Alþýðublaðið - 14.10.1975, Síða 6
Ánægjulega á óvart
Bíórin
Það er svolitið ánægjulegt að vera
komið á óvart þegar maður fer i bió og
býst við að sjá Anthony Quinn vera
ennþá að leika sinn gamla Zorba,
Michael Caine spjátrungast og James
Mason sem einhvers konar vörumerki á
formúlu, sem allt of oft sést á skermin-
um: endurtekningu einhverrar myndar,
sem vel hefur gengið.
Semsé, það sem maður bjóst við var
að mynd gerð á árinu 1974 i Marseille og
fjallaði um heróinframleiðslu og smygl
gæti ekki verið annað en endurtekning á
French Connection og Anthony Quinn,
sem lenthefur i slikum „kópiuhlutverk-
um” nýverið (Guðfaðirinn er dauður)
væri aðeins að hala inn fyrir salti i
grautinn.
En það sem kemur ánægjulega á
óvart er að á ferðinni i Austurbæjarbiói
þessa dagana er prýðisgóð sakamála-
mynd, Lcigumorðinginn (The Marseille
Contract), sem ekki býður aðeins upp á
frábæran leik Anthony Quinn (og var
timi til kominn) og betri en skammlaus-
an leik Michael Caineog James Mason
—-heldur og afbragðs spennandi sögu og
oft á tiðum listileg atriði, svo sem eins
og kappaksturinn og dansatriðið i lokin,
og þessi atriði snilldarlega fléttuð sam-
an við tónlist eftir Thelonius Monk.
B. Sigtr.
Hugleiðingar um meistarann
Utvarp
Útvarp i kvöld
klukkan 22:15.
1 útvarpinu i kvöld klukkan 22:15 byrj-
ar Thor Vilhjálmsson lestur bókar sinn-
ar „Kjarval”, og eru það hugleiðingar
höfundarins um meistara Kjarval og
verk hans, sem er ein af þeim perlum
sem tsland hefur eignazt. Þar sem þessi
bók Thors er i stóru broti, þá munu
lestrarnir verða 25 að tölu.
Þótt kalla verði sögu þessa ævisögu,
þá er hún ekki i hinu hefðbundna ævi-
söguformi, þar sem hún er hugleiðingár
höfundarins um meistarann, en ekki
bara skrifaðar ^taðreyndir. Bókin kom
úthjá Helgafelli árið 1964, og seldist hún
upp á skömmum tima. Þótt furðulegt
megi virðast, þá hefur hún ekki verið
endurprentuð, en þó hefur það lengi
staðið til. Bókina sem prýdd er fjölda
mynda, tók Thor mörg ár að skrifa, þar
sem hún er mjög stór. En nú gefst út-
varpsheyrendum tækifæri til að hlýða á
þessa bók sem hefur verið uppseld i
mörg ár.
Hálf milljón á mála hjá KGB
Útvarp i kvöld
kiukkan 21.00
Ólafur Sigurðsson fréttamaður verður
með þátt sinn ,,úr erlendum dagblöð-
um” i útvarpinu i kvöld klukkan niu.
Ólafur sagði við blaðamann blaðsins er
við höfðum samband við hann, aö það
kæmi greinúr þýzka blaðinu Europa,
sem fjallar um vandamál bókaútgef-
enda i Evrópu. Einnig verður grein úr
blaöi sem gefið er út i Hong Kong, þar
sem fjallað verður um starfsemi rúss-
nesku leyniþjónustunnar K.G.B., sem er
ekki talin hafa hreint mjöl i pokahorn-
inu, frekar en bandariska leyniþjónust-
an CIA. Er þar m.a. talað um stærð
KGB, sem er alveg ótrúleg, og er talið
að fjöldi starfsmanna hennar sé i kring
um hálf milljón og gætu þvi allir íslend-
ingar verið leynilögreglumenn þess
vegna.
Einnig verða teknar hugleiðingar
bandariska blaösins Bisness Week, um
bók Peter Druckers, sem er um stjórn-
un. Að lokum verður fjallað um skýrslu
frá Sameinuðu þjóðunum, sem er um
streitu.
Vítt og breitt um landhelgina
SJónvarp
Vivarp
ÞRIÐJUDAGUR
14. október
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustu-
gr. dagsbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55. Morgun-
stund barnanna kl. 8.45: Björg
Amadóttir les söguna „Bessi”
eftir Dorothy Canfield I þýð-
ingu Silju Aðalsteinsdóttur (8).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Morgunpopp kl.
10.25. Hljómplötusafnið kl.
11.00: Endurtekinn þáttur
Gunnars Guðmundss.
12.00 Dagskráin. Tónleikar, Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfegnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 t léttum dúr. Jón B. Gunn-
laugsson sér um þátt með
blönduðu efni.
14.30 Miðdegissagan: „A fullri
ferð” eftir Oscar Clausen.Þor-
steinn Matthiasson les (2).
15.00 Miðdegistónleikar: tslensk
tónlist. a. „Hveralitir” eftir
Gunnar Reyni Sveinsson. Hall-
dór Haraldsson leikur á pianó.
b. Lög eftir Skúla Halldórsson.
Svala Nielsen syngur, höfundur
leikur á pianó. c. „Mors et
vita”, kvartett op. 21 eftir Jón
Leifs. Kvartett Tónlistarskól-
ans i Reykjavik. d. Lög eftir
Knút R. Magnússon. Jón Sigur-
björnsson syngur, Ragnar
Björnsson leikur á pianó. e.
Sinfónietta fyrir blásara, pianó
og ásláttarhljóðfæri eftir Her-
bert H. Agústsson. Sinfóniu-
hljómsveit íslands leikur, Páll
P. Pálsson stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tónleik-
ar.
16.40 Litli barnatiminn. Finnborg
Scheving fóstra sér um timann.
17.00 Tónleikar.
17.30 Sagan: „Drengur, sem lét
ekki bugast” eftir James Kin-
ross. Baldur Pálmason þýddi.
Hjalti Rögnvaldsson les siðari
hluta sögunnar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þáttur úr sögu borgaskipu-
lags.LIney Skúladóttir arkitekt
flytur fyrra erindi sitt.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.00 Úr erlendum blöðum. Ólaf-
ur Sigurðsson fréttamaður tek-
ur saman þáttinn.
21.25 Strengjakvartett i g-moll
op. 27 eftir Edvard Grieg.
Hindar-kvartettinn leikur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Kjarval” eftir Thor Vil-
hjálmsson. Höfundur byrjar
lestur bókar sinnar.
22.35 Harmonikulög. Sone Bang-
er leikur með hljómsveit Sölve
Strand.
23.00 A hljóðbergi.Elaine May og
Mike Nichols flytja „Mysteri-
oso” og aðra gamanþætti við
pianóleik Marty Rubenstein.
23.35 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Sjónvarp i kvöld
klukkan 20:35
Vangaveltur og umræður
um landhelgismálið verða á
dagskrá sjónvarpsins i kvöld
klukkan 20:35. Umsjónar-
maður þáttarins er Eiður
Guðnason. Gestir þáttarins
eru: Matthias Bjarnason,
sjávarútvegsmálaráðherra,
Einar Ágústsson, utanrikis-
málaráðherra, Benedikt
Gröndal, alþingismaður,
Karvel Pálmason, alþingis-
maður og Lúðvik Jósepsson,
alþingismaður og fyrrver-
andi sjávarútvegsmálaráð-
herra.
í þættinum verður rætt vitt
og breitt um útfærsluna, og
einnig um afstöðu gestanna
til saminga i sambandi við
útfærslu landhelginnar.
SJónvarp
20.00 Fréttir og veður
i 20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 200 milurnar Umræður um
landhelgismálin.
Umsjónarmaður Eiður
Guðnason.
21.10 Svona er ástin. Bandarisk
gamanmyndasyrpa. Þýðandi
' Jón O. Edwald.
22.00 Kúbudeilan — seinni hluti.
Bandarisk, leikin heimilda-
mynd. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
23.15 Dagskrárlok.
i
\ £ A
Islendingar þeir einu sem unnu A-Þjóðverja
Fjórir leikir i Evrópukeppni
landsliða voru leiknir um helgina.
í 8. riðlinum gerðu V-Þýzka-
land og Grikkland jafntefli i
Dusseldorf 1:1. Mark Þjóðverj-
anna gerði Heynckes — Borussia
Mönchengladbach —á 68. minútu
en tiu minútum siðar jöfnuðu
Grikkirnir. Þessi úrslit hljóta að
vera nokkur vonbrigði fyrir
heimsmeistarana en sanna aftur
á móti að Grikkirnir eru að verða
sterkir i alþjóðaknattspyrnunni.
Staðan i 8. riðli eftir leikinn er
þessi:
Grikkland 6 2 3 1 12:9 7
V-Þýzkaland 4 1 3 0 5:4 5
Búlgarfa 4 1 2 1 10:6 4
Malta 4 1 0 3 2:10 2
I 4. riðli sigraði Spánn Dan-
mörku 2:0 I Barcelona, eftir að
staðan i hálfleik hafði verið 1:0.
Spánn var aldrei i vandræðum
með Danina og var sigur þeirra
sizt of stór. Mörk Spánar i leikn-
um gerðu Pierre og Capon. Stað-
an I riðlinum eftir þennan leik er
þvi þessi:
Spánn 5 3 2 0 8:4 8
Rúmenia 4 1 3 0 8:3 5
Skotland 4 1 2 1 4:4 4
Danmörk 5 0 1 4 2:11 1
Sovétrikin unnu Sviss i 6. riðlin-
um 1:0. Leikurinn fór fram i Ziir-
ich I Sviss. Vladimir Muntyan
gerði mark Rússanna á 77. min-
útu. Svisslendingarnir voru frek-
ar öheppnir að tapa þessum leik
og áttu mörg gullin tækifæri til
þess að skora.
Staða i riðlinum eftir þennan
leik er þessi:
ÍS sterk-
astir í
blakinu
Hraðmót Blaksambands
Islands var haldið um helgina I
iþróttahúsi Kennaraháskóla
Islands. Leikið var 2x10 minútur
og odda hryna leikin ef bæði liðin
höfðu unnið hvortsina hrynuna. A
laugardaginn varleikið i tveimur
riðlum og komust tvö lið i úrslit úr
hvorum riðli, Þróttur - 1S.
Vikingur og Menntaskólinn að
Laugarvatni komust i úrslitin
nokkuð örugglega en þau voru
leikin á sunnudaginn. Fyrst léku
Þróttur og Vikingur og sigruðu
Vikingar 2:1. Siðan léku IS og
Menntaskólinn að Laugarvatni og
vann IS 2:0. Siðan léku IS og
Þróttur og unnu stúdentarnir 2:1
Næst léku ML og Vikingur
og sigruðu Vikingar 2:1.
Siðan sigraði Þróttur ML 2:1.
Úrslitaleikurinn var siðan á milli
IS og Vikinga og sigruðu stúdent-
arnir i leiknum, og urðu þar með
Hraðmeistarar Blaksambands
tslands. Komu úrslitin fáum á
óvart enda voru stúdentarnir
greinilega með bezt skipulagða
liðið. Lokastaðan i mótinu var
þessi: IS 6 stig, Vikingur 4 stig,
Þróttur 2 stig og ML ML ekkert
stig.
1 kvennaflokki tóku aðeins tvö
lið þátt i keppninni,Vikingur og
Þróttur, og sigruðu þær fyrr-
nefndu örugglega. Að lokum
afhenti dr. Ingimar Jónsson for-
maður Blaksambands Islands
sigurvegurum bikar. ÍS sá um
framkvæmd mótsins og fórst það
vel úr hendi.
Sovétrikin 4 3 0 1 6:4 6
írland 5 2 1 2 7:5 5
Tyrkland 4 1 2 0 4:6 4
Sviss 5 1 1 3 4:6 3
1 7. riðli — þeim sama og ís-
lendingar eru i — vann A-Þýzka-
land Frakkland 2:11 Leipzig. Eft-
ir að staðan var 0:0 i hálfleik,
tóku Frakkar forystuna — mjög á
móti gangi leiksins—-með marki
Batheney i byrjun þess siðari.
Streich jafnaði skömmu siðar og
12minútum fyrir leikslok skoraði
Vogel úr vitaspyrnu fyrir heima-
liðið.
Eftir sigur A-Þjóðverjanna i
þessum leik er Belgia svo gott
sem komið i úrslit þar eð Frakk-
land þarf að vinna Belgíu með
minnst þriggja marka mun til
þess að A-Þýzkaland eigi mögu-
leika á að komast i 8-liða úrslit
Evrópukeppni landsliða. Staðan i
riðlinum eftirleikinn er þvi þessi:
Belgia 5 3 1 1 6:3 7
A-Þýzkaland 6 2 3 1 8:7 7
Frakkland 5 1 2 2 7:6 4
tsland 6 1 2 3 8:4 4
Island var þvi eina liðið i riðlin-
um til þess að vinna A-Þýzkaland.
Gary Player
vann í
Frakklandi
Gary Player frá Suður-Afriku sigraði i Lancome golfkeppninni sem
haldin var i St. NonrLabreteche i Frakklandi og lauk um helgina. Hann
fór hringina fjóra á 278 höggum sem eru 10 undir pari á þessum velli.
Annar var Lanny Watkins U.S.A. á 284 höggum, þriðji Spánverjinn
Severiano Ballesteros á 286 höggum og Tony Jacklin varð fjórði á 287
höggum. Ilann var efstur eftir fyrri helminginn en gekk ekki sem bezt á
siðasta hringnum og varð þvi að láta sér nægja 4. sæti. Player fékk
8.500 sterlingspund i verðlaun. Watkins 4.500 og Ballesteros 2.500 pund.
Aðrir lilutu minni upphæðir.
FH - Meistarar meistaranna
Bikarmeistarar FH tóku Is-
landsmeistara og nýkrýnda
Reykjavikurmeistara Vikings i
kennslustund i meistarakeppni
HSI, i iþróttahúsinu i Hafnarfirði
á laugardaginn. Strax frá byrjun
leiksins höfðu FH-ingar yfirburði
og lokatölur leiksins urðu 31—24
FH i vil. Þessi 7 marka sigur FH-
inga var sizt of stór eftir gangi
leiksins og er örugglega langt sið-
an Vikingar hafa tapað með 7
mörkum fyrir innlendu liði, hvað
þá að fá á sig 31 mark.
FH-ingar tóku leikinn strax i
sinar hendur og með hröðum og
beittum sóknarleik og baráttu i
vörninni náðu þéir á 20 minútum 7
marka forystu 14—7. Vikingsliðið
var á þessu timabili ráðvillt og
bitlaust i sinum sóknarleik, auk
þess sem markvarzlan og vörnin
var sem gatasigti. Vikingar náðu
þó að rétta hlut sinn nokkuð á sið-
ustu minútum fyrri hálfleiks,
þegar FH-ingar féllu i þá gryfju
að slaka á með 7 mörk i forskot. I
hálfleik var staðan þvi 15—11.
Seinni hálfleik byrjuðu Vik-
ingar með miklum látum og virt-
ust ætla að kafsigla FH-inga og
eftir nokkurra minútna leik var
munurinn aðeins 1 mark FH i vil,
16—15. Þá virtist sem FH-ingar
vöknuðu af værum blundi. Þeir
þéttu vörnina og keyrðu upp
hraðann, og við það réðu Vikingar
ekki og FH-ingar náðu á ný ör-
uggri forystu. Var þá ekki spurn-
ing um það hverjir ynnu leikinn,
heldur hve stór sigur FH-inga
yrði. Seinustu 10 minútur leiksins,
þegar úrslit leiksins voru raun-
verulega ráðin, þá leystist leik-
urinn upp i hreina leikleysu. Bolt-
inn gekk mótherja á milli og
hending var ef sóknir liðanna
stóðu lengur en eina minútu. Mik-
ið var skorað af mörkum á þess-
um minútum, svo að háar voru
þær tölurnar á markatöflunni i
leikslok, eða 31—24.
Ekki stóðu þeir Vikingar undir
þvi sem um þá hefur verið sagt i
fjölmiðlum að undanförnu, þar
sem þeim hefur verið hælt á hvert
reipi. Virðist sem þreyta sé kom-
in i liðið, þvi að leikmenn liðsins
virkuðu þungir og svifaseinir, auk
þess sem þeir sýndu leiknum lit-
inn áhuga. Ekki er það góðs viti
að lið séu haldin leikleiða i byrjun
keppnistimabils, en Islandsmótið
byrjar á miðvikudag.
Litið hefur sézt til FH-inga i
haust, en margir höfðu spáð lið-
inuerfiðu keppnistimabili i vetur,
þar sem þeir bræður Gunnar og
Ólafur Einarssynir höfðu horfið
af landi brott. 1 leiknum á laugar-
dag sýndu FH-ingar hins vegar
þannig takta, að ekki er að efa að
þeir verða i baráttunni á toppnum
eins og áður. Vörn liðsins var á
köflum nokkuð sterk og sóknar-
leikurinn þá um leið beittur og
ógnandi. Hins vegar komu kaflar
i leik liðsins, þar sem liðið féll
niður á sama meðalmennsku-
planið og Vikingar. Bezti maður
liðsins var Viðar Simonarson. Þá
var Guðmundur Sveinsson Fram-
arinn fyrrverandi mjög ógnandi i
fyrri hálfleik og er auðséð að
hann kemur til með að styrkja
liðið verulega. Geir Hallsteinsson
hafði sig litið i frammi i leiknum
Framhald á bls. 8.
Svertinginn Curtis sést hér skora tvö af 26
stigum sinum i leiknum gegn Val á sunnu-
dagskvöldiö.
r_ r
IR og Armann taplaus
Fjórir leikir voru haldnir i
Reykjavikurmótinu I Körfuknatt-
leik um helgina i iþróttahúsi
Kennarháskóla Islands. A
laugardaginn léku IR og IS og
Fram og Valur. IR vann stúdent-
ana með yfirburðum 82-53 og
Fram vann Val e^-e^. lR sýndi á
köflum stórgóðan körfuknattleik
og er það mál manna að þeir og
Arm enningarnir verði með beztu
liðin i vetur en KR-ingar verða
einnig erfiðir með svertingjann
Curtiss f broddi fylkingar. Fram
hafði nær ávallt forystuna gegn
Val og var sigur þeirra aldrei i
hættu þótt þeir sigruðu aðeins
með 5 stiga mun.
A sunnudaginn léku Armann og
Fram og vann Ármann örugglega
80-40. Ármenningar höfðu ölltök á
leiknum og áttu hinir ungu
Framarar aldrei mögu
leika gegn hinum leikreyndu
leikmönnum Armanns. Siðan
léku KR og Valur og var sá leikur
lengi vel mjög jafn þótt svo að
KR væru nær ávallt yfir i
leiknum. Nýi leikmaöurinn hjá
KR — svertinginn Curtiss — lék
þarna sinn fyrsta leik. Hann átti
þokkalegan leik en var gætt mjög
vel i leiknum en skoraði samt 26
stig i leiknum, og hirti fjöldann
allan af fráköstum. Við hina
Framhald á 8
angarnrir
HA$-t>U BíCKÍ
'AHVófijuR OÍHu/
Uj-Q híÁUK) fStV -
^ORÍ/V/V/' AF /Vfep -
Jhíu ‘a
JR.Ú-ÐU ^
Einn af hinum mörgu Akureyringum i liði stúdenta, Sigfús Haraldsson
rcynir hér „smash” á móti ML I Hraðmóti Blaksambandsins um helg-
ina.
DRAWN BY OENNIS COLLINS WRITTEN BY MAURICE DODD
/ S3ÆÞU &H>
'FRÁ t&SSu
ef Jotfr
CZZl
/ ... t/í-e
/sAhacJ uHi'
Hu&surf, PJf
SKAL7 E KK'
< 6EAA *A4
m9S
I'IíisIjis lif
PLASTPOKAVERKSMiOJA
Símar 82439-82455
Vafnagörbum 4
Box 4044 - R«yk|avlk
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnarfjarðar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
’Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
ónnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsun
Hreinsum gólfteppi og húsgögn i
hcimahúsum og fjrirtækjum.
Érum mcft nýjar vélar. Góö þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
Útvarps.og
sjónvarpsviðgerðir
Nylon-húðun
Kvöld og heig-
arþjónusta.
10% afstáttur til
öryrkja og aldr-
Húðun á malmum með
RILSAN-NYL0N II
abra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 26 —
slmi 11740.
Nælonhúðun h.f.
Vesturvör 26
Kópavogi — sími 43070
// Kasettuiönaöur og áspilun, \\ Dúnn
| ( fyrir útgefendur hljómsvcitir, | l l kóra og fl. Leitiö tilboöa. )l i GlflEIIBflE
\\ Mifa-tónbönd Akureyri // \\lPósth. 631. Slml (96)22136 /ími 84900
T-þe TTILISTINN
T-LISTINN ER
inngreyptur og
þolir alla veðráttu.
T-LISTINN A:
úlihuröir svalahurðir
hjaraglugga og
vcltiglugga
CtugonsmtOlan
T
JA-
- Simi 38.-20