræðis svo ekki
verður um villst. Það er einnig
ljóst að stærstu og voldugustu
heimsveldin hafa öldum saman
misþyrmt réttlætinu undir yfir-
skini þess að þau væru að boða
frelsi og mannréttindi og guðstrú.
Þannig hafa boðberar og fulltrúar
vestræns lýðræðis unnið að þvi
markvisst, en þó ef til vill ómeð-
vitað, að grafa undan virðingu
þessa lýðræðisskipulags. Afleið-
ingin hefur svo orðið sú að fjöldi
þjóða hefur aðhyllst hið austræna
lýðræðisform. Ekki er ósennilegt
að ofbeldi og upplausn i vestræn-
um lýðræðisrikjum megi einnig
rekja til þess, að ýmsum virðist
réttlætið i framkvæmd létt á met-
um.
McGovern heimsækir Portúgal
Vísbending um, að hann
fari í forsetaframboðið?
George McGovern, sá hinn
sami sem féll i forsetakosningun-
um á móti Richard Nixon, er nú i
heimsókn i Portúgal. Hann segist
heimsækja Portúgal til þess að
kynna sér af eigin raun hvernig á-
standið sé. Hann segir að banda-
riska þjóðin hafi fylgst af mikilli
athygli með atburðunum i Portú-
gal og neitar þvi að ástandið i
Chile sé á nokkurn hátt sambæri-
legt við ástandið i Portúgal. öld-
ungadeildarþingmaðurinn segir
að Bandarikin hafi engan áhuga á
þvi að skipta sér af innanrikis-
málum landsins. A hinn bóginn sé
þvi ekki að leyna að stór hluti
bandarisku þjóðarinnar voni að
takast muni stjórnarmyndun og
að lýðræðislegir stjórnarhættir
verði teknir upp.
McGovern háði mjög harða
kosningabaráttu gegn Nixon árið
1972 og þá var eitt helsta baráttu-
mál hans að berjast gegn spill-
ingu i stjórnmálum og opinberu
lifi. Eftir að Watergate málið
komst á dagskrá notaði Mc-
Govern það sem eitt helsta vopn
sitt i kosningunum. Gallinn var
bara sá, að fólk trúði ekki hversu
djúpt ýmsir af valdhöfunum voru
sokknir i spillingunni. Fólk sagði
sem svo, að ef til vill væri Nixon
og hans samherjar spilltir, en
George og hans menn væru senni-
lega ekkert betri. Þrátt fyrir það
var áberandi að McGovern náði
til unga fólksins, sem yfirleitt er
vinstri sinnað og róttækt. En það
dugði bara ekki til og Nixon kom
út úr kosningunum sem hinn stóri
sigurvegari.
Ekki er útilokað að þessi ferð
Dansk-ættaður Astraliubúi,
Hans Tholstrup, sem lagði upp i
hnattflug s.l. aprilmánuð varð að
nauðlenda á eyjunni Paramushir
milli Alaska og Siberiu. Flug-
maðurinn, sem er 30 ára að aldri
varð að nauðlenda eftir að leki
Framlag EBE til jarðskjálfta-
svæðanna.
Efnahagsbandalagið hefur
ákveðið að senda matvæli,
klæðnað og meðul til jarð-
skjálftasvæðanna i Tyrklandi,
að upphæð 110.000 sterlings-
pund.
Kina og EBE.
Samningar standa nú yfir um
viðskipti milli Kina og Efna-
hagsbandalagsins.
Vinstrinienn i Sviþjóð mótmæla.
Rúmlega 300 vopnaðir lög*
reglumenn i Sviþjóð hafa verið
settirtil þess að vernda tennis-
leikara frá Chile, sem nú eru i
keppnisferðalagi i Sviþjóð.
McGoverns til Portúgal sé ein-
mitt visbending þess, að hann ætli
að gefa kost á sér til forsetakjörs.
kom að oliugeymi vélarinnar.
1 fréttaskeyti Reuters frá
Kaupmannahöfn um þetta mál er
haft eftir utanrikisráðherra
Sovétrikjanna að flugmaðurinn
hafi gert ráð fyrir að lenda i
Tennesseeriki i Bandarikjunum
seinna i þessum mánuði.
Vinstrisinnar vilja mótmæla
þessari heimsókn og þar með
valdbeitingu og ofbeldisaðgerð-
um fasistastjórnarinnar gegn
almenningi i Chile.
Jacqueline og Sinatra
Það hefur vakið mikla athygli
i Bandarikjunum að fyrrver-
andi forsetafrú Bandarikjanna,
Jacqueline, hefur verið að
skemmta sér með söngvaranum
Frank Sinatra. Þegar sam-
starfsmenn hins fræga söngv-
ara voru spurðir að þvi hvort
þeir vissu einhver að
alvara væri á bak við þetta
sögðu þeir aðeins að hann væri
„big boy” og gerði það sem
honum sýndist.
Hnattflugmaður nauðlenti
SKEYTI
Rödd jafnaðarstefnunnar
" |alþýðu|
HHÉHkdBÉJBHkJBHÉÍII
Hvað lifir stjórnin lengi?
Rikisstjórnin er komin út i þær ógöngur, að
hún þarf ekki aðeins að verjast stjórnarand-
stöðu, heldur einnig gagnrýni sinna eigin stuðn-
ingsmanna, jafnvel sjálfra ráðherranna. Þegar
svo er komið, vaknar sú spurning, sem nú má
heyra um land allt: Hvað getur þessi rikisstjórn
lifað lengi? Hvað þolir þjóðin slika óstjórn
lengi?
Þá keyrir um þverbak, þegar annar valda-
mesti ráðherra stjórnarinnar, Ólafur Jóhannes-
son, kveður opinberlega upp þann dóm og lætur
birta i blaði sinu, að stjórninni hafi mistekist að
ráða við meginvanda efnahagsmála, verðbólg-
una. Vitað er um megna óánægju og vonbrigði
innan þingflokks framsóknarmanna, svo að sú
spurning vaknar, hvort framsókn sé þegar farin
að undirbúa stjórnarslit og Ólafur að hugsa til
þess að verða forsætisráðherra á ný.
Samband ungra sjálfstæðismanna hefur, eins
og samtökum ungra stjórnmálamanna er tamt,
oft tekið djúpt i árinni i ályktunum sinum, en þó
staðið fast um sinn flokk. Nú gerist það, að SUS
viðurkennir i ályktunum, að rikisstjórninni hafi
ekki tekist að leysa verkefni sitt, þótt reynt sé að
draga fram i dagsljósið einstaka ljósan blett.
Þá er Visisdeilan tvimælalaust vottur um
mikla upplausn innan Sjálfstæðisflokksins og
ber vott um hörð átök milli ráðamanna þar, eins
og blaðið hefur viðurkennt i ritstjórnargreinum.
Flokksstjórnin missti vald á þessu máli, siðdeg-
isblöðin eru orðin tvö, en hafa bæði flutt lesend-
um sinum harða gagnrýni á rikisstjórnina fyrir
lélega frammistöðu.
Loks er almannarómur sú rödd, sem mest er
að marka i þessum efnum. Stuðningsmenn
stjórnarflokkanna eru niðurdregnir og hafa gef-
ist upp við að halda uppi fyrir hana vörnum.
Þeir finna, að það þýðir ekki að reyna að telja
neinum launþega eða neytenda trú um, að rikis-
stjórnin hafi vald á verkefni sinu og hafi staðið
sig vel. Það er algengasti dómur manna, að ekki
hafi verið i landinu verri eða veikari rikisstjórn
en sú, sem nú situr.
Hér er um alvarlega þróun að ræða. Ekki má
gleyma þvi, að tveir stærstu stjórnmálaflokkar
landsins mynduðu þetta ráðuneyti, og þessir
flokkar hafa illa ráð á að hrökkklast frá völdum
af þvi að þeir ráða ekki við stjórn landsins rösk-
lega ári eftir að stjórnin kom til valda. Þess
vegna er liklegt, að gert verði átak til þess að
halda stjórninni saman enn um sinn. En það
þarf kraftaverk til þess að vinna upp það traust
og álit, sem stjórnin hefur þegar tapað, eða bæta
úr upplausn, ánægju og vonbrigðum stuðnings-
manna stjórnarflokkanna.
Framundan er sá timi, er rikisstjórnir gefa
Alþingi og þjóðinni skýrslu um ástand mála og
skýra frá áformum sinum. Jafnframt kemur þá
fram fjárlagafrumvarp, sem jafnan gefur til
kynna, hvers vænta megi um stjórn efnahags-
mála. Það verður forvitnilegt að heyra þennan
boðskap ráðherranna um miðjan október.
Þjóðin biður i eftirvæntingu • Almenningur ótt-
ast um afkomu heimilanna og im afkomu þjóð-
arbúsins. Oft var þörf en nú er nauðsyn á sterkri
forustu og skýrri stjórnarstefnu.
Stenst rikisstjórn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins þessa þolraun?
Föstudagur 19. september 1975.
o