Alþýðublaðið - 14.10.1975, Blaðsíða 9
ENSKI BOLTINN
i
X T
P'
3fc
■4z,
A
Liverpool bankar upp
á hjá toppliðunuin
Efstu liðin i 1. deildinni á Eng-
landi unnu öll leiki sina á
laugardaginn, en ekki voru
sigrar þeirra fyrirhafnarlitlir.
Q.P.R. sigraði Everton stórt á
Loftus Road i Lundunum 5:0, en
þau úrslit segja ekki rétt til um
gang leiksins. Eftir að Don
Givens — irski landsliðs-
maðurinn — hafði skorað eftir
aðeins 46 sekúndur átti
Liverpool-liðið tvö gullin
tækifæri til þess að jafna metin,
en Bob Latchford gerði sig
sekan — aldrei þessu vant —
umað brenna af góðum tækifær-
um En það er von að sfikt
sóknarlið eins og Shepard’s
Bush-liðið gefi stundum færi á
sér i vörninni, þvi liðið hefur
sóknarknattspyrnu á dagskrá
hjá sér meir en nokkurt annað
félag, enda eru i framlinu
liðsins allt leiknir og reyndir
knattspyrnusnillingar. Don
Masson, sem þykir nú nokkurn
veginn öruggur i skozka
landsliðið i fyrsta skiptið — en
hann er 29 ára gamall — gerði
annað mark Lundúnaliðsins, og
þannig var staðan i hálfleik.
Sóknarknattspyrnan hélt áfram
á báða bóga i þeim siðari, en
sóknir Q.P.R.-liðsins voru
þyngri og betur útfærðar. Út-
herjinn Dave Thomas — sem
félagið keypti frá Burnley — var
iðinn við að skapa samherjum
sinum tækifæri og um miðjan
seinni hálfleik lét vörn Everton
loks undan og flóðgáttirnar opn-
uðust að nýju. Þá gerði lands-
liðsfy rirliði Englands, Gerry
Francis, tvö mörk og Dave
Thomas eitt áður en dómarinn
flautaði til leiksloka. Þar með er
Q.P.R. orðið efst á markatölu.
Manchester United sótti tvö
dýrmæt stig til Elland Road i
Leeds þegar þeir sigruðu
heimamenn 2:1. Ekki getur
þessi sigur Old Trafford-liðsins
talizt sanngjarn, þvi Leeds var
sterkara liðið i leiknum, einkum
þó i siðari hálfleik. Norður-irski
landsliðsmaðurinn Sammy
Mcllroy skoraði bæði mörk
Manchester i leiknum, sitt i
hvorum hálfleik, en Alan Clark
skoraði mark Leeds rétt fyrir
leikslok. Bæði mörk Manchester
voru skoruð af löngum færum,
og annað var ekki skot heldur
fyrirgjöf sem Steward i marki
Leeds missti aftur fyrir sig.
Paul Madeley áttu báðir stórgóð
tækifæri i siðari hálfleik en mis-
tókst báðum illilega. Það er
staðreynd að Manchester-liðinu
hefur yfirleitt gengið mjög vel
gegn Leeds i Leeds og ekki
breytist það á laugardaginn.
Þar með misstu Leeds-menn af
góðu tækifæri til þess að komast
i eitt af þremur efstu sætum.
West Ham er of gott lið til þess
að tapa tvisvar á heimavelli i
röð, lét sér að kenningu verða
tapið gegn Everton laugar-
daginn þar á undan — og sigraði
nú Newcastle 2:1. Ekki var sig-
urinn þó sannfærandi þvi
„Tyneside” liðið átti ágætis leik
og hefðu alveg eins getað hirt
annað stigið. Ungur nýliði Alan
Curbishley skoraði fljótlega
fyrsta mark leiksins fyrir
Lundúnaliðið og þannig var
staðan i hálfleik. Curbishely lék
þarna sinn fyrsta 1. deildarleik
og skoraði mark sitt með nær
fyrstu spyrnu sinni i leiknum.
Góð byrjun það hjá honum og er
óefað að menn eigi eftir að
heyra meir um þennan unga
leikmann i framtiðinni, en hann
hefur leikið með unglingaliði
Englands. Pat Howard jafnaði
fyrir „Tynsiders” fljótlega i
siðari hálfleik en hetjan frá
siðasta bikarúrslitaleik á
Wembley Allan Tylor skoraði
sigurmark West Ham um miðbik seinni hálfleiks. Þar með eru Lundúnaliðin tvö West Ham og Q.P.R. ásamt Manchester United kominn með tveggja stiga forskot á næstu lið, sem eru Liverpool og Derby með 15 stig. West Ham hefur þó leikið einum leik færra heldur en Q.P.R og Manchester. Úrslit leikja i 1. og 2. deild eru sem hér segir:
1. deild
Arsenal — Coventry 5:0
Aston Villa ^-Tottenham 1:1
Leeds — Manch Utd 1:2
Leicester —Middlesbrough 0:0
Liverpool —Birmingham 3:1
Manch City — Burnley 0:0
Norwich — Derby 0:0
QPR —Everton 5:0
Stoke — Ipswich 0:1
West Ham — Newcastle 2:1
Wolves — Sheff Utd 5:1
2. deild
Balckburn R —WBA 0:0
Blackpool — Portsmouth 0:0
Bristol C —Charlton 4:0
Carlisle —Luton 1:1
Fulham — Notth For. 0:0
Hull — Bristol R 0:0
Notts County — Oxford 0:1
Oldham —York 2:0
Plymouth — Bolton 2:3
Southamton — Chelsea 4:1
Sunderland —Orient 3:1
Arsenal gerði orð knatt-
spyrnugagnrýnenda — sem sagt
höfðu að liðið væri á hraðri
niðurleið — að engu þegar þeir
beinlinis kafsigldu lélegt
Coventry-lið á Highbury i
Lundúnum á laugardaginn. Allt
gekk hjá Lundúna-liðinu og
þegar flautað var til markhlés
sýndi markataflan 4:0 fyrir
heimamenn. Cropley gerði tvö
markanna, Kidd og Ball hin.
Brian Kidd bætti svo þvi fimmta
við, þegar nokkuð var liðið á
siðari hálfleik og sneypa
Coventry-liðsins hefur ekki
verið meiri á þessu keppnis-
timabili. Það furða sig allir og
meira að segja leikmenn
Coventry sjálfir hversu mis-
tækir þeir eru, stundum gengur
allt i haginn en þess á milli
tekst bókstaflega ekkert.
Tottenham Hotspur sótti dýr-
mætt stig til Villa Park i
Birmingham þegar þeir náðu að
jafna 1:0 forystu heimaliðsins
og vera samt einum færri, þvi
Terry Naylor var rekinn af leik-
velli snemma i siðari hálfleik.
John Pratt — miðjumaðurinn
ötuli — jafnaði fyrir Lundúnar-
liðið rétt fyrir leikslok. Þetta
var fjórði jafnteflisleikurinn hjá
Tottenham i röð.
Leicester og Middlesbrough
skildu jöfn á Filbert Strett á
laugardaginn, þar sem ekkert
mark var skorað. Leikurinn var
fremur viðburðasnauður, en
Leicester átti þó ivið meira i
leiknum án þess að knýja fram
sigur.
Liverpool átti i litlum erfið-
leikum með Birmingham á
Anfield Road i Liverpool eins og
búizt var við. Welski landsliðs-
maðurinn John Toschac skoraði
öll mörk liðsins, i 3:1 sigri.
Þetta er annað „hat trick”
Toschak á skömmum tima
en hann gerði einnig þrjú
mörk gegn Hibernian i U.E.F.A.
keppninni um daginn. Liverpool
er nú komið mjög nærri toppn-
um og hafa aukþessleikiðeinum
leik færra heldur en Manchester
United og Q.P.R. Siðan
Birmingham komst upp i 1.
deild 1972 hefur Liverpool ávallt
sigrað þá örugglega. Bob
Hatton skoraði eina mark
gestanna i leiknum.
Manchester City gekk ekki
sem best gegn Burnley á Maine
Road i Manchester, þvi þó þeir
sæktu meiri hlutann af leiknum
tókst þeim aldrei að kljúfa vörn
Burnely-liðsins, sem Keith
Newton-gamli landsliðsbak-
vörðurinn frá Everton —
stjórnaði með miklum
glæsibrag ásamt Colin Waldron.
Leikurinn endaði þannig að ekk-
ert mark var skorað og er það
langt siðan að hin rómaða
framlina Manc. City gerir ekki
mark á heimavelli.
Norwich City sótti meir i fyrri
hálfleik gegn Derby en tókst eigi
að skora. Þá fór markakóngur
1. deildarinnar Ted MacDougall
illa með gott tækifæri aldrei
þessu vant. 1 siðari hálfleik
snerist dæmið svo við. Þá sóttu
meistararnir öllu meira án
þess þó að koma knettinum inn
fyrir marklinuna. Leiknum lauk
þvi með markalausu jafntefli og
geta bæði liðin verið ánægð með
stig út úr þessari baráttu.
Ipswich var heppið að hljóta
bæði stigin út úr viðureigninni
gegn Stoke City á heimavelli
þeirra siðarnefndu, en þeir
máttu þó við þvi að vera heppnir
einu sinni svona til
tilbreytingar. N-irski landsliðs-
maðurinn Brian Hamilton
skoraði eina márk leiksins um
miðjan fyrri hálfleik.
Úlfarnir gersigruðu gjörsam-
lega niðurbrotið Sheffield lið,
sem að sögn enskra iþrótta-
fréttaritara getur varla komið i
veg fyrir fall niður i 2. deild.
Byrjunin var mjög slök hjá
báðum liðumog einkenndist hún
af taugaóstyrk leikmanna. En
þegar John Richards skoraði
fyrsta mark úlfanna þá
breyttist leikur heimamanna til
hins betra og þeir bókstaflega
kafsigldu Sheffield-liðið, og
hefði sigurinn allt eins getað
orðið helmingi stærri. John
Richards og Ken Hibbitt gerðu
tvö mörk hvor og Willie Carr
eitt.Mark Sheffield gerði John
Flynn.
Alex Cropley — til hægri á
myndinni — gerði tvö mörk
fyrir Arscnal á laugardaginn
gcgn Coventry.
Fjögur efstu liðin i 2. deild
léku öll á heimavelli á laugar-
daginn. Sunderland og Bristol
City unnu bæði örugglega.
Fulham náði aðeins jafntefli og
Notts County tapaði óvænt.
Southampton nálgast nú óðfluga
toppinn og er rétt að fylgjast
náið með þeim i framtiðinni.
Staðan i 1. og 2. deild.
QPR 12 6 5 1 21: :8 17
Manch Utd 12 7 3 2 20: : 10 17
West Ham 11 7 3 1 18: : 11 17
Liverpool 11 6 3 2 18 : 10 15
Derby 12 6 3 3 16: : 15 15
Leeds 11 6 2 3 16: : 12 14
Middlesb. 12 5 4 3 12: : 10 14
Manch City 12 5 3 4 18: : 10 13
Everton 11 5 3 3 16: 16 13
Norwich 12 4 4 4 20: 20 12
Stoke 12 5 2 5 13: : 13 12
Aston Villa 12 4 4 4 12: 16 12
Arsenal 11 3 5 3 15: 11 11
Coventry 12 4 3 5 15: 15 11
Ipswich 12 4 3 5 10: 12 11
Newcastle 12 4 2 6 22: 20 10
Burnley 12 2 5 5 14: 20 9
Tottenham 11 1 6 4 14: 17 8
Birmingham 12 3 2 7 17: 22 8
Wolves 12 2 4 6 12: 19 8
Leicester 12 0 8 4 10: 19 8
Sheff.Utd 12 1 1 10 6: 27 3
2. deild
Sunderland 12 8 2 2 20: 9 18
Bristol C 12 7 3 2 25: 13 17
Bolton 11 6 3 2 22: 12 15
Fulham 11 6 3 2 17: 8 15
Notts C 11 6 3 2 11: 9 15
Southamton 10 6 2 2 20: 10 14
Oldham 10 5 3 2 16: Í4 13
Blackpool 11 4 4 3 12: 12 12
Bristol R 10 3 5 2 11: 9 11
Hull 11 4 2 5 8: 10 10
Luton 10 3 3 4 12: 10 9
Chelsea 12 2 5 5 11: 17 9
Charlton 10 3 3 4 8: 16 9
Plymouth 10 3 2 5 10: 13 8
Orient 11 2 4 5 7: 11 8
Oxford 11 3 2 6 11: 18 8
WBA 10 1 6 3 6: 14 8
Blackburn 10 2 3 5 9: 11 7
York 10 2 3 5 10: 13 7
Notth For 10 2 3 5 9 12 7
Carlisle 11 2 3 6 10: 17 7
Portsmouth 10 1 5 4 6: 13 7
Celtic komst upp i efsta sætið i
skozku aðaldeildinni á laugar-
daginn, þegar liðið vann góðan
sigur yfir Aberdeen á útivelli.
Kenny Daglish og Dixie Deans
gerðu mörk Celtic. Rangers
tapaði óvænt fyrir Ayr United
3:0 og við það skauzt Celtic upp i
1. sæti. Annars er staðan
þannig i skozku aðaldeildinni.
Celtic 7 5 1 1 15- 7 11
Rangers 7 4 2 1 6- 5 10
Hibernian 7 3 2 2 9- 7 8
Ayr 7 3 1 3 10- 9 7
DundeeUtd. 7 3 1 3 9- 8 7
Motherwell 7 15 1 9-9 7-
Hearts 7 2 2 3 8-11 6
Dundee 7 2 2 3 11-15 6
Aberdeen 7 12 4 11-14 4
St. Johnstone 7 2 0 5 9-14 4
Reykjanesmótið
í handknattleik
Fjórir leikir i Reykjanesmótinu
i handknattleik voru leiknir i
tþróttahúsinu i Hafnarfirði á
sunnudaginn.
FH vann Viði 44:18, Afturelding
vann Breiðablik 27—19, Haukar
unnu Keflvikingana 31—16 og
Akranes vann Stjörnuna 18—12.
FH-ingar eru nú efstir i riðlinum
sem þeir eru i með 4 stig, en þeir
eru i riðli með Viði, Aftureldingu,
Breiðabliki og Gróttu. Haukar
eru efstir i hinum riðlinum með 4
stig en hin liðin eru Keflvikingar,
Akranes, Stjarnan og HR.
Það er litil reisn yfir Reykja-
nesmótinu að þessu sinni og fáir
áhorfendur 'láta þar sjá sig.
Astæðan fyrir þvi, er einfaldlega
sú að of mikill munur er á 1.
deildarliðunum FH, Gróttu og
Haukum og svo aftur 2. og 3.
deildarliðunum, eins og úrslit
leikja bera greinilega með sér.
Æfingin sem t.d. 1. deildarliðin fá
út úr þessu móti er minni en eng-
in, þvi að leikmenn eiga erfitt
með að halda áhuga sinum á
leiknum þegar lokatölur eru t.d.
44—18.
Nauösynlegt er að breyta riðla-
skiptingunni, þannig að tveir riðl-
ar séu skipaðir, og séu sterkari
liðin i öðrum og þau veikari i hin-
um. Með þannig fyrirkomulagi
væri öruggt að jafningjar mætt-
ust, en ekki handboltamenn á
mjög svo mismunandi getustigi.
Japan vann
Kína í frjálsum
Japanir sigruðu Kinverja nokk-
uð örugglega i frjálsum iþróttum
ITokyo um helgina. Japanir hlutu
116,5 stig en Kinverjar 81.5. Þótt
þessi stórveldi ættust við náðist
ekki góður árangur ihinum ýmsu
greinum og var það aðeins i einni
grein sem Olympiulágmark náð-
ist, en það var i stangarstökki. í
þvi stökk Itsuo Takanezawa 5.31
metra og setti um leið nýtt jap-
anskt met. Gamla metið var 5.20.
Vel gekk hjá
íslendingunum
f Belgíu
Úrslit i belgisku deildarkeppn-
inni á laugardaginn voru mjög
hagstæð Islendingunum Asgeiri
og Guðgeiri, þvi bæði lið þeirra
unnu 3:0 á útivelli. Báðir skoruðu
þeir mark og áttu mjög góðan
leik. Annars urðu úrslit leikja i
Belgiu þessi:
Anderlecht-Ostendi 1:0
La Louviere-Malinois 4:4
Racing Malines-St. Lieges 0:3
Liegeois-Molenbeek 1:2
Lierse-Beringen 5:1
Beveren-Brugeios 2:0
Brugge-Lokeren 2:0
Waregem-Antwerpen 0:0
Berchem-Charleroi 0:3
M/S Esja
fer frá Reykjavik föstu-
daginn 17. þ.m. austur
um land í hringferð.
Vörumóttaka: miðviku-
dag og fimmtudag til
Austfjarðahafna, Þórs-
hafnar, Raufarhaf nar,
Húsavíkur og Akur-
eyrar.
AAánudagur 13. október 1975.
Alþýðublaðið